Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Side 36
36
DV. LAUGARDAGUR 31.MAÍ 1986.
Knattspyrna unglinga - Knattspyrna unglinga - Knattspyrna unglinga
2. flokkur A:
Víkingar meistarar
- unnu ÍR 11-0
Vikingar urðu Reykjavíkurmeistar-
ar i 2. fl. A þegar þeir sigruðu ÍR á
Vikingsvelli sl. mánudag, 110. Áður
voru Víkingar búnir að sigra í B-
liðinu. Vikingar hafa því eignast tvö-
falda Reykjavíkurmeistara bæði í 2.
og 3. fl. Báðir þessir flokkar eru skip-
aðir mjög góðum einstaklingum,
eins og úrslitin gefa til kynna. Óhætt
er þvi að fullyrða að það séu bjartir
timar framundan hjá Víkingi því
drengirnir gerðu meira en bara að
sigra í Reykjavíkurmótinu, þeir
sýndu oftiist skemmtdega knatt-
spyrnu og árangursríka.
IR-ingar áttu ekkert svar við kröftug-
um leik Víkinga í fyrmefndum leik.
Mörk Víkinga gerðu þeir Sveinbjörn
Jóhannesson, Eiríkur Benónýsson.
Björn Einarsson og Gísli Jóhannsson, 2
mörk hver Guðmundur Pétursson, Stef-
án Aðalsteinsson og Axel Axelsson, 1
mark hver. - Vegna þrengsla verður
mynd af Reykjavíkurmeisturum Víkings
í 2. flokki birt síðar.
-HH
2. flokkur A:
Valsliðið að hressast
- sigraði ÍR. 5-0
Fimmtudaginn 22. maí sl. léku Vals-
menn gegn ÍR-ingum í 2. fl. A. Leikur-
inn fór fram á Valsvelli. Hlíðarenda-
strákamir hafa átt fremur erfitt
uppdráttar í Reykjavíkurmótinu. - En
nú virðist vera að rofa til því þeir sýndu
í þessum leik að þeir eru til alls vísir
í íslandsmótinu. Sérstaklega var siðari
hálfleikur skemmtilegur.
Fyrsta mark leiksins kom á 12. mín.
Það gerði Þorvaldur Skúlason af
Þórður Bogason, framherji i 2. fl. Vals.
Reykjavíkurmótið
of langt!
Væri ekki hyggilegra að hafa
Reykjavíkurmót yngri flokka
styttra svo að liðin gætu búið sig
betur undir íslandsmótið. íslands-
mótin eru þegar hafm og Reykja-
vikurmótin i fullum gangi. Þvi
ekki að breyta keppnisfyrirkomu-
lagi Reykjavíkurmóta í riðla-
keppni i hveijum flokki og leika
síðan til úrslita um sæti, i likingu
við hraðmót. Sömuleiðis var alls-
endis óþarfi að lengja leiktimann
í Reykjavíkurmótinu. -HH
stuttu færi með fastri spymu. 10 mín.
síðar bætti Þórður Bogason við öðru
marki Vals. Fátt markvert gerðist
annað í fyrri hálfleik, og í sumum til-
vikum var ekki laust við að áhuga og
vilja skorti til að framkvæma hlutina.
Staðan í hálfleik því 2 0, Val í hag.
í síðari hálfleik snerist dæmið við
og oft. sást vel útfært spil beggja liða,
þó sérstaklega hjá Val.
Páll Poulsen kom Val í 3-0 með sér-
lega skemmtilegu marki snemma í s.h.
skaut yfir markvörð ÍR-inga, Þorleif
Óskarsson, sem var helst til of framar-
lega. 4. markið gerði Þórður Bogason,
skallaði laglega í markið eftir
skemmtilegan undirbúning Kristjáns
Þórs Kristjánssonar, sem plataði 3
ÍR-inga og gaf fyrir markið. Þórður
skoraði einnig 5. markið með góðu
skoti undir lokin. Þórður var því með
þrennu í þessum leik.
Tilkoma þeirra Kristjáns Þ. Kristj-
ánssonar, Páls Poulsens og Birgis
Össurarsonar styrkir Valsliðið mjög,
og áttu þeir allir góðan dag. Einar
Páll Tómasson var traustur í vöm-
inni, einnig Kristján Karlsson. Jón
Þór Andrésson var sterkur á miðjunni
og Þórður Bogason ávallt hættulegur
uppi við markið.
