Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1987, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987.
23
Iþróttir
Evrópska knattspyman
Italskir ræningjar
- reiði í Hollandi vegna kaupa AC Mflanó á Ruud Gullrt
Hin gífurlegu fjárráð og meðfylgj-
andi kaupgleði ítalskra knattspymu-
liða hefur ekki farið fram hjá neinum
á undanfömum árum. Hafa margir af
íremstu knattspymumönnum veraldar
streymt til Ítalíu og hlotið mikið af
lírum fyrir.
En þ'að em ekki allir jafnánægðir
með þessi viðskipti ítölsku liðanna
sem þykja oft á tíðum ansi harkaleg.
ítalski sjónvarpskóngurinn Silvio
Berlusconi er aðaleigandi AC Mílanó.
Hann hefur nú lent í miklum deilum
við PSV Eindhoven í Hollandi og em
Hollendingar nú ekki par hrifnir af
þvi sem hann ætlar sér fyrir með aðal-
stjömu þeirra Hollendinga, Ruud
Gullit. Gullit var keyptur til PSV frá
Feyenoord fyrir gríðarlega peninga
1985 og var frábærum leik hans að
mestu þakkaður meistaratitillinn sem
PSV vann á síðasta ári.
Gullittil Mílanó
En nú vill Berlusconi fá Gullit til
Mílanó. I síðustu viku sögðu ítölsk
blöð frá því að Gullit væri staddur í
Mílanó og ætti í samningaviðræðum
við liðið. Var jafnvel sagt að hann
væri þegar búinn að skrifa undir
samning við Mílanó og hann færi
þangað á komandi sumri.
Með þessu höfðu forráðamenn
Mílanó og herra Berlusconi brotið
flestar þær reglur sem gilda um sölu
leikmanna milli félaga. Þeir hjá
Mílanó höfðu ekki minnst á það við
forráðamenn PSV að þeir ætluðu að
ræða við Gullit sem undirritaði fyrir
„BMW Munchen"
- auglýsingar að yfírtaka knattspymuna?
Þeir sem á annað borð hafa fylgst
með íþróttum í gegnum árin, annars
vegar með því að leggja leið sína á
völlinn og hins vegar með því að horfa
á íþróttir í gegnum sjónvarp hafa
eflaust tekið eftir því að ekki er til það
félag sem ekki ber auglýsingar á bún-
ingum sínum.
Stór og efnamikil fyrirtæki hafa séð
sér hag í því að auglýsa starfsemi sína
á búningum félaganna og félögin hafa
svo fengið miklar peningaupphæðir í
staðinn og hafa þessar auglýsingar
beinlínis haldið sumum félögum og
rekstri þeirra á floti.
í dag er málum þannig komið að
nokkur fyrirtæki í Evrópu, sem styrkt
hafa ákveðin félög, hafa farið fram á
að nöfnum þeirra verði breytt og þau
taki upp nöfn fyrirtækjanna sjálfra ef
þau á annað borð vilja bera auglýsing-
amar áfram á búningum sínum.
Sem dæmi um þetta má nefha vest-
ur-þýska félagið Eintracht Braunsch-
weig sem í mörg ár hefur auglýst fyrir
vestur-þýska vínfyrirtækið Jáger-
meister. Forráðamenn fyrirtækisins
hafa nú farið þess á leit við félagið
að það breytti nafni þess í Jágermeist-
er Braunschweig. Þetta hefur ekki
fengið hljómgrunn hjá vestur-þýska
knattspyrnusambandinu og vilja for-
ráðamenn þess að á það fái að reyna
fyrir dómstólum hvort auglýsendur
geti gengið svona langt.
UPP I 2.2 TONN
í Austurríki hefúr sama mál þegar
náð fram að ganga. Austria Wien, eitt
sterkasta lið þar í landi árum saman,
heitir það ekki lengur heldur Austria
Memphis og má í þessu sambandi
nefna fleiri félög.
