Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1986, Qupperneq 20
20
MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 1986.
Iþróttir
Staðan í
1. deildinni
Þrír leikir voru háðir í 1. deild um helgina. Orsiit
urðu þessi:
ÞórFram 0-3
Keflavík-FH 3-2
Breiðabfik-Valur 0-7
Staðan er nú þannig:
Fram 11 82 1 26-6 26
Valur 11 7 2 2 18-4 23
Keflavík 11 7 0 4 14-14 21
Akranes 10 4 2 4 16 10 14
KR 10 3 5 2 13-8 14
Þór 11 4 2 5 14-20 14
FH 11 4 1 6 17-20 13
Breiðablik 11 3 2 6 7-19 11
Víðir 10 2 2 6 6-14 8
Vestmannaeyjar 10 1 2 7 9-24 5
Tveir síðustu leikimir í 11. umferð verða í kvöld.
Akranes og Veatmannaeyjar leika á Akranesi, KR og
Víðir i Reykjavík.
íslandsmet í
eldri flokki
Á öldungamóti HSK á Selfossi á laugardag settí Jón
H. Magnússon, ÍR, íslandsmet í sleggjukasti í 50 ára
flokki með 6 kg sleggju og kastaði 52,16 m. Ólafur
Unnsteinsson, HSK, sigraði í kúluvarpi, 12,23 m,
kringlukasti, 38,60 m, og sleggjukasti, 32,46 m, 7,2 kg
í 40 ára flokki.
Sigurður Friðfinnsson, FH, sigraði í hástökki í 55
ára flokki, 1,43 m. Trausti Sveinbjömsson, UBK, í 100
m hlaupi, 12,1 sek. og 800 m hlaupi, 2:23,2 mín. í 40
ára flokki, Bjöm Jóhannsson, UMFK, í langstökki í
50 ára, 4,52 m, Fred Schalki, ÍR, í 100 m hlaupi, 35
ára, 12,1 sek., Halldór Matthíasson í 35 ára flokki í
hástökki, 1,47 m, og kringlukasti, 32,48 m.
Ólafía Ingólfsdóttir, Samhygð, kastaði kringlu 26,76
m.
Evrópumeistaramót öldunga í frjáisum íþróttum fer
fram í Malmö í Svíþjóð 26. júlí-2. ágúst. Oiafur Unn-
steinsson, HSK, Jón H. Magnússon, Trausti Svein-
bjömsson og Sigurður Friðfinnsson keppa á mótinu.
dlafur hlaut þriðja sætið í kúluvarpi á Norðurlanda-
meistaramótinu í fyrra og Jón H. Magnússon í sleggj-
ukasti. Einnig keppa Unnur Stefánsdóttir, HSK,
Guðmundur Hallgrímsson, UÍA, og Þorsteinn Löve.
-hsím.
Ólafur Unnsteinsson, til vinstri, og Jón H. Magnússon
keppa á EM í Malmö.
Fimnrtarþraut
á Selfossi
Á fimmtarþrautarmóti HSK á Selfossi síðastliðinn
laugardag sigraði íslandsmeistarinn í fimmtarþraut,
Þórarinn Hannesson, UMF Selfoss, og hlaut 2.572 stig,
2. Ólafúr Guðmundsson, UMFS, 2.473 stig, 3. Ásmund-
ur Jónsson, UM FS, 2.266 stig. 1 þríþraut kvenna sigraði
Birgitta Guðjónsdóttir, Selfossi, með 1953 stig, 5,56 m
í langstökki, 13,1 sek. í 100 m hlaupi, 10,78 m í kúlu-
varpi. Ingibjörg ívarsdóttir, Samhygð, sigraði í lang-
stökki. 5,58 m, og 100 m hlaupi, á 12,8 sek. ÓU.
Guðmundur Steinsson skorar annað mark Fram á Akureyri. DV-mynd Jón Hauksson.
Sjöundi sigurieikur Fran
- Vann auðveldan sigur á Þór á Akureyri á laugardag 3-0.
