Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 1986.
19
Theresa Juel.
Lúðrajámtamir
og Theresa Juel
Tónleikar Lurjamtarna og Theresu Juel I
Norræna húslnu 7. október.
Á efnisskrá: Visnasöngvar, þjóðlög og
ýmis verk fyrir málmblásarasextett.
r.
Lurjámtama er all hressilegt naih
á lúðraflokki og dylst víst engum að
uppruni hópsins er í Jámtalandi i
Svíaríki. Með homaflokki þessum
var einnig vísnasöngkonan og drag-
spilsleikarinn hin alþekkta Theresa
Juel. Virtist þetta, á pappímum að
minnsta kosti, heldur skrýtin sam-
setning því að þótt af nafni flokksins
Tánlist
Eyjólfur Melsted
mætti ráða upprunann var ómögu-
legt að geta sér til um stíl og annað
þvíumlíkt hjá þessum flokki.
Hljómskálamúsík og hljóð-
færið æðsta
Þegar til kom reyndist þetta vera
málmblásarasextett af venjulegri
sænskri gerð. í Svíþjóð er all ste'rk
hefð slíkra flokka, yfirleitt mjúk-
blásandi og blása þeir það sem mundi
flokkast undir hljómskálamúsík.
Jazzáhrif leyndust líka talsverð í leik
þeirra og eina tilraun gerðu þeir til
að spila upp fyrir skemmtigarðastað-
alinn. Það var í verki Christers
Danielssons, Capriccio da Camera.
Það verk er fyrir einleikstúpu með
lúðrakvintett. Margir hafa orðið til
að hefja túpuna til vegs og virðingar
sem einleikshljóðfæri í seinni tíð. í
brandara einum á austurrískri mál-
lýsku er það meira að segja sannað
að túpan sé æðst hljóðfæra. Því að
hún sé hljóðfæri sálfs himnaföður.
Já, ekki skyldu menn vanmeta reisn
túpunnar. Svíar hafa átt einn góðan
málsvara túpueinleiksins þar sem er
Ame Lemon, sem löngum blés í
Stokkhólmsfílharmoníunni og með
„Brass Ensemble" hennar, en ég
held líka að Lind, sá sem umrætt
verk er samið fyrir, hafi tekið við
af honum.
Betra var það eins og í gamla
daga
En hvað um það, Lúðrajámtamir
reyndust mun sleipari í skemmti-
garðamúsíkinni en svona túpuleik-
fimi eins og Christer Danielsson
sémur, eða Lúðrakveðju Jóns Ás-
geirssonar. Ýmist léku Lúðrajámt-
amir með gamalgróinni sænskri
hljóðfæraskipan, þ.e. með takkabás-
únu, flygelhomi óg piccolokornetti
(í Es, eins og Helgi Helgasón lék á),
eða þá með tveimur dragbásúnum
og trompetum. Hugnaðist mér gamla
skipanin sýnu betur jrjá þeim félög-
um. Þegar þeir blésú á trompetana
var það 'svo áberandi hve leiðandi
trompet hafði lítinn tón, mattan og
klemmdi, þótt tæknina hefði hann
að öðm leyti á valdi sínu. Homið
var líka heldur þunnt og hrátt, bás-
únumar sýnu fyllri og betri, en
túpan var það eina sem blakti hjá
þessum homaflokki, ef litið var á
einstaklingana. En flokkurinn í
heild sýndi góðan samleik. Fylgdust
þeir til dænús mjög vel að í öllum
styrkleika og hraðabreytingum.
Að láta leika í gegnum
skemmandi rafmagnssíur
Theresa Juel er vel kunn hérlend-
is. Hún er ein af þeim hressari i
vísnabransanum. Þetta kvöldið
sæmilega hás, en lét það ekkert á
sig fá. Jámtlenskur uppruni er það
sem tengir hana og Lúðrajámtana
og saman tóku þau nokkur þjóðlög
og skemmtilegar vísur í allsnotrum
útsetningum. Mér, margyfirlýstum
íjandmanni óþarfa græjubrúks,
fannst það miður að hún skyldi þurfa
að kyrja upp í hljóðnema og búa til
gervimálmhljóð í vísnagítar i gegn-
um magnara. Græjunum var þó til
þess að gera snyrtilegá beitt, þótt
leiðindasuð færi á köflum i núnar
fínustu. Theresa Juel er neíhilega
of hress og skemmtileg vísnasöng-
kona til að þurfa að láta söng sinn
leka í gegnum svona skemmandi
rafmagnssíur. En allt að einu buðu
Theresa Juel og Lúðrajámtamir upp
á ágæta skemmtan í Norræna hús-
inu.
EM.
Menning
NILFIS
GS90I
m
LÉTT. LIPUR OG VANDVIRK HAGKVÆM OG HEILNÆM
Aðeins 6,1 kg á svifléttum hjólabúnaði.
Stillanlegt sogafl og afbragðs sogstykki.
STERK OG TRAUST
Reynslan sannar rekstraröryggi og
einstaka endingu.
10 lítra poki og svo frábær ryksíun að
hún hreinsar einnig andrúmsloftið.
Nýlegar hollusturannsóknir leiddu í Ijós
að flestar ryksugur rykmenga loftið,
sumar hrikalega.
Já, svona er NILFISK: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk,
fljótt og vel, ár eftir ar, með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
NILFISK
HEIMSINS BESTA RYKSUGA
Stór orð, sem reynslan réttlætir
/FDniX
HÁTÚNI6A SlMI (91)24420
Loftakerfi sem býður upp á
ótakmarkaða
samsetningar- og iýsingarmöguleika
og er jafnframt einstaklega hljóðdeyfandi.
________Hringið eftir nánari upplýsingum._
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
'Armúla 16 • Reykjavik • sími 38640