Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Side 20
20
DV. LAUGARDAGUR 31.MAÍ 1986.
Reykingar
hættulegri
- segja sænskir sérfræðingar
um geislunina frá Chemobyl
„Við treyst-
um kjarnorku-
verunum
í Svíþjóð hafa jafnt almenningur
sem yfirvöld verið skelfingu lostin
eftir að íréttir bárust um kjamorku-
slysið í Chemobyl í Ukraínu. Geisl-
unin mældist meiri víða í Svíþjóð
en annars staðar um Norðurlönd,
að Finnlandi undanskildu. Kýr og
annar fénaður hefur staðið á húsi,
þótt sumarið sé komið og gróður
fyrir nokkru kominn í blóma. Sæn-
skir bændur hafa hellt niður ókjör-
um af mjólk - og allur almenningur
spyr ráðaleysislegra spuminga í
blöðunum.
- Við skiljum vel ótta fólksins og
viðbrögð við þeim upplýsingum sem
birtar hafa verið, sagði Gunnar
Bengtsson, aðalforstjóri geisla-
vamastofnunar Svíþjóðar (SSI), - en
það verður að meta allar upplýsingar
í réttu samhengi við aðrar hættur
sem að manninum og umhverfi hans
steðja.
„Landsvirkjun" gerir lítið úr
geisluninni
Landsvirkjunin þeirra í Svíþjóð,
sem reyndar heitir Vattenfall, rekur
allar orkustöðvar Svía, þar á meðal
kjamorkuverin í Forsmark, Oscars-
hamn, Ringhals eitt og tvö og
Barsebáck á Skáni, orkuverið sem
Danir vilja að minnsta kosti út í
hafsauga og helst lengra í burtu.
í blaði sem Vattenfall gefur út em
Svíar fullyrða að mjög mikill munur
sé á rússneskum og sænskum kjam-
orkuverum. Rússar hófú sína fyrstu
framleiðsluáætlun á kjamorku í lok
fimmta áratugar aldarinnar. 1950 var
ákveðið að byggja fyrsta kjamaofn-
inn. Nú reka Sovétmenn 30 kjamaofna
og nú framleiða þeir um 10% allrar
raforku sinnar í kjamorkuverum. Sú
leiddir fram ýmsir postular sem telja
að geislunin frá Chemobyl valdi
ekki neinum straumhvörfúm varð-
andi sænska þjóðarheilsu. „Rúss-
neska kjamorkuslysið veldur
tveimur krabbameinstilfellum til
viðbótar á fjömtíu árum,“ segir í
fyrirsögn á „Aktuell Information"
sem Vattenfall gefur út.
Sænsku dagblöðin hafa hins vegar
leitt fram ýmsa sérfræðinga sem
hafa bent á að geislunin svari til
þess að sérhvert mannsbam sé sett
í magaröntgenmyndatöku einu
sinni.
- Slysið í Sovétríkjunum mun
valda tveimur krabbameinstilfellum
til viðbótar á næstu 40 árum. Það
er að sjálfsögðu harmsefni og hin
versta óhamingja. En við verðum að
bera þetta saman við aðra hættu sem
að okkur steðjar, sagði fyrmefhdur
Gunnar Bengtsson.
Radonhus og reykingar
hættulegri
- Á þessu sama tímabili munu ra-
donhúsin í Sviþjóð (einingahús úr
sérstöku, unnu steinefni) valda 44.
JX) krabbameinstilfellum eða 1.100 á
,»ri. Reykingar valda margskonar
krabbameini - um það bil 5000 tilfell-
um á ári miðað við 40 ára tímabil,
. samtals 80.000 krabbameinstilfellum.
orka er um það bil jafhmikil og öll
raforka sem Svíar framleiða.
Kjamorkuofiiar hafa þróast í þrjár
áttir. Á Vesturlöndum nota menn að-
allega vatnskælda oíha en í Sovétríkj-
unum em notaðir svonefndir grafít-
ofhar eins og sá sem bilaði í Chemo-
byl.
Leysiö skepnurnar!