1 Vestur-Þýskalandi hafa menn verið
að gera að gamni sínu og sagt að í
framtíðinni muni félög bera nöfh eins
og t.d., BMW Múnchen, Grundig
Númberg, Hoechst Frankfurt og 4711
Köln.
•í Frakklandi horfa málin öðruvísi
við því þar í landi hafa milljónamær-
ingar farið þá leið að kaupa heilu
knattspyrnuklúbbana og talið það
góða fjárfestingu sem hún er ef vel
gengur hjá félögunum. Gott dæmi um
það er Marseilles en eigandi þess er
franski milljónamæringurinn Bemard
Tapie. Hann keypti fyrir þetta keppn-
istímabil marga fræga knattspymu-
menn og síðan hefur ekki staðið á
velgengninni.
Þessu er öðmvísi farið hjá Jean-Luc
Lagardére, eiganda Racing Paris, en
hann keypti einnig aragrúa leikmanna
en gengi liðsins, sem af er keppnis-
tímabilinu, er afleitt og er liðið
neðarlega í deildinni.
-JKS
ÖRYGGIS
HÓLF
íveggioggólf
Vökvadrifin spil fyrir
línu og net.
aHe
Rafdrifnar Elektra
færavindur, 12vog24v.
Tvær stærdir.
ERUM FLUTT AÐ LYNGÁSI
11
ELEKTRA HF.
Lyngósi 11, Garöabœ,
símar 53688, 53396.
Orugg og ódýr lausn
fyrir fyrirtæki
og heimahús
Póstsendum litbækling
Kr. 12.400,-
RÍLLSTEtóNSSON
UMBOÐS & HEILDVERZLUN
BLIKAHÓLUM 12, R.VlK
SlMI (91 (-72530
9 mánuðum samning við PSV sem
gildir til 1990!
Gullit kostar 200 milljónir kr.
Ef af sölu Gullit verður er ljóst að
hann kostar enga smápeninga. Líklegt
er að AC Mílanó verði að greiða um
200 milljónir króna fyrir hann. Kees
Ploegsma, framkvæmdastjóra PSV,
finnst það ekki mikið fyrir þennan
afbragðsleikmann og vill reyndar alls
ekki missa Gullit. Þá er hann einnig
hræddur um að missa Norðmanninn
Hallvar Thoresen sem er mjög mikil-
vægur hlekkur í leik liðsins.
Hvað verður um Wilkins og
Hateley?
í allri þessari umræðu hafa Englend-
ingamir tveir hjá AC Mílanó hrein-
lega gleymst. Þeir Ray Wilkíns og
Mark Hately eiga báðir eftir nokkur
ár af samningum sínum hjá liðinu. „Ég
er auðvitað hneykslaður á þessari
framkomu gagnvart okkur. Það virð-
ist vera búið að ganga frá samningum
við Gullit án þess svo mikið sem ræða
við okkur Mark, “ sagði Wilkins.
Reyndar er útlit fyrir að bekkurinn
verði æði þröngt setinn hiá AC Mílanó
næsta ár. Argentínumaðurinn Claudio
Borghi og markakóngur Evrópu.
Marco van Basten, hafa þegar undir-
ritað samninga við liðið. Því er allt
útlit fy'rir að fimm útlendingar verði
hjá liðinu, en eins og kunnugt er mega
aðeins tveir leika með ítölskum liðum
í einu. -SMJ
|iSÍ||g
• Ruud Gullit er núna einn eftirsóttasti leikmaður Evrópu enda i
spyrnumaður.
agjlSMSB.
• Fullur stadgreidsluafsláttur.
• Afsláttur vid helmingsútborgun, en
raögreiðslur i 2-12 mánuði.
• Þægilegur og ódýr greiðslumáti.
Opið
kl. 8-18 virka daga,
kl. 10-16 laugardaga.
2 góðar byggingavöruverslanir
austast og vestast í borginni,
Stórhöfða, sími 671100,
Hringbraut, sími 28600.