Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
Utlönd
Skotbardagi sovéskra og
kínverskra landamæravarða
Sendiráð Kína í Moskvu staðfestir orðróm um mannfall í átökum ríkjanna
Einn kínverskur landamæravörður
féll í valinn og annar særðist alvar-
lega í skotbardaga kínverskra og
sovéskra landamæravarða á landa-
mærum ríkjanna við Xinjiang hérað
í Kínverska alþýðulýðveldinu um
miðjan síðasta mánuð, að því segir í
japönskum dagblöðum í morgun.
Hefur fréttaritari Yomiuri Shimb-
un í Peking, útbreiddasta dagblaðs i
Japan, það eftir stjómarerindreka
Austur-Evrópuríkis að í kjölfar átak-
anna um miðjan júlí hafi skapast
mikil spenna á milli ríkjanna og
harðorðar mótmælaorðsendingar
borist á báða bóga milli æðstu emb-
ættismanna.
Skotárás Sovétmanna?
Hafa japönsk dagblöð það eftir kín-
verskum embættismönnum að þann
tólfta júlí síðastliðinn hafi þrettán
sovéskir landamæraverðir fyrirvara-
laust hafið skotárás á þrjá kínverska
landamæraverði og tvo kínverska
borgara er voru á reglulegri eftirlits-
ferð í Ili Kazakh héraði í Xinjiang-
fylki.
Ennfremur er haft eftir sömu heim-
ild að einn Kínverji hafi þegar fallið
og annar særst alvarlega í skotárás-
inni. Ennfremur eiga sovésku
landamæraverðimir að hafa haft á
Sovéskur landamæravörður við Amurfijót á landamærum Sovétrikjanna og Kinverska alþýðulýðveldisins. Sendiráð Kina
i Moskvu staðfesti í morgun að átök hafi átt sér stað milli landamæravarða ríkjanna i síðasta mánuði
BOÐI HF. AUGLYSIR
ú 7]
BOÐA GIRDINGAR LEIDANDIÁ ÍSLANDI / B 1 / ELEPMAUT u- -( 1“ 1 \ IUCTRIC I \ UNCIR \ v r.
>—<\
. j
WtléSS .C/.Cbr*rp:'■'■ ‘ ■ •. •
Vegna fenginnar reynslu í sölu á rafmagnsgirðingum
á íslandi, höfum við hjá Boða hf. ákveðið að versla
beint við framleiðendur á rafmagnsgirðingaefni. Við
munum því hætta að versla í gegnum umboðsaðila í
Danmörku. Með þessu vonumst við til að geta veitt
betri þjónustu á sölu á rafmagnsgirðingum og vænt-
anlega lækkar verð á komandi mánuðum.
Við munum selja girðingar þessar undir vörumerk-
inu
BOÐA GIRÐINGAR LEIÐANDIÁ ÍSLANDI
BOÐI hf
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
Leitið frekari upplýsinga hjá sölumönnum í síma 91-651800.
brott með sér báða kínversku borgar-
ana auk fjögurra hesta varðflokks-
ins.
Segir Yomiuri Shimbun ennfremur
að Sovétmenn hafi þann fjórtánda
júlí sent kínverskum yfirvöldum
formlega mótmælaorðsendingu þar
sem sagt er að kínverski varðflokk-
urinn hafi farið yfir á sovéskt
landsvæði og fyrst hafið skothríð á
sovéska starfsbræður sína.
Gorbatsjov Sovétleiðtogi hvatti til
aukinna samskipta Sovétmanna og
Kínverja í ræðu, er hann flutti í
Vladivostok þann 28. júlí síðastlið-
inn, og vakið hefur athygli. I
ræðunni minntist Sovétleiðtoginn
sérstaklega á ósamkomulag um
landamerki á austurlandamærunum
við Kínverska alþýðulýðveldið og
segir Sovétmenn reiðubúna til að
miða landamærin við mitt Amurfljó-
tið, er liggur á landamærum ríkj-
anna, en ekki meðfram kínverska
árbakkanum eins og Sovétmenn hafa
gert fram að þessu.
Kínverjar staðfesta orðróm-
inn
Sendiráð Kínverska alþýðulýð-
veldisins í Moskvu staðfesti í morgim
að átök hafi átt sér stað milli landa-
mæravarða ríkjanna í síðasta
mánuði og að mannfall hafi átt sér
stað.
Sovéskir embættismenn vildu í
morgun ekkert láta hafa eftir sér um
málið.
