Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1986, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 1986.
19
Iþróttir
\
'’2>'
■
• Sigurjón Kristjánsson skorði tvö mörk gegn sínum gömlu félögum þegar Valsmenn unnu stærsta sigur sumarsins í 1. deild. Þeir skoruðu sjö mörk áður en
yfir lauk og hefðu getað bætt við fleirum. Hér sést Sigurjón skora fyrsta mark leiksins i fyrri hálfleik. Hann rennir boltanum framhjá Sveini í marki Breiðabliks
sem kemur engum vömum við. DV-mynd Brynjar Gauti
Markahátíð hjá Vals-
mönnum í Kópavogi!
- þegar þeir unnu stærsta sigur sumarsins í 1. deild, 7-0, gegn UBK
„Þetta var mjög góður leikur hjá
strákunum og nú tókst þeim að skora
mikið af góðum mörkum. Markaskor-
unin heíúr einmitt verið aðalvandamál
okkar hingað til. Það hefur verið
ákveðin stígandi í þessu hjá okkur.
Það hafa komið nýir strákar inn frá
því í fyrra og það tekur tíma að láta
þá falla inn í liðið,“ sagði Ian Ross,
þjálfari Vals, eftir að Valsmenn höfðu
hreinlega rúllað Blikum upp í Kópa-
vogi í gærkvöldi. Stærsti sigur
sumarsins, 7-0, leit þá dagsins ljós og
voru yfirburðir Valsmanna fyllilega í
samræmi við tölumar. Þeir hefðu þess
vegna getað bætt við enn fleiri mörk-
um áður en yfir lauk. Valsarar virðast
ætla að hafa sama háttinn á og í fyrra
og eru greinilega að komast í hörku-
form eftir hæga byijun. Það sem eftir
er íslandsmótsins gæti orðið að kapp-
hlaupi milli Vals og Fram. „Nei, ég
held nú ekki að lið Vals og Fram fari
að skera sig sérstaklega úr. Það má
ekki afskrifa önnur lið,“ sagði Ian
Ross, sem taldi þó að þessi lið hefðu
leikið bestu knattspymuna til þessa.
Það er hægt að taka undir með Ross
að Valsmenn sýndu virkilega góða
knattspymu í gær þó því sé ekki að
leyna að fyrirstaða Blika var ekki
mikil í leiknum.
• Fyrstu 20 mínútumar vom til-
þrifalitlar og gekk leikmönnum illa
að fóta sig á hálum vellinum. Valsarar
vom þó heldur sterkari og náðu foiys-
tunni á 21. mínútu. Magni Pétursson
átti þá þversendingu fyrir markið og
Ámundi Sigmundsson náði að senda
boltann inn á Siguijón sem var frír
fyrir miðju marki. Hánn gaf sér nægan
tíma og sendi boltann síðan framhjá
Sveini Skúlasyni í marki Blika.
• Annað mark Vals kom á 28. mín-
útu. Ámundi fékk þá stungusendingu
frá Magna, lék inn að marki og af-
greiddi síðan boltann ömgglega
framhjá Sveini. Vel að verki staðið
hjá Ámunda.
Fimm mörk Valsmanna í seinni
hálfleik
í hálfleik gerði Jón Hermannsson,
þjálfari Blika, tvær breytingar á liði
sínu en þær virtust koma fyrir lítið
því Valsmenn tóku öll völd i leiknum.
• Þriðja mark þeirra kom þegar á
46. mínútu. Guðni Bergsson átti þá
hörkuskot sem Sveinn varði en hann
missti boltann frá sér og þar var
Ámundi mættur og skoraði ömgglega.
• Þrem mínútum síðar átti Valur
Valsson hörkuskot af 20 m færi og
skaust boltinn undir Svein og í mark-
ið. Staðan 4-0.
• Á 59. mínútu kom glæsilegasta
mark leiksins. Valur Valsson tók þá
góða rispu upp vinstri kantinn og gaf
síðan inn að marki. Þar tók Bergþór
Magnússon við boltanum, lagði hann
út á Sigurjón sem skoraði með hörku-
skoti neðst í markhomið, algerlega
óverjandi.
