Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Qupperneq 40
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986.
Verðbólgan 15,3 %:
„Þetta erstevkviðvómn"
- segir hagfræðingur VSÍ
Vísitala framfærslukostnaðar hef-
ur hækkað mun meira en ráð var
fyrir gert. Hún hækkaði um 1,19
prósent í ágústmánuði en vonast
hafði verið til að hún hækkaði ekki
meira en um 0,8 til 0,9 prósent. Mið-
að við heilt ár þýðir þetta 15,3
prósent verðbólgu. Ef miðað er við
hækkun framfærsluvísitölunnar síð-
ustu þrjá mánuði er verðbólgan 11,5
prósent.
„Þetta er töluvert meira en við
bjuggumst við. Aðalástæðan fyrir
þessu er sú að áhrif gengissigsins er
að koma fram. Það verður að líta á
þessar tölur sem sterka viðvörun í
bjartsýniskastinu sem menn hafa
verið í undanfarið. Þetta sýnir einn-
ig að þó vel gangi er baráttan við
verðbólguna engan veginn unnin,“
sagði Vilhjálmur Egilsson, hagfræð-
ingur VSÍ, í samtali við DV.
„Það er rétt að þetta er hærra en
maður hafði vonað. Það eru ýmsar
ástæður fyrir þessu. Ein er sú. að
áhrif gengissigsins undamfama mán-
uði eru að koma fram. Það er þó
engin ástæða til að örvænta. Mestu
máli skiptir að haldið verði áfram
aðhaldi í verðlagsmálum,“ sagði
Bjöm Bjömsson, hagfræðingur ASÍ.
„Menn ættu að nota þetta til að
koma sér niður á jörðina. Nú er
mikilvægt að allt kapp verði lagt á
að ekki myndist þensluástand, að
ekki verði skapaður þrýstingur á
gengið og aukna skuldasöfnun og
lögð verði áhersla á að efla spam-
að,“ sagði Vilhjálmur.
Bjöm Bjömsson sagði að mikil-
vægt væri að gæta að fjölmörgum
atriðum. Þar bæri hæst væntanlega
hækkun á kjötvörum.
-APH
Skallagrímur gaf:
„Hreint
klúður“
-segirÁmi Sigmundsson
„Þessi ákvörðun var tekin án þess
að ég vissi af því. Það eina sem ég
vissi var að tveir leikmenn liðsins
treystu sér ekki til að fara í leikinn á
ísafirði. Mér persónulega finnst þetta
4M|yera hreint klúður og greinilegt að
mennimjr hafa engan veginn gert sér
grein fyrir því sem þeir vom að gera,“
sagði Ámi Sigmundsson, formaður
knattspymudeildar Skallagríms í
Borgamesi, í samtali við DV.
I gær var Knattspymusambandi ís-
lands tilkynnt að Skallagrímur hefði
ákveðið að gefa síðasta leik sinn i 2.
deild Islandsmótsins í knattspyrnu.
Borgnesingar áttu að leika gegn ÍBÍ
á ísafirði um helgina og skipti sá leik-
ur miklu máli varðandi fallbaráttu
deildarinnar. Með þessari ákvörðun
sendu Borgnesingar Njarðvíkinga
endanlega niður í 3. deild.
Þessi ákvörðun Borgnesinga, sem
tekin var af leikmönnum liðsins og
stjómarmönnum, getur haft ýmsar al-
Tyyarlegar afleiðingar fyrir Skallagrím
og svo gæti farið að liðið yrði að leika
í 4. deild næsta keppnistímabil. Auk
þess þurfa Borgnesingar augljóslega
að greiða háar sektir. -SK.
TRESMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.,
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.
SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Borgnesingar hafa hræöst
hundrað marka múrinn!
Ökumenn voru andvaralausir í sólskininu í gær og afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Bílar voru að rekast á víða
um höfuðborgina og hér má sjá nokkra. í vari við sjúkrabifreiðina er bíll sem ók aftan á annan sem fór á þann þriðja
sem loks stansaði á þeim fjórða. Á meðan nudduðu japparnir sér upp að hvor öðrum í forgrunni. Sannkallaðir sólsk-
inskossar. ,E|R DV-mynd GVA
Veðrið á mánudag:
Svo til
óbreytt
Gert er ráð fyrir að veður haldist
svo til óbreytt á mánudag. Hiti á
bilinu 5-9 stig norðanlands og 9-12
stig sunnanlands.
Veðrið á sunnudag:
Víða
sæmilega
hlýtt
Á morgun verður hæð yfir Grænl-
andi og hæðarhryggur suður um
Grænlandshaf. En lægð verður yfir
Skandinavíu. Hæg norðlæg átt verð-
ur á öllu landinu.
Víða verður sæmilega hlýtt að
deginum, einkum sunnanlands, en
hætt er við næturfrosti víðast hvar.
Tíu ára deila:
Deilt um
rúm látins
bams
„Bamið mitt var aðeins rúmlega
ársgamalt er það lést úr heila-
himnubólgu árið 1976. Þá fluttum
við hjónin frá Þingeyri og skyld-
menni okkar komu rúmi og öðrum
hlutum, er tilheyrðu baminu, í
vörslu hjá kaupmanni hér á staðn-
um. Þá hluti höfum við nú endur-
heimt með aðstoð lögregluyfir-
valda en rúmið hefúr aldrei komið
í leitimar. Kaupmaðurinn hefúr
selt það þó svo hann vilji ekki
kannast við þá gjörð,“ sagði Sól-
veig Vagnsdóttir í samtali við DV.
Sólveig er nú aftur flutt til Þing-
eyrar og deila hennar við kaup-
manninn hefúr blossað upp á ný.
„Ég kannast við að hafa geymt
ýmsa hluti fyrir þetta fólk en
bamarúmið hef ég aldrei haft und-
ir höndum," sagði Gunnar Sig-
urðsson, kaupmaður á Þingeyri,
aðspurður um bamarúmið. „Ég
held að ég sé þekktur fyrir annað
en þjófriað hér á Þingeyri".
Sólveig Vagnsdóttir heldur því
þó statt og stöðugt fram að kaup-
maðurinn hafi selt bamarúmið að
sér fjarstaddri, segist meira að
segja hafa séð gripinn á bóndabæ
við Dýrafjörð og þar segist heima-
fólk hafa keypt rúmið af kaup-
manninum á Þingeyri: „Ég fékkst
við smíðar áður en ég gerðist
kaupmaður og smíðaði mörg rúm
af þessari gerð. Það má vel vera
að þetta fólk hafi einhvem tíma
keypt af mér bamarúm en rúmi
hef ég aldrei stolið,“ sagði Gunnar
kaupmaður.
Að sögn Ólafs K. Ólafssonar,
fulltrúa sýsltunannsins á ísafirði,
barst embættinu bréf frá Sólveigu
Vagnsdóttur f sumar þar sem spurt
var um rúmið. Sýslumaður svaraði
bréfinu á þá leið að rannsókn á
máli þessu hefði lokið árið 1981
og það yrði ekki aftur upp tekið.
Gátan um dularfúlla bamarúmið
á Þingeyri er því enn óleyst.
-EIR
Jafrítefli í
Leningrad
Jafiitefli varðrf 15. einvígisskák
þeirra Kasparovs og Karpovs í
Leningrad í gær. Kasparov heldur
enn forystunni með 8 1/2 vinning
á móti 6 1/2 vinningi Karpovs.
-EBR