Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1987, Blaðsíða 30
30
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987.
Fréttir
Farmannadeilan:
Sáttafundur að
öllum líkindum
boðaður í dag
„Ég tel víst að ég boði deiluaðila í
farmannadeilunni til sáttafundar í
dag. Ég hef verið í sambandi við báða
aðila undanfama daga og hef ekki
talið ástæðu til að boða til fundar fyrr.
Ég vil vera viss um að það þjóni ein-
hvenum tilgangi að boða til fundar
en ég tel það ekki hafa verið síðustu
dagana," sagði Guðlaugur Þorvalds-
son sáttasemjari í samtali við DV.
í gær var fundur í kjaradeilu starfs-
fólks í húsgagnaiðnaði en hann bar
ekki árangur. Þar bjóða vinnuveitend-
ur það sama og fólst í jólaföstusamn-
ingunum en viðsemjendur þeirra vilja
meira og þar við situr.
Vinnunefndir hafa verið í gangi í
deilu Sleipnismanna og viðsemjenda
þeirra undanfarið en formlegur sátta-
fundur hefur ekki verið boðaður.
-S.dór
Samúðaiverkfall
Dagsbrúnar kært
Vinnuveitendasamband Islands hef-
ur kært til Félagsdóms samúðarverk-
fall það sem Dagsbrún hefur ákveðið
á uppskipun úr erlendum leiguskipum.
Verkfallið á að hetjast á miðnætti
næsta mánudags ef farmannaverkfall-
ið stendur þá enn. Vinnuveitendur
telja ólöglegt að setja verkfall á
ákveðna þætti í starfi hafnarverka-
manna. VSÍ kærir á svipuðum forsend-
um og þegar Dagsbrúnarmenn neituðu
að skipa upp vörum frá S-Afríku í
fyrra. Vinnuveitendasambandið vann
það mál fyrir Félagsdómi.
-S.dór
Starfsmenn svevtarfélaga sömdu:
Samið til
þriggja ára
Jói G. Hauksson, DV, Akureyii;
Rúmlega 2600 starfsmenn sveitar-
félaga landsins fengu nýjan kjara-
samning sem undirritaður var á
Hótel KEA í gær. Samningalotan
tók 72 klukkustundir. Samningurinn
er til þriggja ára sem telst til tíma-
móta nú á dögum.
Laun hækka strax um 3,5% sam-
kvæmt samningnum. Hann gildir frá
1. janúar sl. Hinn almenni vinnu-
markaður vigtar hér eftir í launin
sem þýðir að starfsmenn sveitarfé-
laga hafa nú nálgast kjör manna á
hinum ahnenna vinnumarkaði sem
vinna sambærileg störf.
Öll sveitarfélög landsins eiga aðild
að samningnum nema Reykjavík,
Akranes og Siglufjörður. Starfsmenn
Reykjavíkurborgar eru um helming-
ur allra bæjarstarfsmanna landsins.
Samningurinn á KEA í gær var
líka tímamótasamningur vegna þess
að í fyrsta skiptið voru starfsmanna-
félög sveitarfélaganna í samfloti við
gerð þeirra. Til þessa hefur launa-
nefndin 'samið við einstök starfs-
mannafélög sveitarfélaga.
Rauði kross íslands:
Safnar fyrír
fjölskyldunna
á Völlum
Rauði kross íslands hefur ákveðið
að leggja fram 100 þúsund krónur til
handa fjölskyldunni sem missti aleig-
una í brunanum á Völlum í Mýrdal
og var framlaginu komið til skila í gær.
Rauðakrossdeildin í Vík í Mýrdal
mun taka við frekari framlögum og
þeir sem vilja leggja þau fram geta
haft samband við Vigfiis Guðmunds-
son, formann deildarinnar, í síma
99-7201 eða 7232. Einnig er hægt að
koma framlögum til aðalskrifstofu
Rauða krossins í Reykjavík.
-FRI
Tímamótasamningar
Jón G. Hauksaan, DV, Akureyii
„Þetta eru tímamótasamningar. Við
gerð þeirra voru ný vinnubrögð við-
höfð. Við settumst ekki niður og
skiptumst á beinum kröfum heldur
settumst við niður sem heild til að ná
sameiginlegum markmiðum," sagði
Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri í
Garðabæ og forsvarsmaður launa-
nefhdar sveitarfélaga, þegar samning-
amir voru undirritaðir á KEA í gær.
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii;
Anægður með
samninginn
Anægðir menn að aflokinni farsælli samningahrinu, f.v. JónGauti Jónsson og
Erlingur Aðalsteinsson. DV-mynd JGH
„Ég er ánægður með anda samnings-
ins og samninginn sjálfan,“ sagði
Erlingur Aðalsteinsson, forsvarsmað-
ur starfsmannafélaga sveitarfélaga,
eftir undirskrift samningsins í gær.
Þetta var í fyrsta skipti sem starfs-
mannafélög sveitarfélaganna semja í
samfloti við launanefndina en nefhdin
sú þiggur umboð sitt frá viðkomandi
bæjarstjómum. Til þessa hefur launa-
nefhdin samið við einstök starfs-
mannafélög.
Erlingur sagði að markmið samn-
ingsins væri að samræma innbyrðis
laun starfsmanna sveitarfélaganna.
„Fram að þessu hafa verið greidd mis-
munandi laun fyrir sambærileg störf,“
sagði Erlingur.
w
Svipmyndir ur
skemmtana-
Kokam a
Mission
- úr dagbók
jesúítaprests
Mér fannst þó óþægilegt fyrst að fólk pískraði Mig hafði ekki órað fyrir þessum breytmgum á
ogleitvið,tildæmisþegarviökomumáveitinga- högummmummeðanégvarískólanum-ég,
staði.. .segirGunnhildurGunnlaugsdóttirsem þessi fátæka stelpa sem átti varla fötin utan á
búsett er í Portúgal. mig.. .segir Sigríður Hannesdóttir leikkona.