Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Síða 33
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
45
Sviðsljós
í „ a. 'k * j
Á hvem er fólkið að æpa?
Svona myndir af hljómleikum voru auðfengnar á sjöunda áratugnum og
á sviðinu voru þá annaðhvort hinir einu sönnu Bítlar eða misvandaðar
eftirlíkingar. Þetta er þó samt sem áður atburður úr nútíðinni - hljóð-
andi gestir á rokkhljómleikunum sem haldnir voru undir berum himni
í tilefni tveggja alda afmælis höfuðborgarinnar. Reykjavík átti svo sann-
arlega alvöruafmæli, hátíðahöldin hressilegri en gerst hefur á skerinu
lengi og stílað upp á gamla mátann - margir dagar samfellt i látlausri
gleði. DV-mynd Óskar Örn
Að tíu árum liðnum:
Ólyginn
sagði...
Elizabeth
Tavlor
ávann sér allnokkra óvini
með hressilegum yfirlýsing-
um um spillingu í stjórn-
málum og ofdrykkju á æðri
vinnustöðum. Því voru at-
hugasemdir í póstkassanum
hennar í kvikindislegra lagi
síðustu vikurnar sem hræddi
öryggisverði kvikmynda-
versins hennar verulega.
Þegar unnið var í Hollywo-
od Park að tökum á There
Must Be a Pony voru fjórir
beljakar fengnir henni til
verndar. Liz var hæstánægð
með öryggið og bauð liðinu
samstundis að vera við
frumsýningu myndarinnar -
fannst þeir ekki síður hafa
unnið til sætaréttar þar en
margir leikaranna.
'*
Hefndarverðlaun Nóbels
I ráðhúsi Oslóborgar tóku þær á móti friðarverðlaunum Nobels árið 1976
- Mauriread Corrigan og Betty Williams.
Þann tíunda ágúst fyrir réttum tíu
árum óku IRA félagar á flótta yfir
þrjú börn með þeim afleiðingum að
þau létu samstundis lífið. Móðir
þeirra var á gangi meðfram götu í
Belfast með eitt bam í vagni en tvö
til hliðar þegar bifreiðin kom aðvíf-
andi og renndi stjómlaust yfir á
gangstéttina.
Betty Williams var ein þeirra sem
komu fyrst að slysstað og hafi sjónin
svo djúp áhrif á hana að síðar um
daginn gekk hún hús úr húsi og safh-
aði undirskriftum gegn styrjaldar-
ástandinu í landinu.
Fæðing friðarsamtaka
Allir skrifuðu undir. Blaðamaður-
inn og rithöfundurinn Ciaran
McKeown slóst í lið með Betty, sama
gerði móðursystir barnanna sem lét-
ust, Marieread Corrigan. Friðarsam-
Marieread Corrigan með Luke yngri
son sinn og fyrrverandi mágsins
sem er núverandi eiginmaður nób-
elsverðlaunahafans.
tökin Peace People voru fædd og
almenningur í Belfast eygði örlitla
von um frið í framtíðinni.
Átök um aurana
í nóvember sama ár vom þeim
Betty og Marieread veitt friðarverð-
laun Nóbels. Þau voru mikil hefnd-
argjöf að dómi Marieread sem enn
starfar ötullega að friðarhreyfing-
unni á írlandi og elur með sér þá von
að einhvem tímann megi Irar lifa
betri tíma en nú.
„Verðlaunapeninginn sjálfan tek
ég með mér hvert sem ég fer,“ segir
Marieread.
„Hann þykir mér vænt um og hef
ánægju af því að sýna fólki þennan
virðingarvott sem hreyfingunni okk-
ar hefur hlotnast. En peningamir
voru mikil ógæfa og ég vildi að þeim
hefði aldrei verið útdeilt."
