Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 38
38 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 1986. Gagnfræðaskólinn í Mosfellssveit Gangavörð vantar nú þegar við skólann. Um er aö ræöa hálfs dags starf. Vinnutími frá kl. 10-14. Upplýsingar veita á skólatíma Einar Georg Einarsson skólastjóri og Helgi R. Einarsson yfirkenn- ari. Simar 666186 og 666586. Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á kortið. Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar og ganga frá öllu i sama simtali. Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,- Hafið tilbúið: /Nafn - heimilisfang - síma - nafnnúmer -kortnúmer^ og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar. Mikið úrval af CASIO hljómborðum, synthesizerum og fylgihlutum (RZ-1 trommuheili, SZ-1 sequencer) í okkar rúmgóðu nýju verslun að Laugavegi 26. Laugavegi 26. Sími 91-21615. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Hraunkambi 5, efri hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Gunnars Jónsson- ar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. og Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 16. október 1986 kl. 15.30. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Gimli v. Álftanesveg, Garðakaupstað, þingl. eign Guðmundar Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 16. október 1986 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 24., 30. og 33. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign- inni Skerjabraut 5A, 1. hæð, Seltjarnamesi, þingl. eign Esterar Rögnvalds- dóttur, fer fram eftir kröfu Baldvins Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 16. október 1986 kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Sléttahrauni 29, 3.h. f.m. C, Hafnarfirði, tal. eign Stefaníu R. Guðjónsdóttur og Helga G. Júlíussonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 16. október 1986 kl. 15.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Sandkom Kvikmyndir Algjört klúður/A Fine Mess irkirk Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit Páll Magnússon. Stöð2 Stöð 2 tapaði fyrstu or- ustunni við sjónvarpið þegar sýnt var beint frá komu Reag- ans. Páll Magnússon játaði ósigur sinn en bætti við: „Fall er fararheill." Sumir hafa látið sér detta í hug, að þetta fall boðaði „fall- ítt“. Vonandi verður svo ekki, en óskandi að Indverjinn á Stöð 2, sem svo margir hafa spurt sig hver væri, hressist og komi tækjabúnaðinum í lag. Augu heimsins Að sjálfsögðu hefur allt snú- ist um leiðtogafundinn að undanfömu. Ein af klisjunun í blöðunum er sú að augu heimsins beinist nú að Reykjavík. Nú spyr maður sig hvernig þessi augu líti eigin- lega út. V arla eru þetta bláu augun úr laginu hans Gunna Þórðar né alvarlegu augun hans Geirs Hallgrímssonar. En líklega er annað „auga heimsins" blátt en hitt rautt. Þokkaleg ásjóna það. Hitt er alveg á hreinu að augu heimsins hljóta að sjá alveg óskaplega vel, enda í mörg hom að líta dags daglega. Ingvl Hrafn. Ingvi Hrafn Heldur hefur mönnum fund- ist Ingvi Hrafn hjá sjónvarp- inu vera að hressast að undanfömu. Finnst fólki sem fréttastjórinn sé kominn í rosalegt keppnisskap þessa dagana og að nú sé gamli hressi Ingvi kominn aftur að völdum, eftir að hafa verið frekar bragðdaufur eftir and- litslyftinguria miklu sem gerð var hjá sjónvarpinu sl. vetur. Gobbedí- gobb Nú er haft fyrir víst að Gor- batsjov hafi valið Reykjavík fyrir leiðtogafundinn vegna þess að þar gæti gamli kúrek- inn Reagan ekki sett sig á háan hest, enda íslenski hest- urinn smár. Gott þetta hjá gobbedí-gobb. Stórhöfði Þær eru alveg frábærar sög- urnar um trú okkar Islendinga á álfa og tröll. Ofan í allt kem- ur svo sagan um að reimt sé í fundarstað leiðtoganna, Höfða, og að þar gangi fram- liðinn fram og aftur. Nú er líka komin skýringin á því hvers vegna fjölmiðlar fengu ekki aðgang að Höfða heldur bara miðlar. Enda er sagt að leiðtogamir hafi lagt „draug" að samningum í Stórhöfða. Félags- fræðingar