Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. Fellur Campomanes ef Kasparov sigrar? Heimsmeistaratitillinn gæti ráðið úrslitum um kjör forseta Alþjóðaskáksambandsins Karpov og Kasparov þóttu prúð- mannlegir í framkomu þar sem þeir tefldu uppi á sviði í hátíðarsal Park Lane hótelsins í London og þeir bættu um betur er þeir héldu áfram tafli í Leningrad. Undir niðri má þó heyra gnístran tanna því að þeir skákmeistaramir eru engir perlu- vinir. Þeir tefla ekki aðeins um heimsmeistaratitilinn heldur snýst taflið ekki siður um völdin sem hon- um fýlgja. Heimsmeistarinn nýtur virðingar heima fyrir og getur fengið ýmsu framgengt sem aðrir menn fá ekki. „Þetta er kalt stríð,“ segir Kasparov í viðtali við Financial Ti- mes. „En það gæti farið að hitna í kolunum.“ Anatoly Karpov var heimsmeistari i 10 ár, allt þar til í nóvember í fyrra er Kasparov náði að hrifsa af honum titilinn. A þessum árum hefur Karpov teflt meira en nokkur annar heimsmeistari og náð frábærum ár- angri. Hann hefur svo sannarlega verið verðugur fulltrúi heimalands síns og með þennan árangur að vopni hefur hann átt hægt með að koma ár sinni vel fyrir borð. Hann á „sína menn“ i æðstu stöðum innan flokksins þar sem hann er sjálfur virkur félagi - í einu og öllu fyrir- mynd ungra rússneskra pilta. En eftir að Kasparov varð heims- meistari varð lífið ekki lengur dans á rósum fyrir Karpov. Kasparov á sína sveitunga í lykilstöðum og áhrifa hans er faríð að gæta innan sovéska skáksambandsins. Nú eru það ekki lengur vinir og kunningjar Karpovs meðal skákmanna sem fá að tefla úti í heimi: Augljós merki um það var þátttaka Dorfmans og Timoshenkos, helstu aðstoðar- manna Kasparovs, á alþjóðlegu móti í Helsinki í júní. Heimsmeistaratitl- inum fylgir bæði vegsemd og völd. „Menn Karpovs eru á undanhaldi“ Sjálfur skynjar Kasparov vel valdabaráttuna sem fylgir keppninni um heimsmeistaratitilinn. í viðtal- inu við Financial Times, sem tekið var að loknum fyrri hluta einvígisins í London, segir hann m.a.: „Eftir að Karpov tapaði síðasta einvígi hefur hann misst marga mikilvæga stuðn- ingsmenn. Nú er hann að tapa þessu einvígi og þeir fá ekkert að gert. Menn Karpovs eru á undanhaldi." Kasparov segir í viðtalinu að grunnt sé á því góða milli hans og Karpovs þótt fáir verði þess áskynja: „Sviðið er opinber staður," segir Kasparov. „Við getum ekki látið tilfinningar okkar í ljós þar. Við bara tökumst í hendur, teflum taflið, ljúkum skák- inni og tökumst aftur í hendur. Það er allt og sumt.“ Að sögn fréttaritara DV í einvíg- inu í Leningrad, Davids Goodman, Lincoln Lucena, hagfræðingur frá Brasilíu, hyggur á mótframboð gegn Campomanes. Hér fylgist hann spenntur með einni einvígisskák- anna í London. DV-mynd JLÁ. Campomanes á blaðamannafundinum í filippseyska sendiráðinu i London: Kænn maður með bein í nefinu. DV-mynd Sigurjón Jóhannsson. sem hefur fylgst með öllum einvígj- um þeirra félaga, er andrúmsloftið óvenjulega vingjamlegt. Þar er á einhvem hátt mun meiri ró yfir hlut- unum heldur en í fyrri hluta ein- vígisins í London. Þar var einhver spenna í lofti, einkum skákpólítísk spenna, enda líður nú að kosningum til forseta Alþjóðaskáksambandsins, FIDE. Úrslit í heimsmeistaraein- víginu gætu verið þung á metunum varðandi framtíð núverandi forseta, Filippseyingsins Florencio Campo- manesar. Lucena: Brosandi og alþýð- legur Raymond Kenne var einn aðal- skipuleggjandi einvígisins í London og helsti hvatamaður að því að fyrri hlutinn skyldi tefldur þar - hann vildi fá allt einvígið til London. Kenne hefur verið áhrifamaður inn- an FIDE í allmörg ár og unnið við hlið Campomanesar að ýmsum mál- um. En nú hefur hann fengið nóg af yfirgangi FIDE-forsetans. Kenne er hatrammur andstæðingur Campomanesar og það var að hans Skák Jón L. Árnason undirlagi að brasilíski hagfræðing- urinn Lincoln Lucena lét til leiðast að bjóða sig fram gegn honum. Kos- ið verður á þingi Alþjóðaskáksam- bandsins í desember, sem fram fer samhliða ólympíuskákmótinu í Dubai - Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum. Það var ljóst að Kenne notfærði sér einvígishaldið út í ystu æsar í áróðursskyni, enda voru margir frammámenn innan skákhreyfinga saman komnir í London. Lucena var sjálfur eins og grár köttur á Park Lane hótelinu, brosandi og alþýðleg- ur. Auk þess að kynna sjálfan sig starfaði hann sem skákblaðamaður - sendi fréttir heim til Brasilíu. Kenne sagði í viðtali að miklu skipti að