Fréttastjórar hjá Tass fréttastof-
unni sovésku sögðust í morgun hafa
heyrt orðróm um átök á landamær-
unum og í viðtali við Reuter frétta-
stofúna er haft eftir þeim að Tass
ætli að kynna sér málið.
Klerkur og kúreka-
hetja í forsetaslag
HaBdór Valdimaissan, DV, Dallas:
Sjónvarpsklerkurinn Pat Robert-
son, er byggt hefur upp eitt stærsta
kristilega sjónvarpsveldi í Bandaríkj-
unum, er einn þeirra er sækist eftir
útnefiiingu Repúhlikanaflokksins sem
forsetaefhi fyrir kosningamar 1988.
í næsta mánuði mun hann og stuðn-
ingsmenn hans standa fyrir þriggja
klukkustunda sjónvarpsþætti er sjón-
varpað verður til tvö hundruð og
tuttugu borga í öllum fylkjum Banda-
ríkjanna þar sem ætlunin er að koma
Robertson á framfæri sem raunhæfu
forsetaefhi.
Robertson hefur nú um nokkurt
skeið ekki farið dult með þá löngum
sína að gerast forseti.
Stuðningsmenn hans telja að fram-
boð hans sé nú tímabært, vegna
mikillar vakningar meðal Bandaríkja-
manna er vilja aukin áhrif kristilegra
skoðana í stjómmálum í Bandaríkjun-
Telja þeir að Robertson geti átt vís
atkvæði allt að þrjátíu milljóna kjós-
enda, sem virkir em í kirkjulegu starfi
og telja nú tímabært að verða virkir
á öðrum sviðum þjóðmála.
Meðal helstu stuðningsmanna Ro-
bertson er gamla kúrekahetjan Roy
Rogers og eiginkona. Þau standa nú
fyrir herferð í útvarpi og sjónvarpi þar
sem þau hvetja kjósendur til að senda
peningaframlög til framboðs Robert-
son.
Ekki er talið að Robertson lýsi yfir
framboði sínu í útsendingunni í sept-
ember.
Ef hann gerðist formlega frambjóð-
andi á þann hátt yrði hann að hætta
þátttöku í útsendingum reglulegra
sjónvarpsþátta sinna er nefhast The
Seven Hundred Club.
Þættir þessir em gmndvöllur fjár-
mála og áhrifaveldis Robertson og má
telja víst að hann vilji ekki vera fjarri
þeim lengur en nauðsynlegt er.
Frjálsi lýðræðisflokk-
urinn lagður niður
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmarmahcáu
Eftir um það bil tveggja ára starf-
semi yst til hægri í dönskum stjóm-
málum hefur Frjálsi lýðræðisflokkur-
inn verið leystur upp.
Var það talið eina úrræðið eftir að
einasti þingmaður flokksins, Ole Ma-
isted, gekk yfir í Vinstri flokkinn fyrr
í þessum mánuði.
í yfirlýsingu frá framkvæmdanefnd
flokksins segir að skilningur sé á
brotthlaupi eina þingmannsins í ann-
an stjómmálaflokk og að tilraun til
að stofha algerlega ósósíalískan flokk
til stuðnings núverandi ríkisstjóm
hafi mistekist og þvi ekki annað úr-
ræði en að leysa flokkinn upp.
Ole Maisted stofnaði flokkinn,
ásamt V.A. Jakobsen, vorið 1984.
Höfðu þeir þá sagt skilið við Fram-
faraflokkinn vegna ágreinings við
flokksformanninn Mogens Glistmp.
Gekk illa að afla flokknum fylgis og
náðust aldrei þær tuttugu og tvö þús-
und undirskriftir er þarf til að flokkur
geti boðið fram til þings i Danmörku.
Urðu undirskriftimar aðeins sex til
sjö þúsund.
Aquino heimsækir
Bandaríkin í haust
Forseti Filippseyja, Corazon Aqu-
ino, leggur á sunnudaginn upp í sína
fyrstu opinbem heimsókn frá því að
hún tók við völdum í febrúar síðast-
liðnum.
Er ferðinni heitið til Indónesíu og
Singapore sem ásamt Manila em í
bandalagi þjóða Suðaustur-Asíu. I
næsta mánuði fer hún í opinbera heim-
sókn til Bandaríkjanna og em heim-
sóknir þessar taldar bera merki um
vaxandi traust á hinni nýtilkomnu
stjóm hennar.