Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Side 5
DV. LAUGARDAGUR 31.MAÍ 1986. 5 Atvinnumál Atvinnumáf Atvinnumál Atvinnumál Stokkseyringar fylgdu ekki ráðum Danans með „töfratöskuna“: Gardínutappamir hefðu getað orðið kveikjarar Þörungavinnslan: Fjármálaráðu- neytið hafnar tilboði frá heimamönnum „Við höfum gert bústjóra þrotabús- ins grein fyrir því að ijámálaráðuney- tið geti ekki gengið að tilboði heimamanna í rekstur Þörungavinnsl- unnar,“ sagði Sigurður Þórðarson, skrifstofustjóri hjá fjármálaráöuneyt- inu. Félag heimamanria um rekstur Þör- ungavinnslunnar á Reykhólum gerði fjármálaráðuneytinu tilboð þar sem farið er fram á að félag heimamanna fái nýja varahluti og ný tæki til end- umýjunar. Einnig er farið fram á ábyrgð fyrir rekstrarlánum sem yrði endurgreidd síðar á árinu eða um leið og afurðalán berast. í staðinn bjóðast heimamenn til að taka að sér að greiða allt að þrjár milljónir króna í laun til starfsmanna meðan á uppsagnarfresti þeirra stendur. „Fjármálaráðuneytið mun aldrei ganga að þessum atriðum. Hins vegar hefur ráðuneytið fallist á að lána heimamönnum, án endurgjalds, þær eignir sem komu í hlut ríkisábyrgða- sjóðs er búinu var skipt upp,“ sagði Sigurður. „„ Seatinn laus „Við fórum fram á aðstoð herlög- reglu til að fá bílana lausa,“ sagði Agúst Ragnarsson, markaðsstjóri hjá Töggi hf„ en fyrirtækið hefur átt í vandræðum með að fá 50 Seat-Ibisa bíla lausa úr klóm verkfallsmanna í Bilbao á Spáni. Ráðgert var að bílam- ir yrðu fluttir yfir til Bayonne í Suður-Frakklandi um helgina en þar bíður ms. Saga sem á að flytja þá til íslands. Ágúst sagði að verkfallið á Spáni hefði skollið á fyrir fimm vikum. Þetta hefði verið óskaplega flókin deila. Verkfallinu hefði verið aflýst fyrir viku en bílamir ekki fengist afhentir þrátt fyrir það. Loks hefði þó losnað um hnútana og bílunum komið á flutningabíla burt úr vörugeymslun- um í Bilbao. tiu „í raun og vem töpuðum við fé á því að selja Stokkseyringum gard- ínuverksmiðjuna. Með lítils háttar breytingum á vélabúnaði hefði auð- veldlega mátt framleiða kveikjara með þessum vélurn," sagði Knud Gravad, sölumaður hjá danska ráð- gjafarfyrirtækinu Scankey. Eins og kunnugt er af fréttum DV hefur Gravad ferðast um ísland á undan- fömum árum og selt sveitarstjómar- mönnum hugmyndir að nýjum iðnfyrirtækjum með misjöfrium ár- angri. Hefur hann fyrir bragðið gengið undir nafriinu Daninn með „töfratöskuna". Knud Gravad er 41 árs og hefur starfað að iðnráðgjöf í 15 ár víðs vegar um heim. Hann hefur verið í Austurlöndum fjær, Afríku og víða í Evrópu og náð umtalsverðum ár- angri að eigin sögn. „Það má ekki gleyma því að við höfum gert margt gott á íslandi. Mér reiknast til að fyrirtæki þau er við höfum komið á laggimar á íslandi veiti nú á annað hundrað manns at- vinnu. Það sem skiptir íslendinga öllu máli í þessu sambandi er að færa vinnuafl úr fiskiðnaði yfir í aðrar greinar. Þar kemur smáiðnaður til sveita inn í dæmið. ísland hefur ákjósanlega legu með tilliti til mark- aða, miðja vegu milli meginlands Evrópu og Ameríku. Við hér hjá Scankey höfum mikla trú á íslandi.“ - Nógu mikla til að bjóða Siglfírð- ingum hitabeltisrækju? „Ég bauð Siglfirðingum aldrei hitabeltisrækju. Ég varpaði hins vegar fram hugmyndum um hvort unnt væri að nýta jarðvarmann til rækjuræktunar. Það er tóm þvæla í bæjarstjóranum á Siglufirði að ég hafi áður verið búinn að selja þá hugmynd í Guatemala því þangað hef ég aldrei komið." - Ertu eins góður sölumaður og af er látið? „Ég tel mig ekkert betri en gerist og gengur en ég er atvinnumaður á þessu sviði; það er ég,“ sagði Knud Gravad og bætti þvi við að hann væri væntanlegur til landsins í byrj- un júlí. Á Blönduósi bíða menn spenntir eftir verksmiðju sem fram- leiðir gúmmímottur. -EIR Knud Gravad ásamt dóttur sinni: Við höfum trú á íslandi. 1QOARA sk&kimöt í tilefni 100 ára afmælisins efnir Landsbanki íslands til sögulegs skákmóts í afgreiðslusal Aðalbankans í Austurstræti 11 sunnudaginn 1. júní. Þar mætast í 12 manna hraðmóti og keppa um 100 þúsund króna heildarverðlaun fjórir af fremstu skákmönnum íslands á árunum 1955-1960, þeir Friðrik Olafsson, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Pálmeson og Ingvar Ásmundsson; fjórir af efnilegustu skákmönnum íslands í dag, þeir Hannes Hlífar Stefánsson, Þröstur Árnason, Héðinn Steingrímsson og Sigurður Daði Sigfússon; og fjórir af fremstu skákmönnum Landsbankans, þeir Hilmar Viggósson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Sólmundur Kristjánsson og Vilhjálmur Þór Pálsson. Keppendur tefla allir við alla og tímatakmörk eru 10 mínútur á hvorn keppanda í skák. Skákstjóri er Ólafur S. Ásgrímsson. Áhorfendur eru velkomnir í afgreiðslusalinn meðan húsrúm leyfir,skákin hefst klukkan 14.00. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna í 100 ár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.