Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 1986. 27 Iþróttir „Höfiim enga möguleika á að komast í úrslitin á EM“ - sagði Platini eftir tapið gegn Sovétríkjunum á laugardag „Þetta er búið hjá okkur, við höfum nú enga möguleika á að komast í úr- slit Evrópukeppninnar þar sem aðeins efeta liðið í riðlinum kemst í úrslit sagði Michel Platini, fyrirliði Evr- ópumeistara Frakka, eftir að Sovétrík- in höfðu sigrað Frakkland, 2-0, í leik liðanna í þriðja riðli Evrópu í París á laugardag. Þeir Igor Belanov og Vass- ily Rats skoruðu mörkin um miðjan síðari hálfleikinn og Sovítríkin hafa ekki tapað fyrir Frökkum frá 1972. Úrslit Evrópukeppni landsliða verða í Vestur-Þýskalandi 1988. Sovétríkin eru nú efst i riðlinum með 3 stig. ís- land í öðru sæti með 2 stig. A-Þýska- land, Noregur og Frakkland hafa eitt stig en Norðmenn og A-Þjóðverjar hafa aðeins leikið einn leik. „Þetta var mjög erfiður leikur fyrir mig. Það er erfitt að koma í landsliðið á ný og leika við hið sterka sovéska lið. Við verðum nú að gleyma þessari Evrópukeppni og fara að byggja upp fyrir framtíðina," sagði Platini, sem lék sinn 70. landsleik fyrir Frakkland og var heldur dapur í leik sínum eins og flestir aðrir leikmenn franska liðs- ins. Þeir urðu að sigra í leiknum til að hafa virkilega möguleika á sigri í riðlinum og það var eins og leikmenn franska liðsins þyldu ekki pressuna. Það gerðu leikmenn sovéska liðsins hins vegar. Lékum af miklum krafti allan tímann og unnu sanngjaman sigur. Sovéska liðið náði fljótt undirtökun- um og litlu munaði að það skoraði á 14. mínútu. Þrumufleygur vamar- mannsins Alexander Chi vadze hafhaði neðst í marksúlunni. Knötturinn fór í Joel Bats markvörð - aftur í stöngina en inn fór boltinn ekki. Talsverð harka í leiknum og Bessonov varð að fara af leikvelli eftir samstuð við franska bakvörðinn Manuel Amaros. Vagiz Khidyatulin kom í hans stað. Frakkar áttu sín færi. Platini, sem felldur var gróflega rétt utan vítateigs á 35. mín., tók aukaspymuna sjálfur og knöttur- inn straukst rétt yfir þverslá marksins. Sovésku leikmennimir byrjuðu mun betur í síðari hálfleik. Rats stöðugur ógnvaldur fyrir frönsku vamarmenn- ina. Á 55. mín. varði Bats markvörður frábærlega frá honum. Sló knöttinn yfir þverslá. Sóknarþunginn jókst. Bats varði naumlega frá Yakovenko á 64. mín. en fjórum mín. síðar átti hann enga möguleika. Zavarov og Rodionov splundruðu vöm franskra og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Belanov. Sovéskir höfðu náð forustu og réðu gangi leiksins; Á 70. mín. varði Bats en snilldarlega frá Rats en níu mín. síðar skoraði Rats annað markið og úrslit vom ráðin. Gífurlegt áfall fyrir frönsku leikmennina og 40 þús- und áhorfendur sem troðfylltu Parc des Princes leikvanginn í París. Liðin vom þannig skipuð: Frakkland: Bats, Ayaache, Boli (Vercmysse 88. mín.), Jeannol, Ama- ros, Femandez, Tigana, Ferreri, Plat- ini, Stopyra og Papin (Bellone 71. mín.). Sovétríkin: Dassaev, Bessonov (Khidyatulin 34. mín.), Kuznetsov, Chivadze, Denianenko fynrliði, Yako- venko, Rodinov (Blokhin 82. mín.), Aleinikov, Rats, Zavarov og Belanov. Markaskoraramir Belanov og Rats léku ekki með sovéska liðinu á Laug- ardalsvelli vegna meiðsla. -hsím „Ég er mjög ánægður með mína menn, þetta var mun betra heldur en gegn Fram. Við börðumst geysilega vel í síðari hálfleik