Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1986, Side 36
36
MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Sylvester
Stallone
neitaði án umhugsunar 500
milljóna króna tilboði um að
skrifa sjálfsaevisögu sína. Segist
Stallone vilja halda einkalífi sínu
út af fyrir sig, honum sé alveg
sama hve hátt útgefendur fari í
tilboðum sínum, sjálfsævisögu
muni hann aldrei skrifa.
CharleneTilton,
sem við könnumst kannski bet-
ur við sem Lucy Ewing, er
ægiglöð um þessar mundir.
Henni hefur verið lofað hlutverki
Lönu Turner í samnefndri kvik-
mynd um ævi stjörnunnar.
Tilton hafði áður verið nefnd í
hlutverkið en þá sagði Lana sjálf
nei. Fannst henni Tilton alltof
búttuð til að leika sig. En eins
og við höfum áður greint frá
hefur Tilton grennst mikið á
stuttum tíma og nú er ekkert
eftir sem minnir á litlu budduna,
Lucy. Árangur megrunarkúrsins
lætur heldur ekki á sér standa.
Hlutverkið er hennar og allir eru
ánægðir.
Ljósmyndasamkeppni
Vikunnar að Ijúka
Nú er að ljúka ljósmyndasam-
keppni Vikunnar sem efnt er til
vegna 200 ára afmælis Reykjavík-
urborgar. Nokkur fjöldi mynda
hefur nú þegar borist en skilafrest-
ur er til 18. júlí. Fyrstu verðlaun,
auk heiðursins, eru glæsileg ljós-
myndavél, nýkomin á markað, sem
Hans Petersen veitir. Um alla borg
hefur mátt sjá ljósmyndara á öllum
aldri og með ýmsan búnað reyna
að finna sem best myndefni. Einu
skilyrðin eru þau að myndefnið sé
úr eða í Reykjavík. Af slíku er nóg
að taka og því ekki að efa að
keppnin verður hörð. Menn eiga
því ekki að láta góðar myndir úr
borginni gleymast inni í albúmi
heldur leyfa fleiri að njóta.
Sjálfsagt eru margir úti um borg og bæ með myndavélina á lofti.
Joan Collins
og eiginmaður hennar, Peter
Holm, eru langt frá því að vera
hjátrúarfull. Nýlega keyptu þau
hús eitt á um 120 milljónir króna
i Beverly Hills. Skelltu þau hjón-
in skollaeyrum við aðvörunum
margra enda er almennt talið i
Hollywood að yfir húsinu hvíli
bölvun. Þrjár Hollywoodstjörn-
ur hafa áður búið I húsinu og
allar hafa þær látist. Þetta eru
þau Laurence Harvey, David
Janssen og Totie Fields. Joan
Collins segist hvergi vera smeyk
og heldur áfram að innrétta nýja
heimilið. Telur hún að draugar,
tröll og forynjur heyri fortíðinni
til.
Snóker-hattur
Þegar hinar konunglegu Ascot-veðreiðar fara fram á Englandi er
víst baráttan utan vallar engu minni en sú sem fram fer inni á vellin-
um. Keppnin er á milli kvenna sem reyna að mæta á veðreiðarnar
með eins frumlega hatta og hægt er að ímynda sér. Ekki virðast kon-
urnar skorta ímyndunaraflið því á hverju ári koma fram nýjar
hugmyndir, hverri annarri frumlegri. Á myndinni hér að ofan má sjá
einn þátttakandann með allsérstæðan hatt. Að öllum líkindum hefur
þessi frú komið sterklega til greina þegar sigurvegarinn var valinn.
Hatturinn vakti mikla athygll á Ascot-veðrelöunum.
Richard
Pryor
er þekktur fyrir að lenda upp
á kant við leikstjóra og kvik-
myndaframieiðendur. Nú
hefur Pryor ákveðið að taka
fyrir það vandamál svo um
munar í næstu kvikmynd
sinni. Sú mynd mun bera hei-
tið Yes Yes Dancer, your life
is calling. Til að allt fari
ágreiningslaust fram er aðal-
leikari, aðstoðarmaður við
handritsgerð, leikstjóri og
framleiðandi enginn annar en
Richard Pryor.