Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 30
30
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Efstu fimm í fjórum gangtegundum í unglingaflokki, Hörður Á. Haraldsson t.v., Heiðar Eiríks- Efstu knapar í töltkeppni í bamaflokki. F.v. Hjömý Snorradóttir, Róbert Petersen, Gísli Geir Gylfa-
son, Ama Kristjánsdóttir, ívar Þórisson og Bjami Sigurðsson. son, Hákon Pétursson og Þorvaldur Þorvaldsson. DV myndir EJ.
Gömlujaxlamir í verðlaunasætum
* íþróttadeild hestamannafélagsins
Fáks hefur verið mjög virk í vor.Þegar
hafa verið haldin þrjú mót á hennar
vegum og einnig hefur deildin gefið
út blaðið Póstfax sem er blað í léttum
dúr, ætlað að mestu leyti íyrir hest-
húsasvæði Fáks. Um síðustu helgi
hélt íþróttadeildin opið íþróttamót.
Þátttakendur voru fjölmargir frá hin-
um ýmsu félögum á höfuðborgarsvæð-
inu. Margir nýir hestar komu þar fram
en knapamir voru flestir þeir sömu
og vant er. Sigurvegaramir vom ekki
feimnir við verðlaunaafhendingu enda
flestir vanir að taka við verðlaunum.
Forkeppni fór fram að mestu á laugar-
deginum en úrslit á sunnudeginum.
Börn
Endumýjun er ávallt mest í bama-
flokki. Nýir knapar koma fram og
gera garðinn frægan. Bamaflokkur
nær yfir knapa 12 ára og yngri en eft-
ir það færast bömin í unglingaflokk.
Þau atriði sem bömin gera með hesta
sína em örlítið frábmgðin því sem
knapar í öðrum flokkum gera. Til
dæmis verða þau að ríða tvisvar sinn-
um hraðaprógrammið í töltkeppninni.
Ég hélt nú satt að segja að það væri
erfiðara að eiga við hraðabreytingam-
ar heldur en að láta klárinn gösla á
yfirferðartölti.Mér hefúr sýnst ýmsir
fullorðnir eiga fullt í fangi með hraða-
breytingamar þannig að það kemur
spánskt fyrir sjónir að bömin skuli
þurfa að eiga við þær tvisvar sinnum.
Að þessu sinni sigraði í töltkeppninni
Hjörný Snorradóttir á Kasmír. Róbert
Petersen varð annar á Þorra, Gísli
Geir Gylfason þriðji á Skáta, Hákon
Pétursson fjórði á Tvisti og Þorvaldur
Þorvaldsson fimmti á Flugu. í fjómm
gangtegundum í bamaflokki sigraði
Hákon Pétursson á Tvisti, Gísli Geir
Gylfason varð annar á Skáta, Róbert
Petersen þriðji á Þorra, Sigurður
Matthíasson fjórði á Dótlu og Elín
Sveinsdóttir fimmta á Feng. Róbert
Petersen varð stigahæstur knapa í
bamaflokki og hann sigraði einnig í
íslenskri tvíkeppni.
Unglingar
Það em oft glettilega góðir reið-
menn í unglingaflokki. Það hefur
sést á þvi að þegar unglingamir
koma upp í flokk fullorðinna hafa
þeir reynst drjúgir við verðlaunasöfn-
un. í töltkeppni unglinga sigraði
Hörður Á. Haraldsson á Háfi, Heiðar
Eiríksson varð annar á Von, Bjami
Sigurðsson þriðji á Ljósfara, Ásgeir
Ásgeirsson fjórði á Seifi og ívar Þóris-
son fimmti á Gáska. í fjórum gangteg-
undum sigraði Hörður Á. Haraldsson
einnig á Háfi. Heiðar Eiríksson varð
annar á Von, Ama Kristjánsdóttir
þriðja á Gimsteini, ívar Þórisson fjórði
á Gáska og Bjami Sigurðsson fimmti
á Ljósfara. Hörður Á. Haraldsson var
mjög sigursæll í þessum flokki því auk
þess að sigra í töltkeppninni og í fjór-
um gangtegundum varð hann stiga-
hæstur knapa og vann íslenska
tvíkeppni.
Fullorðnir
Tæplega fjömtíu knapar vom skráð-
ir til leiks í töltkeppni fullorðinna og
annað eins í fjórar gangtegundir.
Keppnin gekk vel fyrir sig en nokkuð
erfiðlega gekk að koma keppninni af
stað. Það virðist vera vandamál á
hverju hestamóti. Ætti þó ekki að
þurfa að vera slíkt vandamál sem það
er ef stjómendur væm nógu röggsam-
ir.
