Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Síða 21
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
21
U.-. „
OiiLiilJiiU.
íþróttir íþróttir íþróttir
Lakers áfram
-Pétur og félagar unnu Dallas Mavericks, 130-116
„Þetta hefur gengið mjög vel hjá
okkur og ég er bjartsýnn á að við
komumst í úrslitaleikinn og þá vænt-
anlega við Boston,“ sagði Pétur
Guðmundsson körfuknattleiksmað-
ur í samtali við DV í gær. Lakers
unnu þriðja leikinn gegn San Antonio
Spurs á föstudag og þá skoraði Pétur
8 stig og náði 4 fráköstum. Pétur lék
í 19 mínútur.
í gærkvöldi léku Pétur og félagar í
2. umferð úrslitanna en mótherjar
Lakers eru Dallas Mavericks. Lakers
sigraði 130-116 og lék Pétur í 6 mínút-
ur og skoraöi tvö stig og hirti tvö
fráköst. Jabbar skoraði 28 stig fyrir
Lakers og Bayron Scott 24. Það lið
sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í undan-
úrslitin og þá mjög líklega gegn
Houston Rockets sem nú leika gegn
Denver Nuggets og vann Houston
fyrsta leikinn, 126-114. Á austur-
ströndinni vann Boston Celtics lið
Atlanta Hawks i fyrsta leik 2. um-
ferðar með 103 stigum gegn 91. Þá
vann Filadclfia 76ers loks sigur á
Wahsington Bullets í 5. leik liðanna
í fyrstu uraferð og 76ers fer áfram 3-2
og mætir Milwaukee Bucks í 8-liða
úirslitunum. Þess má geta að það
sem af er úrslitakeppninni hefur Pét-
ur skoraö að meðaltali 8 stig í leik
og hirt 4 fráköst.
-SK
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Einar Bollason
ráðinn til ÍR
- og mun þjálfa körfuknattteikslið félagsins næsta vetur
„Ég er mjög ánægður með að
vera kominn til starfa hjá ÍR. Ég
hlakka til að takast á við hlutina
og ég véit að hjá ÍR er mjög mikið
til af ungum og efnilegum leik-
mönnum,“ sagði Einar Bollason,
iandsliðsþjálfari í körfuknattleik,
en um helgina var hann ráðinn
þjálfari körfuknattleiksliðs ÍR cn
1R mun að öllum líkindum leika í
1. deild næsta vetur nema til komi
breytt fyrirkomulag íslandsmóts-
ins.
„Og nú verður ekkert gefið eftir.
Fyrsta æfingin hjá ÍR undir minni
stjórn verður á morgun og við
munum æfa í svona vikutíma. Síð-
an verður hvilt til 15. ágúst og þá
byrjum við aftur,“ sagði Einar
Bollason. Hann hefur sem kunnugt
er þjálfað Uð Hauka undanfarin ár
með góðum árangri. Mörg félög
voru á eftir Einari og vitað var að
Valur og KR höfðu mikinn áhuga á
að ráða Einar til sín.
„Við erum mjög ánægðir með að
hafa náð i Einar. Þetta var það
langbesta sem við gátum gert i
stöðunni og i raun er þetta hvalreki
á fjörur félagsins að minu mati,“
sagði Kristinn Jörundsson hjá
stjórn körfuknattleiksdeildar ÍR i
gærkvöldi.
-SK
• Einar BoIIason, þjálfarí ÍR.
Einar skipU
yfir í ÍBK
Einar Ásbjörn Ólafsson knatt-
spyrnumaður, sem lék með Víði í
Garði í 1. deildinni síðasta sumar,
hefur gengið frá félagaskiptum yfir í
sitt gamla félag, ÍBK, og flest bendir
til þess að hann muni leika með liðinu
i sumar.
„Það er ekki alveg 100% öruggt
en ég á von á því að þetta muni skýr-
ast að fullu á næstu dögurn," sagði
Einar Ásbjöm en hann hefúr dvalið
í Danmörku í vetur ásamt félaga sín-
um Gísla Eyjólfssyni.
Þeir félagar munu báðir vera við
vinnu í Kaupmannahöfn en Gísli
mun ætla að dveljast lengur í Dan-
mörku og því ekki líklegur heim í
bráð. -fros
Enn sigrar
• Per Skárup sést hér skrifa undir samninginn við Fram í gær. uv-myna orynjar vjrauu. ■ » _
Skárup skrifaði undir Vestemn
DV-mynd Brynjar Gauti.
Daninn Per Skárup skrifaði í gær
undir samning við handknattleiks-
deild Fram um þjálfun félagsins
næsta vetur. Auk þess að þjálfa liðið
mun Skárup leika með því en hann
er einn af leikreyndari leikmönnum
danska landsliðsins þó að hann hafi
ekki leikið neitt með því siðustu tvö
árin vegna deilna við Leif Mikkelsen,
þjálfara liðsins.
Skárup kemur frá Gladsaxe þar
sem hann hefur leikið allan sinn fer-
il. Hann er 29 ára og yfir tveir metrar
á hæð. Ekki er að efa að tilkoma
hans kemur til með að styrkja Fram-
liðið mjög mikið á næsta keppnis-
tímabili.
