Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1987, Side 11
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987.
11
Utlönd
Kókaín-barón
handtekinn
Einn umsvifamesti eiturlyfjaheild-
salinn í Kólombíu og stjómandi
stærsta eiturlyiíahringsins í allri Suð-
ur-Ameríku, að því er talið er, var
handtekinn í áhlaupi lögreglunnar á
afskekkt bóndabýli í héraðinu Anti-
oquia sem er í norðausturhluta
landsins.
Carlos Lehder Rivas er einn þessara
illræmdu „baróna“ kókaínsölunnar í
Kólombía sem virðast hafa verið hafn-
ir yfir lög og rétt í gegnum tíðina.
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa um
hríð leitað eftir því að fa Rivas fram-
seldan til þess að láta hann svara til
saka fyrír ábyrgð hans á kókaín-sölu
í Bandaríkjunum.
í árás lögreglunnar á bóndabýlið
vom handteknir í leiðimii fjórtán líf-
verðir eiturlyfj abarónsins en það gekk
ekki átakalaust því að það sló í skot-
bardaga. Einn lífvarðanna var særður.
Strax er hafinn undirbúningur að
því að framselja Rivas bandarískum
yfirvöldum sem hafa leitað eftir að því
að hafa hendur í hári hans síðan 1983.
Slík hafa verið yfirmáta áhrif kóka-
ín-barónanna í Kólombíu að jafnvel
ráðherrar hafa ekki verið óhultir um
líf sitt fyrir flugumönnum þeirra. Ekki
einu sinni þótt þeir hafi forðað sér
austur fyrir jámtjald.
Þetta er Carlos Lehder Rivas, einn
af hinum svokölluðu kókaín-barónum
Kólombíu, en hann hefur verið talinn
gegna miklu lykilhlutverki í eiturlyfja-
versluninni í heiminum og þá einkan-
lega hvað viðkemur kókaínsmygli til
Bandaríkjanna og svartamarkaðs-
sölu þar.
Simamynd Reuter
Afstýrðu
nýju landamærastríði
Indland og Pakistan hafa kallað
herlið sín frá landamæmnum og
gert með sér eftir fimm daga við-
ræður í Nýju Delhí „ekki-árásar-
samning" sem gildir þó aðeins til
bráðabirgða.
Mikil spenna hafði myndast þeg-
ar bæði ríkin hófu í síðasta mánuði
heræfingar við landamærin og
tóku að draga að þeim mikinn liðs-
afla. Síðan þessir nágrannar
öðluðust sjálfstæði 1947 hafa þeir
háð þrjár styrjaldir innbyrðis. -
Undir janúarlok þótti loft orðið
svo lævi blandið að menn töldu
fjórðu styijöldina liggja í loftinu.
Hófust þá diplómatískir tilburðir
til þess að draga úr stríðshættunni
þar sem forsætisráðherrar land-
anna, Rajiv Gandhi og Mohammad
Khan Junejo, urðu í símtali ásáttir
um að stefha utanríkisráðherrum
sínum saman til viðræðna.
Abdul Sattar, utanrikisráðherra Pakistans, og hinn indverski starfsbróðir
hans, Gonsalves, (t.h.) sjást hér á myndinni fyrir ofan undirrita samkomu-
lag rikjanna um að kalla herlið sin frá landamærunum þar sem spenna
hefur magnast að undanförnu.
Símamynd Reuter
Mazda 323 ’82
Mazda 626 ’82
Mazda
Subaru 1800 st. ’8;
870< Toyota Cressida ’80
# Toyota Corolla ’82
Volvo 240 '81
D
0
0
0
0
0
0
D
0
0
0
Gæðavara úr álseruðu efni sem gefur 70-80% betri endingu gegn ryði.
VERÐSÝNISHORN Á HEILUM SETTUM.
PUSTKERFIN FRA FJ0ÐRINNI a
HAGSTÆÐASTA VERÐK) i DAG D
0
D
D
D
D
0
D
D
D
D
D
D
929
80
5% afsl. gegn staðgreiðslu í peningum.
HVER BÝÐUR BETUR?
Festið aldrei kaup á pústkerfum án þess að hafa fyrst samband við okkur.
EINA SERVERSLUN SINNAR TEGUNDAR.
BÍLTJAKKAR Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
HVER
BÝÐUR
■i.-.
2 tonn 4 tonn 6 tonn
854,- 1.158,- 1.503,-
10 tonn 12 tonn 20 tonn
2.678,- 3.275,- 4.833,-
HVER
BÝÐUR
BETUR?
••
IllliliÍSIIISiÍwi
!WS*Íl:!iÍlllPS8iÍil
Skeifunni 2
82944
Púströraverkstæói
83466