Helstu úrslit urðu þau að í hlýðni-
keppninni sigraði Sigurbjöm Bárðar-
son á Gára, Erling Sigurðsson varð
annar á Hannibal, Hanni Heiler þriðja
á Bonnu, Ragnar Petersen fjórði á
Stelk og Gylfi Geirsson fimmti á
Vindli. í fjómm gangtegundum sigraði
Sigurbjöm Bárðarson á Gára, Georg
Kristjánsson varð annar á Herði,
Gunnar Amarson þriðji á Ljósfara,
Orri Snorrason fjórði á Kórali og Sig-
urður Ævarsson fimmti á Yl. Keppnin
í úrslitum í töltkeppninni var æsi-
spennandi. Orri Snorrason kom inn
sem efsti maður með Kóral en varð
fyrir því óláni að tvær skeifui hrutu
af fótum Kórals og varð Orri þá að
hlífa hestinum og lentu þeir í þriðja
sæti. Sigurbjöm Bárðarson vann tölt
keppnina á Gára, Georg Kristjánsson
varð annar á Herði, Orri þriðji, Sig-
urður Ævarsson fjórði á Y1 og Gunnar
Amarson fimmti á Ljósfara. í fimm
gangtegundum blönduðu tvær stúlkur
sér í baráttuna. Tómas Ragnarsson
sigraði á Berki, en Hanni Heiler á
Bonnu og Rúna Einarsdóttir á Þokka
urðu í öðm og þriðja sæti og muna
elstu bændur ekki eftir að konur hafi
orðið jafnframariega í fimm gangteg-
undum. Eriing Sigurðsson varð fjórði
á Þrym og Hreggviður Eyvindsson
fimmti á Sleipni. Erling Sigurðsson
varð stigahæstur knapa og sigraði
hann. einnig í skeiðtvíkeppni. Orri
Snorrason sigraði í íslenskri tví-
keppni.
Mótið fór vel fram að mestu leyti.
Veðrið var gott en stundataflan stóðst
ekki alveg. Yfirleitt byrja mót ekki
fyrr en tuttugu mínútum til hálftima
of seint og þegar keppnisgreinar og
knapar em margir má ekkert út af
bregða. Annars standa mótin yfir fram
á kvöld og áhorfendur nenna ekki að
hanga yfir mótunum. Nú fór keppnin
fram á hinum nýja keppnisvelli Fáks
sem var gerður fyrir fjórðungsmótið
sem haldið var í fyrrasumar. Áhorf-
endur geta setið í bílum sínum og
horft á mótið og er það vel. EJ.
ÚTBOÐ - PRENTUN
Námsgagnastofnun óskar eftir tilboði í prentun og
heftingu æfingabóka í skrift.
Um er að ræða sex hefti, 32 bls. hvert, í 10.000 ein-
taka upplagi og eitt hefti i 5.000 eintaka upplagi,
samtals 65.000 eintök.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 11 f.h. fimmtudaginn 15.
maí nk. á skrifstofu vora að Tjarnargötu 10 í Reykja-
vík, þar sem þau verða þá opnuð.
Útboðsgögn og nánari upplýsingar veitir Bogi Ind-
riðason, deildarstjóri útgáfudeildar.
NÁMSGAGNASTOFNUN
Tjarnargötu 10, Reykjavik. Sími 28088.
AUGLÝSING FRÁ
ÚRELDINGARSJÓÐI
I nýsamþykktum lögum á Alþingi um skiptaverðmæti
og greiðslumiðlun sjávarútvegsins er ákveðið að starf-
semi Úreldingarsjóðs fiskiskipa Ijúki 14. maí 1986.
Stjórn sjóðsins hefur því ákveðið að auglýsa eftir
umsóknum úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 8. maí
1986. Stjórn sjóðsins mun fyrir 14. maí 1986 taka
ákvörðun um styrkveitingar á grundvelli þeirra reglna
sem nú gilda um sjóðinn og þeirra umsókna sem
berast til stjórnar sjóðsins fyrir 8. maí 1986. Það skip
sem hlýtur styrk til úreldingar, skal fyrir 20. júlí 1986
tekið varanlega úr rekstri samkvæmt reglum sjóðsins.
Með umsókn skal fylgja veðbókarvottorð, ársreikning-
ur seinasta árs og yfirlit yfir skuldastöðu.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum skal senda Sam-
ábyrgð íslandá á fiskiskipum, Lágmúla 9,108 Reykja-
vík.
Úreldingarsjóður fiskiskipa.
Tómas Ragnarsson rennir Berki á skeið í fimm gangtegundum.
Orri Snorrason með skeifumar tvær sem hrutu af hófum Kórals sem horfir
sorgmæddur á.
Hjömý Snorradóttir og Kasmír í léttri töltsveiflu.