Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1986, Page 32
'32
MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 1986.
Andlát
Salome Ólafsdóttir lést 1. júlí sl.
Hún var fædd 9. september 1895 að
Álftártungu í Borgarfirði. Foreldrar
hennar voru Bjöm 0. Björnsson og
Jensína Bjarnadóttir, Salome giftist
Karli Kristinssyni, en hann lést árið
1931. Þau hjónin eignuðust fimm
böm og em fjögur á lífi. Útför
Salome var gerð frá Kópavogskirkju
í morgun.
Sigfús Elíasson, Austurbraut 6,
Keflavík, sem lést 8. júlí sl. í Borg-
arspítalanum, verður jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudag-
inn 15. júlí íd. 13.30.
Magnús Andrésson bifreiðastjóri,
Hamrahlíð 1, Reykjavík, lést 7. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 14. júlf kl. 15.
Katrín Aðalbjörnsdóttir, Hvols-
vegi 25, Hvolsvelli, lést í sjúkrahúsi
Suðurlands 10. júlí sl. Otför hennar
fer fram laugardaginn 19. júlí frá
Stórólfshvolskirkju kl. 14.
Ingibjörg Guðmundsdóttir and-
aðist 11. júlí á Elli- og hjúkranar-
heimilinu Grand.
^ Zóphanías Benediktsson, Hátúni
12, Reykjavík, andaðist í Borgarspít-
alanum miðvikudaginn 2. júlí síðast-
liðinn: Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Ragnhildur J. Lárusdóttir and-
aðist 11. júlí á Hrafnistu, Reykjavík.
Sæmundur Kristján Jónsson,
Nökkvavogi 9, andaðist í Landspítal-
anum 11. júlí sl.
Útför Kristjönu Einarsdóttur
Langedal fer fram frá Hallgríms-
kirkju mánudaginn 14. júlí kl. 13.30.
Útför Sigríðar P. Ásbjörnsdóttur,
Heiðarási 10, Reykjavík, fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. júlí
kl. 13.30.
Jóhann Anton Víglundsson mál-
arameistari, Hofsvallagötu 17,
Reykjavík, verður jarðsunginn
þriðjudaginn 15. júlí frá Fossvogs-
kirkju kl. 15. Jarðsett verður í
Hafharfj arðarkirkj ugarði.
Tilkynriingar
Stjórn Fjórðungssambands
Vestfirðinga
Á fundi sínum nýlega samþykkti stjóm
Fjórðungssambands Vestfirðinga eftirfar-
andi:
„Stjóm Fjórðungssambands Vestfirð-
inga mótmælir harðlega umfjöllun sjón-
varps í kvöldfréttatíma 23.06. sl., um
málefni íbúa Suðureyrar í Súgandafirði.
Við lestur Lögbirtingablaðsins komast
menn að raun um að í byggðarlögum
kringum allt land og einnig á höfuðborg-
arsvæðinu era auglýst nauðungaruppboð
án þess að slíkt fái álíka umfjöllun í sjón-
varpi og uppboð þau, sem fram áttu að
fara á Suðureyri.
1 sjávarþorpum á Islandi, sem mörg era
líkrar gerðar og Suðureyri, era framleidd
mikil útflutningsverðmæti. Þrátt fyrir það
eiga þessi þorp við að etja bæði fólks-
fækkunar- og annars konar vandamál sem
viðkomandi sveitarstjómir era að reyna
að leysa. Beint og óbeint má rekja þessi
vandamál til þess aðdráttarafls sem höfuð-
borgarsvæðið hefur bæði á fólk og fé.
Uppsláttur á þann hátt sem viðhafður
var um Suðureyri leysir ekki vanda eins
eða neins. Aftur á móti getur slíkur fjöl-
miðlauppsláttur gert illleysanleg vanda-
mál óleysanleg, og á þann hátt fækkað
byggðum bólum á Islandi.
Vekja má athygli á, að hér er um ítrek-
aða, neikvæða umræðu sjónvarpsins um
málefni Suðureyrar að ræða, sem önnur
byggðarlög hafa ekki orðið fyrir og er mál
að linni.“
Sumarleyfi í Borgarbókasafni
Vegna sumarleyfa í Borgarbókasafni eru
þrjú útibú safnsins lokuð fram í ágúst,
Hofsvallasafn frá 1. júlí til 11. ágúst, Bú-
staðasafn frá 7. júlí - til 14. ágúst og
Sólheimasafn frá 14. júlí til 18. ágúst. Ferð-
ir bókabílanna falla ennfremur niður frá
1. júlí til 18. ágúst. Lestrarsalurinn að
Þingholtsstræti 27 er lokaður til 1. sept.
