Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Síða 22
22
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
„Á ekki nógu stóran hatt til
að taka ofian fyrir mínu liði“
- sagði Franz Beckenbauer eftir jafntefli V-Þjóðverja og Uruguaymanna, 1-1
„Ég á einungis eitt orð yfir leik
minna manna, súperleikur. Ég er í
skýjunum yfir leik þeirra og á ekki
nægilega stóran hatt til að taka ofan
fyrir liðinu,“ sagði Franz Becken-
bauer, þjálfari Vcstur-Þjóðveija, í
gærkvöldi eftir að Þjóðveijar og Ur-
uguaymenn höfðu gert jafntefli, 1-1, í
úrslitakeppni HM í knattspyrnu. Leik-
ið var i Queretaro að viðstöddum 32
þúsund áhorfendum.
„Ég er mjög ánægður með þessi úr-
slit því ég held að Uruguay verði í
einu af efstu sætunum í þessari keppni.
Ég á ekki von á því að Skotar verði
jafnsterkir og Uruguaymenn þegar við
mætum þeim í næsta leik okkar. Ég
get ekki nefnt einn einstakan leik-
mann sem skaraði framúr í kvöld því
þetta var fyrst og fremst verk liðs-
heildarinnar," sagði Beckenbauer.
Borras ekki jafnánægður
Ommar Borras, þjálfari Uruguay,
var ekki jafnhress eftir leikinn og
Beckenbauer. Hann sagði: „Þetta var
jafn leikur, eins og búist var við fyrir-
fram, og jafritefli var sanngjöm úrslit.
umnro
Ensku liðasettin
ENSKA LANDSLIÐIÐ
*
SKOSKA LANDSLIÐIÐ
*
BREIÐABLIK
*
ARSENAL
*
SHEFIFELD WEDNESDAY
og mörg önnur lið leika í
umbro
<^^>umbro
búningar
<^> umbro
fótboltar
C^^umbro
markmannshanskar
-<^^> umbro
íþróttatöskur
nSTUDD
SPORTVÖRUVERSLUN
% *
Háaleitisbraut 68 ii i i Austurver
Simi 8-42-40
Ég er alls ekki ánægður með dómara
leiksins. Hann átti að dæma víta-
spymu á Þjóðverja og eins átti hann
að taka mun harðar á mörgum ljótum
brotum þeirra. Hann gaf mínum
mönnum gul spjöld fyrir sams konar
bort og Þjóðverjar sluppu með tiltal
fyrir."
Ruddalegir Uruguaymenn
Þeir sem sáu leik Umguay og Vest-
ur- Þýskalands í gærkvöldi geta vart
verið sammála þessum ummælum
Borrasar. Umguaymenn léku mjög
grófa knattspymu og áttu að fá mun
fleiri spjöld ef eitthvað var. Eftir að
Antonio Alzamendi hafði skorað mark
Umguay á 5. mínútu lagðist liðið i
vöm og leikmenn 'gerðu sér upp
meiðsli sí og æ. Þeir reyndu ætíð að
tefja leikinn ef á því var nokkur mögu-
leiki og oft á tíðum vom þeir eins og
naut í flagi í návígi við þýsku leik-
mennina. Það er langt frá því að
jafhtefli í þessum leik hafi verið sann-
gjöm úrslit. Þjóðveijar hefðu með
smáheppni átt að vinna stóran sigur.
Þeir réðu miðjunni allan leikinn og
áttu meðal annars hörkuskot í þverslá.
Karl Heinz Rummenigge kom inn á
sem varamaður í síðari hálfleik vegna
meiðsla sem hann á við að stríða og
við komu hans færðist meiri broddur
Þegar mikil óánægja
meðframkvæmd HM
- Mexíkanar gera mistök sem rista djúpt hjá mörgum
Þrátt fyrir að ekki sé liðið langt á
úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í
knattspymu er þegar farið að gæta
mikillar óánægju margra með fram-
kvæmd Mexikana á keppninni.
Stjómendum keppninnar hefur þeg-
ar tekist að fá megnið af fréttamönn-
unum sem starfa í sambandi við
keppnina á móti sér vegna þess að
mjög erfiðlega hefúr gengið að koma
þeim á leikina. Rútur þeirra hafa fest
í umferðarhnútum hér og þar og marg-
ir hafa misst af leikjunum.
„Margir af leikvöllunum sem leikið
er á þykja varla boðlegir fyrir lands-
leiki vegna þess hve loðnir þeir em
og er sérstaklega mikil óánægja með
aðalleikvanginn í Mexíkó, Azteka.
Mikið hefúr verið kvartað yfir þessu
en enn hafa engar úrbætur verið gerð-
ar.
Þjóðsöngvamir eilíft vandamál
Það hefur vafist mjög fyrir Mexíkön-
um að finna þjóðsöngva landanna sem
leika á HM og leika þá á réttum tíma.