• Á 70. mínútu kom sjötta mark
Vals. Eftir góða sókn átti Siguijón
góða fyrirgjöf á Val Valsson sem hafði
nægan tíma til að skora en það virtist
í fyrstu ætla að vefjast eitthvað fyrir
honum.
• Sjöunda og síðasta mark leiksins
kom á 78. mínútu. Þá náði Ámundi
að rífa sig laglega upp hægri kantinn
og gefa síðan fyrir á Hilmar Sighvats-
son sen skoraði af stuttu færi. Vöm
Blika var víðs fjarri eins og svo oft í
leiknum.
Eins og tölumar gefa til kynna léku
Valsmenn við hvem sinn fingur í
leiknum. Þeir sprungu út í seinni hálf-
leik og var þá oft gaman að sjá spil
þeirra. Hreyfanleiki og hraði þeirra
gerði gersamlega út af við Blika. í
raun er erfitt að taka nokkum út úr
Valsliðinu, það áttu allir góðan dag.
Ámundi er þó greinilega að ná sér á
strik, mjög hreyfanlegur og fljótur.
Valur og Siguijón vom einnig mjög
góðir og fóm oft illa með vamarmenn
Blika. Magni og Ingvar léku einnig
vel.
Blikamir vilja sjálfsagt sem fyrst
gleyma þessum leik. Þeir virtust ein-
faldlega ekki vera með í leiknum.
Þungir og svifaseinir og dekkuðu iOa.
Þeir náðu ekki einu sinni að skapa
sér færi. Það eina sem þeir hugsuðu
um var að hreinsa fiá og þá lenti bolt-
inn vanalega hjá nsesta Valsmanni.
Dómari var Friðgeir Hallgrímsson og
dæmdi vel enda leikurinn prúðmann-
legá leikinn. Aðeins Ingvar fékk gult
spjald.
Áhorfendur vom 507.
Láðin: UBK. Sveinn Skúlason, Ólafur
Bjömsson, Ingvaldur Gústafsson,
Magnús Magnússon, Guðmundur Þ.
Guðmundsson, Guðmundur V. Sig-
urðsson (Gunnar Gylfason á 45. mín.)
Jón Þórir Jónsson, Jóhann Grétars-
son, Helgi Ingason, Þorsteinn Geirs-
son (Steindór Elísson á 45. mín.) og
Sigurður Viðarsson.
Valur. Guðmundur Hreiðarsson,
Guðni Bergsson, Bergþór Magnússon,
Magni Bl. Pétursson, Sigurjón Kristj-
ánsson, Þorgrímur Þráinsson, Ársæll
Kristjánsson, Valur Valsson, Ingvar
Guðmundsson, Ámundi Sigmundsson
og Hilmar Sighvatsson.
Maður leiksins: Ámundi Sigmunds-
| Argentína |
i vann USA i
- á HM í köifu |
I Lið Argentínu kom heldur |
■ betur á óvart í gær þegar _
| keppnin í undanúrslitum á |
. heimsmeistaramótinu í körfu- ■
| knattleik hófet á Spáni. Það lék I
Ivið Bandaríkin og sigraði 74- I
70. Fyrsti tapleikur bandaríska ■
Iliðsins og það verður nú að I
sigra Kanada og Júgóslaviu í ■
I B-riðlinum til að hafa mögu- I
* leika á að keppa um heims- I
I meistaratitilinn. Júgóslavía *
Ihefur sigrað í öllum leikjum I
sínum í riðlinum.
| Argentínsku leikmennimir I
Ivoru mjög ákafir i leik sínum i I
gær og náðu um tíma tólf stiga *
Iforustu í síðari hálfleiknum. |
Esteban Camissasa var aðal- .
I maður Argentinumanna og |
* skoraði 21 stig í leiknum. I ■
I heimsmeistarakeppninni 1982 |
■ urðu Bandaríkin í öðru sæti. I
I Charles Smith var stigahæstur I
IBandaríkjamanna í leiknum I
með 17 stig.
