Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1986, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986.
Stjómmál
Ríkið fær félagsmálareikning raforkufyrirtækjanna:
Fjórir milljarðar fyrir
pólitíska staðdeyfingu
Aðstoðarmaður iðnaðarráðherra,
Jónas Elíasson, kallar skuldasöfriun
vegna svokallaðra félagslegra raf-
orkuframkvæmda pólitíska staðdeyf-
ingu. Deyfingin er nú að fara úr og
ákveðið er að ríkissjóður taki á sig
meira en fjögurra milljarða króna
skuldir Rafinagnsveitna ríkisins og
Orkubús Vestfjarða.
Jónas heldur því fram að verðjöfh-
unargjald á raforku hafi átt að standa
undir þessum félagslegu framkvæmd-
um, rafvæðingu dreifbýlisins og'
einkum sveitanna. Hins vegar hafi
þingmenn freistast til þess að ætla
sama fénu að standa bæði undir af-
borgunum og vöxtum af teknum
lánum og nýframkvæmdum.
„Það hefði verið ærið sársaukafúllt
fyrir alla alþingismenn að vera með
þessi útgjöld á íjárlögum hvers árs.
Ekki er hinn minnsti vafi á því að hér
virkaði verðjöfnunargjaldið sem eins
konar pólitísk staðdeyfing gegn þess-
um sársauka," sagði Jónas Elíasson á
vetrarfundi rafveitna og hitaveitna.
„Má með nokkrum rökum halda því
fram að vegna þessarar staðdeyfingar
hsifi mikið skort á nauðsynlegt aðhald
í þessum málum og þess vegna hafi
verið lagt í ýmsar óarðbærar fram-
kvæmdir sem aldrei átti að leggja í
vegna þess að aðrar lausnir voru ódýr-
ari og betri.
Ekki er langt síðan ríkissjóður tók
á sig rúmlega tvo milljarða króna
vegna Kröfluvirkjunar og yfir milljarð
vegna byggðalína sem teljast til félags-
legra framkvæmda. Nú bætast fjórir
milljarðar við á einu bretti. Á móti
koma að vísu skuldabréf upp á millj-
arð frá RARIK, útgefin af Hitaveitu
Suðumesja. Einnig verða búin til bréf
upp á 600 milljónir útgefin af RARIK
og 400 milljónir útgefin af Orkubúi
Vestfjarða.
Formlega eru það því tveggja millj-
arða króna skuldir sem ríkið yfirtekur
nettó. Heimildarmenn DV telja að
skuldabréfaútgáfa RARIK og OV séu
hrein sýndarmennska og engar líkur
séu á að þau fyrirtæki geti nokkum
tímann borgað þau.
HERB
Alþýðubandalagsmenn stinga saman nefjum. Hér sjást þau Svavar Gests-
son, Guðrún Helgadóttir, Ragnar Arnalds og Geir Gunnarsson ræða
þingmálin. DV-mynd GVA
Aukafundir
um fjárlög
Fjárlagafrumvarpið er að komast
í lokameðferð Alþingis. Búist er við
aukafúndum á föstudag og laugardag.
Pálmi Jónsson, formaður fjárveit-
inganefndar, sagði DV í gær að önnur
umræða um fjárlögin færi fram á
föstudag. Breytingatillögur frá nefhd-
inni og tillögur um skiptingu ein-
stakra fjárfestingarliða væm
væntanlegar á fimmtudag.
Fjárveitinganefhd lýkur starfi sínu
fyrir þriðju umræðu, sem gert er ráð
fyrir að verði á fimmtudag eða föstu-
dag í næstu viku. Frumvarpið ætti að
vera orðið að lögum laugardaginn 20.
desember. -KMU
Opinbert eftirlit
er fullnægjandi
„Er það niðurstaða ráðuneytisins
að opinbert eftirlit á útfluttu fisklag-
meti sé með fullnægjandi hætti. Ef
koma á með öllu í veg fyrir að fram-
leiðendur sjálfir bæti í vöm sína
óleyfilegum efrium mundi það hafa í
för með sér óhæfilegan kostnað og í
reynd hindra að arðbær framleiðsla á
fisklagmeti geti átt sér stað.“
Svo segir í svari Halldórs Ásgríms-
sonar sjávarútvegsráðherra við fyrir-
spumum Skúla Alexanderssonar,
Alþýðubandalagi, um útflutning K.