Strax eftir afhendinguna kom í ljós
að Betty Williams ætlaði fjármunina
til eigin nota og taldi fráleitt að láta
þá renna til friðarstarfsins. Allar
samningaviðræður reyndust árang-
urslausar og Marieread var ráðlagt
að taka sinn hluta þegjandi og
hljóðalaust til þess að vekja ekki upp
umræður um klofningu innan hreyf-
ingarinnar. Hún lét til leiðast en
notaði peningana eftir sem áður í
rekstur Peace People. Þetta olli
miklum umræðum manna á meðal
og umtalið var vægast sagt ekki til
þess að auka hróður samtakanna.
Núna sér Marieread eftir þessari
ákvörðun og segir að betra hefði
verið að framkvæma allt fyrir opnum
tjöldum frá upphafi.
Martröð friðarsamtakanna
Skömmu síðar vann Betty i happ-
drætti ferð í Disneyland í Bandaríkj-
unum. I þeirri ferð hitti hún mann -
í Disneylandi - sem var að sýna börn-
um sínum þessa ævintýraveröld. Þau
hófu sambúð þar ytra og sjónvarps-
viðtöl við Betty þar sem hún kemur
íram með litað platínuljóst hár, dem-
antsskreytt í loðfeldum, er hrein-
ræktuð martröð í augum íranna.
Framtíð Corriganbarna og
friðarsamtaka
Fyrir Corriganfjölskylduna hélt
harmleikurinn áfram að versna.
Systir Marieread reyndi að jafna sig
eftir slysið með ýmsum aðferðum,
meðal annars átti hún tvö böm með
skömmu millibili til þess að reyna
að fylla í skarð hinna þriggja sem
fórust. En allt kom fyrir ekki og hún
stytti sér aldur skömmu síðar.
Sem formaður Peace People hafði
Marieread í nógu að snúast og henn-
ar hægri hönd var hinn óþreytandi
Ciaran McKeown sem nóbelsverð-
launanefndin hafði ekki hirt um að
taka með í myndina þegar úthlutun-
in fór fram. Annríkið þar kom þó
ekki í veg fyrir að hún bætti á sig
störfum, eftir andlát systurinnar
flutti hún til mágsins og bamanna
tveggja til þess að aðstoða hann við
uppeldið.
Sambúðin leiddi til giftingar sem
fram fór í Rómaborg með fullu sam-
þykki páfans. Þau eiga nú tvo syni
saman og búa með bömin fjögur í
úthverfi Belfast.
Aðspurð um árangurinn af friðar-
starfi Peace People þessi tíu ár sem
liðin eru segir Marieread að allnokk-
uð hafi áunnist.
„Ég trúi því,“ heldur hún áfram,
„að friðarhugsunin sjálf hafi skotið
rótum í huga Belfastbúa. Það muni
síðar leiða til þess að valdbeiting og
tilgangslaus mannvíg taki enda. Og
jafnvel þótt starf okkar hafi ekki leitt
til nema kannski að eitt mannslíf
hafi bj£U"gast á þessum tíu árum þá
er það sönnun þess að ekki hefur
verið unnið árangurslaust innan
hreyfingarinnar að friði á írlandi."
Katharine
Hepburn
var beðin um að leika móður
Joan Collins í Dynasty en
sagðist ekkert vita um hvað
málið snerist. Eini Collins
sem hún kannaðist við héti
Tom og vinsæl víntegund
væri kennd við kappann.
Eftir umhugsun og eftir-
grennslan um tilboðið
svaraði hún því til að hús-
hjálpin sín ráðlegði henni að
hafna boðinu. Enginn feng-
ist hvort sem væri til þess
að trúa að Joan Collins hefði
einhvern tímann átt móður.
Prince
hefur tekið upp á sína arma
nýjan skjólstæðing. Það er
fyrrum ungfrú Ameríka sem
missti titilinn vegna nektar-
mynda í því vinsæla tímariti
Playboy. Hann skrifar tónlist
og kvikmyndahandrit fyrir
stúlkuna af miklum dugnaði
þessa dagana og segja
menn vestra að hann hafi
einkum fallið fyrir dásamlega
slæmu mannorði þeirrar þel-
dökku Vanessu Williams.
*■_
*