ISovétríkin, Brasilía og Júgó- |
slavía era nú einu liðin sem _
| ekki hafa tapað leik á Spáni. |
z Sovétríkin sigruðu Grikkland í ■
I gær 105-93. Þar var Tikhon- |
Ienko í aðalhlutverki hjá sové- ■
skum. Skoraði 26 stig. Grikkinn I
Gallis varhinsvegarstigahæst- •
Iur í leiknum með 32 stig. Hann I
er stigahæstur í keppninni með ■
1210 stig. Þá vann Brasilía Kúbu I
99-83 og var það öraggur sigur. _
I Sextán stiga munur í hálfleik, •
i 53-37. Spánn vann ísrael með I
I miklum mun eða 94-65 (48-34) J
- en þessir þrír leikir voru í A- I
* riðlinum.
í B-riðlinum sigraði Ítalía |
J Kanada 89-86 eftir 43-43 í hálf- ■
I leik og Júgóslavía vann stórsig- J
I ur á Kína 106-82. Leikimir í |
■ A-riðlinum voru háðir í Barcel- .
I ona en í B-riðlinum í Oviedo. í |
_ A-riðlinum hafa Sovétríkin og ■
| Brasilía 6 stig úr leikjunum I
Iþremur - tveir fi-á forriðlunum I
- Spánn er með 5 stig, ísrael 4 ■
Istig, Grikkland og Kúba 3 stig. I
í B-riðlinum er Júgóslavía með
1 6 stig. Bandaríkin og Ítalía með |
* 5 stig, Kanada og Argentína 4 _
| stig og Kína 3 stig. Kína hefur |
_ sem sagt tapað öllum leikjum ■
I sínum. Tvö stig gefin fyrir sig- I
ur, eitt stig fyrir tap.
Órofin sigur-
ganga Vals-
stúlknanna
- hafa sigrað í 7 leikjum
Valsstúlkumar í 1. deild kvenna eru
nú á góðri leið með að tryggja sér ís-
landsmeistaratitilinn i knattspym-
unni. Þær hafa sigrað í öllum leikjum
sínum í keppninni hingað til. Hafa þvi
hlotið 21 stig í leikjunum sjö. Unnu
mjög þýðingarmikinn sigur á Akra-
nesi, 1-0, í síðustu viku í Laugardaln-
irni. Það var Kristín Amþórsdóttir sem
skoraði markið í leiknum. Myndin til
hliðar er frá þeim leik. Akranes er
með 12 stig eftir 6 leiki. Breiðablik
hefur einnig 12 stig en eftir fimm leiki.
Hefúr aðeins tapað einum leik. Á laug-
ardag var einn leikur í 1. deild.
Keflavík sigraði Þór, 3-1, í Keflavík.
DV-mynd GS
hsím
I_________________________
{ Tveir Pólveijar |
I til Homburg I
| V-þýska liðið FC Homburg, |
I sem Sigurður Grétarsson lék ■
I með um tíma, hefur fengið tvo I
Ipólska landsliðsmenn til liðs við I
sig. Homburg, sem vann sig upp *
Ií Bundesliguna í vor, keypti þá |
Andrzej Buncol og Roman _
I Wojcicki fyrir tæpar 23 milljónir •
* kr. Forráðamenn Homburg vora I
| íþrjádagaíPóllandiísamninga-
- viðræðum við Iægia Varsjá, sem I
* Buncol leikur með, og Widzew _
I Lodz, sem Wojcicki leikur með, |
áður en samningar tókust.
I -SMJ 1
| -------------- ^.1
. Moskva: „Það |
I svarar ekki“ i
Iíslenska landshðið í hand- I
knattleik lék við Sovétríkin á *
Ifriðarleikunum í gær. Þrátt fyrir |
ítrekaðar tilraunir til að ná í far- .
I arstjóra eða leikmenn tókst það |
J ekki. Við höfðum símanúmerið á ■
I hóteli þeirra en þegar hringt var |
_ í Moskvu var alltaf sama svarið ■
I hjá miðstöðinni. „Því miður, það I
Isvarar ekki.“ Lítil breyting hjá I
sovéskum. Lokað land. Við ■
Ireyndum einnig að fá fréttastofu I
Reuters til að grafa upp úrshtin. _
I Henni tókst það ekki.
hsim a