Hjá IR-ingum var Tómas Bjömsson
miðjumaður bestur. Þórarinn Guð-
jónsson, Gunnar Rúnarsson og Kristj-
án Halldórsson sýndu að þeir geta
meir ef svo ber undir. Elí Másson lét
fremur lítið að sér kveða.
Ömgglega eiga bæði þessi lið eftir
að bæta sig mikið í íslandsmótinu.
Fróðlegt verður að fylgjast með fram-
gangi þeirra þar. -HH
Móðir og sonur frá Akranesi
Myndin er fekin uppi í Mosfellssveit þegar Akureyringar léku gegn Aftureld-
ingu i Faxaflóakeppninni 8. maí sl. Halldór Magnússon heitir hinn ungi
Skagamaöur og leikur með 6. fl. Með honum á myndinni er móðir hans,
Þóranna Halldórsdóttir, en hún segist fylgjast með drengjunum eins og
hún mögulega geti því það sé reglulega skemmtileg og góð upplyfting.
Halldór stóð sig mjög vel í leiknum eins og góðum Skagamanni sæmir
og má örugglega mikils af honum vænta i framtiðinni. Það er reyndar
engin furða þótt Akumesingar nái góðum árangri í knattspyrnu með stuð-
ningsmenn á borð við Þórönnu. DV-mynd HH
(j. jli. n.
ÍR—Leiknir 7-1
5. FL. Leiknir og ÍR (A) léku á
Fellavelli sl. þriðjudag. ÍR-strák-
amir voru í miklum ham og
sigruðu, 7-1. 5. fl. ÍR hefur komið
mjög á óvart í þessu Reykjavíkur-
móti og er eíst að stigum með 11
stig og einn leik eftir gegn Fylki
I sem verður á mánudag kl. 19.00 á
z Fylkisvelli. Framarar hafa 10 stig •
I og eiga eftir leik gegn Val í dag á I
- Valsvelli kl. 10.30. Sigri ÍR Fylki -
I á mánudag verða þeir Reykjavík-
urmeistarar. -HH
KR-Valur 6-1
KR og Valur léku í 5. fl. (A) Rvk-
mótsins sl. þriðjudag. KR-ingamir
Ivom í banastuði að þessu sinni I
og sigmðu 6-1. Mörk KR gerðu: "
Bjöm Viktorsson 2, Andri Sveins-
son, Jón Ó. Sæmundsson, Ottó
I Ottósson og Mikael Nikulásson
* 1. mark hver. Mark Vals gerði
I hinn snaggaralegi Einar Kristj-
• ánsson. -HH I
ÍR-Valur 3-3
I ÍR og Valur léku 21. maí sl. í 5.
Ifl. (A) á ÍR-velli. Valsstrákamir
sýndu mjög góðan baráttuvilja, ■
| því um miðbik leiksins vom IR- I
ingar með 3ja marka fomstu en
I
Valsstrákunum tókst að vinna það
upp og jöfnuðu undir lok leiksins.
Það var vel af sér gert hj á strákun-
| um þar sem ÍR-ingar em með mjög I
■ sterkt lið í 5. fl. Mörk ÍR gerðu .
| Jóhannes Jóhannesson, Kjartan
_ Kjartansson og Amar Valsson. -
| Mörk Vals: Finnur Hilmarsson,
Ólafur Biynjóifsson og Guðmund-
ur Biynjólfeson. ÍR-ingar standa
Ibest að vígi í mótinu, eiga að leika I
sinn síðasta leik gegn Fylki á *
I mánudag og sigri þeir verða þeir I
1 Reykjavíkurmeistarar.
■ mmm mmm m mmm mmm mmm m^m mm
I
5. flokkur A:
Besti leikur Þróttar til
þessa - sigraði Leikni, 2-1
Sl. laugardag léku á Fellavelli Leiknir
og Þróttur i 5. fl. A. Þetta var mikill
baráttuleikur. Fyrsta mark leiksins
kom spenna í fyrri hálfleik og gerðu
Leiknisstrákarnir það eftir stifa sókn,
en markið skoraði Sigurður PáU Páls-
son. Þótt hart væri sótt á báða bóga
urðu mörkin ekki fleiri i fyrri hálfleik.
