Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Page 20
20
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNl 1986.
íþróttir lþróttir Iþróttir Iþróttir Iþról
Zicohættt
á æfingu
„Hann vaknaði í gærmorgun og
þá virtist ekkert athugavert. Engir
verkir í hnénu. Hann fór því á
æfinguna með hinum leikmönmun
Brasilíu. En eftir aðeins 20 mínút-
ur varð hann að hætta - kvalinn
í hnénu,“ sagði Neylor Lasmar,
læknir brasilísku HM-leikmann-
anna, í Guadaljara í gær.
Það var Zico, skærasta stjama
Brasilíu, sem varð að hætta á æf-
ingunni og nú em sáralitlar líkur
á að hann leiki gegn Alsír á morg-
un, föstudag. Lasmar læknir sagði
að meiðsli Zico væru ekki alvarleg
en hann vildi ekki láta hann leika
gegn AÍsír. Zico var skorinn í hné
í fyrra vegna hnémeiðslanna.
Hann var varamaður í fyrsta leik
Brasilíu - gegn Spáni - en kom
ekki inn á.
Allar líkur em taldar á að Mull-
er verði miðherji gegn Alsír. Hann
átti stórgóðan leik þegar hann
kom inn á sem varamaður gegn
Spáni. Walter Casagrande mun þá
missa stöðu sína. Á æfingunni í
gær lék Muller í varaliðinu á móti
leikmönnum aðalliðsins. Eftir að-
eins 25 mín. var staðan 3-0 fyrir
varaliðið. Þá var Muller færður í
aðalliðið, Casagrande í varaliðið.
•Hann var sár og sagði: „Ég þarf
að skora tíu mörk í leik til að halda
stöðu minni.“ Varaliðið sigraði 6-4
í æfingaleiknum. hsím
jLaudrupfékkj
i mikið hrós i
I Frá Hauki Lárusi Haukssyni, |
1 blaðamanni DV í Danmörku: .
I Danska landsliðið fékk mikið |
. hrós í danska sjónvarpinu í gær- ■
I kvöldi og þá sérstaklega Michael I
■ Laudrup. Sérstaklega var tekið |
I fram hversu íþróttamannslega ■
■ Laudrup hefði leikið gegn Skotum. I
I Þrátt fyrir að Skotar hefðu hvað I
| eftir annað brotið gróflega á hon- *
■ tun hefði hann aldrei skipt skapi I
I og iþróttamenn sem tækju slíku *
| mótlæti með álíka yfirvegun og I
■ Laudrup væru mikil og góð fyrir-1
I mynd imgu kynslóöarinnar. -SK I
I „Fyrrí árangur I
j skiptir engu“ j
■ „Fyrri árangur okkar gegn Arg- *
I entinu mun ekki skipta neinu máli |
i í dag,“ sagði Enzo Bearzot, þjálfari .
I ítala, en þessar þjóðir mætast ein- |
I mitt í Mexikó í dag. ítalir, núver- ■
I andi heimsmeistarar, hafa unnið I
■ tvær síðustu viðureignir þessara I
I þjóða á HM. Þeir unnu Argentínu ■
■ eins og kunnugt er 1982 og voru I
■ þar að auki eina þjóðin sem sigraði *
I Argentínumenn þegar þeir urðu |
* heimsmeistarar 1978. -SM<fyj
Mark dæmt af írak
og Paraguay sigraði
- Julio Romero skoraði sigurmarkið
„Dómarinn hefði átt að láta markið
standa úr þvi að hann flautaði ekki
hálfleikinn af áður en hornspyrnan var
tekin. Markið var skorað beint upp úr
hominu og hefði þvi átt að fá að
standa. Ég er ekki sáttur við ákvörðun
dómarans, við áttum betra skilið,"
sagði Evaristo de Macedo, þjálfari Ir-
aks, eftir að Irakar höfðu tapað, 1-0,
fyrir Paraguay í fyrsta leik þjóðanna
á HM. Atvikið, sem Macedo talar um,
var þegar dómarinn dæmdi mark af
Irökum sem þeir skoruðu rétt fyrir
leikhlé. Dómarinn taldi að leiktíminn
hefði verið útrunninn og dæmdi þvi
markið af. Leikmenn Iraks mótmæltu
dómnum ákaft en allt kom fyrir ekki.
írakar byrjuðu leikinn af fullum
krafti og fengu gott færi strax á fyrstu
mínútu. Þeir sýndu góðan leik í upp-
hafi og komu vöm Paraguay margoft
á óvart með Ieikni sinni og hraða. Það
var því nokkuð gegn gangi leiksins
þegar Julio Romero skoraði fyrir
Paraguay á 35. mínútu. Hann fékk þá
• Julio Romero skoraði sigurmark
Paraguay.
góða sendingu inn í vítateig og sendi
knöttinn yfir markvörð Iraks sem
reyndi að bjarga með úthlaupi.
