Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Side 35
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986.
35
i
Reykjavíkurmeistarar Fram 1986: Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Steinsson, fyririiði, Örn Valdimarsson, Viðar Þorkelsson, Jón Sveinsson, Steinn Guðjónsson og Þorsteinn Þorsteins-
son. Fremri röð: Þórður Wlarelsson, Guðmundur Torfason, Friðrik Friðriksson, Pétur Ormslev og Kristinn Jónsson. DV-myndir Brynjar Gauti.
„Fram-liðið á
að koma vel
Það þýðir ekkert að örvænta:
- segir Marteinn Geirsson, fyrrum fyrirliði Fram
Marteinn Geirsson, fyrrum fyrirliði Fram.
Góður
árangur
Ásgeirs
með Fram
Ásgeir Eliasson, þjálfari Fram-
liðsins, hefur náð mjög góðum
árangri með liðið síðan hann tók
við þvi 1985. Undir stjórn Ásgeirs
hafa Framarar orðið Reykjavíkur-
meistarar 1985 og 1986, unnið sigur
í meistarakeppni KSI bæði þessi
ár og orðið bikarmeistarar 1985.
Fram hefur því unnið fimm titla
af sex mögulegum undir stjórn
Ásgeirs.
Framliðið stóð sig mjög vel í
Evrópukeppni bikarhafa sl. keppn-
istímabil. Það varð fyrst til að
vinna leiki, bæði í 1. og 2. umferð.
Lagði Glentoran að velli, 3-1, og
Rapid Vín, 2-1, á Laugardalsvellin-
um. Markatala Fram út úr fjórum
leikjum var 5-6 sem er mjög góður
árangur.
Undir stjórn Ásgeirs hefur Fram-
liðið leikið skemmtilega sóknar-
Ásgeir Eliasson.
knattspyrnu sem áhorfendur hafa
kunnað að meta. Framarar skor-
uðu 37 mörk í 1. deildar kcppninni
í fyrra.
„Framliðið var ekki nógu sann-
færandi í leikjunum gegn Þór og
Keflavík. Það er ekki laust við að
leikmenn Fram hafi vanmetið Kefl-
vikinga sem fóru ekki vel af stað.
Það má enginn koma með því hugar-
fari til leiks að sigur sé unninn. Því
hugarfari verður að breyta þvi að
allir leikir í 1. deild eru erfiðir," sagði
Marteinn Geirsson, fyrrum fyrirliði
Fram-liðsins.
Maiteinn sagði að það þýddi ekk-
ert fyrir Framara að örvænta.
„Strákamir eiga eftir að gera betur.
Þeir eiga eftir að koma vel út. Fram-
liðið á eftir að verða sterkt á á
endasprettinum. Það er reynslu-
mikið og leikmenn liðsins hafa lært
af keppnistímabilinu 1985 þegar þeir
horfðu á eftir meistaratitlinum til
Valsmanna í lokin.
Framliðið leikur góða knattspyrnu
og er vömin mjög sterk. Vamar-
menn em þó helst til rólegir, gefa
knöttinn seint frá sér og þar með
bjóða þeir hættunni heim. Jón
Sveinsson, sem staðsetur sig vel,
mætti skila knettinum fyrr frá sér.
Þórður Marelsson hefur fallið vel
inn í leik Fram-liðsins. Hann er
skemmtilegur sóknarbakvörður sem
er með góðar fyrirgjafir. Þá er hann
geysilegur baráttumaður og gefst
ekki upp fyrr en í fulla hnefana,"
sagði Marteinn.
Pétur og Guðmundur Torfa-
son verða að leika á fullu
Marteinn sagði að það væri greini-
legt að þeir Pétur Ormslev og
Guðmundur Torfason yrðu alltaf að
leika á fullu í leikjum. Þeir mættu
aldrei gefa eftir. Það er þeirra hlut-
verk að porra aðra leikmenn liðsins
upp, með baráttu og uppörvun.
Það hefur sést á leik Fram að
Ómar Torfason hefur skilið eftir
stórt skarð. Ómar var geysilegur
vinnuhestur sem lék Pétur og Krist-
in Jónsson uppi í fyrra. Pétur verður
að taka hlutverk hans, vinna fyrir
liðið. Hann má aldrei gefast upp,“
sagði Marteinn.
Mörkin eiga eftir að koma
„Já, það er rétt að Framliðið hefur
skorað fá mörk. Aðeins tvö í þremur
leikjum. Ég held að þetta sé aðeins
tímabundið ástand. Mörkin eiga eft-
ir að koma á færibandi. Strákarnir
verða að nýta færin sín, eins og þeir
gerðu í fyrra. Þeir hafa reynslu til
þess og eiga ekki að hika við að
skjóta þegar þeir komast í færi sem
hafa verið mýmörg. Auðvitað getur
það orðið sálrænt að nýta ekki færin
sín. Leikmenn Fram hafa það mikla
reynslu að þeir eiga'ekki að láta það
hafa áhrif á sig,“ sagði Marteinn.
Marteinn sagði að hann hefði
lúmskan grun um að Fram og Valur
deildu með sér stigum annað kvöld
á Valsvellinum. „Leikir Fram og
Vals hafa oftast endað með jafntefli.
Mér hefur ekki fundist Valsliðið eins
sterkt og það var sl. keppnistímabil,
þannig að Framarar ættu að geta
knúið fram sigur ef þeir leika með
réttu hugarfari."
Framtíðin björt
„Framtíðin er björt hjá Fram. Lið-
ið er hefur mikla reynslu og þá eru
margir ungir leikmenn byrjaðir að
banka á dymar. Leikmenn eins og
Gauti Laxdal og Amljótur Davíðs-
son sem stóðu sig mjög vel með
liðinu í Reykjavikurmótinu og
meistarakeppni KSÍ. Þeir em menn
framtíðarinnar. Aðeins tveir af fjöl-
mörgum ungum leikmönnum sem
frábært unglingastarf hjá Fram hef-
ur ávaxtað," sagði Marteinn.
-SOS
Framarar með Fram
Síðan Fram hóf að leika í 1. deildar
keppninni 1955, eða þegar deilda-
skiptingin var tekin upp, hafa nær
undantekningarlaust Framarar
þjálfað Framliðið. Aðeins þrír „út-
lendingar" hafa komið í herbúðir
Fram, þeir Öm Steinsen, KR, Hólm-
bert Friðjónsson, Keflavík, og
Pólverjinn Andrzej Strejlau.
Framaramir, sem hafa séð um
þjálfunina, em: Karl Guðmundsson,
Guðmundur Jónsson, Jóhannes
Atlason, Skúli Nielsen, Reynir
Karlsson, Anton Bjamason og Ás-
geir Elíasson.
í fyrra vom fjórir Framarar þjálf-
arar í 1. deild: Ásgeir Elíasson, Fram,
Hörður Helgason, Akranesi, Jó-
hannes Atlason, Þór, og Marteinn
Geirsson, Víði.
í ár em tveir Framarar þjálfarar:
Ásgeir Elíasson, Fram, og Jón Her-
mannsson, Breiðabliki.
eftir
út