Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Side 27
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
39
Meiming
AUi Heimir
og Jón Nordal
í úrvalsliðinu
Mikil norræn tónlistarhátíð í Gautaborg
Karlmennska
og kvendyggðir
Hlaðvarpinn er huggulegur sam-
komu- og sýningarstaður en til
lengdar er aðstandendum hans varla
stætt á því að leigja myndlistar-
mönnum sýningarsal með inn-
byggðu leikhúsi. Þar með verða
myndverkin eins konar „props“ á
leiksýningu sem er heldur til van-
sæmdar fyrir þau, auk þess sem
sýningartíminn og leiksýningar
hljóta að skarast og valda þannig
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
myndlistarunnendum óþægindum.
Vonandi stendur þetta til bóta.
í Hlaðvarpanum stendur nú yfir
sýning Helgu Egilsdóttur en ég
minnist þess ekki að hafa séð neitt
eftir hana fyrr. Ekki er mér heldur
kunnugt um menntun hennar eða
feril en slíkar upplýsingar mættu að
ósekju liggja frarnmi á sýningarstað.
Helga sýnir aðeins tíu verk, níu
stór málverk og eina grafíkmynd,
sem öll taka sig vel út í salnum.
Mættu aðrir listamenn taka hana
sér til fyrirmyndar og fækka verkum
á sýningum.
Viðamiklar táknmyndir
Þótt öll séu þau kröftuglega máluð
virðist listakonunni liggja annað og
meira á hjarta en að fá útrás fyrir
tímabundnar og persónulegar til-
finningar, er hún augljóslega að
tilbúa viðamiklar táknmyndir með
víðri skírskotun.
Hún rær því á svipuð mið og Jó-
hanna K. Yngvadóttir, en ekki af
sama öryggi.
Þessar myndir skiptast í tvennt.
Annars vegar eru drungalégar og
fremur symulegar konumyndir (t.d.
Römm er sú taug..., nr. 5) sem hafa
fátt til síns ágætis nema metnaðinn.
En á vegg hægra megin í salnum
hanga þrjár (nýlegar?) myndir sem
öllu meira er spunnið í. Inntak þeirra
er að visu ekki nýstárlegt, gengur
út á hina eilífu togstreitu karl-
mennskunnar og kvenlegra dyggða
sem túlkuð er með lífrænu samspili
kvenlegrar anatómíu og viðtekinna
karlmennsku-tákna, bolans, völsans
og fleiru í þá veru.
Það sem gefur þessum myndum
sérstakt gildi eru hvellir litatónamir
og yrjóttir litfletimir og hvemig
þeim er fyrir komið á striganum.
Helga Egilsdóttir ræður augljós-
lega við liti, kann að útsetja fyrir
stóra myndfleti en þarf að endur-
skoða tákngerð sína, gera hana
persónulegri. -ai
Jón Nordal tónskáld.
Fulltrúar Danmerkur em tón-
skáldin Per Nörgaard og Hans
Abrahamsen, frá Finnlandi koma
þeir Einojuhani Rautavaara og Aul-
is Sallinen, frá Noregi koma Ame
Nordheim og Olav Anton Thomme-
sen og þeir Ingvar Lidholm og
Mikael Edlund halda loks uppi
heiðri Svíþjóðar.
Tónleikamir fara síðan fram í
Tónlistarhöllinni, Dómkirkjunni og
háskólanum í Gautaborg.
-ai
Tónlist
Aöalsteinn Ingólfsson
Atli Heimir Sveinsson tónskáld.
Eftir Jón Nordal verður flutt
hljómsveitarverkið Langnætti,
„Ristur" fyrir klarínettu og píanó
og Canto elegiaco fyrir selló og
hljómsveit.
Að þessari tónlistarhátíð standa
margir mætir aðilar, Tónlistarhöll
þeirra Gautaborgara, Tónlistarhá-
skólinn, Dómkirkjan og tónlistar-
fræðingar, og er tilgangur þeirra sá
að hóa saman tíu helstu tónskáldum
á Norðurlöndum, vega og meta
framlag þeirra til norrænnar tónlist-
armenningar og gefa almenningi um
leið tækifæri til að hlusta á nokkur
helstu verk þeirra.