Stefin Amaldsson, DV, Akureyxi
Eftir jaínan íyrri hálfleik var aðeins
eitt lið á vellinum í þeim síðari í leik
Þórs og Fram í 1. deildinni hér á Akur-
eyri á laugardag. Fram-liðið sótti nær
stanslaust, hafði yfirburði á öllum
sviðum knattspymunnar og vann auð-
veldan sigur 0-3. Öll mörkin skoruð í
síðari hálfleiknum og þá stóð ekki
steinn yfir steini hjá Þórsurum. Fram-
arar létu þá hlaupa á milli sín og réðu
öllum gangi leiksins. Sjöundi sigur-
leikur Fram í röð í 1. deild og útlitið
bjart þó svo Fram hafi ekki nema
þriggja stiga forustu á Val sem er i
öðru sæti í 1. deildinni.
Fyrri hálfleikur liðanna í gær var
mjög daufúr en það fór vel um 885
áhorfendur í frábæru veðri, tuttugu
stiga hiti. Leikurinn fór að mestu fram
á miðjunni, oft nokkuð góður samleik-
ur, sem þó engum árangri skilaði upp
við mörkin. Markverðimir höfðu lítið
sem ekkert að gera. Mjög jafnt framan
af en Þór sótti heldur meira lokakafla
hálfleiksins. Aðeins þrjú atriði sem
vert er að minnast á. Þór fékk hom-
spymu á 9. mín. og nokkur hætta við
Fram- markið þegar vamarmönnun-
um tókst ekki að hreinsa frá. Þórsu-
rum tókst ekki að nýta það. Á 23.
mín. fékk miðherji Fram, Guðmundur
Steinsson, besta færið í hálfleiknum.
Spymti framhjá af vítateigslínunni. Á
33. mín. átti Kristján Kristjánsson
þrumuskot rétt utan markteigs en
markverði Fram, Friðrik Friðrikssyni,
tókst að verja.
Sýning hjá Fram
Síðari hálfleikurinn var hins vegar
algjör sýning hjá Reykjavíkurliðinu
og oft lék það mjög vel. Á 47. mín.
skaut Janus Guðlaugsson framhjá
marki Þórs af stuttu færi eftir send-
ingu Kristins Jónssonar. Mínútu síðar
lék Halldór Áskelsson á tvo vamar-
menn Fram rétt utan vítateigs. Gaf
knöttinn þvert fyrir markið á Hlyn
Birgisson sem var frír inn á markteig.
Hlynur hitti ekki knöttinn og síðan
kom fyrsta markið hinum megin.
• Það var á 52. mín. Jón Sveinsson
sendi knöttinn frá miðju fram á Krist-
in og vamarmenn Þórs voru illa á
verði. Kristinn fékk knöttinn alveg
frír, lék áfram og á Júlíus Tryggvason.
Spymti á markið frá vítateigslínunni.
Markvörður Þórs, Baldvin Guð-
mundsson, kom aðeins við knöttinn
en gat ekki komið i veg fyrir mark.
• Guðmundur Steinsson skoraði
annað mark Fram á 57 mín. Janus var
upphafsmaðurinn. Gaf laglega á Rrist-
in, sem sendi knöttinn þvert fyrir
markið á Guðmund. Hann var óvald-
aður við markteigshomið og átti ekki
í erfiðleikum að koma knettinum í
markið framhjá Baldvini (sjá mynd).
• Fram skoraði þriðja mark sitt á
82. mín. og var það nákvæm eftiriíking
á því fyrsta. Þó hlutverkaskipti þvi
nú var það Gauti Laxdal sem fékk
knöttinn einn og óvaldaður. Lék upp
að vítateignum og þegar Baldvin
markvörður hljóp gegn honum lyfti
Gauti knettinum yfir hann í markið á
snyrtilegan hátt.
Fram fékk fleiri færi í síðari hálf-
leiknum. Á 61. mín. varði Baldvin vel
í hom spymu frá Guðmundi Steins-
syni og á 75. mín. björguðu Þórsarar
á marklínu skalla frá Guðmundi
Torfasyni.
