Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Síða 18
18 DV. LAUGARDAGUR 31.MAÍ 1986. Rokkspildan Rokkspildan Texti: Þorsteinn J. Vilhjálmsson Mynd: Snorri Sturluson Röddin - bergmálar í húsasundum og bráðum víðar. Quarterflash, harden my heart, heyr- ist í íjarlægð. Um leið og Snorri Sturluson yngri opnar útidymar að Bergþórugötu 3 berst tónlistin út í hverfið. Þessi húsakynni eru strangt ti! tekið æfmgahúsnæði Kuklsins. Djúkboxið í horninu á þeirra tryggasti fylginautur, skáldið Sjón. En til bráða- birgða hefur Röddin hér aðsetur. Þessi sterka og kraftmikla Rödd sem áður- nefndir Quarterflash komast ekki í hálfkvisti við. Rrafturinn sá sami Róbert Alan gítarleikari, Davíð Freyr Traustason söngvari, Einar Á. Ármann trommuleikari og Ossur Haf- þórsson bassaleikari hétu einu sinni einu nafhi Voice en ekki lengur. Rödd- in markar upphaf nýs tíma. Þeir segja fortíðina nánast útrætt mál. „Við viljum helst ekki tala um Vo- ice,“ játa þeir hreinskilnislega. - Hvers vegna ekki, er fortíðin svona skuggaleg? „Nei, allavega ekki svo. Það varbara kominn upp svo mikill móraU gagnvart Voice. Fólk dæmdi okkur strax og við byijuðum og gaf okkur engin tækifæri eftir það.“ - Röddin markar þá annað upphaf? „Já, að vissu leyti, þó vitaskuld hafi átt sér stað þróun á þessum tveimur árum. Tónlistin í dag er meira gríp- andi, sum lögin melódískari en áður. En krafturinn er sá sami.“ - Krafturinn já, hvaðan fáiði alla þessa orku? „Hún fylgir gleðinni. Þetta er ein- faldlega svo g:aman. Við höfum allir mikla þörf fyrir að láta eitthvað ske, gera eitthvað í málunum. Það er alltof mikil deyfð í tónlistinni hér, að undan- skildu Kuklinu. Við erum í raun eina starfandi rokkbandið á íslandi í dag.“ Það væri hægt að eyða endalausu púðri í umræður um íslenska tónlist. En við tímum ekki plássinu enda yrði slík umræða til einskis og fáum til góðs. Við látum nægja stutta athuga- semd frá fjórmenningunum: „Ástandið í íslensku tónlistarlífi er orðið svo slæmt að við þurftum að flytja inn gítarleikarann, Róbert Alan, frá Bandaríkjunum. Við pöntuðum hann hjá Guitar institute of techno- logy hafi menn áhuga, skammstafað GIT.“ - Það síðasta sem heyröist frá Vo- ice sálugu var á Músíktilraunum. Hvers vegna tókuð þið þátt í þeim, nú eruð þið ekki neinir nýgræðing- ar i músík? „Okkur vantaði einfaldlega verkefni. Svo vorum við gráðugir í listahátíðar- konsertinn í júní. Það er ekkert smávegis tækifæri. En í rauninni voru þetta mistök. Við höfðum ekkert í Músíktilraunir að gera. Okkur vegnaði ekkert sérstaklega í keppninni og sætt- um þar að auki mikilli gagnrýni fyrir hvemig við komumst í sjálf úrslitin. Músíktilraunimar eru eins og fótbol- taleikur þar sem hver heldur með sínu liði. En í fótbolta vinnur hins vegar yfuieitt besta liðið og þar ráða áhorf- endur ekki úrslitum." - Hvað tók svo við eftir MT-kapp- leikinn? „Þá tók Röddin við. Við breyttum nafninu vegna þess að okkur fannst að jákvætt fyrir bandið. Við breyttum vorki um klæðnað né skoðanir.“ Hippaleg hreinskilni - Jákvætt fyrir bandið segiði. En hvers vegna var þessi mórall út í Voice? „Það kemur margt til. Bæði er að mórallinn milli hljómsveita hér er al- mennt mjög lélegur. Eins erum við alltof hreinskilnir. Við segjum alltaf það sem við meinum. Það er ekki vin- sælt. Við erum heldur ekki teknir góðir og gildir vegna þess hve ungir við er- um. Það tekur mjög á taugarnar.