Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Page 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þrig&ja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir, þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hveija þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum. nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningu»- orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hveijum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávÖxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtávextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
. einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
-10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%)
01.-10.06. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÓRUM
sjA sérlista
iliillililllilii
INNLÁN úverðtryggð
SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10,25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán. uppsögn 12.5 12,9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0
12mán.uppsögn 14.0 14,9 14,0 11,0 12.6 9.0 12,0 9.0
SPARNAÐUR - LANSREHUR Sparað 3-5 mán. 13.0 13,0 8.5 10.0 8.0 10.0
Sp.Bmán.ogm. 13.0 13,0 9.0 11.0 10.0 3.0 10.0 3.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar Hlaupareikningar 6.0 4,0 6.0 3.0 2.5 2.5 3.0 3.0 4.0 4.0 4.0 4.0 3.0 3.0
3.0 3,0
INNLÁN VERÐTRYGGD SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 6 mán. uppsögn 1.0 3.5 1.0 3.0 1.0 2,5 1.0 2.5 1.0 3.5 1.0 2.5 1.0 3.0 1.0 3.0 1.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7,0 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.0 10.0 10.0 11,5 9.5
Vestur-þýsk mörk Oanskar krónur 4.0 7.5 4.0 7.5 3.5 7.0 3.5 7,0 3.5 6.0 3.5 7.5 3.5 7.0 3.5 7.0 3.5 7,0
ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15,25 15,25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAViXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15,5 15,5 15,5 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5
VIÐSKIPTASKULOABRÉF 3) kge 20.0 kge 20,0 kge kge kge kge 9.0
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21/2 óri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4>0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTIÁNTILFRAMLEIÐSUJ
sjAnedanmAlsd
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
íngs, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Viðskipti Viðskipti Vi
Norsk rækja er á 407 krónur kílóið í New York. íslenski hörpuskelfiskurinn er einnig í háu verði þar, 380 kronur kiloió.
Rækjan dýr
í New York
Reykjavík
Afli báta í Reykjavík í maí var 1132
tonn í 239 róðrum. 26. maí landaði bv.
Jón Baldvinsson 118 tonnum, að heild-
arverðmæti kr. 1.933.105, skiptaverð
1.353.173,88. Bv. Ásþór kom bilaður
og landaði 6,4 tonnum 26. maí, afla-
verðmæti 46.977,28 kr. Bv. Ottó N.
Þorláksson landaði 27. maí 188 tonn-
um, heildarverðmæti kr. 2.590.201. Bv.
Hjörleifur landaði 3. júní 150 tonnum,
þar af 60 tonn þorskur. Bv. Ásgeir
landaði einnig sama dag 181 tonni, þar
af 54 tonn þorskur, 16 tonn ufsi og 6
tonn ýsa, annar fiskur var grálúða.
Bv. Vigri landaði 3. júní ca 330 tonn-
um, mest af aflanum var grálúða.
Grimsby
Bv. Hákon Magnússon landaði 28.
maí í Grimsby 56 tonnum fyrir kr.
3.128.869,05, meðalverð kr. 55/77 kílóið.
Ms. Sveinn Valdimarsson landaði 29.
maí 76 tonnum, verð alls kr.
4.218.271,53, meðalverð kr. 55/33. Mb.
Börkur landaði 3. júní 140 tonnum
fyrir 8,5 millj., meðalverð kr. 61,05.
Hull
Ms. Hrungnir landaði í Hull 28. maí
alls 106 tonnum, aflaverðmæti kr. 4,5
millj.
New York
Verð á rækju helst nokkuð hátt, að
mati fisksala, og draga þeir heldur við
sig öll stórinnkaup af þeim sökum.
Verðið á norskri rækju, 250 til 300
stykki í kílóið, hefur verið kr. 407.
Einnig hefur verð á íslenskum hörpu-
skelfiski verið gott, eins og undanfarið,
kr. 380 kílóið. Verð á þorski _kr. 140
fyrir stóran og góðan fisk. Ýsa kr.
