Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1986, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1986, Page 17
DV. LAUGARDAGUR 28. JUNl 1986. 17 .. Grænlendingarnir komu skemmtilega á óvart. Þeir sýndu þrjá einþáttunga í Iðnó. Það gamla leikhús hefur trúlega ekki áður angað af lýsi og skinnum. Danska götuleikhúsið vakti mikla athygli vegfarenda um Lækjartorg. Þar birtust kóngar og drottningar og aðrar fígúrur nauðsynlegar f torgsýningar. einkað sér fallegt myndmál og látbragð, stutt af margþættri tónlist - sýndu sína tragísku viðureign við rembingslegan yfirgang hinna nor- rænu stórþjóða gegnum aldimar - og gerðu það þannig að við - fákunn- aridi um menningu þeirra og lífsskil- yrði - munum eftirleiðis veita þeim sérstaka athygli. Til hvers að leika? Þessi norræna leiklistarhátíð hefur verið rækilega undirbúin. Skipulag allt virðist vera í besta lagi og gestum séð fyrir lesefni og upplýsingum þannig að enginn þarf að svífa í vill- um utan við það sem á boðstólum er. Utgangspunktur hvers leikhóps, þ.e. norrænn og þjóðlegur menning- ararfur, hefur orðið til þess að hver hópur fyrir sig hefur lagt upp í vinn- una á eigin forsendum sem síðan sameinast öðrum þátttakeridum í einum punkti og skapar umræðu- grundvöll eða sjónarhól yfir arf norrænna manna - og starfsemi áhugaleikara. Fyrir íslensk leikfélög er það svo sérstakt íhugunarefni til hvers skal unnið í framtíðinni: á að starfa í leik- félagi í þeim tilgangi að fá útrás fyrir leikhæfileika og löngun til að standa á leiksviði, eða á að nota félagsskap- inn og aðstöðuna til að kanna eigin tilveru, sögu byggðar og pólitík. í þeim verkum, sem sýnd voru á nor- rænu hátíðinni, var næsta fátt um „dramatískar persónur", miklu frem- ur að markaðar væru týpur og síðan unnið út frá mynd, staðsetningu og rödd. Flestar sýninganna studdust skemmtilega við leikmynd og tónlist- arumgjörð - og sem betur fer lítið um það að lítt leikskólað fólk væri að þröngva sér inn í erfið leikhlut- verk upp á von og óvon. Markmið áhugaleikstarfsins getur vitanlega verið af ýmsum toga. En marki menn i upphafi ákveðinn til- gang - tilgang sem tengist umhverfi fólks á hverjum stað, hlýtur áhuga- starfið að koma fleirum við - jafn- framt því sem það hristir þá upp í atvinnuleikhúsunum sem nú um stundir stefna öll í að verða einhvers konar borgaraleg leiklistarsöfn ffemur en lifandi leikhús. -GG 50% AFSLÁTTUR Á STÆKKUNUM yfir 60 móttökustaðir á landinu Athugið! Afsláttarmiðar 91 fylgja í framköllunar- JéBb pokunum frá okkur. o#>arói/é><r<r - Góð mynd verður betri stækkuð Alfa Romeo Alfasud Ti 1982, lítið ekinn og gullfallegur. Ný low profile dekk og fleiri aukahlutir. Þrælsprækur bíll. Alfa Romeo Alfasud 1980, ekinn 52.000 km. Einn eig- andi. Sérlega fallegur. Alfa Romeo Alfetta 2, D, 1982, ekinn aðeins 30.000 km. Einn eigandi. Sérstakur bíll á góðu verði. \ I / CHRYSLER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.