Þing norrænna félagsfræð- inga var fært af Hótel Loft- leiðum á Hótel KEA vegna ástandsins í Reykjavík. Alls sátu 100 félagsfræðingar þing- ið. Dálagleg samkoma það. Fyrst bökuðu þeir vandræði með því að bóka sig á Loft- leiðahótelið og síðan lögðu þeir drög að mörgum vanda- málum á Hótel KEA. Þeir láta ekki að sér hæða, félagsfræðingarnir. Sniðglíma Það vakti athygli við komu Reagans að Steingrímur for- sætisráðherra rakst óvart í einn lögregluþjóninn sem þama var að þvælast fyrir. Steingrímur brá fyrir sig höndunum og stjakaði lög- reglumanninum aðeins til hliðar. Nú segja margir að ef ekki hefði verið bein útsending hefði gamli glímum^ðurinn fellt löggumanninn með snið- glímu á lofti. Keflavíkur- vegur Það kom fáum á óvart að öryggisverðir leiðtoganna, sem jú öllu ráða í reynd, hafa viljað láta rýma Keflavíkur- veginn þegar leiðtogarnir óku til Keflavíkur. Einu vemrnar sem fengu að fara um veginn vom hin margfrægu villtu fjallalömb sem hlaupa um vegi án þess að spyrja öryggisverði um leyfi. Kannski öryggis- verðimir hafi skotið sér í matinn á leiðinni og það sé ástæðan fyrirþví að bílalest- imar óku hægar en gert var ráð fyrir. Algjort klúður Umsjón: Jón G. Hauksson Framleiðandi: Tony Adams Leikstjórn og handrit: Blake Edwards Aóalhlutverk: Ted Danson, Howie Mandel og Richard Mulligan Og við skulum byrja á því að gefa þeim sem fann íslenska naftiið á þessa mynd gott klapp. Blake Ed- wards hefur gert nokkrar miðlungs og nokkrar ágætis gamanmyndir en þegar honum mistekst er útkoman algjört klúður eins og í þessu til- felli. En hann nýtur góðrar aðstoðar í klúðrinu. Ted Danson er algjört klúður. Howie Mandel er algjört klúður. Richard Mulligan er algjört klúður. En þeir geta lítið að þessu gert, blessaðir, því handritið er slíkt klúður að það er í sjálíú sér brandari. Danson og Mandel leika tvo létt- lynda náunga. Danson kemst á snoðir um veðreiðasvindl tveggja álkulegra bófa. Bófamir hafa gefið hestinum „Sorry Sue“ lyf sem nægja til að hesturinn getur hlaupið míl- una á nýju heimsmeti afturábak. Danson fær vin sinn Mandel til að veðja öllu sparifé sínu á hestinn en vandamálið er að bófamir vita af þessu og vilja koma vinunum fyrir kattamef. Á veðreiðabrautinni upp- hefst heljarmikill eltingaleikur milli þessara aðila þar sem Edwards klúðrar hverju atriðinu á eftir öðm. Inn í málið blandast ýmsir aðilar, uppboðshaldari, mafíuforingi, létt- lynd eiginkona mafíuforingjans og fleiri. Lokauppgjörið verður svo á heim- ili mafíuforingjans þar sem öllu er klúðrað sem á annað borð er hægt að klúðra. Eins og fyrr segir er handritið klúður. Danson og Mandel er lýst 1 Bjarni Felixson. Markalaust jafntefli Ý msir hafa velt því fyrir sér hvemig Bjami Fel hefði lýst beinu útsendingunni þegar leiðtogamir mættu til leiks í Keflavík: „Þedda er undan- úrslidarabbfúndur, þeir hafa i fullu tré hvor við annan, það er valinn maðúr í hverju rúmi, en ég held að þedda verði margalaust jabbntebbli, núll- riúll." Sem sagt, markalaust jafn- tefli hjá Bjarna Fel, eins og fyrri daginn. Guð eða ekki guð Harðar deilur urðu um ráðningu Cecils Haraldssonar sem forstöðumanns Öldrunar- þjónustu Akureyrar í síðustu viku. I umræðunum sagði Freyr Ófeigsson að þær sner- ust um það hvort Jón Björns- son félagsmálastjóri, sem hafði áhuga á starfinu og félag aldraðra mælti með, væri guð eða ekki guð. Nú er Jón félagsmálastjóri ekki kallaður annað en Guð- jón á Akureyri. sem tveimur hommum í upphafi myndarinnar og þrátt fyrir ítarlegar tilraunir til að sanna hið gagnstæða það sem eftir er, sannfæra þeir engan og allra síst sjálfa sig. Vissulega má finna ýmis brosleg atriði inn á milli í þessu klúðri en þau eru fá og ná alls ekki að byggja upp þá stemmningu sem þarf til að fleyta lélegri bröndurum í gegn. Þeir sem eru að pæla í að klúðra kvöld- inu er bent á að Algjört klúður er það sem þeir þarfnast. Friðrik Indriðason Howie Mandel (t.h.) klúðrar atvinnu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.