Í síðari hálfleik komust Þróttarstrák-
amir heldur betur í gang og gerðust mjög
aðgangsharðir við mark Leiknis. Það var
svo á 10. mín. sem Guðni Ingvason jafnaði
íyrir Þrótt af miklu harðfylgi. Þróttarar
sóttu öllu meir og oft sáust góðir samleiks-
kaflar hjá þeim, einkum náðu oft vel
saman þeir Guðni Ingvason og Hlynur
Haraldsson. Undir lok leiksins tókst
Þrótturum að ná forustunni með mjög
skemmtilegu marki sem Guðni Ingvason
gerði. Hann lék á tvo vamarmenn og skaut
þrumuskoti í stöng og inn.
Lokatölur þessa leiks urðu því 2-1 fyrir
Þrótt, sem em réttlát úrslit. Þróttarliðið
sýndi í þessum leik góða knattspymu og
er mér óhætt að segja að þetta sé besti
leikur þess í langan tíma. Mest áberandi
í liði Þróttar vora að þessu sinni þeir
Guðni Ingvason með 2 mörk, og sýndi
hann auk þess að hann getur ýmislegt
fleira en skorað mörk (því drengurinn er
teknískur og byggði hann oft upp gott
Guðni M. Ingvason, 5. fl. Þrótti, gerði
bæði mörkin gegn Leikni sl. laugar-
dag. DV-mynd HH.
spil), og Hlynur Haraldsson, sem átti einn-
ig frábæran leik, sömuleiðis Kristján
Helgason og Reynir Ólafsosn.
Hjá Leikni átti Óskar Alfreðsson góðan
leik í markinu. Einnig þeir Davíð Jónsson,
Sigurður Páll, Halldór Þorkelsson og
Magnús Sigurðsson. - Leiknisliðið hefur
komið mjög á óvart í Reykjavíkurmótinu
með góðri frammistöðu sinni. -HH
Myndin er frá leik Leiknis og Þróttar í 5. fl. A, sem fram fór sl. laugardag. Dómari í þessum leik var
Þorsteinn Friðþjófsson og dæmdi hann frábærlega vel, en Þorsteinn var að dæma fyrir Val. Á mynd-
inni sést Þorsteinn vera að veita Hlyni Haraldssyni Þróttarleikmanni tiltal og að sjálfsögðu hefur
Þorsteinn spurt um nafn. En það er einmitt þannig sem á að gera hlutina. Allt fór vel - enda hafði
Þorsteinn mjög góð tök á leiknum. Reynir Ólafsson, Þrótti, t.h. við dómarann fylgist náið með.
DV-mynd HH
Dómari
vikunnar
í leik ÍR og Víkings í 3. flokki A sl.
laugardag, sem Víkingar unnu og
urðu þar með Reykjavíkurmeistarar,
var dómarinn frá Fylki, Andreas
Lúðvíksson, 20 ára. Hann byrjaði
sem dómari 17 ára og er búinn að
dæma um 100 leiki. Andreas skilaði
hlutverki sínu alburðavel í fyrr-
nefndum leik. Yfirferðin góð.
Nákvæmni hans og einbeiting var
til fyrirmyndar. Einnig beitti hann
hagnaðarreglunni af skynsemi.
Rólegt yfirbragð Andreasar, samfara
ákveðni og öryggi við ákvarðana-
tökur, setti skemmtilegan svip á
leikinn. -HH
KnaHspyrnufélagið Valur varð 75 ára 11. mai sl. Af þvi tilefni voru þessir dreng-
ir heiðraðir, en þetta er körfuboltalið Vals í mini-bolta sem varð Reykjavikur-
meistari rétt fyrir afmælishátiðina. i fremstu röð frá vinstri: Hjálmar Sigurðsson
fyrirliði, Ólafur T. Brynjólfsson, Guðmundur G. Brynjólfsson, Ágúst Auðunsson
og Þórhallur Ágústsson. - Miðröð frá vinstri: Jónas Valdimarsson, Óli Rafn
Jónsson, Ólafur Theódórsson, Óttar Sæmundsson og Almar Þór Þorgeirsson.
Aftasta röð frá vinstri: Torfi Magnússon þjálfari, Ragnar Þór Jónsson þjálfari,
Lárus Hólm, form. körfuknattleiksdeildar Vals, og Brynjólfur Lárentsíiic^-
umsjónarmaður. DV-mynd
í tilefhi af 75
afmæli Vals