Jónssonar & Co. hf. á Akureyri.
Fram kemur að fyrirtækið K. Jóns-
son & Co. hafi nokkrum sinnum verið
aðili að tjónamálum þar sem vörur
hafi ýmist verið endursendar eða verið
eytt af kaupanda.
Talin em upp þrjú stærstu tjón; árið
1978 þegar gaiffalbitasendingar til Sov-
étríkjanna, samtals 8.714 kassar,
reyndust skemmdar, árið 1979 þegar
tæplega 18 þúsund kassar af gallaðri
rækju vom framleiddir fyrir markað í
Vestur-Þýskalandi, og loks þegar upp
komst í haust að óleyfilegu efni var
blandað í niðursoðna rækju til Vest-
ur-Þýskalands á tímabilinu frá maí
1984 til september 1986.
„Það er viðurkennt af hálfu verk-
smiðjunnar að efnið hafi vísvitandi
verið sett í vöruna og að full vitneskja
hafi verið um að slíkt væri ólöglegt,"
segir í svari ráðherrans.
Greint er frá því, sem áður hefur
komið fram í fréttum, að Ríkismat
sjávarafurða hafi með bréfi dagsettu
21. nóvember síðastliðinn hafhað
framleiðslustjóra K. Jónssonar & Co.
hf. til þess starfs að bera ábyrgð á
framleiðslunni.
-KMU
Vestfirðingum gengur illa að telja
Ófærð á landi og í lofti veldur því
að illa gengur að fá úrslit úr þremur
prófkjörum á Vestfjörðum. Atkvæði
em ótalin hjá Alþýðuflokki, Fram-
sóknarflokki og Alþýðubandalagi.
Beðið er með mestri eftirvæntingu
eftir niðurstöðu úr prófkjörsslag Kar-
vels Pálmasonar og Sighvats Björg-
vinssonar. Telja átti á ísafirði í
gærkvöldi. Yfirkjörstjómarmenn á
Patreksfirði, Bíldudal og Flateyri ko-
must hins vegar ekki til ísafjarðar.
Ef veður leyfir verður reynt að hefja
talningu síðdegis í dag. Takist það
ættu úrslit að liggja fyrir upp úr mið-
nætti. Búist er við talsverðri vinnu við
úrskurð utankjörstaða- og vafaat-
kvæða. -KMU
í dag mælir Dagfaii________________
Beðið eftir saksóknara
Þjóðviljinn birtir um það forsiðu-
frétt á föstudaginn var, að Sjálfstæð-
isflokkurinn í Reykjavík sé að bíða
eftir Hafskipskærum og geti því ekki
stillt upp framboðslista sínum. I við-
tölum við talsmenn flokksins í
þessari sömu frétt er þessi ástæða
að vísu ekki viðurkennd, en tekið
fram að jólamánuðurinn sé ekki
heppilegur til fundahalda og því
muni framboðslistinn ekki ákveðinn
fyrr en eftir áramót.
Eftir því sem Dagfara minnir vom
sjálfstæðismenn í Reykjavík þeir
fyrstu sem efhdu til prófkosninga á
þessu hausti. Það mun hafa verið
snemma í október sem þeir riðu á
vaðið og síðan hefur hvert prófkjörið
rekið annað. Að vísu hefur á ýmsu
gengið, en eftir því sem fréttir herma
hefúr eftirleikurinn verið næsta auð-
veldur og framboð tilkynnt hvert á
fætur öðm. Þannig efndu sjálfetæð-
ismenn á Reykjanesi til skoðana-
könnunar í kjördæmisráðinu, þegar
ljóst varð að enginn nennti að taka
þátt 'í prófkjöri hjá þeim og síðan
hafa þeir tilkynnt listann og allt er
klappað og klárt.
