Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986. Neytendur Það eru ekki allir sem gefa matar- æði sínu nægan gaum. Þá hvort dagleg fæða innihaldi öll nauðsynleg bætiefni eða hver áhrif þess sem lát- ið er ofan í sig eru á líkamann. Fæðan sem við borðum hefur marg- vísleg áhrif á líkamlegt og andlegt atgervi okkar og er því betra að vandað sé valið á því sem við inn- byrðum. Það er þvi engin tilviljun að sífellt djmja á okkur heilræði um hvað sé hollt og hvað óhollt. Helst er það þó fólk sem vill losna við mismörg aukakílóin sem spáir veru- lega í hvað sé því heppilegt að borða. Megrunarkúrar hafa margir verið reyndir með misjöfhum árangri. Næringarfræðingar eru þó flestir á einu máli um að megrunarkúrar veiti kannski skjótfenginn bata en séu í fæstum tilvikum varanleg lausn fyrir einstaklinginn. Mataræði hvers einstaklings skip- ar svo stóran sess í lífi hans að erfitt getur reynst að breyta því. Að minnsta kosti gerist það ekki í einni svipan. Skynsamlegra er þó að fikra sig áfram í átt að heilsusamlegri lifh- aðarháttum og ráða vandamálinu þannig endanlega bót en að halda að því verði við komið á einni nóttu eða nokkrum dögum. Sértu til dæm- is mikið fyrir sælgæti er algjörlega út í hött að segja sem svo: „Jæja, frá og með deginum í dag, ekki meira sælgæti." Það er ekki hægt, heldur að reyna að minnka sælgætisneysl- una og til dæmis kaffidiykkjuna í rólegheitunum. Mundu að þær fæðutegundir sem þú leggur þér til munns í dag eru líklega þær sem þú hefúr neytt frá bemsku þótt þær séu kannski ekki það ákjósanlegasta sem völ er á. Reyndu að breyta mat- arvenjum þínum á þann hátt sem ÞÉR hentar og á endanum muntu mataræði áreiðanlega komast í betra form og líða betur á allan hátt. Hér koma svo nokkrir punktar sem vert er að fara eftir: * Rjómi: Blandaðu rjómann hreinni jógúrt, til dæmis 1/3 jógúrt. Minnk- aðu smám saman ijómamagnið og á endanum þykir þér örugglega jóg- úrtin ein sér betri út á ávaxtagraut- inn eða hvað sem er. * Salt: Blandaðu hafsalti við venju- lega saltið. Reyndu líka að nota frekar aðrar og meira spennandi kryddtegundir í stað saltsins. * Brauð: Ef þú hefur hingað til ekki sætt þig við annað en franskbrauð, prófaðu þá eins og einu sinni í viku grófara brauð. Fljótt mun þér þykja franskbrauðið hálfbragðlaust. * Þú þarft ekki að hætta að mat- reiða rétti eins og spaghetti bologna- ise. Minnkaðu bara kjötið í réttinum og hafðu sósuna léttari. * í staðinn fyrir feita ostinn sem þú hefur brætt ofan á pizzuna eða ofn- réttinn notaðu þá kotasælu eða jógúrt. * Kaffi: Sé kaffineysla þín óhófleg skaltu til að byija með prófa að blanda kaffið koffinlausu kaffi. Þeg- ar á líður kann þér að þykja koffin- lausa kaffið jafhgott og hitt. * Sykur: Reyndu að nota hunang eins mikið og þú getur í stað sykurs- ins, til dæmis út í kaffið og teið. * Kökur: Ekki er ástæða til að hætta alveg að baka og borða kökur. Próf- aðu að nota þurrkaða ávexti í stað sykurs og jógúrt í stað smjörs. Eins og áður segir verður hver og einn að finna út hvað hentar honum sérstaklega. Ábendingar frá vinum og kunningjum kunna að passa alls ekki fyrir þig og þinn lífsstíl. Leitin að réttum matarvenjum getur orðið löng en hún er þess virði. -Ró.G. leit að réttu Er giskað Kristín hringdi: „Hvemig væri að gera verðkönnun á því hvað gos og kaffi kostar á veit- ingastöðunum? Þegar fólk er að kaupa áfengi blandað gosi er oft eins og verð- ið sé „rokkandi" allt kvöldið þó verið sé á sama staðnum. Þá á ég ekki síst við skemmtistaðina en verð á gosi er á verðið? þrældýrt þar og einnig á kaffi. Sé keypt Irish Coffee eða álíka drykkur virðist kaffið og íjóminn kosta heil ósköp. Verðið á kafffidrykkjunum er heldur aldrei það sama. Giskar þjónustufólkið bara á hvað kaffið og gosið kostar eins og því hentar?" -Ró.G. Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í júlí 1986. Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Margir kannast við vömtegund sem verið hefur hér á markaðnum í nokkum tíma, froðu sem sett er í hárið og gerið það meðfærilegra fyrir greiðslu eða blástur. Nú er komið á markaðinn froðuilmkrem og froðuandlitsfarði. Froðan er mjög létt og er fljót áð smjúga inn í húðina. Froðufarðinn þekur vel en vegna þess hve léttur hann er andar húðin eðlilega. Froðuilmkremið er frá danska fyrirtækinu Beecham-Lamco en firoðufarðinn frá hinu þekkta snyr- tivörufyrirtæki Elizabeth Arden. Ilmkremið fæst í fimm mismunandi ilmtegundum og kostar 200 ml brúsinn um 200 krónur en 75 ml brúsinn um 100 krónur. Farðinn fæst í átta litum og kostar 50 ml brúsi rúmar 700 krónur. -Ró.G. Froðufarðinn og froöuilmkremið eru nýjungar í snyrtivöruframleiðslu. Froð- an er auðveld í notkun og smýgur fljótt inn í húðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.