Lánþegum er hins vegar bent á að hvorki
aðalsafninu, Þingholtsstr. 29a, né nýja
útibúinu í menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi þarf að loka, heldur er opið þar
mánud.-föstud. frá kl. 9-21 og eru allir
velkomnir á þessa staði.
Kaffi-konsertar á Vestfjörðum
Islensk-hollenska söngkonan Viktoría
Spans og gítarleikarinn Símon ívarsson
verða með „kaffi-konserta“ víða á Vest-
fjörðum næstu daga. Fyrstu tónleikamir
era í kvöld, 14. júlí, kl. 20.30 í sal Frímúr-
arahússins á Isafirði á vegum Tónlistarfé-
lagsins og Listasafns Isafjarðar í tilefni
200 ára afmælis Isafjarðar. Næstu tónleik-
ar Viktoríu og Símonar era í félagsheimil-
inu í Bolungarvík þriðjudagskvöldið 15.
júlí kl. 20.30. Miðvikudagskvöldið 16. júlí
kl. 20.30 leika þau í mötuneyti Hjálms hf.
á Flateyri. Síðustu tónleikamir á Vest-
fjörðum eru síðan á Patreksfirði fimmtu-
daginn 17. júlí kl. 20.30 í Félagsheimilinu.
Fyrirkomulag og titill þessara tónleika er
„kaffi-konsert", en það er þannig að tón-
leikagestir geta fengið sér Diletto-kaffi og
meðlæti í hléi og eftir tónleikana ásamt
flytjendum. Á efnisskránni eru íslensk og
spænsk lög.
Bann við veiðum smábáta í
ágúst
Samkvæmt lögum nr. 97 20. desember 1985
um stjóm fiskveiða 1986-1987, skulu allar
fiskveiðar, aðrar en grásleppuveiðar,
óheimilar bátum, sem minni era en 10 brl.,
í tíu daga í ágúst. Sjávarútvegsráðherra
hefur ákveðið að veiðibanndagamir verði
frá og með 1. til og með 10. ágúst 1986.
Tapað - Fundið
Filma fannst
36 mynda slidesfilma fannst í Öskjuhlíð.
Eigandi hennar getur vitjað hennar hjá
DV (dagbók).
Sumarráðstefna Félags
löggiltra endurskoðenda
Félag löggiltra endurskoðenda hélt sína
21. sumarráðstefnu að Laugarvatni dag-
ana 4-6. júlí sl. Ráðstefhuna sóttu um 90
manns að meðtöldum mökum. Eyjólfur
K. Siguijónsson, formaður félagsins, setti
ráðstefnuna sem fór fram með hefðbundn-
um hætti en erindi fluttu Atli Hauksson,
löggiltur endurskoðandi, Gestur Stein-
þórsson, skattstjóri í Reykjavík, og
Gunnar Jóhannsson, formaður ríkis-
skattanefndar. Skipulag ráðstefhunnar
var í höndum menntunamefndar og
skemmtinefndar og var aðalefni hennar
skattamál. Á því tuttugu og eina ári, sem
sumarráðstefna endurskoðenda hefur ve-
rið haldin, hefur skapast sú hefð að skipta
í lið (debet og kredit) og keppa í fótbolta.
Að þessu sinni sigraði kredifliðið með
miklum yfirburðum. Þótti ráðstefnan tak-
ast vel í alla staði. Núverandi stjóm Félags
löggiltra endurskoðenda skipa eftirtaldir
menn: Eyjólfur K. Sigurjónsson, formaður,
Gunnar R. Magnússon, varaformaður,
Sigurður Guðmundsson, ritari, Símon
Kjæmested, gjaldkeri, og Sigurður Stef-
ánsson, meðstjómandi.
Ég horfi alltaf á fréttimar í sjón-
varpinu og ftnnst þær hafa batnað
alveg einstaklega mikið frá þvi sem
áður var. Ég er þó orðin langþreytt
á þessu máli Alberts og Guðmundar.
Þetta er orðin hálfgerð endaleysa.
