Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 13.0KTÓBER 1986.
11
Fréttir
Það fór vel á með þeim Nick Daniloff og Thor Thors er þeir hittust á Kenne-
dyflugvelli á fimmtudagskvöldið. Þeir höfðu þá ekki sést frá því þeir
útskrifuðust frá Harvard 1956. DV-mynd Ólafur Arnarson
DV sameinar gamla bekkjarfélaga:
Daniloff var
í bekk með
Thor Thors
í Harvard
- Edward Kennedy var í sama ávgangi
Mér var tjáð það, þegar ég hafði
samband við skrifstofur U.S. News &
World Report í Washington síðastlið-
inn þriðjudag, að Nicholas Daniloff
veitti engin viðtöl við blaðamenn,
iiann hefði þegar hafnað boðum um
viðtöl við ýmis stórblöð og hann hefði
neitað að koma fram í morgunþáttum
allra stóru sjónvarpsstöðvanna í
Bandaríkjunum. Var mér sagt að
DanilofF vildi nú hætta að vera frétta-
matur og verða fréttamaður á nýjan
leik.
Ekki fannst mér þetta næg ástæða
til að Daniloff neitaði að ræða við DV
og höfðaði nú til tilfinninga viðmæl-
anda míns, sem var Jim Kilpatrick,
fréttastjóri hjá U.S. News & World
Report. Árangurinn varð sá að Kil-
patrick sagði að Daniloff myndi
örugglega ræða við íslenskan blaða-
mann á leiðinni til Islands.
Milli klukkan þrjú og fjögur e.h. á
fimmtudaginn, er ég var í þann mund
að fara út úr dyrunum til að fara út
á Kennedyflugvöll, hringdi síminn.
Það var Nick Daniloff. Umsóknin um
viðtal hafði borist honum og hann
vildi láta vita að það yrði honum sönn
ánægja að ræða við mig um borð í
flugvélinni í svona fimmtán til tuttugu
mínútur. Lengra gæti það sennilega
ekki orðið því hann væri uppgefinn
og myndi sennilega sofna fljótlega eft-
ir að vélin færi í loftið. Hann sagði
líka að hann vildi ekki ræða um fanga-
vist sína í Sovétríkjunum, hann hefði
þegar talað nóg um hana. Ég sagði
honum að ég tæki því fegins hendi sem
í boði væri.
Daniloff sagði mér að það hefði rifj-
ast upp fyrir honum nýlega að einn
af bekkjarfélögum hans við Harvard-
háskólann endur fyrir löngu hefði
verið íslendingur að nafiii Thor Thors
og hann hefði gaman af að frétta af
því hvað af honum hefði orðið. Ég
sagði honum að sennilega væri þetta
Thor Thors, sem nú er aðstoðarbanka-
stjóri við Citibank í New York, en
lofaði að grennslast fyrir um þetta fyr-
ir hann.
Thor Thors er sonur Thors Thors,
fyrrum sendiherra fslands í Bandaríkj-
unum. Hann bjó á íslandi til sex ára
aldurs en fluttist þá til Bandaríkjanna
og hefur búið þar síðan.
Er ég náði sambandi við Thor Thors
hjá Citibank kannaðist hann strax við
að hafa verið í sama bekk og Daniloff
í Harvard. Thor var svo vinsamlegur
að fallast á að koma út á Kennedyflug-
völl um kvöldið til að hitta sinn gamla
bekkjarfélaga, Nick Daniloff.
Thor mætti stundvíslega laust fyrir
klukkan átta og skömmu síðar kom
Nick Daniloff. Urðu þar fagnaðar-
fundir. Flugleiðamenn léðu okkur til
afnota herbergi fyrir innan afgreiðslu
félagsins og þar settumst við þremenn-
ingamir og þágum léttar veitingar.
í bekk með Edward Kennedy
Thor og Nick Daniloff vom í árgang-
inum sem útskrifaðist árið 1956 frá
Harvard. Þeir höfðu ekki sést í þrjátíu
ár þegar DV beindi leiðum þeirra sam-
an á nýjan leik.
í árganginum frá 1956 frá Harvard
vom margir þekktir menn og menn
sem síðar hafa orðið þekktir. Þekkt-
astur af bekkjarfélögum þeirra er
líklega Edward Kennedy öldunga-
deildarþingmaður. Hann átti reyndar
að útskrifast árið 1954 en hann var
staðinn að svindli á frönskuprófi og
var rekinn úr skóla. Hann fékk síðan
að koma aftur og útskrifaðist með
þeim Thor og Nick. Hátíðarræðuna
við útskrift 1956 hélt ungur öldunga-
deildarþingmaður frá Massachusetts,
að nafni John Fitzgerald Kennedy.
Við sátum og röbbuðum hátt á þriðju
klukkustund og það fór ekki milli
mála að minningarnar rifjuðust upp
fyrir mönnunum sem vom saman í
bekk fyrir rúmum þrjátíu árum. Marg-
ar sögur flugu um herbergið en ég
lofaði að birta þær ekki. Þeir vom
komnir saman til að njóta stuttra end-
urfúnda.
