Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
Fréttir
Barist við fjárlaga-
halla á Þingvöllum
Ríkisstjómin og hjálparlið hennar
sátu í gær langan fund til að ræða
fjárlög næsta árs. Fundurinn var
haldinn í forsætisráðherrabústaðn-
um á Þingvöllum. Fjárlagagerðinni
er þó ekki lokið en stefht er að því
að leggja frumvarpið fram á fyrsta
degi þingsins í haust. Ljóst er að
halli verður á fjárlögum þessum.
Hann verður þó minni en í ár en
líklegt er að sá halli verði um 2,2
milljarðar k'róna.
Veðrið var gott á gamla þingstaðn-
um í gær og fundarmenn reyndu að
njóta þess þegar færi gafet. Hádegis-
matur var snæddur í Valhöll.
Matseðillinn var sveppasúpa,
smjörsteiktur silungur og kaffi á eft-
ir. Ekkert áfengi var haft með
matnum enda líklega ömggara að
vera allsgáður þegar fjárlög em ann-
ars vegar.
-APH
Forsætísráðheira:
„Verðum
að halda
að okkur
höndum“
„Það er markvisst stefrit að því að
draga úr þeim halla sem er fyrirsjá-
anlegur eftir aðgerðimar í febrúar
og ég er bjarsýnn á að það muni
takast," sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra eftir
ríkisstjómarfundinn í gær.
Hann var spurður hvort hann
væri ánægður með fjárlög næsta
árs. „Vitanlega vilja allir og þar með
ég fá meira í ýmsar framkvæmdir.
Að firamkvæmdir á vegum ríkisins
skulu vera fallnar úr 14 af hundraði
Qárlaga niður í 7 af hundraði er
ískyggilega mikið. Hafnir em hrynja
niður og margt fleira. I okkar efha-
hagsástandi í dag er það númer eitt
að draga úr halla ríkissjóðs, við-
skiptahallanum, erlendum skuldum,
þenslunni og koma í veg fyrir að
þetta sprengi verðbólguna upp á ný.
Þess vegna verðum við að halda að
okkur höndum í ýmsum mikilvægum
framkvæmdum.
Miðað við aðstæður nú er ég samt
ánægður með þessi fjárlög,“sagði
Steingrímur Hermannsson.
-APH
Ráðherramir ganga til fjárlagagerðarinnar glaðir i bragði að lokinni máltið í Valhöll.
Fjármálaráðhena:
„Stefhum að minni halla en í ár“
Þegar hafa verið skomir niður innar. Halli verður á næstu „Við fórum yfir stöðuna eins og
fimm milljarðar króna af upphafleg- fjárlögum en stefht er að því að hann hún er núna. Fjárlagafrumvarpið
um óskum ráðherra ríkisstjómar- verði minni en í fyrra. hefur verið í meðferð hjá Fjárlaga-
og hagsýslustofnun. Síðan hafa verið
fundir með einstökum ráðherrum
um ákveðin atriði fjárlaganna. Hér
vom teknar ákvarðanir um frekara
aðhald og það er ljóst að upphafleg-
ar útgjaldatillögur ráðuneytanna
fara langt fram úr tekjuáætlun. Ég
get ekki greint frá því hversu mikið
þetta er en ég býst við því að við
séum búnir að ná útgjaldaáformun-
um niður um meira en 5 milljarða í
þeirri meðferð sem fjárlagaffum-
varpið hefur verið,“ sagði Þorsteinn
Pálsson, fjármálaráðerra, í viðtali
við DV í gær eftir ríkisstjómarfúnd-
inn á Þingvöllum.
Enn á eftir að hnýta lausa enda á
frumvarpinu og enn er starf fram-
undan. Ríkisstjómin ætlar sér ekki
að afgreiða þetta frumvarp með jöfri-
uði og stefht er að ákveðnum halla.
„Það er ekki endanlega ákveðið
hvað þessi halli verður mikill. Hann
verður minni en á þessu ári. Hallinn
á þessu ári verður líklega um 2,2
milljarðar. Við stefnum mjög ákveð-
ið að því að hallinn á næsta ári verði
minni en þetta.“
Þorsteinn vildi ekki upplýsa hver
heildarupphæð fjárlaganna yrði
enda væri ekki búið að ganga frá
því. Um önnur efnisatrið vildi ráð-
herrann heldur ekki tjá sig. Hann
sagði þó að skera þyrfti niður á öll-
um sviðum og vildi ekki nefna eitt
fremur öðru.
Fjármálaráðherra var spurður
hvort hann væri ánægður með þetta
frumvarp. „Það er auðvitað ekki enn
komið heim og saman. Miðað við
þau markmið sem við höfum sett
okkur hefúr fjárlagavinnunni meðað
ágætlega áfram. Ég er sáttur við
framgang málsins. Við settum okkur
ákveðin markmið í upphafi og þetta
gengur í samræmi við þau. Ef okkur
tekst á næsta ári að hafa hallann
minni en á þessu ári er ég mjög sátt-
ur.“
En hvemig ætlar ríkisstjómin að
fjármagna hallann á næsta ári? „Við
höfum fjármagnað þennan halla að
mestum hluta með innlendum lán-
tökum og það hefur tekist á þessu
ári. Ég ber ekki kvíðboga fyrir því
að við munum leysa það verkefrii
líka á næsta ári eins og á þessu
ári.“ Þorsteinn bætti því við að er-
lendar lántökur yrðu ekki auknar.
En hvenær sér fjármálaráðher-
rann fram á hallalaus fjárlög. „Kjör-
tímabil þessarar ríkisstjómar er nú
úti í apríl á næsta ári. Ef menn ætla
að horfa á þetta raunsæjum augum
án þess að vera með einhver leik-
brögð þá tekur það nokkur ár að
ná jöfiiuði. Ef við náum skrefi í þá
verðu á næsta ári er það áfangi.
Þrjú til fjögur ár væra eðlilegur tími
til að ná jöfhuði," sagði Þorsteinn
Pálsson.
-APH