Ég horfði á fyrirmyndarföðurmn á
laugardagskvöldið en þeir þættir eru
í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég hef
líka fylgst með Aftur til Eden á
sunnudagskvöldum og finnst þeir
þættir góðir. Ástralskir og enskir
þættir era yfirleitt vandaðir. Annars
horfi ég lítið á sjónvarp. Ég held að
fólk á mínum aldri horfi ekki mikið
á sjónvarpið yfirleitt.
Ég hlusta meira á útvarpið og
vakna við það á hverjum morgni.
Ég hlusta á fréttir og morgunþáttinn
á rás 1. Rás 2 er alltaf á í vinnunni
en tækið er alltaf svo lágt stillt að
ég heyri varla í því. Mér finnst að
rásin mætti vera meira á kvöldin.
Annars finnst mér ríkisfjölmiðl-
arnir standa sig ágætlega. Það era
oft góðir þættir í sjónvarpinu. Dag-
skráin dalar að vísu svolítið á
sumrin og er það skiljanlegt þar sem
fólk fer meira út á björtum sumar-
kvöldum.
Ingibjörg Tómasdóttír rekstrarhagfræðingur:
„Nóg komið af máli
Alberts og Guðmundar‘1
Feröafélag íslands.
Helgarferðir 18.-20. júlí:
1) Þórsmörk - gist í Skagfjörðsskála. Ath.
ódýrasta sumarleyfið er dvöl hjá Ferðafé-
laginu í Þórsmörk.
2) Landmannalaugar - gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins í Laugum. Gönguferðir um
nágrenni Lauga.
3) Hveravellir - gist í sæluhúsi Ferðafé-
lagsins á Hveravöllum. Gönguferðir í
Þjófadali og víðar. Heitur pollur við eldra
sæluhúsið sem er nýuppgert og einstak-
lega vistlegt. Farmiðasala ög upplýsingar
á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Sumarleyfisferðir Ferðafé-
lagsins
1) 18.-23. júlí (6 dagar): Landmannalaug-
ar - Þórsmörk. Gengið á milli gönguhúsa
F.í.
2) 18.-24. júlí (7 dagar): Vestfirðir - hring-
ferð. Fararstjóri: Sigurður Kristinsson.
3) 18.-25. júlí (8 dagar); Lónsöræfi - Hof-
fellsdalur. Gist í tjöldum við Illakamb.
Dagsferðir frá tjaldstæði. Fararstjóri: Eg-
ill Benediktsson.
4) 18.-25. júlí (8 dagar): Snæfell - Lónsör-
æfi - Hoffellsdalur. Gönguferð með
viðleguútbúnað. Fararstjóri: Jón Gunnar
Hilmarsson.
5) 23.-27. júlí (5 dagar): Landmannalaug-
ar - Þórsmörk. Biölisti. Fararstjóri:
Pétur Ásbjömsson.
6) 25.-30. júlí (6 dagar): Landmannalaug-
ar - Þórsmörk. Fararstjóri: Sturla
Jónsson.
7) 30. júlí - 4. ágúst (6 dagar): Land-
mannalaugar - Þórsmörk. Uppselt.
Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins era ör-
uggar og ódýrar. Upplýsingar og farmiða-
sala á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Sumarferð Parkinsonsamtak-
anna
Parkinsonsamtökin á Islandi efna til sum-
arferðar laugardaginn 19. júlí. Farið
verður í Þjórsárdal og lagt af stað kl. 9
frá Umferðarmiðstöðinni. Þátttaka til-
kynnist til Áslaugar í síma 27417 eða
Kristjönu Millu í síma 41530. Þær veita
nánari upplýsingar.
Ásprestakall
Sumarferð safhaðarins verður farin 27.
júlí nk. austur undir Eyjafjöll, messað í
Ásólfskirkju og Byggðasafnið í Skógum
skoðað. Lagt verður af stað frá Áskirkju
kl. 9 f.h. Verð kr. 1200 og er þá allt nesti
innifalið. Þátttaka tilkynnist fyrir 16. þ.
m. í síma 37788, Guðrún, og 685970, Hilm-
ar.
Bækur
Morgan Kane
- Bók nr. 55 -
„Einvígi í San Antonio"
Prenthúsið hefur nú gefið út í vasabroti
bók nr. 55 í hinum sívinsæla bókafiokki
um Morgan Kane eftir Louis Masterson.