Það var undarleg tilhugsun að ann-
ar þessara manna hafði á undanfom-
imi vikum verið á forsíðum heims-
blaðanna og hafði á einkennilegan
hátt dregist inn í heimsstjómmálin og
jafnvel haft varanleg áhrif á mann-
kynssöguna sem böm framtíðarinnar
munu læra. Það er ólíklegt að leið-
togar stórveldanna sætu nú saman og
ræddu um ágreiningsefni sín ef ekki
hefði komið til hlutur þessa viðkunn-
anlega manns sem hér sat og gerði að
gamni sínu við gamlan bekkjarfélaga.
Bjórbanni aflétt án
vitundar ráðherra
- fljótandi gleðifley í Reykjavíkurhöfn
Reykvískum veitingahúsum hefúr
bæst keppinautur, veitingasalurinn
i norsku ferjunni Boletto sem liggur
í Reykjavíkurhöfn í tengslum við
.leiðtogafund stórveldanna. Þar er
seldur bjór án vitundar dómsmála-
ráðherra.
„Þama hefur eitthvað skolast til.
Mér var tjáð að allar vínbirgðir
skipsins hefðu verið innsiglaðar og
leyfi til vínveitinga veitt með þvi
skilyrði að áfengið yrði keypt í
ÁTVR og sala þess færi fram sam-
kvæmt íslenskum lögum,“ sagði Jón
Helgason dómsmálaráðherra í sam-
tali við DV.
Veitingasalur Boletto hefur verið
gífúrlega vinsæll og þar jafnan fullt
út úr dyrum. Hefur þetta bitnað á
öðmm veitingastöðum í miðbæ
Reykjavíkur sem staðið hafa hálf-
tómir frá því að Reagan og Gor-
batsjov hófu fúndi sína. Að sögn
barþjóna um borð í Boletto er bjór-
inn sem þar er á boðstólum venjuleg-
ur norskur bjór í milliflokki, um 3
prósent að styrkleika.
„Við fórum fram á að Boletto fengi
sömu meðferð varðandi viðgjörning
um borð og rússnesku skipin sem
hér eru en því var hafnað," sagði
Kjartan Lárusson, forstjóri Ferða-
skrifstofu ríkisins. „Ástæðan fyrir
því að áfengi er selt af birgðum
skipsins er einfaldlega sú að með þvi
losnuðum við við að flytja flöskurnar
úr ríkinu. Það fór fram nákvæm
vörutalning áður en skipið lagðist
að og hún verður endurtekin áður
en skipið heldur utan á hádegi á
þriðjudag. Þá verða greiddir skattar
og önnur gjöld til ríkisins af því sem
selt hefur verið. Hins vegar kann ég
ekki skýringu á því hvers vegna er
seldur bjór þama,“ sagði Kjartan.
í leiðara DV síðastliðinn föstudag
er fiallað um undarlegt ástand er
skapast hefur hér á landi vegna leið-
togafundarins. Þar segir meðal
annars: „Þannig fiúka tollalög, fiar-
skiptalög og útvarpslög eins og
ekkert sé þegar hjálpa þarf erlendum
fiölmiðlum. Ennfremur fiúka lög um
útlendinga eins og ekkert sé þegar
hjálpa þarf erlendum öryggisvörð-
um. Mesta furða er að bjórbannið
skuli ekki hafa fokið líka!“
Bjórbannið er fokið.
„Ég verð að athuga þetta mál,“
sagði dómsmálaráðherra í símtali
við DV frá heimili sínu í Seglbúðum.
-EIR
Jón Helgason vissi ekki um bjórinn.
Barþjónar með norskan bjór á barnum í Boletto sem liggur í Reykjavíkur-
höfn. Glasið kostar 160 íslenskar krónur. DV-mynd S
Kr.
er ekki fyrir hermikrákur
SK-1 gefur
iköpunargáfunni lausan
tauminn og gerir tónverkin að leik
8.700
Möguleikarnir eru margvislegir. Byrjaðu með að
nota innbyggða hljóðnemann til að geyma öll
hljóð sem þú hefur áhuga fyrir í innbyggða
minniskubbnum, hvort heldur mannsraddir eða
önnur hljóð sem þú getur siðan breytt í tónverk
á hljómborðinu. Þetta er mjög auðvelt og
skemmtilegt og útkoman er siðan undir þér kom-
in.
SK-1 er óviðjafnanlegt svo að páfagaukurinn fell-
ur i stafi við samanburðinn. Páfagaukur getur
að sjálfsögðu likt eftir mannsröddum en til sam-
anburðar getur þú með notkun SAMPLINGS
eiginleikanna útsett og fullgert tónverk, allt und-
ir þér sjálfum komið.
Hver er munurinn á páfagauki og CASIO
SK-1 hljómborði ??????
ÍÍÍÍÍÍÍÍÍ PB)JJ6UI)|B10 i-xs ua
uinpojmsuueui qqz q cj n Jiya iuuaq jnjaB uu;jn)|neBe|ed :jeAS
SK-1CASIO
5AMPLIIMG
KEYBOARD
Þú getur einnig valið um átta mismunandi inn-
byggð hljóðminni sem hafa fimm gerðir af PCM
(pulse, code, modulation) raunverulegum hljóð-
Laugavegi 26. færum og þér til stuðnings getur þú vaiið um
Sími 91-21615. e^e^u sjálfvirka hljóðtakta (rythma).