í leik Brasilíu og Spánar á sunnudag-
inn var þjóðsöngur Brasilíu ekki
leikinn á réttum tíma. Hins vegar þeg-
ar leikmenn Brasilíu voru búnir að
stilla sér upp fyrir myndatöku tók
þjóðsöngurinn að hljóma í hátalara-
kerfinu og dómari leiksins rak alla
leikmennina á fætur.
Eins og skýrt var frá í DV í gær kom
upp svipað hneyksli á leik Mexíkó og
Belgíu í fyrradag en þá var það belg-
íski þjóðsöngurinn sem týndist.
í gærkvöldi, á leik Uruguay og Vest>
ur-Þýskalands, var byrjað á því að
leika þjóðsöng Uruguay. Sjónvarps-
tökumennimir mexíkönsku héldu þá
að verið væri að leika þýska þjóðsöng-
inn og á skjánum birtust eingöngu
myndir af þýsku leikmönnunum.
Þá hafa sjónvarpsútsendingar frá
Mexíkó verið í molum en sem betur
fer höfum við hér á landi sloppið
þokkalega þar til á leik Uruguay og
V-Þýskalands í gærkvöldi er miklar
truflanir urðu í síðari hálfleik.
Það er fúrðulegt að Mexíkanar virð-
ast misstíga sig við framkvæmd á
einföldum atriðum en einmitt þeim
atriðum sem kannski grafa sig dýpst
í hjörtu þeirra sem hlut eiga að máli.
Þeir verða að taka sig á ef ekki á eft-
ir að minnast þessarar heimsmeistara-
keppni sem „keppni mistakanna“.SK
í sóknarleik þýskra sem endaði með
jöfnunarmarki Klaus Allofs rétt fyrir
leikslok.
Dómgæsla fyrir neðan allar
hellur
Tékkinn Vojtech Christov dæmdi
leikinn og hafði engin tök á honum.
Leyfði hann alltof mikla hörku og var
mjög ragur við að gefa ruddalegum
leikmönnum Uruguay gul spjöld og
jafnvel rauð. Þá tók hann alls ekki á
því þegar leikmenn Uruguay voru að
tefja leikinn, sparkandi boltanum í
burtu í aukaspymum og tefjandi fram-
kvæmd þeirra. í heild hefur dómgæsl-
an á HM í Mexíkó komið á óvart.
Dómarar hafa leyft mun meiri hörku
en búist var við og það er ekki þeim
að þakka að fjöldi leikmanna sé ekki
nú þegar stórslasaður.
Litlir meistarataktar
Lið Uruguay olli miklum vonbrigð-
um í þessum leik. Menn hafa verið að
tala um að þetta sé eitt besta lið í
heiminum en samt lögðu þeir ekki í
annað en stífan vamarleik gegn Vest-
ur-Þjóðverjum í gærkvöldi sem skýrir
nú best styrkleika þýskra. Og lið sem
leikur slíka knattspymu sem Umguay
í gær, ruddalegan vamarleik, á alls
ekki skilið að verða í efetu sætunum
í Mexíkó. Slíkt yrði áfall fyrir knatt-
spymuna.
Aftur á móti léku Þjóðverjar glymr-
andi knattspymu og greinilegt að þeir
verða ofarlega nema eitthvað óvænt
komi upp. Að öðrum ólöstuðum var
Berthold bestur í liði þeirra en Hans
Peter Briegel lék einnig mjög vel sem
og restin af liðinu.
Lið Vestur-Þýskalands var þannig skip-
að: Schumacher, Briegel, Berthold, Först-
er, Augenthaier, Eder, Matthaeus,
Magath, Brehme, Völler, Allofs. Littbarski
kom inn á í leikhléi og Rummenigge þegar
nokkuð var liðið á síðari hálfieik.
• Þrir leikmenn Uruguay fengu gult
spjald í leiknum og kann það að reynast
Jœim dýrkeypt og ekki síst ef þeir leika
álíka ruddalega í næstu leikjum sínum og
í gærkvöldi.
-SK
I Breskt I
! met hjá j
j Christie j
■ Coe vann 800 m |
* Breski spretthlauparinn, Linford |
I Christie, sem er núverandi Evr- .
■ ópumeistari í 200 metra hlaupi |
I innanhúss, setti i gærkvöldi nýtt ■
| breskt met í 100 metra hlaupi á I
■ alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í I
I Madrid á Spáni.
■ Christie hljóp á frábæmm tíma, |
J 10,04 sek., en eldra metið átti ■
I ólympíumeistarinn frægi, Alan I
* Wells en það var 10,07 sek. Christie ■
I sigraði i hlaupinu. Thomas Jeffer-1
- son, sem varð þriðji í 100 metra ■
I hlaupi á síðustu ólympíuleikum, I
■ varð annar á 10,17 sek.
■ • Bretinn Sebastian Coe sigraði I
| í gærkvöldi í 800 metra hlaupi á ■
■ 1:45,66 min. Annar varð Rod I
I Dmppers frá Hollandi á 1:47,76 min. *
I og Spánveijinn Andres Vera þriðji |
* á 1:48,42 min.