Bók þessi ber heitið „Einvígi í San Anton-
io“ og fjallar, eins og nafnið bendir til,
um einvígi Morgans Kane við einn snjall-
asta skammbyssumann Texas, John
Wesley Hardin, eða „Wes Hardin" eins
og hann oftast er nefiidur.
Wes Hardin er einn illræmdasti morð-
ingi í blóði drifinni sögu Texas. Hann var
nú laus úr fangelsinu, hafði afplánað þar
16 ára fangavist. Það vora 40 skorar á
Colt-skammbyssunum hans tveim. Og
flestöll fórnarlömbin höfðu fengið kúlu í
gegnum höfuðið. Morgan Kane vissi hvað
það táknaði, - það táknaði að Wes Hardin
var svo öraggur um hæfni sína, og sjálfs-
traust hans svo takmarkalaust, að hann
veigraði sér ekki við að miða á höfuðið.
Og sannleikurinn var sá að tækist Wes
Hardin að verða fyrri til að hleypa af -
og það hafði honum alltaf tekist - fékk
andstæðingurinn aldrei tækifæri til að
svara fyrir sig. Þetta leit út fyrir að verða
hólmganga sem ætti sér enga líka í villta
vestrinu: John Wesley Hardin gegn Morg-
an Kane...
Enn ein bók í þessum einstaka bóka-
flokki. Og hún gefur þeim sem á undan
hafa komið ekkert eftir.
Bókin er 130 bls. og kostar kr. 250 á
sölustöðum, sem era bókaverslanir, kaup-
félög og allir blaðsölustaðir.
BANNFÆRÐ
Astralíufararnir
-Bók nr. 2-
-Bannfærö-
Prenthúsið hefur nú gefið út í vasabroti
bók nr. 2 i bókaflokknum „Ástralíufararn-
ir“ eftir William Stuart Long. Þessi
bókaflokkur fjallar um sögu bresku refsi-
fanganna sem gerðir vora útlægir í
Bretlandi og sendir til Ástralíu til að þola
þar fátækt, þrældóm og ill örlög. Þeir
komu frá Englandi, þar sem þeir höfðu
sumir verið ákærðir réttilega, sumir rang-
lega, - en allir dæmdir til fangavistar sem
þjófar, glæpamenn og morðingjar. Þeim
var troðið í lestar á skipum hans hátignar
og sendir eins langt burt og hægt var.
Hlutverk þeirra varð að breyta óbyggðum
Ástralíu í byggilegt land. Sögumar segja
frá þessu fólki, ástum þess og gimdum,
tryggð þess og svikum, vonum og von-
brigðum.
Sögurnar um Ástralíufarana hafa notið
geysilegra vinsælda erlendis. Samtals hafa
þær selst i meira en 5,5, milljónum eintaka
og hver einstök bók flokksins hefur verið
ofarlega á metsölulistum, m.a. hjá stór-
blöðunum The New York times og Publis-
hers Weekly. Fyrsta bókin, „Refsifangarn-
ir“, var einnig ofarlega á lista í
upplagskönnun Kaupþings fyrir skömmu.
Bókin sem nú kemur út, 2. bókin í bóka-
flokknum um Ástralíufarana, nefnist
„Bannfærð". Hún hefst árið 1788, þegar
Philip landstjóri er að stofna fanganýlend-
una Sidney Cove við Port Jackson á
austurströnd Ástralíu. Spilltir yfirmenn,
uppreisnargjamir fangar, herskáir fram-
byggjar og þrúgandi hungursneyð era að
kæfa nýlenduna í fæðingu. Heimur Jenny
Taggarts, söguhetjunnar úr fyrstu bók-
inni, hrynur í rúst, þegar unnusti hennar,
Andrew Hawley, er sendur heim til Eng-
lands. Sífellt mótlæti, nauðgun og brostn-
ar vonir era að buga hana. Fanginn
Johnny Butcher er eini maðurinn sem
gæti fengið hana til að gleyma Andrew, -
en hann hugsar ekki um annað en flótta...
Bókin er 167 bls. og kostar kr. 280 á
sölustöðum sem eru bókaverslanir, kaup-
félög og allir blaðsölustaðir.
L5 WKW
alla vikuna
Þverholti 11
Síminner
27022