írakar skomðu síðan þetta umdeilda
mark á síðustu sekúndum fyrri hálf-
leiks. Atvikið setti þá algerlega út af
laginu og seinni hálfleikur var mjög
daufur. Það var helst að Paraguay-
menn næðu að sækja eitthvað án þess
þó að bæta við fleiri mörkum.
„Öll liðin jöfn“
„Að mínum dómi em liðin í þessum
riðli öll mjög jöfri að getu. Leikmenn
fraks spiluðu þennan leik mjög vel og
það var erfitt að spila gegn þeim
sagði Cayetano Re, þjálfari Paraguay,
eftir leikinn. Hann sagði að leikurinn
sýndi að það væri ekkert eitt lið sterk-
ara en önnur í B-riðli. Paraguaymenn
og Mexíkanar em nú efetir í riðlinum
en bæði liðin unnu sína leiki. Paragu-
ay mætir Mexíkó á Azteca vellinum á
laugardaginn.
-SMJ
„Of snemmt að líkja
okkurvið Hollendinga“
- segir Nikita Simonian, aðstoðarþjálfari Sovétmanna
„Hollenska liðsins verður minnst í
sögunni sem eins skemmtilegasta
knattspyrnuliðs sem uppi hefur verið.
Ég held að það sé of snemmt að vera
að líkja okkur við það lið. Það er ekki
hægt að dæma lið út frá einum leik,“
sagði sovéski aðstoðarþjálfarinn Nik-
ita Simonian en athyglin beinist nú
mjög að Sovétmönnum eftir hinn
stóra sigur á Ungveijum. Sovéska liðið
þótti leika frábærlega þá og margir
líkja því við hollenska liðið eins og það
lék 1974.
Frakkar mæta Sovétmönnum í dag
í C-riðli og em miklar vangaveltur nú
uppi um það hvemig þeim gangi að
eiga við hið frábæra spil Sovétmanna.
Þeir þykja leika mjög skemmtilega og
árangursríka knattspymu en Frakkar
þóttu hins vegar sýna lítið í fyrsta leik
sínum þegar þeir unnu Kanadamenn
naumlega. íslenskir sjónvarpsáhorf-
endur fengu að sjá forsmekkinn af þvi
hvemig Sovétmennimir leika þegar
Dynamo Kiev sigraði Atletico Madrid
auðveldlega í úrslitaleik um Evrópu-
bikarinn. Átta af leikmönnum sovéska
liðsins koma einmitt frá Ilynamo Kiev
og þjálfarinn, Valery Lobanovsky, er
einnig þaðan.
„Erum búnir að gleyma Ung-
verjaleiknum"
„Leikmennimir em þegar búnir að
gleyma Ungverjaleiknum og munu
einbeita sér að leiknum við Frakka í
dag. Sú knattspyma, sem Ungveijam-
ir spiluðu, hentaði okkur mjög vel.
Hvort við leikum eins á móti Frökkum
fer eftir því hvort þeir leyfa okkur að
gera það sama og við fengum að gera
í Ungverjaleiknum," sagði Simonian
þegar hann var spurður hvemig Sov-
étmenn ætluðu að spila gegn Frökk-
um.
Frakkar hræddir
Franski þjálfarinn Henri Michel
hefur mikla áhyggjur af leiknum við
Sovétmenn í dag. Hann óttast mjög
að frönsku leikmennimir verði hrædd-
ir við sovésku vélina og það komi
niður á leik þeirráj Talið er líklegt að
hann geri a.m.k. þijár breytingar á
liði sínu. Yvon Le Roux kemur trúlega
inn fyrir Patrick Battiston. William
Ayache kemur inn sem bakvörður en
hann er orðinn góður af meiðslum.
Þá er líklegt að Yannick Stopyra byiji
í staðinn fyrir Dominique Rocheteau
í sókninni. -SMJ
„Slappur leikur“
- sagði danska sjónvarpið
Frá Hauki Lárusi Haukssyni, blaða-
manni DV í Danmörku:
„Ég get ekki neitað þ vi að mér fannst
þetta slappur leikur," sagði
aðah'þróttafréttaritari danska sjón-
varpsins sem talaði með beinu útsend-
ingunni frá Mexikó frá leik Dana og
Skota í gærkvöldi.
Gleðin yfir sigrinum leyndi sér þó
ekki í málróm hans og hann sagði síð-
ar að Danir hefðu unnið verðskuldað-
an sigur þrátt fyrir að danska liðið
hefði leikið illa í fyrri hálfleik.
Sjónvarpsmaðurinn sagði einnig að
Frank Amesen hefði verið besti maður
Dana í leiknum og frískleiki hans og
útsjónarsemi hefði lagt grunninn að
mörgum laglegum sóknarlotum
danska liðsins í leiknum. Þá hældi
hann einnig fyrirliða liðsins, Morten
Olsen, á hvert reipi ásamt vamar-
manninum Sören Busk og sagði að
þeir félagar hefðu haft skosku sóknar-
leikmennina í vasanum.