-fros
- kastaði kringlunni 61,78 metra
Sigurður skor-
aði gott mark!
- þegar Luzem gerði jafntefli við St. Gallen. Guð-
mundi boðinn nýr samningur
Luzem er nú í fimmta sæti deildar-
innar. Liðið hefur hlotið 28 stig þegar
„Það eina sem við getum vonast
eftir nú er sæti í UEFA keppninni.
Til þess þurfum við að ná þriðja sæt-
inu vegna þess að liðin sem leika í
bikarúrslitum, Sion og Servette, eru
bæði fyrir neðan okkur á töflunni.
Við höfum verið óheppnir að undan-
fömu og titlavon okkar hefur horfið
eftir áramtót. Leikjaprógramm okk-
ar hefur verið erfitt og við höfum
tapað átta stigum úr síðustu átta
leikjum,“ sagði Sigurður Grétarsson
eftir að lið hans, Luzem, hafði gert
jafntefii við St. Gallen á útivelli í
svissnesku 1. deildinni um helgina,
2-2.
Þeir Sigurour og Ómar Torfason
léku báðir með Luzern og áttu ágæt-
an leik. Sigurður skoraði fyrra mark
liðsins á 20. mínútu og jafnaði þá
leikinn 1-1. Hann fékk þá boltann
rétt utan vítateigs og lék inn í teig-
inn þar sem hann skoraði með föstu
skoti.
sjö umferðum er ólokið. Young boys
er nú í efsta sæti deildarinnar með
34 stig.
Guðmundi boðinn samningur
Guðmundur Þorbjörnsson mátti
þola enn eitt tapið með liði sínu
Baden er það lék gegn Ule Stielke
og félögum hjá Neuchatel Xanax.
Orslitin urðu 0-2 en lið Baden er
fyrir löngu fallið. Þrátt fyrir mjög
dapra frammistöðu Baden á keppnis-
tímabilinu eru forráðamenn félags-
ins mjög ánægðir með Guðmund og
hafa munnlega boðið honum nýjan
samning. Guðmundur hefur ekki enn
gert það upp við sig hvort hann
muni leika með liðinu i 2. deildinni
á næsta keppnistímabili.
-fros
Frá Ólafi Guðgeirssyni, fréttaritara
DV í Bandaríkjunum:
Vésteinn Hafsteinsson sigraði um
helgina í kringlukasti á sterku há-
skólamóti í Iowa í Bandaríkjunum.
Vésteinn kastaði 61,78 metra. Eggert
Bogason kastaði einnig kringlunni á
sama móti og hafnaði í fiórða sæti
með 57,14 metra sem er nálægt hans
besta árangri.
íris Grönfeldt sigraði í spjótkasti
kvenna er hún kastaði 52,48 metra.
-fros
Siggi Sveins
skoraði 12 möik
Bjami hélt
' hreinu
I Bjami Sigurösson hélt marki _
IBrann hrcinu i fyrsta leik liðsins I
í norsku 2. deildinni í knatt- ■
Ispyrnu. Liðið lék þá gegn Mjökln- I
er á heimavclli og sigraði, 2-0. I
ISœvar Jónsson lék sem miðvörð- ■
ur með Brann og átti góðan leik. |
Pétur Arnþórsson lék með Viking -
Ifrá Stavanger í 1. deildinni gegn I
Rosenburg er liðin mættust í Stnvan- *
Iger. Pétur komst ágætlega frá leikn- I
um sem varð markalaus. I
. -fros r
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara
DV í Vestur-Þýskalandi:
Sigurður Sveinsson virðist óðum
vera að finna sitt gamla form sem
hann var í þegar hann tryggði sér
markakóngstitilinn í þýska hand-
boltanum í fyrra. Hann átti stórleik
og skoraði 12 mörk, þar af þrjú úr
vítum, þegar Lemgo sigraði Dort-
mund, 20:15, um helgina. Lemgo var
undir, 15:14, þegar skammt var til
leiksloka en skoraði síðan sex síð-
ustu mörkin. Þrátt fyrir þennan
sigur er Lemgo enn í fallhættu en
meðan Siggi er í þessum ham ætti
liðið ekki að þurfa að óttast fall.
Dankersen tapaði fyrir Hoffweier,
30:19, og skoraði Páll Ólafsson 3
mörk. Dankersen tapaði leiknum
fyrst og fremst á hraðaupphlaupum
en Dankersen var undir, 17:9, í hálf-
leik.
Gúnsburg tapaði fyrir Göppingen,
26:28, en Kiel vann Weiche Handew-
itt, 27:21. Þá vann Dússeldorf Berlín,
29:26. -SMJ
Örnggt
hjá Fram
- gegn Þiotti
Einn leikur fór fram í Reykjavíkur-
mótinu i knattspyrnu í gærkvöldi.
Fram vann öruggan sigur á Þrótti,
4-0. Guðmundur Steinsson skoraði
tvö markanna og nafni hans Torfa-
son og Pétur Ormslev sitt markið
hvor. -fros