Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Qupperneq 48
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vifneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
alian sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 1986.
Sirius kominn til hafnar á ný i gær-
kvöldi. DV-mynd Brynjar
Sirius í
farbanni
Sirius, skip Greenpeace-samtak-
anna, var í farbanni í Hafharfjarðar-
höfh í nótt. Klukkan níu í morgun
höfðu íslensk yfirvöld ekki tekið á-
kvörðun um hvort sjópróf yrðu haldin
eða hvort grænfriðungar yrðu kærðir.
Varðskipsmenn komu ekki með Sir-
ius í höfri fyrr en Reagan var farinn
af landinu. Þeir höfðu tekið skipið á
vald sitt í gærmorgun eftir að skip-
stjórinn óhlýðnaðist fyrirmælum um
;—*að fara ekki inn fyrir ytri mörk
Reykjavíkurhafnar.
-KMU
Forsetinn far-
inn til Rómar
Forseti Islands. frú Vigdís Finn-
bogadóttir, hélt utan í morgun og er
ferðinni fyrst heitið til Frakklands en
þaðan t-il Rómaborgar, þar sem hún
mun dveljast dagana 15. til 18. októb-
er. Forsetinn mun halda aðalræðuna
á sjötta alþjóða matvæladegi FAO í
Róm ,en dagurinn verður að þessu
sinni helgaður efninu „Fiskimenn og
„jjiskveiðisamfélög".
A heimleiðinni mun Vigdís Finn-
bogadóttir eiga nokkurra daga viðdvöl
í Frakklandi en hún er væntanleg
heim aftur 24. október.
-S.dór.
r-=■—1
L v
TRÉ /V
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.,
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.
SIMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Leiðtogarnir eru ekki einu sinni
sammála um hvað þeir voru sam-
mála um!
Brottfarartími Gorbastjovs að breytast í allan morgun:
Goibatsjov lót
„Þetta er alveg furðulegt. Við er-
um látin hanga hér og bíða. Það er
enginn tími til að fara í bæinn því
það er alltaf verið að breyta brott-
farartímanum," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
samtali við DV í morgun.
Steingrímur var þá staddur á
Steingrím bíðð
Keflavíkurflugvelli en þangað fór
hann snemma í morgun ásamt fríðu
föruneyti, Eddu Guðmundsdóttur,
eiginkonu sinni, Þorsteini Pálssyni
fjármálaráöherra, Guðmundi Bene-
diktssyni, ráðuneytisstjóra í foi-sæt-
isráðuneytinu, og Ingva Ingvasyni,
ráðuneytisstjóra í utanríkisráðu-
neytinu. Vigdís Finnbogadóttir og
Matthías Á. Mathiesen gátu ekki
kvatt Sovétleiðtogann því þau flugu
með Amarflugsvél til Amsterdam
klukkan 8 í morgun á leið sinni til
Frakklands.
Upphaflega var ráðgert að vél Sov-
étleiðtogans færi klukkan 9 í
morgun. „Við lögðum af stað til
Keflavikur um áttaleytið til að
kveðja Gorbatsjov og Raisu. Þegar
við vorum komin til Keflavíkur var
brottför frestað til klukkan 10 og nú
hefur henni enn verið frestað til
klukkan 11“ sagði foi-sætisráðherra.
-KÞ/EIR
Raisa er
aðlaðandi
kona
Raisa tók fjöiskylduna á Búrfelli með trompi. Hér heldur hún utan um yngstu dóttur hjón-
anna, Láru, 5 ára. Lengst til hægri er svo önnur dóttir hjonanna, Anna Ýr, þá Böövar sjálfur
°g kona hans, Lisa Thomsen, Bryndís dóttir þeirra, Anna Kristín Ólafsdóttir, tengdadóttir
hjónanna, og Laufey dóttir þeirra.
- sagði bóndinn
á Búrféili
„Ég og við hér erum
mjög ánægð með
þessa heimsókn. Ra-
isa er sérstaklega
aðlaðandi kona og
manni líður vel í ná-
vist hennar,“ sagði
Böðvar Pálsson,
bóndi í Búrfelli í
Grímsnesi, í samtali
við DV.
Raisa' heimsótti
Böðvar og fjölskyldu
hans fyrir hádegi í
gær. „Hún spurði
margs og sagði okkur
frá búskaparháttum í
Sovétríkjunum. Þetta
er mjög geðug kona,“
sagði Böðvar.
Raisa gaf hjónunum
í Búrfelli forláta te-
ketil og dætrum
þeirra konfektkassa
og svokallaðar Ba-
búskur. Raisa fékk
hins vegar heklað sjal
úr eingirni og vira-
virkisbrjóstnælu og
-hálsmen. Að auki
fékk hún glerplatta
með öllum upplýsing-
um um kirkjuna á
Búrfelli.
-KÞ
„Ekki Ijóst
hver endan-
legur árangur
fundarins er“
- sagði Gunnar Gunnarsson
„Á þessari stundu er ekki ljóst hver
endanlegur árangur fundarins er, en
það kemur væntanlega í ljós á næst-
unni. Það eina sem er ljóst er það að
árangurinn nægði ekki til þess að
ákveða framhaldsfund í Bandaríkjun-
um. Hins vegar á eftir að koma í Ijós
hvort fúndurinn hefur ekki skapað
viðræðunum í Genf nýjan grundvöll,"
sagði Gunnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri öryggismálanefndar, i
morgun þegar DV innti hann álits á
niðurstöðu leiðtogafundarins.
En komu þessi endalok þér á óvart?
„Ef marka mátti yfirlýsingar fyrir
fundinn þá mátti gera ráð fyrir ramma
vegna samninga um meðaldrægar
kjamorkuflaugar í Evrópu. Það sem
kom mér á óvart var að Sovétmenn
virtust ekki hafa verið tilbúnir til að
gera slíkt samkomulag heldur sett það
skilyrði að það yrði tengt samkomu-
lagi um langdrægar eldflaugar og
geimvarnaráætlunina," sagði Gunnar.
-SJ
Olli mér
vonbrigðum
Veðrið á morgun:
Rigningin
heldur
velli
Úrkoman lætur ekki deigan síga -
eða þannig. Hún heldur áfram í dag
og á morgun kólnar heldur með suð-
vestanátt og skúrum eða slydduélj-
um á Suður- og Vesturlandi. Sama
gildir um annesin fyrir norðan.
Þurrt verður austanlands og hit-
inn verður þetta frá fjórum og upp
í sjö stig. Útlit er fyrir þetta veður-
lag fram eftir vikunni.
- segir forsætisráðherra
„Ég varð fyrir vemlegum vonbrigð-
um með niðurstöðu fundarins. Mér
skilst að svo lítið beri á milli og ég
hafði vonað að það gengi saman með
þeim þegar svo mikið er í húfi,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra í samtali við DV, aðspurðm-
um leiðtogafúndinn um helgina.
„Ég vona þó að hlutimir hafi skýrst
það vel að það hjálpi leiðtogunum að
ná saman þegar áfram verður hald-
ið,“ bætti forsætisráðherra við.
- En hvemig finnst þér hafa tekist
til með framkvæmdina?
„Ég verð að lýsa aðdáun minni á
hversu vel tókst til. Mér finnst þeir
íslendingar, sem unnu að skipulags-
málunum, hafa staðið sig frábærlega.
Þetta er líkast kraftaverki því svo
stuttur tími var til stefnu. Enda hafa
þeir erlendu fréttamenn, sem ég hef
talað við, allir átt aðeins hrósyrði til
að lýsa allri framkvæmdinni," sagði
Steingrímur Hermannsson.
-KÞ
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
é