Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1987, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987.
3
Stjómmál
Stefán Benediktsson um fréttaflutning Stöðvar 2 er leiddi til afsagnar hans:
Innlegg í prófkjörs-
slag Alþýðuflokksins
Páll: Hélt að það væri
meira spunnið i þenn-
an mann.
Stefán: Ekki sann- Jón Baldvin: í stöðugu
leiksfýsn eða réttlæt- sambandi?
isþorsti.
„Ég tel það vera degiimm ljósara
að með þessum fréttaflutningi
Stöðvar 2 var ekki verið að þjóna
sannleiksfysn eða réttlætisþorsta
heldur var fréttin innlegg Páls
Magnússonar í prófkjörsslaginn,"
segir Stefán Benediktsson alþingis-
maður meðal annars um fréttaflutn-
ing Stöðvar 2 er leiddi til afsagnar
hans síðastliðið haust. Kemur þetta
fram í viðtali við Vökublaðið, mál-
gagn lýðræðissinnaðra stúdenta.
„Ég veit að Páll Magnússon hafði
mikinn áhuga á að birta þessa frétt
og stóð í stöðugu sambandi við Jón
Baldvin þá daga sem fréttin var unn-
in. (Innskot Vökublaðsins: Páll er
sonur Magnúsar Magnússonar sem
háði harða baráttu við Vilmund
Gylfason á sínum tíma um varafor-
mennsku í Alþýðuflokknum.)“
í Vökuviðtalinu er Stefán inntur
eftir því hvort hann viti hvaða ein-
staklingar það voru sem stóðu að
baki þeim ásökunum sem fram komu
í fréttum Stöðvar 2 og leiddu til
þeirra atburða er Stefán lýsti sjájfur
sem pólitísku morði í DV:
„Ég hef beina vitneskju um aðild
fyrrverandi félaga minna í BJ að
þessu máli en hef hins vegar engar
sannanir fyrir aðild annarra. Ég
færi á sama plan og þeir færi ég að
ásaka fólk án sannana. Ég veit
nokkum veginn hvemig liggur í
þessu máli og þegar ég sá hvað var
að gerast hafði ég ekki lyst á að
halda áfram.“
{ samtali við DV sagðist Páll
Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2,
ekki skilja þessar fullyrðingar Stef-
áns Benediktssonar, þær væm
fáránlegar:
„Ég hef engin og hef aldrei haft
nein tengls við Alþýðuflokkinn
nema hvað að faðir minn hefur setið
á þingi fyrir flokkinn. Reyndar segja
ummæli Stefáns meira um hann
sjálfan en mig og ég hélt sannast
sagna að meira væri spunnið í þenn-
an mann en þetta. Hvað varðar þá
staðhæfingu að ég hafi verið í stöð-
ugu sambandi við Jón Baldvin á
meðan á vinnslu fréttarinnar stóð
er það eitt að segja að við leituðum
til formannsins til að fá viðbrögð við
frétt sem var í gangi,“ sagði Páll
Magnússon. -EIR
Tillaga um
stjómstöð
fyrir leK
og björgun
„Stjómstöðin skal vera í tengslum
við aðalstöðvar Landhelgisgæslunnar
á Reykjavíkurflugvelli eða flugmála-
stjómar og skal lúta framkvæmda-
stjóm frá eftirtöldum aðilum:
Slysavamafélagi Islands, Landhelgis-
gæslunni, flugmálastjóm, Landssam-
bandi hjálparsveita skáta og
Landssambandi flugbjörgunarsveita."
Svo segir í tillögu til þingsályktunar
sem átta þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, með Áma Johnsen sem fyrsta
flutningsmann, hafa lagt fram á Al-
þingi um að fela ríkisstjóminni að
hefjast nú þegar handa um stofhun
stjómstöðvar, sem opin sé allan sólar-
hringinn, til leitar og björgunar á sjó,
landi og í lofti.
„Jafhframt skal hafa skipulegt samr-
áð og samstarf við aðrar björgunar-
sveitir og opinberar stofrianir sem
sinna öryggismálum.
Fulltrúar allra þeirra, sem björgun-
armálum sinna, tilnefni menn í björg-
unarráð sem verði ráðgefandi og
stefriumarkandi fyrir framkvæmda-
stjóm og hittist eigi sjaldnar en árs-
fjórðungslega, svo og ávallt eftir
miklar björgunaraðgerðir, til þess að
bera saman bækur,“ segir í tillögunni.
-KMU
Asmundur kennir
hjá Alþýðuflokki
Ásmundur Stefánsson, forseti Al-
þýðusambands íslands og þriðji maður
á framboðslista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík við næstu þingkosningar,
er meðal kennara í stjómmálaskóla
jafnaðarmanna, sem Alþýðuflokkur-
inn stendur að.
í heilsíðuauglýsingu um skólann í
DV var Ásmundur kynntur ásamt
öðrum kennurum skólans, sem flestir
em landsþekktir alþýðuflokksmenn,
þar á meðal þrír efstu menn lista Al-
þýðuflokksins í Reykjavík.
Hvað finnst meðframbjóðendum Ás-
mundar um þetta?