Gunnar Bengtsson og sérfræð-
ingalið hans hjá geislavamastofh-
uninni hafa sett sig í samband við
marga sem sýnt hafa merki um óró-
leika vegna Chemobyl-slyssins.
- Maður verður náttúrlega að
meta svona hluti i réttu samhengi,
sagði Gunnar Bengtsson. - Helsti
vandinn varðandi þessa geislun er
það kapphlaup sem við eigum í við
vorið. Og nú getum við andað léttar
hvað stór landsvseði snertir. Það má
leysa kýmar á Hallandi, Skáni,
Blekinge og á Eylandi.
Við erum að vonast til þess að
geta fikrað okkur norður eftir hér-
uðunum, gefið bændunum leyfi til
að sleppa út skepnunum um leið og
þeir fara fram á það.
Engin ástæða til að örvænta
Gunnar Bengtsson sagði að engin
ástæða væri til að örvænta. - Sem
stendur er ástandið gott. Jafhvel
þótt veðrið breyttist, vindáttin yrði
önnur nú á næstunni, þá ætti það
ekki að hafa merkjanleg áhrif í Sví-
þjóð. En sú spá er náttúrlega ekki
alveg pottbétt. Sú spá reiknar með
að ekki virði frekari útgeislun frá
kjamorkuverinu í Chemobyl og að
þarlend yfirvöld hafi náð stjóm á
þróuninni. Miðað við þær forsendur
teljum við að geislunin muni ekki
aukast í Svíþjóð.
Bömin út í sandkassana!
Geislavamastofhunin hefur svar-
að mörgum almennum spumingum
frá fólki. Almenningur hefúr velt
fyrir sér ótal spumingum í sambandi
við geislunina. Fólk hefur spurt
hvort hættulaust sé að drekka mjólk.
Og hvort óhætt sé að gefa koma-
bömum brjóst; eða hvort stærri böm
megi leika sér í sandkössum.
- Fólk ætti að neita sér um græn-
meti fyrst um sinn, sagði Gunnar
Bengtsson. - Einkanlega á það við
um snemmsprottnar jurtir eins og
steinselju og raunar fleiri.
- Við treystum á öryggisbúnað
kjamorkuvera okkar. Þau em hönnuð
út frá ákaflega ströngum kröfum um
öryggi. Starfemenn okkar em hæfir
og sérfræðingar okkar em sjóaðir
varðandi öryggismálin.. .það er fyrir
hendi umfangsmikil þekking í tengsl-
um við öryggisfrágang kjamorku-
vera.. .segja forstjórar sænsku
kjamorkuveranna í Ringhals og Fors-
mark. Þeir heita Carl Erik Nyquist
og Lars Gustafeson og em leiddir fram
á síðum blaðs þess sem sænska lands-
virkjunin (Vattenfall) gefur út.
- Þessar skoðanir okkar breytast
ekki við það slys sem varð í Chemo-
byl. Okkur þykkir leitt að í Sovétríkj-
unum skuli yfirvold ekki hafa skilið
að það gildir að uppfræða fólkið þegar
í stað þegar svona lagað gerist.
Réttmæt gagnrýni
Sænsku orkuveraforstjóramir segja
að þeir taki heils hugar undir þá gagn-
rýni sem sænska ríkisstjómin hefur
beint að Rússunum vegna Chemobyl-
slyssins. - Þegar við nú berum saman
ástandið í okkar kjamorkumálum og
þeirra í Sovét þá verðum við að muna
eftir nokkrum atriðum. En þó fyrst og
fremst að við höfiun náð langt hvað
snertir öryggismál. Allur okkar hugs-
unarháttur í þessum efhum þýðir að
öryggið er sett ofar öllu, segja forstjór-
amir, Gustafsson og Nyquist. Og rétt
er að minna á í því sambandi að nokk-
uð er síðan sænsk yfirvöld ákváðu að
losa sig við kjamorkuna. Áætlað er
að árið 2010 verði Svíar ekki lengur
háðir raforkuframleiðslu kjamorku-
veranna en sem stendur em um 20%
raforku þeirra framleidd í kjamorku-
verum. Ákvörðunin um að loka
kjamorkuvemnum (draga fyrst úr
framleiðslu þeirra og loka þeim svo)
var tekin eftir bandaríska kjamorku-
slysið á Þriggja mílna eyju við Harris-
burg þegar geislun fór að berast ffá
kjamaofni þar. En þótt fordæmi séu
fyrir því að kjamorkuofnar gefi sig em
Svíamir samt kokhraustir varðandi
sín eigin kjamorkuver.