einvigishaldið tækist vel svo skákheimurinn sæi að þeim væri alvara með framboðinu. „Sjálfúr sækist ég ekki eftir forsetastóli," sagði Kenne. „Hlutverk forsetans er aðallega fólgið í því að vera fulltrúi út á við og það hæfir Lincoln betur en mér. Hann er ekki eins feitur og ég,“ sagði Kenne. Campo með bein í nefinu Campomanes hafði sig lítt í frammi í London enda fann hann kalda vinda blása hvar sem hann fór. Hann fylgdist þó með öllum skákum ein- vígisins úr forsetasvítunni á svölun- um, utan sjónar almúgans. Tvisvar kallaði hann saman blaðamanna- fund og svaraði spumingum utan úr sal af stakri tungulipurð. Það mátti öllum ljóst vera að Campo, eins og hann er jafnan nefndur, er kænn maður með bein í nefinu. Hann lék nokkra sterka leiki í London. Þannig var Alexander Se- reda, varaforseti sovéska íþrótta- sambandsins, við hlið hans á blaðamannafundunum, sem hefúr eflaust átt að tákna stuðning Sovét- manna við framboð hans. Og seinni fundurinn, er Campo lýsti því opin- Enski stórmeistarinn Raymond Kenne sem býöur sig fram til ritara. „Lincoln er ekki eins feitur og ég,“ segir hann. DV-mynd JLÁ. berlega yfir að hann ætlaði að bjóða sig aftur fram til forseta, var haldinn í Filippseyska sendiráðinu í London. Með því móti reyndi hann að kveða niður orðróm þess efnis að hann hefði ekki lengur stuðning stjóm- valda á Filippseyjum eftir að einka- vinur hans, Marcos, missti völdin. Og Campo hafði fleiri jám í eldin- um. Stuðningsmenn hans gáfú út fréttabréf daglega þar sem heldur ósmekklega var vegið að Kenne og hans mönnum. Og blaðamönnum barst í hendur doðrantur mikill frá „Vinum alþjóðaskáksambandsins í Bandaríkjunum" þar sem Campo var hrósað í hástert. Bandaríska skák- sambandið ákvað þó á fundi 8. ágúst sl. að styðja Lucena í forsetastól og Kenne sem ritara í kosningunum í desember. I yfirlýsingu frá Skáksam- bandsmönnum segir að þeir viti ekki hverjir þessir menn em sem stóðu að útgáfunni. Campo leggur greini- lega ríka áherslu á að sýna að hann hafi stuðning stórveldanna í austri og vestri. Úrslit einvígisins skipta sköp- um „Ég tel að á þessari stundu eigúm við u.þ.b. jaftia möguleika á við Campomanes í kosningunum," segir Kenne í viðtali við svissneskt skákt- ímarit. Hann er þeirrar skoðunar, eins og margir aðrir, að úrslit heims- meistaraeinvígisins komi til með að skipta sköpum um það hvort Campo- manes heldur velli eða ekki. Eftir að Campomanes stöðvaði fyrsta heimsmeistaraeinvígi Karpovs og Kasparovs, af tillitssemi við heilsu keppenda, hefur verið grunnt á því góða milli hans og Kasparovs. Raun- ar em ekki allir á eitt sáttir um hvorum keppandanum hann gerði meiri óleik með því að stöðva skák- klukkuna þvi að Karpov þurfti aðeins að vinna eina skák til við- bótar til þess að halda heimsmeist- aratitlinum. En hann var aðframkominn á líkama og sál, að því er fregnir herma, og þá greip vinur hans, Campomanes, í tau- mana. Það þoldi Kasparov ekki og hann hefúr aldrei fyrirgefið FIDE- forsetanum. „Campomanes hefúr engin samráð við stórmeistara í skák. Hann segist vera að breiða út skáklistina í þriðja heiminum en það hefur einfaldlega enga þýðingu að dreifa skákklukk- um og -bókum þar. Það er algjörlega hans sök hvemig komið er fyrir keppninni um heimsmeistaratitil- inn,“ segir Kasparov. Hann segir að ef hann hefði tapað síðasta einvígi fyrir Karpov hefðu verið 90% líkur á því að Sovétmenn og þá austur- blokkin myndu styðja Campomanes. En haldi hann titilinum núna, sem allt bendir til eftir sigur hans á þriðjudag, séu aðeins 30% líkur fyrir því að Campomanes fái atkvæði austantjaldsríkja. Slík eru áhrifin sem fylgja heimsmeistaratitlinum. Campomanes mun vafalaust leggja allt í sölumar til þess að ná endur- kjöri í desember og miðað við aðfarir hans, er hann felldi Friðrik f kosn- ingunum fyrir fjórum árum, svífst hann einskis. „Ég þekki Lincoln Lucena ekki mjög vel en ég lít á hann sem góðan möguleika til þess að blása ferskum vindum imi í óreiðu alþjóðaskáksambandsins," segir Friðrik í viðtali við „News flash“ - málgagn breska skáksambandsins. Og Friðrik bætir við: „Þetta er ekki mín skoðun vegna úrslita kosning- anna 1982. Ég legg áherslu á það sem er gott fyrir skákheiminn. Sem skák- maður vil ég að skáklistinni famist vel en í augnablikinu er sú ekki raunin." Kasparov og Karpov aö tafli í London: Prúöir á yfirborðinu en undir niðri má heyra gnfstran tanna. DV-mynd JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.