og náðum þá upp góðum vamarleik," sagði Biynjar Kvaran, þjálfari og leikmaður KA, eftir að lið hans hafði sigrað FH-inga, 29-27, í fyrstu deildinni í handbolta á laugardag. Leikurinn var mjög harð- ur. Tveir leikmenn fengu rauða spjald- ið og alls ellefu sinnum vom leikmenn reknir af velli í tvær mín. FH-ingar vom sterkari framan af. KA-menn náðu forystunni í leiknum þegar Jón Kristjánsson skoraði eftir 42 sek. en síðan náðu FH-ingar undir- fengu rautt í Firðinum - þegar KA sigraði FH mjög övænt í 1. deild handboftans tökunum og höfðu forustu allan fyrri hálfleik. Eftir 15 mín. var staðan 8-5 fyrir FH og enn breikkaði bilið milli liðanna. FH-ingar komust í 14-9 en KA skoraði þá þijú mörk í röð áður en Óskar Ármannsson bætti 15. mark- inu við fyrir FH. Staðan í hálfleik því 15-12 og nú héldu margir að eftirleik- urinn yrði auðveldur hjá FH-ingum sem höfðu fram að þessu átt auðvelt með að skora hjá slakri vöm KA. Góð barátta KA-liðsins En KA-menn gáfust ekki upp og sýndu miklu meiri baráttu í síðari hálfleik heldur en FH-ingar og upp- skám eftir því. Að vísu héldu FH-ingar forystunni undir miðjan síðari hálfleik en þá stóð 23-21 fyrir FH. En KA- menn náðu sér þá heldur betur á strik og tókst að jafna og komast síðan yfir. Tveir leikmenn FH, þeir Héðinn Gils- son og Óskar Ármannsson, fengu að sjá rauða spjaldið með stuttu millibili og ekkert gekk upp hjá FH-ingum á síðustu 10 mín. leiksins. Vöm KA var sterk fyrir og Brynjar varði hreint frá- bærlega á köflurn og lokaði markinu. KA-liðið sigldi fram úr og tryggði sér góðan sigur, 29-27, og fögnuður norð- anmanna að sjálfeögðu mikill í lokin. Brynjar Kvaran varði eins og ber- serkur í þessum leik, sérstaklega í síðari hálfleik, og var besti maður KA. Friðjón Jónsson og Jón Pétursson áttu einnig góðan leik en umfram allt var það barátta liðsheildarinnar sem skóp sigurinn. FH-liðið virkaði ágætt í fyrri hálfleik en svo datt allur botn úr lið- inu síðasta fjórðung leiksins, eftir að Héðinn og Óskar vom reknir af velli. Liðið er nú búið að tapa fyrir tveimur liðum sem fyrirfram vom álitin veik- ari og því verða FH-ingar heldur betur að taka sig á i næstu leikjum. Héðinn var mjög ógnandi meðan hann var inni á og þrátt fyrir að vera í strangri gæslu þá skoraði hann fjögur glæsileg mörk. Gunnar Beinteinsson stóð sig vel i hominu og skoraði fimm mörk. Dómarar vom Sigurður Baldursson og Bjöm Jóhannsson og vom þeir mjög mistækir á köflum. Mörk FH: Óskar Armannsosn 5 (3 v.), Gunnar Beinsteinsson 5, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Guðjón Ámason 4, Pétur J. Petersen 3, Héðinn Gilsson 4 og Óskar Helgason 2. Mörk KA: Jón Kristjánsson 8, Friðjón Jónsson, 7, Guðmundur Guðmundsson 6, Pétur Bjamason 5 (1 v.), Hafþór Heimisson 2, Axel Bjömsson 1 og Jóhannes Bjamason 1. Maður leiksins: Brynjar Kvaran, KA. -RR HAMRABORG 3, SIMI 42011, KOPAVOGI uitny Stóll kr. 1.520,- Kantað borð kr. 9.200, Stóll kr. 1.520,- Hringborð kr. 7.800 Grillstóll Litir: sv< rauður, hvít Sultana stóll Stóll sem hægt er að stafla. Krómuð grind, gatað stál í baki og setu, litir: svartur og hvítur. Kjörinn fyrir veit- ingahúsarekstur. Stálstóll Stálstóll með bastsetu og -baki, krómuð grind. Verð kr. 1.520 í Ijósu beiki Verð kr. 1.620 hvíttur og svartur SULTANA METAt SEAT/BACK CHj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.