Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Side 23
MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 1986. 23 íþróttir „Best að gleyma Hamborg sem fyrst' - sagði Ásgeir Sigurvinsson, fynrliði Stuttgart, eftir 0-2 tap í Hamborg Atii Hilmarssan, DV, V-Þýskalandi: „Það er best að gleyma Hamborg sem íyrst," sagði Ásgeir Sigurvinsson eftir að Stuttgart hafði tapað þar 0-2 fyrir unglingaliði Hamburger, sem hefur komið skemmtilega á óvart í vetur. Þetta var 250. heimasigur Hamburger. Þeir Thomas von Heesen og Frank Schmöller skoruðu mörk Hamborgarliðsins. Karl Allgöwer og Andreas Miiller, sem er á hækjum, gátu ekki leikið með Stuttgart vegna meiðsla. „Hamb- urger skoraði tvö mörk úr engum færum,“ sagði þjálfari Stuttgart eftir leikinn. •Atli Eðvaldsson og félagar hans hjá Bayer Uerdingen töpuðu 0-1 í Kaiserslautem. Leikmenn Kaisers- lautem unni' sanngjaman sigur - þeir fengu mörg marktækifæri. Hefðu þess vegna getað unnið tvo leiki. Alliewi skoraði eina mark leiksins á 54. mín- útu. • Það em liðin sextán ár síðan Bay- em Munchen hefur unnið sigur yfir Frankfurt á Wald-leikvellinum í Frankfurt, eða ekki síðan 1970. Þá lék Franz Beckenbauer með Bayem á 25 ára afmælisdegi sínum. Jafntefli varð 0-0 og fengu leikmenn Bayem aðeins eitt marktækifæri. Nachtweih skaut í stöngina á marki Frankfurt á 19. mín- útu. Hans Pflueger hjá Bayem meiddist í leiknum, fékk fimm cm skurð á fót- legg. Andreas Brehme meiddist einnig. Þá var Mattháus bókaður í fjórða skipti á keppnistímabilinu og verður í leikbanni í næsta leik Bayem. • Stefan Engels skoraði bæði mörk Kölnar sem vann góðan sigur, 2-0, yfir Dortmund. Köln hefur fengið fimm stig af sex mögulegum undir stjóm þjálfarans Daume. •Thiele (2), Uwe Rahn (2) og Lienen skoraðu mörk Gladbach, sem vann stórsigur, 5-0, yfir Homburg. • Daninn Henrik-Raun Jensen, sem Dússeldorf hefur leigt frá Vejle fyrir 50 þús. mörk, skoraði mark eftir að- eins 58 sek. gegn Blau Weiss Berlín og hann bætti síðan öðra marki við þegar Dússeldorf vann sigur, 3-1. •Bremen er óheppnasta félag Bun- desligunnar fyrr og síðar. Sex fasta- menn liðsins era meiddir og tveir til viðbótar geta ekki leikið með félaginu næsta leik. Ruelander, sem var rekinn af leikvelli gegn Mannheim og Maier, sem fékk að sjá gula spjaldið í ijórða • Rudi Völler sést hér ganga meiddur af leikvelli. Hann getur ekki leikið með V-Þjóðverjum gegn Spánverjum. Völler, Allofs ogThon ekki með gegn Spánverjum Atli Hamaissan, DV, V-Þýskalandi: Sóknarleikmennirnir sterku, Rudi Völler hjá Bremen og Klaus Allofe hjá Köln, geta ekki leikið með V-Þjóðverj- um gegn Spánverjum þegar þjóðimar mætast í vináttulandsleik ó miðviku- daginn. Þeir era meiddir og einnig hinn efiiilegi Olaf Thon hjá Schalke. Franz Beckenbauer, landsliðsþjálf- ari V-Þjóðverja, mun að öllum líkind- sinn í vetur. Með aðeins tíu ieikmenn náðu leikmenn Bremen að leggja Mannheim að velli, 4-2. Bayem er efet í V-Þýskalandi með ■ 16 stig eftir tíu leiki. Hamburger hefur 14, Leverkusen, sem tapaði 1-2 fyrir Bochum, og Bremen era með 13, Stutt- gart og Kaiserslautem 12. -SOS • Asgeir Stuttgart. Sigurvinsson, fyrirliði Jóhanna með blómaleik Jóhanna Halidórsdóttir lék sinn 300. leik fyrir Fram þegar Fram- stúlkumar unnu sigur á Vest- mannaeyjaliðinu, 28-15, í 1. deildar keppni kvenna í handknattleik. Eyjastúlkumar léku einnig gegn Ármanni í ferð sinni til Reykjavík- ur og fóra þá með sigur af hólmi, 12-10. Reykjavíkurmeistarar Vals töp- uðu, 17-19, fyrir FH. Stjaman vann aftur á móti stórsigur, 31-15, yfir KR. Margrét Theódórsdóttir skoraði 12 mörk fyrir Stjörnuna og Erla Rafnsdóttir 8. -sos um láta þessa leikmenn bvrja leikinn: Schumacher, Köln, Berthold, Frank- furt, Kohler, Mannheim, Förster, Marseille, Buchwald. Stuttgart, Frontzeck, Gladbach, Rolff, Leverkus- en, Eckstein, Númberg og Waas, Leverkusen. Þá er líklegt að Michael Rummenigge eða Wolfarth hjá Bayem verði í sókninni með Waas. Einnig kemur til greina að Wuttke hjó Kais- erslautem fái tækifæri. -SOS VfirSw'ttf1® 1 (,5 M260. Tvískiptur, alsjálfvirkur. aðeins kr. 16.650,- stgr. Verð $ ■C33 5> *! •~~~tv " r‘J rT — ■3^ f L. 3 : • | 120 FM. 120 lítra frystiskápur. Verð aðeins kr. 12.990,- stgr. 280 DL. HáIfsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 14.495,- stgr. f M DL 150. Hálfsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 9.985,-stgr. Það býður enginn betur. Umboðsmenn um land allt. Kælitæki, Njarðvík Árvirkinn, Selfossi Mosfell, Hellu Kaupf. Vestmeyja, Vestmeyjum Kask, Höfn, Hornafirði Rafvirkinn, Eskifirði Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum Kaupf. Þingeyinga, Húsavík KEA, Akureyri Valberg, Ólafsfirði Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki Kaupf. Húnvetn., Blönduósi Oddur Sigurðsson, Hvammstanga Póllinn hf., ísafirði Kaupf. Stykkishólms, Stykkishólmi Verslunin Blómsturvellir, Hellissandi Húsprýði, Borgarnesi Skagavídeó, Akranesi JL-húsið, Hringbraut, Rvk. Skipholti 7, símar 20080 og 26800.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.