Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ J* 62 25 25 Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt - hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986. Steingrímur í • suðurvíking - í efsta sæti Framsóknar á Reykjanesi Búist er við sögulegri tilkynningu á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Reykj aneskjördæmi í kvöld. Nær öruggt er talið að formaður flokksins, Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra, taki þar boði kjördæmis- ráðsins um efsta sæti á lista flokksins í kjördæminu í næstu kosningum. Það þýðir að hann yfirgefur forystusæti flokksins á Vestfjorðum sem hann erfði eftir foður sinn, Hermann heitinn Jónasson, fyrrum forsætisráðherra. Einhveijar vöflur hafa verið á Stein- iígrími varðandi þessa ákvörðun. Sumir samflokksmenn hans fyrir vestan hafa minnst yfirlýsinga hans um að á með- an ffamsóknarmenn á Vestfjörðum vildu hafa hann í ffamboði þar tæki hann því. Núna blandast þó í þetta Visrtalan: Mjög ánægður - segir Steingrímur „Ég er mjög ánægður með þetta. Vísitalan hefur nú mjakast í átt til betra jafnvægis," sagði Steingrímur Hermannsson í samtali við DV. Vísitala síðasta mánaðar sýnir að verðhækkanir hafa orðið minni en mánuðinn þar á undan, samkvæmt tölum Hagstofu fslands um vísitölu framfærslukostnaðar sem þýðir lækk- un verðbólgu. „Þessu hafði reyndar verið spáð,“ sagði Steingrímur. „Hins vegar var ég hræddur um að allar hækkanir í sam- bandi við leiðtogafundinn kæmu inn í þetta en það varð ekki. Við erum 'J^íúna á þessum svokölluðu rauðu strikum og ég vil hvetja alla sem ein- hverju ráða um verðlagningu að halda henni í skefjum," sagði Steingrímur Hermannsson. -KÞ - sjá bls. 23 TRESMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF„ IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK. SÍMAR: 92-4700-92-3320. LOKI Það er ekki ofsögum sagt af fólksflóttanum að vestan! „víðtækari hagsmunir flokksins" eins og sumir orða það. Með breyttum kosningalögum nýtist Framsóknarflokknum verr en áður fylgi í fámennustu kjördæmunum til þess að ná þingsætum á fá atkvæði. Meiri athygli beinist því að tveim stærstu kjördæmunum á Suðvesturl- andi þar sem flokkurinn náði aðeins einum þingmanni í síðustu kosning- um. Hann missti þá sæti sitt í Reykja- neskjördæmi. Steingrímur mun því væntanlega taka forystusætið þar og þá með þeim rökum að formaður flokksins geti ekki skorast undan þvi að ganga fram fyrir skjöldu þar sem flokkur hans á undir þyngst högg að sækja. -HERB Kristján Ragnarsson um olíuskattínn: Undrandi og reiður „Ég er bæði undrandi og reiður,“ sagði Kristján Ragnarsson, formað- ur Landssambands íslenskra útvegs- manna, er DV spurði hver væru viðbrögð talsmanns útgerðarinnar, eins stærsta olíuneytanda í landinu, við fféttum um 600 milljóna króna olíuskatt. „Ég fæ það ekki skilið að það geti hvarflað að ríkisstjóminni að leggja olíuskatt á útgerðina með hliðsjón af því hvernig þetta hefur gengið að undanfömu.“ Kristján sagði útgerðinahafa safn- að gífurlegum vanskilum en ekki notið olíulækkunarinnar nema í hálft ár. Jafiivægi væri engan veginn komið á. „Það er algerlega fyrir ofan okkar skilning að menn láti sér detta þetta i hug,“ sagði hann. -KMU Smus siglir a iy Til átaka korrt á sjó, rétt utan við Höfða, skömmu áður en Reagan og Gorbatsjov komu til þriðja fundar síns á sunnudagsmorguninn. Tvö varðskip stöðvuðu þar för Siriusar, skips grænfriðunga, inn í Reykjavíkurhöfn og urðu minniháttar skemmdir á öllum skipunum. Eftir að Sirius hafði siglt á Tý stukku varðskipsmenn af Óðni um borð til grænfriðunga og tóku þar öll völd. í morgun var ráðgert að Sirius yfirgæfi Hafnarfjarðarhöfn á hádegi og héldi -EIR DV-mynd SH - sjá bls. 2 til Hollands. Veðrið á morgun: Éljagangur á vestan- verðu landinu Vestlæg átt um allt land. Élja- gangur á vestanverðu landinu en þurrt og víða léttskýjað á austan- verðu landinu. Hiti á bilinu -2 til 3 stig. Sjálfstæðisflokkurinn: Óbreytt fyr- irvestan Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum, vegn'a næstu þingkosn- inga, lauk þannig að sömu menn verða í efstu þrem sætunum og skipuðu þau síðast. Matthías Bjamason ráðherra hlaut 80,7% atkvæða og fyrsta sætið. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, for- seti Sameinaðs Alþingis, hlaut 78,7% og annað sæti. Einar K. Guðfinnsson, útgerðarstjóri á Bolungarvík, hélt þriðja sæti með 70,4% atkvæða. -HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.