- Við þurfum aldrei - t.a.m. af hag-
kvæmnisástæðum - að velta því fyrir
okkur að draga úr öryggisbúnaði.
Þessu getum við lýst yfir opinberlega.
Og allir þeir staxfsmenn okkar sem
einvörðungu sinna öryggismálunum
geta staðfest þetta.
- Þegar við endurtökum það aftur
og aftur að slysið í Harrisþurg hafi
kennt okkur mikið stafar sú endur-
tekning af því að það er ástæða til að
minna á það. Eitt er það sem neftia
má og er nýtt eftir Harrisburg: síubún-
aðurinn sem byggður var við
Barsebáck. Öll kjamorkuver í Svíþjóð
verða búin sams konar síum.
Öryggið þróast
- Við getum slegið því föstu - og
miðað við útbúnaðinn við Barsebáck
núna og þar með væntanlegan út-
búnað við önnur kjamorkuver - að
þótt kjamaofh springi og slys verði
þá mun ekki verða nein umtalsverð
geislun.
- Rússneski kjamaofninn, sem bil-
aði, er gerólíkur okkar. Rússneskar
öryggiskröfur em líka frábmgðnar
okkar.
Sænsku orkuversforstjóramir em
ömggir með sig og gera mikið úr
reynslu Svía og þeim alþjóðlega upp-
lýsingabanka sem nú sé fyrir hendi
og kjamorkumönnum stoð og stytta í
öryggismálunum.
- Við verðum að nýta kjamorkuna
- að minnsta kosti enn um sinn, sagði
Nyquist - við getum ekki dregið hrað-
ar en svo úr raforkuframleiðslunni.
Þegar dregur að árinu 2010 er áætlað
að nýjar orkuuppsprettur hafi verið
fundnar og kannaðar og ný spamað-
aráætlun fyrir heimilin komin á fót.
Þýðingarmikill
munur
Sænsku orkuveraforstjórarnir, Carl Erik Nyquist og Lars Gustafsson.
Sænskur
kjamaofn.
Sjö metrar.
I
Köfnunargas.
Rússneskur
kjamaofn.
Sum kjamorkuver hafa ekki auka
rafkerfi.
Einfaldur steinsteypuveggur, ekkert
úöunarkerfi.
Steypa.
Steypa. Stál.
Veggurinn sem er einangraöur inni
í ofninum.
Raforka úr fjórum mismunandi kerl-
um, m.a. fyrir kælivatnsdælur.
Úðunarkerfi sem dælir vatni viö bil-
un.
Brunaofn í tanki fylltur með vatni.
Vatn streymir á milli hitakerfanna.
Vatnsgeymir sem kælivatniö er sótt Gasþétt hylki.
'• Brunaofn einangraður inni í graf-
itstöngum. Vatn kemst aðelns
gegnum stangimar.
Vestrænir kjamaofnar eru almennt vatnskældir og brunastangimar umluktar vatni. Kælingin skiptir öllu máli og
er þýðingarmesta öryggisráðstöfunin í kjamaofni, því illa fer ef vélamar ofhitna.
Svíar - og reyndar vestrænir raforkuframleiðendur yfirleitt - em vissir uro að þeir gæti öiyggis kringum kjam-
orkuver sín betur en Rússar. Og fullyrða raunar að hugsunarhátturinn sé allt öðmvísi fyrir vestan en fyrir austan.
Það skiptir vestræna kjamorkumenn vitanlegn miklu máli að almenningsálitið snúist ekki gegn þeim meira en
orðið er. Og þess vegna reyna þeir nú að sýna fólki fram á að þeim sé hægt að treysta - þótt ekki sé hægt að
treysta Rússum fyrir kjamorku. -GG