í Reykjavík hefur hins vegar orðið
bið á listanum, sem er ennþá illskilj-
anlegra, þegar haft er í huga, að þar
fengu allt upp í átta manns bindandi
kosningu í efstu sæti.
Nú kann það auðvitað að vera
rétt og heiðarleg skýring að jóla-
mánuðurinn henti ekki sjálfetæðis-
fólki til fundahalda. Einkum
reykvískum sjálfetæðismönnum, þar
sem vitað er að þetta er upp til hópa
sannkristið fólk, sem heldur hvíldar-
daginn heilagan. Enda þótt sjálf-
stæðismenn á Reykjanesi,
Norðurlandi vestra og víðar á
landinu leggi á sig fundahöld í des-
ember til að koma listunum frá, þá
er flestum kunnugt um þá venju að
Hvatarkonur halda jólabasar á að-
ventunni og Varðarfélagar em
uppteknir í jólabusinessnum, sem
hefúr það í för með sér að þetta fólk
hefur ekki tíma fyrir pólitík á með-
an. Það telst hvorki kristilegt né
hátíðlegt að vera að raða fólki á lista
og eyðileggja með því jólastemmn-
inguna hjá öllum þeim vonbiðlum,
sem bíða eftir því að fá sæti á listan-
um.
Þetta em sem sagt góðar og gildar
skýringar. Hinu er þó ekki að neita,
að illkvittnar tungur segja, að frétt
Þjóðviljans sé ekki úr lausu lofti
gripin. Bæði Morgunblaðið og
áhrifamenn í Sjálfctæðisflokknum
hafa látið í ljós þá skoðun sína, að
flokkurinn hafi orðið fyrir pólitísku
áfalli, þegar Albert Guðmundsson
lenti í efeta sæti í prófkjörinu. Það
hafi bæði verið ómark, vegna þess
að kjósendumir vissu ekki hvað þeir
vom að gera, og svo hitt, að Albert
er stöðugt sakfelldur í Helgarpóstin-
um fyrir ýmsar sakir sem séu
óheppilegar fyrir svo sómakæran
flokk. Albert á að hafa staðið í
makaskiptum við Fíladelfíusöfriuð-
inn og það þykir grunsamlegt í meira
lagi. Ennfremur er hann sakaður um
að hafa ekki gefið upp ferðapeninga
til skatts, sem talið er hinn versti
glæpur hjá honum, þótt enginn ann-
ar þurfi að gera það. Þá hefúr það
verið grafið upp að Helena dóttir
hans fékk fría fragt hjá Hafekip, sem
mun eiga að vera fráfararsök hjá
pabba hennar. Og að lokum er því
haldið fram að Albert sé kriminal
fyrir að hafa hjálpað Gvendi jaka til
Flórída.
Uppstillingamefndin hjá íhaldinu
hefur lesið allar þessar ávirðingar í
Helgarpóstinum með athygli og vax-
andi ugg, og treystir sér ekki til að
mæla með þessum voðalega manni,
fyrr en saksóknari hefur kveðið upp
úr með það, hvort hér sé einhver
glæpastarfcemi á ferðinni. Þess
vegna ætlar hún að bíða eftir sak-
sóknara fram yfir mánaðamótin.
Gallinn er hins vegar sá, að Haf-
skipskærur saksóknara geta dregist
fram á vor og allt fram yfir sjálfar
kosningamar og því getur svo farið
að sjálfetæðismenn í Reykjavík bjóði
alls ekki fram, af því að listinn verð-
ur ekki tilbúinn.
Sú niðurstaða yrði mikið fagnað-
arefrii fyrir andstæðinga Alberts í
flokknum. Þeir hafa lengi átt sér
þann draum að koma Albert í burtu
og hafa notað til þess margvfslegar
aðferðir. En það er sama hvemig
þeir hafa hamast gegn Albert, alltaf
kemur hann standandi niður. Þess
vegna er það síðasta og auðvitað
ömggasta úrræðið að stilla alls ekki
upp. Þannig má koma í veg fyrir að
Albert komist á þing. Sjálfetæðis-
flokkurinn á annan eins greiða inni
hjá saksóknara.
Dagfari