Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Síða 27
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
27
lattleikur unglinga
Einnig voru oft dæmd skref og ruðn-
ingur á okkar menn. Leikmenn ís-
lenska liðsins voru einnig nokkuð
mistækir í sendingum.
í síðari hálfleik hélst þessi munur
en um miðjan síðari hálfleikinn fóru
íslendingar að saxa á forskotið og
náðu að minnka muninn í 2 mörk,
18-16, og íslendingar voru í sókn. En
í þröngu færi varði markvörður Svía
enn. Skömmu síðar voru tveir leik-
menn íslenska liðsins reknir af lei-
kvelli og eftir það voru Svíar einráðir
á vellinum og sigruðu stórt, 27-19.
Bestu leikmenn íslands í þessum leik
voru Konráð Ólafsson, Ólafur Kristj-
ánsson og Hafsteinn Bragason.
I næsta leik var leikið gegn Noregi.
ísland var yfir fram í miðjan síðari
hálfleik og sýndi ágætan'leik. Þá var
3 leikmönnum vísað af leikvelli á að-
eins 30 sekúndum og við það hrundi
leikur liðsins eins og gefur að skilja
og skoruðu Norðmenn næstu 5 mörk.
Sigruðu þeir síðan með 25 mörkum
gegn 23. Þessar brottvísanir urðu til
þess að íslensku strákamir misstu ein-
beitinguna og við það náðu Norðmenn
að jafna og komast tvö mörk yfir.
Hélst sá munur út leikinn. Brott-
rekstramir vom fyrir saklaus brot og
hefði varla verið dæmt aukakast á
athæfið hér heima. Bestu leikmenn
liðsins í þessum leik vom Konráð,
Ólafur, Bjarki Sigurðsson og Haf-
steinn Bragason.
í þriðja leik íslenska liðsins var leik-
ið gegn Grænlendingum. Allt frá
upphafi var um einstefnu að ræða á
mark Grænlendinga og var mikið
skorað úr hraðaupphlaupum. Græn-
lendingar tóku þátt í Norðurlanda-
mótinu í fyrsta skipti og vantar þó enn
getu til að standa í hinum liðunum.
Bestu leikmenn íslenska liðsins vom
Konráð, Ólafur, Hafsteinn, Bjarki og
Halldór Ingólfsson. Markverðimir
vörðu ágætlega enda vom sum sko-
tanna, sem á markið komu, ekki erfið
viðureignar. Gegn Danmörku, sem var
leikur um þriðja sætið, höfðu íslend-
ingar frumkvæðið frá upphafi. í
þessum leik fékk Halldór Ingólfsson
tækifæri til að spreyta sig og nýtti
hann það til fullnustu, skoraði 7 mörk
og reif hina leikmenn liðsins með sér.
Reyndar náðu Danir að jafna, 15-15,
en þá skoraði Stefán Steinsen 2 mikil-
væg mörk og sigur vannst, 21-17.
Halldór Ingólfsson var maður þessa
leiks. Skoraði hann 7 mörk úr 8 til-
raunum og gaf margar fallegar línu-
sendingar. Aðrir sem stóðu sig vel
vom Konráð og Bjarki, en Einar Ein-
arsson og Stefán Steinsen lokuðu
vöminni af snilld. Markverðimir
vörðu ágætlega, Sigtryggur í fyrri
hálfleik og Bergsveinn í þeim si'ðari.
Færeyingar áttu aldrei möguleika
gegn Islendingum í sfðasta leik þjóð-
anna. Mestur varð munurinn 12 mörk
en leikurinn endaði 29-19 eftir að stað-
an í hálfleik hafði verið 16-6. Flestir
leikmenn íslenska liðsins stóðu sig vel
í þessum leik en nokkurt kæruleysi
varð í leik liðsins í síðari hálfleik.
Fyrir keppnina gerði íslenska liðið
sér vonir um að sigra á mótinu. Það
tókst ekki og má ef til vill rekja það
til þess að nokkrir lykilmenn liðsins
stóðu sig mjög illa. Ennfremur var
dómgæslan nokkuð önnur en menn
em vanir heima. Skref og mðningur
vom dæmd í tíma og ótíma og í vam-
arleiknum vom leikmenn tíndir af
vellinum eins og fiskar úr sjó. Við
þetta misstu leikmenn einbeitingu og
skomðu ekki úr góðum færum.
Konráð Ólafsson úr KR var tví-
mælalaust maður liðsins. Hann
skoraði mörk úr hraðaupphlaupum,
úr homi, af línu og fyrir utan og einn-
ig stóð hann sig vel í vöm - „framtíð-
armaður". Ólafur Kristjánsson, Bjarki
Sigurðsson og Hafeteinn Bragason
stóðu sig einnig vel. Sá leikmaður, sem
mest kom á óvart, var Halldór Ingólfe-
son úr Gróttu. Hann lék ekki tvo
fyrstu leikina en stóð sig vel í leikjun-
um þar á eftir. Skoraði hann mörk úr
öllum skottilraunum sinum utan einni
og gaf margar fallegar línusendingar
sem gáfú mörk.
Markverðimir vom vaxandi í þessu
móti, sýndu aldrei stórkostlega mark-
vörslu en vörðu yfirleitt þau skot sem
þeir áttu að veija. Svíar vom með
besta lið keppninnar að þessu sinni
en lið íslendinga og Norðmanna vom
mjög áþekk.
UIKALL
íslenskar björgunar- og hjálparsveitir eru kallaðar út oft á hverju ári. í flestum tilfellum fær útkallið góðan
endi - okkur berast góðar fréttir.
En reynslan hefur sýnt, að auk þekkingar og reynslu getur réttur búnaður skipt sköpum. Stöðug endurnýjun
þarf að eiga sér stað til þess að góður árangur náist.
Til að afla fjár fyrir starfsemi hjálparsveitanna og til tækjakaupa, efnum við til stórhappdrættis.
í boði verða 135 stórvinningar og 3000 aukavinningar.
Markmið okkar er að hafa til taks harðsnúnar sveitir, hvenær sem hjálparbeiðni berst.
STERKAR HJÁLPARSVEITIR
- STERK.4R LÍKUR Á GÓÐUM FRÉITUM.
135
STÓRVIINNINGAR
»3000» I
HJÁLPARPAKKAR
Á700KR.STYKKIÐ
FORD ESCORT CL 5 GÍRA
SHARP581
MYNDBANDSTÆKI
PFAFF1171
SJÁLFÞRÆÐANDIMEÐ OVERLOCK SPORI
PIONEERSllO
HLIÖMTÆKJASAMSTÆÐUR
A| LANDSSAMBAND
ÍMJ HJÁLPARSVEITA SKÁTA