Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Side 25
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
25^
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Mikil íþróttahátíð í Höllinni. Tískusýning
frá Henson, íþróttafréttamenn glíma við
stjóm HSÍ og klappstýmr koma fram í
fýrsta skipti hériendis
í kvöld verður mikil íþróttahátíð í
Laugardalshöll en hápunktur hennar
verður viðureign danska handknatt-
leiksliðsins Ribe, sem þeir Gunnar
Gunnarsson og Gísli Felix Bjarnason
leika með, og úrvalsliðs sm íþrótta-
fréttamenn hafa valið.
Hátíðin hefst klukkan átta með leik
íþróttafréttamanna og stjórn hand-
knattleikssambands íslands og leika
liðin væntanlega handknattleik.
Dómari verður Bjössi bolla og verður
þetta frumraun hans í dómarahlut-
verkinu. Heyrst hefur að stjórn HSÍ
hafi æft í laumi í yfir þijár vikur fyr-
ir leik þennan þannig að búast má
við að lið stjórnarinnar geti staðið
eitthvað örlítið í liði íþróttafrétta-
manna en frekar er það þó ólíklegt.
• Hápunktur kvöldsins verður síð-
an leikur Ribe og úrvalsliðsins sem
íþróttafréttamenn völdu. Tekið skal
fram að leikmenn Víkings og Stjörn-
unnar komu ekki til greina i liðið
vegna nálægðar úrslitaleiksins í bik-
arkeppninni en hann fer fram á
miðvikudagskvöldið. Úrvalsliðið sem
leikur gegn Ribe í kvöld verður þann-
ig skipað:
Jens Einarsson, Fram
Guðmundur A. Jónsson, Þrótti
Geir Sveinsson, Val
Þorbjörn Jensson, Val
Júlíus Jónasson, Val
Jakob Sigurðsson, Val
Egill Jóhannesson, Fram
Hermann Björnsson, Fram
Dagur Jónasson, Fram
Óskar Ármannsson, FH
Héðinn Gilsson, FH
Á íþróttahátíðinni í Höllinni í
kvöld koma einnig fram klappstýrur
sem æft hafa af kappi undanfarið en
framkoma slíkra fyrirbrigða er ný-
lunda hér á landi. Þá verður tísku-
sýning þar sem sýndur verður
sportfatnaður frá Henson.
Leikur Per Skárup með gegn
Ribe?
Sá möguleiki er fyrir hendi að
danski handknattleiksmaðurinn Per
Skárup, sem nú hefur nýverið skrifað
undir þjálfarasamning hjá Fram,
leiki með úrvalsliðinu gegn Ribe í
kvöld. Skárup lék í áraraðir með
danska landsliðinu en hefur ekki
leikið með danska landsliðinu und-
anfarin tvö ár vegna deilna við Leif
Mikkelsen landsliðsþjálfara. -SK
hélt
Bayem
titlinum er
Werder tapaði í Stuttgart
- Uerdingen í þriðja sæti og Lárns Guðmundsson skoraði tvívegis. Er í liði vikunnar
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara
DV í V-Þýskalandi:
Það má með sanni segja að Bayern
Munchen hafi stolið meistaratitlin-
um frá Werder Bremen. Eftir að hafa
leitt deildina allt keppnistímabilið
tapaði Bremen titlinum til Bayern á
markamun eftir æsispennandi loka-
umferð. Með þessum sigri sínum
hefur Bayern Munchen jafnað met
Núrnberg og unnið vestur-þýska
meistaratitilinn 9 sinnum alls.
Það voru 70 þúsund áhorfendur
mættir á ólympíuleikvanginn í
Munchen til að fylgjast með viður-
eign heimamanna við Gladbach. Þó
að leikmenn Bayern hefðu meiri
áhuga á leik Stuttgart og Bremen
tókst þeim að skora sex mörk gegn
engu marki Gladbach. Eftir aðeins
14 sekúndur skoraði Lothar Matt-
haeus og Hoeness bætti við öðru
marki í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik
skoraði Hoeness annað mark en Ro-
land Wohlfart skoraði tvö mörk og
Mathy eitt og tryggðu þeir þannig
stórsigur Bayern.
Eftir leikinn var hinn frábæri þjálf-
ari Bayern, Uto Lattek, sem þarna
vann sinn sjöunda meistaratitil, í
mikilli sigurvímu: „íþróttalega séð
voru þetta einhverjar mest spenn-
andi mínútur í lífi mínu. Ég sárvor-
kenni Otto Rehhagel, þetta hlýtur
að vera ægilegt áfall, að vera á
toppnum allt árið og tapa síðan á
síðustu mínútu. Kærar þakkir til
Stuttgart, leikmenn þar sýndu að
þeir eru sannir atvinnumenn,“ sagði
Lattek eftir leikinn.
Franz Beckenbauer, landsliðsþjálf-
ari Vestur-Þjóðverja, fylgdist með
leiknum: „Bremen tapaði ekki titlin-
um í dag heldur í síðustu leikjum,
t.d. þegar liðið gerði jafntefli á
heimavelli við Gladbach og Bayern.