„Mér finnst þetta vel til fundið hjá
krötum. Þeim veitir ekki af góðum
kennurum og sjálfsagt eigum við öll
eftir að kenna þeim eitthvað í kosn-
ingabaráttunni sem nú er framundan.
Það er áreiðanlega ekki til skaða að
Ásmundur kenni þeim svolítið um
kjarasamninga og verkalýðsbaráttu,"
sagði Guðrún Helgadóttir, sem skipar
2. sæti lista Alþýðubandalagsins.
„Það er greinilegt að alþýðuflokks-
menn telja sig þuría að læra eitthvað
betur um starf og uppbyggingu Al-
þýðusambands Islands og þeir hafa
fengið, sýnist mér, úgætan kennara til
þess. Það veitir áreiðanlega ekkert
af,“ sagði Álfheiður Ingadóttir sem er
í fjórða sætinu.
-KMU
Staðgreiðslufrumvarpið:
Lagt fram í næstu viku
Bið ætlar að verða á þvi að fjár-
málaráðherra kynni Alþingi frum-
vörp sín um staðgreiðslu skatta og
aðrar breytingar á skattkerfinu.
Búast má við að skattkerfisbreyting-
amar verði eitt aðalmál þingsins
fyrir þinglausnir í mars.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra kvaðst í gær ætla að leggja
frumvörpin fram í þinginu í byrjun
næstu viku.
Hugmyndir nefndar þeirrar, sem
unnið hefur að gerð frumvarpanna,
hafa þegar verið kynntar þingmönn-
um og lesendum DV í stórum drátt-
um. Gert er ráð fyrir að tekjuskattur,
útsvar og smáskattar verði samein-
aðir í eina skattprósentu á bilinu
31-37%. Frádráttarliðum verði
fækkað verulega en í staðinn komi
einn fastur afsláttur fyrir alla, á bil-
inu 7 til 10 þúsund krónur á mánuði.
-KMU
Fjármálaráðherra
í útúrsnúningum
- segir Halldór Ásgrímsson
„Ég vona að það sé hægt að gera
þetta fyrir vorið. En ég vil minna á
að það er ekki sama hvemig hlutimir
em gerðir," sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra um stað-
greiðslukerfi skatta og möguleika þess
að afgreiða skattkerfisbreytingamar
fyrir þinglausnir.
„Ég hafði nú vænst þess að fjármála-
ráðherra tæki undir það að hér værum
við að tefla nokkuð djarft og ætluðum
okkur stuttan tíma til þess að gera
þessa hluti.
Ég held að allir viðurkenni það en
í stað þess lætur fjármálaráðherra f
það skína að með því að ég komi með
nokkuð sjálfsagða ábendingu þá sé ég
á móti málinu.
Mér þykir leitt að fjármálaráðherra
skuli vera í svona útúrsnúningum,“
sagði Halldór.
Um það atriði hvort tekjur yfir-
standandi árs ættu að vera skattlausar
eða tekjur nýliðins árs sagði Halldór:
„Mér finnst það ekki vera 'aðalmál.
Hins vegar er það verst að vera að
vekja einhverjar sérstakar vonir í því
sambandi. Mér hefur þótt vera eðlileg-
ast að það yrði sem mest tekið
meðaltal tveggja ára þannig að álagn-
ingin yrði sem hlutlausust. Það þarf
að skoða það sjálfsagt betur."
-KMU
Fyrirtæki - F
Tíminn er dýrmætur
%anda
síminn sparar tímann
KandaTE-8107 man 100
nöfn og símanúmer, hefur
klukku sem sýnir lengd
símtala, man síðasta númer
sem hringt var í, handfrjáls
hringing og samtöl,
hraðhringing úr minni o.fl.
AMOTIKR
VIÐ1ÖKUMVEL
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
SÍMASKRÁ4
(LISTHOME)
Rofi til aðopna
símaskrana.
SKIPTA / KLUKKA4
(SHIFT/CLOCK) Rofi
tyrir klukku og stafróf.
HREINSA4
(CLEAR) Rofi til að loka
símaskránni og hreinsa
Ijósaborðið.
HANDFRJÁLS NOT*
(HANDSFREE) Þegar
talað er hanafrjálst fyl?
símann. i
:í
>GEYMA/BREYTA
r(STORE / RESORE) Ro
notaður til að breytaog
setja upplýsingar inn 1
STILLIROFI4
fyrir hátalara
GEIMSLUROFI j
(STORE SWITCH) Rofi*
til að opna og loka
minninu á símanum.
'O, i
0 © 0
© 0' ©
© 4 '©
r
— r~T
minm.
r+HRINGT ÚR MINNI
(SPEED DIAL)
HRINGT út /HRINGT
aftur í síöasta númer
(DIAL /REDIAL)
>BENDILL
ÍCURSOR) Til að blaða
fram og aftur í síma-
skránm, eöa breyta
uppl. í henni.
>HÁTALARI
(SPEAKER) Þessi rofi
er notaður þegar
hringt er úr símanum án
þess að lyfta símtólinu.
HUÓD STILLIR
^Hægt er að velja Hl,
LOW eða OFF
stillingu á hljóðið.
L>TÓN STILLIR
Hægt er aö velja milli
þriggja mismunandi
hringingartóna.