Þeir Júlíus og Baldvin, sem oft greip
vel inn í, vom bestu menn Þórs í leikn-
um og Baldvin verður ekki sakaður
um mörkin. Þá tókst Áma Stefánssyni
vel upp í því hlutverki að taka Guð-
mund Torfason úr umferð þó svo
Guðmundur hefði á stundum betur í
Besti leikur KefMkinga í
- sigruðu FH, 3-2, í gærkvöldi í 1. deild í bráðskemmtilegum lei
Magnús Gíslasian, DV, Suðumesjum:
Keflvíkingar bám sigurorð af FH-
ingum, 3-2, í Keflavík f gærkvöldi.
Þetta var einn besti leikur Keflvíkinga
í sumar og verður sigur þeirra að telj-
ast sanngjam. Þrátt fyrir að völlurinn
væri blautur og rigning væri að hrella
leikmenn meðan á leik stóð var leikur-
inn mjög skemmtilegur á að horfa.
Bæði liðin lögðu sig fram um að leika
knattspymu.
FH-ingar léku gégn sunnanátt í fyrri
hálfleik en vom þó betri aðilinn til
að byrja með.
• Það vom þó Keflvíkingar sem
skomðu fyrsta markið. Á 21. mínútu
átti Óli Þór Magnússon í návígi við
tvo vamarmenn FH. Hann hafði betur
og náði að senda á Sigurjón Sveinsson
sem skaut þrumuskoti frá vítateig.
Boltinn hafnaði undir þverslánni og
inn. Glæsilegt mark hjá Sigurjóni.
• FH-ingar héldu áfram að sækja
og náðu að jafria á 37. mínútu. Krist-
ján Gíslason fékk þá boltann fyrir
miðju marki og eins og Sigurjón áður
skaut hann hörkuskoti í markið - al-
gerlega óverjandi fyrir góðan mark-
vörð ÍBK, Þorstein Bjamason.
Seinni hálfleikur var einnig fjörlega
spilaður og á 57. mínútu hefðu FH-
ingar getað náð foiystunni þegar
Pálmi átti hörkuskot á markið. Þor-
steinn varði vel en missti boltann til
Inga Bjamar sem skaut í einn vamar-
manna ÍBK er var staðsettur á
marklínu.
• Þrem mínútum síðar náðu FH-
ingar hins vegar forystunni. Ingi Bjöm
átti þá í baráttu við tvo vamarmenn
ÍBK við endalínu. Honum tókst að
snúa á þá og senda inn í vítateig þar
sem Pálma Jónssyni tókst að skora
eftir mikinn darraðardans. Staðan því
2-1 og var það í samræmi við gang
leiksins.
Nú fóm Keflvíkingar að herða sig
enda annálaðir baráttujaxlar á Suður-
nesjum. Fljótlega fékk Skúli Rósants-
son gott tækifæri til að skora en
skallaði framhjá.
• Á 69. mínútu var Ingvari Guð-
mundssyni farið að leiðast þófið og tók
sig til og lék á hvem FH-inginn á
fætur öðrum uns hann gaf góða send-
ingu á Frey Sverrisson sem skoraði
með föstu skoti frá vítateig.
• Mikill hraði’var nú kominn í leik-
inn. Á 75. mínútu komst Ólafúr
Jóhannesson í gott færi upp við mark
ÍBK. Þorsteinii ' varði vel frá honum
og sendi strax fram á Óla Þór sem lék
á nokkra FH-inga uns hann skoraði
með góðu skoti.
Keflvíkingar vom þá komnir yfir,
3-2, og tókst að halda þeirri forystu
út leiktímann.
Bestur í liði Keflvíkinga var Sigur-
jón Sveinsson sem sýndi mjög góðan
leik, vann mörg návígi og spilaði bolt-
anum vel. Þá virðist Óli Þór vera að
sækja sig og nálgast sitt gamla form.
Sigurður Björgvinsson var duglegui
en það sást vel á vamarleik ÍBK að
Valþór var ekki með í þessum leik.
Hjá FH-ingum vom þeir markaskorar-
amir Pálmi og Kristján bestir en Ingi
Bjöm er þó alltaf hættulegur. Henning
og Guðmundur Hilmarsson voru
sterkir í vöminni og þá verður Halld-
ór í markinu ekki sakaður um mörkin.