Það sýndi sig að leikmenn Bayern
eru með meiri reynslu,“sagði Bec-
kenbauer.
Ásgeir með góðan leik
Bremen byrjaði leikinn við Stutt-
gart með þá Norbert Maier og Frank
Neubarth á bekknum - Rudi Völler
lék með í fyrri hálfleik en átti ekki
góðan dag. Stuttgart skoraði fyrra
mark sitt á 22. mínútu. Ásgeir náði
þá boltanum á miðjum velli og braust
upp að endamörkum. Gaf síðan fyrir
á Júgóslavann Pasic sem lagði bolt-
ann fyrir Allgöwer sem skoraði. Eftir
markið átti Werder meira í leiknum
og Stuttgart bjargaði á marklínu.
Stuttgart var samt sterkari aðilinn
og á 51. mínútu skoraði Allgöwer
sitt annað mark. Hann fékk sendingu
• Dieter Hoeness - tvö mörk gegn
Gladbach.
frá Muller, var alveg frír og skoraði
með góðu skoti af 20 metra færi.
Bremen setti nú allt í sóknina en
tókst ekki að skora fyrr en á 80.
mínútu þegar Burgsmúller náði að
skora með skalla. Síðustu mínúturn-
ar pakkaði Stuttgart í vörn og náði
að halda fengnum hlut. Leikmenn
Werder sátu hins vegar eftir með
sárt ennið en þeir urðu einnig í öðru
sæti 1982 og 1984. Ásgeir og Allgöw-
er voru bestir hjá Stuttgart og fengu
báðir 3 í einkunn.
Otto Rehhagel, þjálfari Werder
Bremen, var að vonum vonsvikinn
eftir leikinn: „Því miður töpuðum
við þessum leik í dag á persónulegum
mistökum leikmanna minna en
Stuttgart átti sigurinn skilinn. Lið
þeirra var betra í dag. Við erum auð-
vitað leiðir og sárir yfir því hvernig
þetta fór. Við áttum í erfiðleikum
vegna meiðsla allt tímabilið. Það
hafði mikið að segja en við stöndum
saman hér hjá Bremen og ætlum að
spila góðan bolta aftur næsta leik-
tímabil," sagði Rehhagel.
Lárus skoraði tvö og er í liði
vikunnar
Lárus Guðmundsson er í miklum
ham þessa dagana. Hann skoraði sig-
urmark Uerdingen gegn Eintracht
Frankfurt á fimmtudagskvöldið og á
laugardaginn skoraði hann tvö mörk
í 5-2 sigri Uerdingen á Dússeldorf.
Fungel skoraði einnig tvö mörk fyrir
Uerdingen. Atli og Lárus léku báðir
með allan tímann og fékk Atli 4 í
einkunn en Lárus 3. Lárus var valinn
í lið vikunnar hjá Welt am Sonntag.
Dortmund leikur um fallsæti
Um önnur úrslit .í lokaumferð vest-
ur-þýsku knattspyrnunnar er það
helst að segja að Leverkusen tryggði
sér sæti í Evrópukeppninni með því
að gera 2-2 jafntefli við Schalke.
Hahnover og Saarbrúcken voru þeg-
ar fallin fyrir síðustu umferðina en
þrátt fyrir 4-1 sigur á Hannover þarf
Borussia Dortmund að leika um
áframhaldandi veru sína í Bundes-
ligunni við lið úr annarri deildinni.
Stefan Kuntz hjá Bochum, sem
hefur verið keyptur til Uerdingen,
varð markahæstur með 22 mörk.
Einu marki meira en Karl Allgöwer
hjá Stuttgart. -SMJ
• Lárus Guðmundsson - skorar nú
í hverjum leik.
Lokastaðan í
inni var þannig.
Bayern
Werder
Uerdingen
Gladbach
Stuttgart
Leverkusen
Hamborg
Mannheim
Bochum
Schalke
Kaiserslautern
Núrnberg
Köln
Dússeldorf
Frankfurt
Dortmund
Saarbrucken
Hannover
vestur-þýsku deild-
34 21 7
34 20 9
34 19 7
34 15 12
34 17 7
34 15 10
34 17 5
34 11 11
34 14 4
34 11 8
34 10 10
34 12 5
34 9
34 11
34 7
34 10
34 6
34 5
6 82-31 49
5 83-41 49
8 63-60 45
7 65-51 42
10 69-45 41
9 63-51 40
12 52-35 39
12 ÍI-4Í 33
16 55-57 32
15 53-58 30
14 49-54 30
17 51-54 29
14 46-59 29
16 54-78 29
13 35-49 28
16 49-65 28
19 39-68 21
21 43-92 18
Suóuriandsbraut 16 Sími 9135200
Gunnar Ásgeirsson hf.
Ribe leikur
gegn úrvali
í kvöld
Lokastaðan í
Bundesligunni