“ - Þið hafið verið sakaðir um að vera örgustu pönkarar, í mjög nei- kvæðri merkingu? „Nei, pönkarar emm við ekki þó okkur finnist í góðu lagi að vera öðru- vísi. Hinu er ekki að leyna að tónlistin byggir á 77 rokki sem auðvitað er ekta Bretapönk. En það er bara grunnur- inn. Síðan blandast við önnur áhrif.“ - Ejns og hver? * „Ýmislegt, bæði gamalt og nýtt. Smiths, Þeyr, Jesus and the Mary ca- in, Husker du, Cure, við höfum mjög misjafnan tónlistarsmekk." - En ef þið byggið á pönki eruð þið þá ekki mörgum árum á eftir tí- manum? „Nei, sjáðu, við höfum einungis orðið fyrir áhrifum frá pönkbylgjunni. Við erum ekki að kópíera neitt. Við fórum okkar eigin leiðir. Tónlist Raddarinnar á ekki að líkjast neinu og gerir það heldur ekki. En okkur finnst ekkert niðurlægj- andi ef fólk segir okkur spila pönk og kallar okkur pönkara. Er ekki til fullt af hippum ennþá? Dekmböm? Áður var nefhdur til sögunnar Snorri Sturluson yngri. Hann tengist Rödd- inni sem umboðsmaður. „Þannig var að ég var að taka mynd- ir af Voice í kringum hjálpartónleik- ana í Arseli," útskýrir Snorri. „Ég hafði látið þess getið í útvarpsviðtali að ég vonaði að Voice ætti eftir að ná langt. Þeim barst það til eyma og buðu mér starfið. Ég þáði það með þökkum." Snorri var ekki fyrsti maður til að ljá máls á því að Voice væri efnileg. Það hafa margir fleiri gert. Röddin breytist í andvarp: „Okkur vantar nauðsynlega meiri krítík á það sem við erum að gera.Það er ekki nógu gott að fá bara jákvæða gagnrýni. Við erum mjög kröfuharðir á sjálfa okkur og viljum að fólk segi umbúðalaust hvað því finnst um tón- listina. 1 dag erum við eins og dekur- böm sem aldrei hafa verið skömmuð. Við komumst upp með allt! Slíkt kær- um við okkur alls ekki um.“ Snorri tók sem sagt við stjóm mála, nafninu var breytt og nú bíða ný verk- efni á næstu grösum. Plata er í deigl- unni. „Við ætlum að hafa hana eins hráa og mögulegt er. Hinn grýtti og harði vegur tónlistarinnar verður áfram fet- aður, með einstaka frávikum þó. Við höldum okkar striki þó í stúdíó sé kom- ið.“ - Hafiði fengið útgefanda? „Nei. Útgáfufyrirtækin standa ekki lengur undir nafni. Þau láta sér nægja að flytja inn videomyndir og steingeld- ar plötur. Nýjabrum sér um útgáfu og dreifingu. Það eru við. Við sláum allir saman í plötuna og ætlum að kynna hana sjálfir með konsertum, merkjum, bolum og saltstöngum." - Og hvað kemur platan til með að heita? „Ný andlit. Eru það ekki orða sönnu?" 97 metrar eftir „Platan verður nákvæmlega 12 tommur að ummáli og inniheldur 4 lög. Þau heita: Meira en músík, Heitur snjór, Social society og uppáhaldslagið þitt, Illgresi, er það fjórða." - Það lag fær vonandi að halda sínu fágaða yfirbragði? „Já, það er gott dæmi um að Röddin getur líka verið lág og blíð.“ - Hvenær verðið þið óþekktu andlit- in þekkt? Hvenær kemur platan út? „Við erum í miðjum upptökum núna. Fólk þarf í mesta lagi að bíða í tvo mánuði. Ekki lengur." - Hveiju búist þið við að platan brevti? „Öllu. Við höfum tröllatrú á sjálfum okkur og því sem við erum að gera. Ef við tryðum ekki á Röddina gerði það enginn. Svo einfalt er það.“ - Þið eruð svona sjálfsöruggir? „Við verðum að vera það. Annars gætum við alveg eins hætt strax.“ - Og hvert er markmiðið? „Markmiðið er að ná eins langt og kostur er. Enginn hefur komist þangað ef út í það er farið. Við viljum helst komast á leiðarenda ef það er hægt tónlistarlega, án þess að það bitni á tónlistinni. Þetta er eins og 100 metra sprettur. Platan er startið. Þegar hún kemur út eru fyrstu 3 metramir að baki.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.