Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1987, Side 17
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987.
17
Lesendur
„Ég man ekki betur en að þegar Stöðin var að byrja hafi þeir sagt að allt efni yrði ótruflað nema biómyndir á
kvöldin, nú er sagan önnur...“
Stöð 2:
Auglýsingaskrum
Toggi skrifar:
Astæða fyrir skrifum mínum er Stöð
2. Um daginn sá ég auglýsingu frá
Stöðinni um að það ætti að fara að
senda út bamae&ii á laugardags- og
sunnudagsmorgnum. 1 niðurlagi aug-
lýsingarinnar stóð að fyrstu sendin-
gamar yrðu ótruflaðar. Ég man ekki
betur en að þegar Stöðin var að byrja
hafi þeir sagt að allt efiii yrði ótruflað
nema bíómyndir á kvöldin, þ.e.a.s. ut-
an auglýsingatíma. Núna em þeir hins
vegar famir að trufla á daginn á ótrú-
legustu tímum. Mér finnst þetta
persónulega vera svik og þeir ganga
á-bak orða sinna. Ég var að hugsa
mér að kaupa afruglara en þegar ég
fór að reikna dæmið komst ég að því
að kaup á afruglara og áskriftargjald
í tvö ár er mun dýrara en videotæki
svo það borgar sig að kaupa videotæk-
ið. Svo hef ég engan áhuga á að borga
tvöfalt afnotagjald fyrir sjónvarp til
að horfa á myndina sem ég er löngu
búinn að sjá.
Ég skora á lesendur að láta álit sitt
í ljós í þessum efiium.
Veldur hárlos
áhyggjum?
Ný þjónusta á íslandi!
Meðhöndlun orkupunkta (akupunkta) með laser-
geisla hefur gefið góða raun. Meðferð þessi stöðvar
hárlos, er hættulaus og hefur engar þekktar aukaverk-
anir.
Úpplýsingar og tímapantanir í síma 11275 kl. 10.00-
17.00.
Styrkir til
háskólanáms á Italiu
Itölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa islendingum
til náms á italíu á háskólaárinu 1987-88. Styrkirnir
eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna
við háskóla að loknu háskólaprófi eða náms við lista-
háskóla. Styrkfjárhæðin nemur 600.000 lírum á
mánuði.
Umsóknum, ásamt tilskildum fylgiskjölum, skal komið
til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 28. febrúar nk., á sérstökum eyðublöð-
um sem þar fást.
3. febrúar 1987
Menntamálaráðuneytið
SMURT BRAUÐ
Afgreiðum ailar tegundir af smurðu brauði fyrir
margs konar tilefni.
Mun dýrara að
hringja í sjáKsala
Sigurður Lárusson skrifar:
Síðastliðin 13 ár hef ég dvalist
lengri eða skeramri tíma á endur-
hæfingardeild Borgarspítalans i Rvk
vegna heilsubilunar. Nú fyrir tæpum
hálfum mánuði var skipt um síma
fyrir sjúklingana sem hér dveljast
enda gömlu sjálfsalamir orðnir úr
sér gengnir. Nýir og smekklegir
sjálfsalar voru settir upp í staðinn
fyrir þá gömlu. Þeir em að ýmsu
leyti þægilegri, t.d. em nú notuð
spjöld í staðinn fyrir 5 eða 10 króna
peninga og fást þau á staðnum. En
mér finnast tveir leiðinlegir gallar á
þessum nýju símum. I fyrsta lagi er
heymartólið svo þungt að þeir sem
em máttlitlir í höndunum eiga í erf-
iðleikum með að halda því. I öðm
lagi er barkinn frá heymartólinu að
símatækinu svo stuttur, líklega 60-
70 cm, og nær um það bil aðeins 20
cm fram fyrir borðið, sem er undir
símatækinu, að illmögulegt eða
ómögulegt er fyrir fólk, sem er rúm-
fast, að nota símann. Það er heldur
ekki hægt að fá spjöld í símann með
minna en 100 skrefum og verður það
að teljast mjög bagalegt. Samkvæmt
upplýsingum, sem ég fékk frá Póst-
og símamálastofhuninni, kostar
skrefið með söluskatti 1,65 krónur.
100 skrefa kort kostar þá 330 kr. eða
3,30 kr. skrefið. Það er helmingi dýr-
ara en í venjulegum símtölum. Mér
finnst ekkert athugavert þó svo sé í
venjulegum sjálfeölum sem ætlaðir
eru til almenningsnota. En í sjálfeöl-
um á sjúkrastofnunum, eins og hér,
finnst mér óhæfa að símtölin séu
helmingi dýrari en í venjulegum
heimasímum. Meirihluti sjúklinga
hér mun vera meira en 75% öiyrkjar
og finnst mér því skjóta skökku við Ég skora þvi á Póst- og símamála-
ef þeir þurfa að greiða 100% hærri stoíhun að ráða bót á þessu sem fyrst
símaþjónustu en almennt gerist. ef mögulegt er.
j sjálfsölum á sjúkrastofnunum, eins og hér, finnst mér óhæfa að símtölin
séu helmingi dýrari en í venjulegum heimasimum.
Kaffisnittur kr. 35/-
Cocktailsnittur kr. 30/-
Cocktailpinnar kr. 25/-
Brauðtertur kr. 850/- , 12 manna.
Einnig heilar og hálfar brauðsneiðar.
Heilar kr. 200/-
Hálfar kr. 100/-
LEITIÐ TILBOÐA
a
VEITINGAMAÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 686880