Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 1986. 13 Neytendur Verða húsnæði& auglysingamar brátt úr sögunni? „Væntanlegir húseignaikaupendur hafa samband við okkur og fylla út sérstök eyðublöð um eftir hvers konar eignum þeir sækjast. Við sendum þeim þá útskrift á minnst tíu eignum sem uppfylla þau skilyrði sem kaupandinn setti. Ef viðskiptavinurinn finnur ekki eitthvað við sitt hæfi í þeim gögnum getum við sent honum upplýsingar um fleiri íbúðir eða þangað til hann finnur það sem hann er að leita að.“ Þannig lýstu tveir ungir athafha- menn starfsemi nýstofriaðs fyrirtækis síns í eyru blaðamanns DV. Þetta eru þeir Reynir Guðmundsson og Hafþór Óskarsson sem sett hafa á stofn nýtt fyrirtæki, Eignaskrána, Túngötu 5. „Fyrir alla muni máekki taka okkur fyrir fasteignasala því við erum það alls ekki,“ sagði Reynir. „Við miðlum upplýsingum um fast- eignir á markaðinum fyrir fasteigna- sölumar," sagði hann. Ekki næqar upplýsinqar í aug- lýsingunum Fólk hefúr komist að raun um að ef það ætlar að kaupa sér fasteign eru upplýsingar þar um í auglýsingum dagblaðanna afarófullnægjandi. Þeg- ar betur er að gáð eru sömu íbúðimar auglýstar í mörgum auglýsingunum og yfirleitt erfitt að átta sig á því um hvers konar íbúðir er að ræða án þess að hafa mikið fyrir því. Eignaþjónustan mun hafa á hendi það starf að safiia saman á einn stað, í einn gagnabanka, mjög nákvæmum upplýsingum um fasteignir sem til sölu eru og hjá hvaða fasteignasölum við- komandi eignir em til sölu og senda viðskiptavinunum upplýsingar þar um. Viðskiptavinimir hafa samband við Eignaskrána og gefa upp óskir sínar, t.d. hver greiðslugetan er, æskilega fermetrastærð, herbergjafjölda, stað- setningu o.fl. sérþarfir ef einhverjar em. Til em þeir sem t.d. vilja alls ekki búa í kjallara, aðrir sem vilja helst búa á 2. hæð o.s.frv. í gögnum Eignaskrár- innar verða þessar upplýsingar fyrir- liggjandi þegar fyrirtækið verður komið í gang. „Okkur telst svo til að það séu sjö- tíu og ein fasteignasala á Reykjavík- ursvæðinu. Við höfum haft samband við þær allar og tóku langsamlega flestir mjög vel í að eiga viðskipti við okkur í framtíðinni. Aðeins fyirirfast- eignasalarj vildu það ekki en sögðust ætla að sjá til hver framvindan yrði,“ sagði Reynir. Þessi þjónusta Eignaskrárinnar er neytendum algerlega að kostnaðar- lausu nema ef þeir vilja fá upplýsing- amar sendar samstundis. Þá verða þeir að greiða 100 kr. í flutningskostn- 1 Hirsihmann Loftnet og loftnetskerfi. Það besta er aldrei of gott. ■inmmiMitir 'loftnet eru heimsþekkt gæðavara?1! hj Hirsthmann loftnet, betri mynd, betri ending Heildsala, sala. Sendum í póstkröfu. Reynsla gæðin. að. Starfsemin er frármögnuð affast- eignasölunum, 450 kr. á mánuði fyrir hverja eign. Þeim er síðan í sjálfsvald sett á hvaða hátt þær innheimta þá upphæð. -A.BJ. Hafþór Oskarsson og Reynir Guðmundsson við tölvurnar sem geyma mikilvægar upplýsingar um fasteignaviðskipti. DV-mynd KAE smá Profkjör fstæðisflokksí Þegar menntun, reynsla og þekking á þjóðmálum fara sam^| þá er auðvelt að velja JÉr Týsgötu 1 - simar 10450 og 20610.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.