Tveimur tónskáldum var boðið frá
hveiju Norðurlandanna fimm og
áttu þeir að vera hvor af sinni kyn-
slóðinni svo hægt yrði að sjá
samhengið í tónlist hvers lands.
Flutningur tónverkanna verður
síðan í höndum tónlistarfólks frá
Norðurlöndunum öllum og er Guðni
Franzson klarínettuleikari okkar
maður á staðnum.
Þann 23. september næstkomandi
hefst mikil norræn tónlistarhátíð,
Nutida Nordisk Musikvecka, í
Gautaborg og stendur í íjóra daga,
en á þeim tíma verða nær stanslaus-
ir tónleikar, tónsmiðjur og umræður
um tónlist. Þeir Jón Nordal og Atli
Heimir Sveinsson verða fulltrúar Is-
lands á hátíðinni og eru mörg verk
eftir þá á dagskrá hennar. Eftir Atla
Heimi verða flutt „Itor mediae noct-
is“ fyrir orgel, kammerverkið
„Hreinn: Súm ’74“, „Plutót blanche
qu’ azurée”, nýtt einleiksverk fyrir
klarínettu og Tvær elegíur í minn-
ingu Benjamins Bríttens.
Skreiðin:
Útflutningsleyfið
veitt í samráði
við Landsbankann
„Viðskiptaráðuneytið veitti útflutn-
ingsleyfi fyrir þessari skreiðarsend-
ingu í fullu samráði við bankana og
þar á meðal Landsbankann. Við mát-
um það svo að athuguðu máli að óhætt
væri að veita leyfið. Það voru allir
aðilar sammála um það að sjálfsagt
væri að veita leyfið í stað þess að láta
þessar skreiðarbirgðir liggja hér
heima og alveg óvíst hvort og hvenær
hægt yrði að losna við þær,“ sagði
Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri
í viðskiptaráðuneytinu.
Eins og komið hefur fram í fréttum
fór á vegum Islensku umboðssölunnar
á miðvikudaginn í síðustu viku stór
farmur, 61 þúsund pakkar af skreið,
með erlendu skipi ti! Nígeríu. Ámi
Bjömsson sagði í samtali við DV að
skreiðin hafi farið á innflutningsleyfi
sem var framlengt þannig að varan
yrði komin í landhelgi í Nígeríu fyrir
1. september.
Taldi Ami greiðslutiyggingar fyrir
skreiðarfarminum öraggar þótt trygg-
ingamar lægju ekki formlega fyrir í
bönkum hér heima.
Var Landsbankanumkunnugt
um farminn?
Samkvæmt upplýsingum frá Lands-
bankanum gaf hann hins vegar ekki
leyfi fyrir þessum útflutningi og mun
ekki hafa verið kunnugt um farminn
fyrr en búið var að skipa skreiðinni
út. Og bankinn sendi viðskiptavinum
sínum, sem eiga skreið um borð í skip-
inu, skeyti og tilkynnti þeim að
farmurinn væri á þeirra eigin ábyrgð »
vegna þess að ekki hafi borist fúll-
nægjandi greiðslutryggingar frá
kaupendum ytra. Kaupendur yrðu að
gera skil á afurðalánum sem á skreið- .
inni hvíldu, hvort sem greiðslan bærist
fyrir hana eða ekki.
Aðrir bankar, þar á meðal Útvegs-
bankinn, hafa ekki séð ástæðu til þess
að senda viðskiptamönnum sínum til-
kynningu varðandi þennan skreiðar-
farm, meðal annars á þeim grundvelli
að bankamir vora með í ráðum er
útflutningsleyfið fyrir skreiðinni var
veitt.