130, ufsi og karfi kr. 60-65 kílóið.
Sala á norskum laxi gengur fremur
illa, en mikið hefur verið selt að und-
anfömu af Kyrrahafslaxi og kílóið af
Fiskmarkaðirnir
Ingólfur Stefánsson
honum hefur kostað i kringum kr.
150. í Boston hefúr verðið verið um
20 kr. hærra kílóið.
London Billingate
Samtök fiskkaupmanna vom með
60 milljarða króna umsetningu árið
1985. 1980 til 1984 var aukning í fisk-
sölu orðin 30% en verðhækkun um
33%, er það aðeins minna en menn
höfðu vænst. Á tímabilinu 1980 til 1984
jókst aðallega sala á freðfiski og var
aukningin mest í skelfiski. Nú hafa
orðið þáttaskil þar sem búist er við
að ferskfiskur haldi velli í markaðs-
hlutdeildinni í framtíðinni. Eitt af því
sem olli minni sölu á ferskum fiski var
að ungir fiskkaupmenn felldu sig ekki
við að handfjatla nýja fiskinn. Nú
hafa stóm heildsölufyrirtækin hafist
handa um að kenna ungum kaup-
mönnum meðferð á nýjum fiski. Árið
1985 var mun meiri sala á ferskum fiski
í Englandi en verið haföi síðustu árin
og búist er við að svo verði fram til
1990.
í framtíðinni verður lagt kapp á að
kynna hollustu þess að eta fisk. Stór-
markaðir eins og Prestokeðjan eru
aðeins með 15 kæliborð í öllum sínum
verslimum og stærsta verslunarfyrir-
tæki í matvælum í Englandi, Seins-
burry, er aðeins með 25 kæliborð í
öllum sínum verslunum; stórmörkuð-
unum þykir dýrt að halda úti fersk-
fisksölunni og leggja ekki mikið upp
úr henni.
Billinggate
Verð á stórum þorski hefur verið um
130 kr. kílóið, verð á skarkola kr. 60-
70 og verðið á síld um 40 kr. kílóið.
Ekki hefir verið mikil eftirspum eftir
laxi og verðið fremur lágt eða um 300
kr. kílóið.
Hamborg
Lítið framboð hefur verið á þorski
og ýsu á þýska markaðnum að undan-
fömu. En búist er við að á markaðinn
í Þýskalandi berist nokkuð af blönd-
uðum fiski nú á næstunni. Engin
íslensk skip hafa selt í Þýskalandi sið-
ustu dagana. Verð á stórum þorski
hefur verið um kr. 80 kílóið, ýsa kr.
70-80 og grálúða kr. 50 kílóið. Mikið
af þeim ufsa, sema borist hefur á þýska
markaðinn, hefur verið smátt eða
mest undir 1,5 kíló.
Vöruflutningar til vamarliðsins
Ný leið Schulz
er gömul hugmynd
„Ég veit ekki hvort þessi leið sem
Schulz lagði til muni leiða málið aftur
til dómstóla. Ég held ekki. Sendiráðið
í Washington mun fylgjast náið með
framgangi málsins,“ sagði Matthías
Á. Mathiesen utanríkisráðherra um
hina nýju leið sem Schulz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, lagði til við
Matthías að farin yrði til þess að leysa
deiluna um vöruflutninga til vamar -
liðsins.
- En hvað felst í þessari nýju leið?
„Schulz ætlaði að snúa sér til vam-
armálaráðuneytisins og reyna að fá
fram nýjar reglur um flutninga til
vamarliðsins, okkur til hagsbóta,"
sagði Matthías.
- Hefur sú leið komið til tals áður?
„Já, þessi leið kom einhvem tímann
fram sem hugmynd, eftir að Banda-
ríkjamenn fengu einokunaraðstöðu á
vöruflutningunum," sagði Matthías.
-KB