Þá tók íþróttafréttamaður sjón-
varpsins fram að innáskiptingar þjálf-
arans, Sepp Pionteks, hefðu verið
hnitmiðaðar og greinilega vel hugsað-
ar.
-SK
Þjálfar Gunnar KR-inga?
- Bandaríkjamaður til Vals?
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV eru mjög miklar likur á því
að Gunnar Gunnarsson verði á næstu
dögum ráðinn þjálfari meistaraflokks
KR í körfuknattleik.
Gunnar er mjög reyndur þjálfari og
þjálfaði meðal annars unglingalands-
íið íslands í körfu fyrir nokkrum árum.
Við höfum einnig áreiðanlegar heim-
ildir fyrir því að leikmenn úrvalsdeild-
arliðs KR hafi farið fram á það við
stjóm körfuknattleiksdeildar KR að
hún ráði Gunnar sem þjálfara en ekki
Jón Sigurðsson sem þjálfað hefur liðið
undanfarin tvö ár í úrvalsdeildinni.
Nokkrar líkur em taldar á því að
Bandaríkjamaður þjálfi úrvalsdeildar-
lið Vals á næsta keppnistímabili en
Torfi Magnússon þjálfaði liðið á síð-
asta keppnistímabili. Valsmenn hafa
ekki enn ráðið þjálfara en munu ganga
frá þeim málum á næstunni.
-SK
I Plata danska
j landsliðsins
■ lýkur út
■ Frá Hauki Lárusi Haukssyni, blaðamanni
■ DV í Danmörku:
■ Ekki er talað um annað en heimsmeist-
® arakeppnina í knattspymu hér í Danmörku
flj þessa dagana. Og eftir sigurleikinn í gær-
_ kvöldi má segja að allir, sem á annað borð
| höfðu heilsu og krafta til, hafi sleppt fram
3m af sér beislinu. Og við liggur að Danir hafi
■ eignast nýjan þjóðsöng í kjölfar heimsmeist-
■ arakeppninnar í Mexikó.
I Danska landsliðið tók sig til fyrir keppnina
" og söng inn á litla plötu og ekkert er til í
H Danmörku sem selst betur þessa dagana en
_ einmitt plata landsliðsins sem ber nafiiið
| „Reseppten“. Efvel er að gáð sést á nafhinu
■ að nafn landsliðsþjálfarans er i miðju heiti
■ plötunnar. Þessi plata heíur þegai- selst i
■ milljónum eintaka og er ekkert lát á söl-
■ unni. Aðallag plötunnar þykir mjög gott og
jf er talið víst að það þjóti upp alla vinsælda-
lista í Danmörku. Er það í allt öðmm stíl
I en lögin sem önnur landslið hafa sent frá
m sér fyrir stórmót í íþróttum og kórsöngur
| til dæmis ekki til í laginu. Landsliðsmaður-
■ inn Frank Amesen, sem leikur með PSV
■ Eindhoven í Hollandi, er forsöngvari á plöt-
■ imni og þykir ekki lakari söngvari en
■ knattspymumaður. -SK.
1 Allt vitlausf
i i „Köben“
g Frá Hauki Lámsi Haukssyni, blaðamanni
_ DV í Danmörku:
B Talið er að rúmlega fjórar milljónir Dana,
■ rúmlega 80% dönsku þjóðarinnar, hafi horft
■ á leik danska landsliðsins og þess skoska í
■ gærkvöldi í sjónvarpi hér í Danmörku.
® í Tívoliinu í Kaupmannahöfti var komið
I fyrir risasjónvarpsskermi og þar vom á
fimmta þúsund manns sem horfðu á leikinn
B undir beram himni. Eftir leikinn fylltist ráð-
_ hústorgið og segja má að öll Kaupmanna-
B höfn hafi farið á hvolf eftir að dómarinn
■ blés til leiksloka.
B Fólk réð sér ekki fyrir kæti og dansað var
B á götum úti og var fögnuðurinn jafhvel enn
■ meiri cn eftir frækna frammistöðu danska
B landsliðsins i síðustu Evrópukeppni. Engu
? var likara en að Danir hefðu orðið heims-
B meistarar í gærkvöldi og það verður svo
_ sannarlega fróðlegt að sjá hvað skeður ef
B þeir halda áfram að sigra í leikjum sinum í
. Mexikó. -SK
LeikiráHMídag
Þrír leikir fara fram á HM í dag. 1 A-
riðli leika ítalir og Argentína í Pueblo og
hefet leikur þeirra kl. 18.00. Þá mætast
Búlgarir og S-Kóreumenn einnig í A-riðli.
Leikur þeirra hefet kl. 22.00.
í C-riðli mætast Frakkar og Sovétmenn í
Leon og hefet leikur þeirra kl. 18.00.
-SMJ