Verðmætið 350 milljónir
Fullvíst er að skreiðarfarmurinn
nemur að verðmæti um 350 milljónum
króna og þvi ljóst að um gífurlegar .
fjárhæðir er að ræða. Sumir hafa lagt
aleiguna að veði með þessari send-
ingu. „Það er alveg ljóst að skreiðinni ^
verður ekki skipað upp í Nígeríu fyrr
en allar greiðslutryggingar liggja
formlega fyrir. Það vissu allir, einnig
bankamir, og útflutningsleyfið var
m.a. veitt á þeirri forsendu," sagði
Ámi Bjamason hjá íslensku umboðs-
sölunni.
-KB
A18 milljónir í skreiðarfarminum:
„Ég tel míg hafa
nægilega tiyggingu4
„Miðað við mína löngu reynslu í
skreiðarviðskiptum tel ég mig hafa
nægilega tryggingu fyrir þvi að fá
minn hluta af skreiðarfarminum
greiddan, og minn hluti er stór,“ sagði
Björgvin Jónsson, formaður hags-
munanefhdar skreiðarframleiðenda.
Hlutur Björgvins í þeim skreiðar-
farmi, sem fór til Nígeríu í síðustu
viku í gegnum Islensku umboðssöl-
una, er að verðmæti um 18 milljónir
króna. Heildarverðmæti farmsins
nemur um 350 milljónum.
„Formið á þessum viðskiptum er
ekki þannig að maður gangi á eftir
skeytum frá bönkum eða afritum af
bankaábyrgðum áður en vamingurinn
er fluttur út þótt maður þurfi auðvitað
vissu fyrir að hægt sé að treysta við-
skiptunum. Ég fyrir mitt leyti treysti
Bjama V. Magnússyni, framkvæmda-
stjóra íslensku umboðssölunnar,
fullkomlega i þessu máli og ég veit að
skipið verður ekki losað í Nígeríu án
þess að búið verði að ganga frá trygg-
ingum. Ég veit ekki annað ■ en að
bönkunum hafi verið fullkomlega
kunnugt um sendinguna og hafi gefið
óformlegt loforð um að taka þátt í
þessu,“ sagði Björgvin.
„Öll viðskipti mín við íslensku um-
boðssöluna hafa staðist 100%. Ég á
ekki von á því að það fyrirtæki sendi
svona mikil verðmæti úr landi án þess
að fá greiðslu fyrir þau. Maður hleyp-
ur ekki upp þótt eitthvað standi í
dagblöðum,” sagði Stefán Runólfsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannae>’jum. Hlutur
Vinnslustöðvarinnar í skreiðarfarm-
inum nemur að verðmæti 15-18 millj-
ónum króna, að sögn Stefáns.
-KB
Slagurinn að hefjast:
Prófkjör á Suður-
landi hjá Fram-
sóknarflokknum
Umræður um prófkjör og undir-
búning fyrir komandi alþingiskosn-
ingar era víða hafnar innan
Framsóknarflokksins. Þegar hefur
verið ákveðið prófkjör á Suðurlandi
og skoðanakönnun á Norðurlandi
eystra.
I Suðurlandskjördæmi verður
prófkjör 25. október og var það
reyndar ákveðið í haust. Um opið
prófkjör verður að ræða og þeir sem
ætla að gefa kost á sér verða að til-
kynna það fyrir lok september.
Á Norðurlandi eystra hefur verið
ákveðið að fram fari skoðanakönnun
meðal flokksbundinna framsóknar-
manna dagana 20. september til 5.
október. Kostur er gefinn á að raða
niður allt að átta nöfrium. Á kjör-
dæmisráðsfúndi, sem haldinn verður
í október, verðúr síðan endanlega
raðað í sex efstu sætin. Einnig geta
menn gefið kost á sér með því að fá
25 flokksmenn til að skrifa undir
stuðningsyfirlýsingu.
Eftir því sem næst verður komist
hefur ekki enn verið ákveðið um
prófkjör eða tilhögun vals á lista í
öðrum kjöidæmum.
-APH
c