Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Side 3
FÖSTUDAGUR 6. FEBRtJAR 1987.
3
Útvegsbankinn:
„Þetta er
þrauta-
lendingin“
- segir Steingrímur Hermannsson
„Seðlabankinn hefur sagt ýmis-
legt sem ég þori ekki að taka ábyrgð
á,“ sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í samtali við DV
þegar hann var spurður álits á um-
mælum í skýrslu Seðlabankans um
valkosti vegna erfiðleika Útvegs-
bankans þar sem sú leið, sem nú
hefur verið ákveðið að fara, er sögð
„langversti kosturinn".
„Það hafa aðrar leiðir verið reynd-
ar og þær hafa mistekist. Það hefur
verið reynt að stofiia einkabanka
með þátttöku Útvegsbankans en það
mistókst. Það hefúr verið athugað
með sameiningu Útvegsbanka og
Búnaðarbanka en sjálfstæðismenn
voru á móti því vegna þess að ekki
var þar rætt um hlutafélagsbanka.
Þá er þetta þrautalendingin og sjálf-
stæðismenn fá sitt hlutafélag," sagði
Steingrímur.
„En það er langsamlega versti
kosturinn að skilja Útvegsbankann
eftir í óvissu og ég vil ekki skilja
þannig við stjómarsamstarfið að
ekki sé ftmdin lausn á vanda bank-
ans,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur var spurður álits á
gagnrýni vegna heimildar til út-
lendinga til að fjárfesta í bankanum.
Hann svaraði: „Það er rætt um að
erlent §ármagn í bankanum geti
verið allt að 25 af hundraði en menn
vita það að það er talsvert erlent
fjármagn í umferð á fjármagnsmark-
aðinum hér á landi. Mér finnst þá
betra að það erlenda fjármagn sem
hér er sé opinbert en ekki í felum.“
-ój
Kjartan Jóhannsson:
Engar endurbætur
á bankakerfínu
„Það má segja um ríkisstjómina
að það sem hún áður varast vann
varð að koma yfir hana. Þetta sem
hefur orðið ofan á er það sem ríkis-
stjómin sagði að kæmi alls ekki til
greina," sagði Kjartan Jóhannsson,
þingmaður Alþýðuflokksins, um
bankamálin.
„Upp úr stendur sá ægilegi hringl-
andi sem heftir átt sér stað í málinu.
Hver tillagan á fætur annarri hefur
verið að engu gerð. Öllum tillögum
verið afneitað á víxl og stóryrtar
yfirlýsingar gengið, bæði af hálfu
Framsóknarflokksins og Sjálfstæð-
isflokksins um að einmitt það sem
hinn aðilinn lagði til kæmi alls ekki
til greina. Og vitaskuld var búið að
afiieita þessum valkosti fyrir löngu
og Seðlabankinn búinn að lýsa hon-
um sem versta möguleika.
Það sem er kannski alvarlegast í
málinu er að sú kreppa sem upp kom
í bankakerfinu er greinilega ekki
notuð til þess að endurskipuleggja
bankakerfið og gera það hagkvæm-
ara og virkara, sem menn hafa talað
um í langan tíma en höfðu fengið
alveg sérstakt tækifæri til núna.
Við sitjum uppi með nánast
óbreytt bankakerfi sem talsmenn
allra stjómmálaflokka hafa aftur og
aftur sagt að þyrfti að endurskipu-
leggja. Nú hefði einmitt eitthvað átt
að gerast í þeim efiium.
En enn einu sinni er niðurstaðan
sú að það er ekkert gert. Og skatt-
borgaramir í landinu sitja beinlínis
uppi með reikninginn fyrir þetta
slys, þessa uppákomu, í Útvegs-
bankanum, og fá ekkert í aðra hönd
í endurbætur á bankakerfinu," sagði
Kjartan.
-KMU
8mat Gestsson:
Átakanleg
fnagalending
„Þetta er auðvitað átakanleg
magalending," sagði Svavar Gests-
son, formaður Alþýðubandalagsins,
um niðurstöðu stjómarflokkanna í
bankamálum.
„Þorsteinn Pálsson var búinn að
lýsa því yfir fyrir einu og hálfu ári:
„Kemur ekki til greina að setja eins-
eyring í fallít Útvegsbankans."
Nú em þeir að ákveða að setja í
fallít Útvegsbankans hálfan til heil-
an milljarð króna. Og það er gert
með þessum hætti að það á breyta
bankanum í hlutafélag.
Ég er á móti því vegna þess að ég
tel að þá standi Útvegsbankinn verr.
Hann hefur betri sambönd á alþjóða-
fjármagnsmörkuðum núna af því að
hann er ríkisbanki heldur en hann
hefði ef hann væri einkabanki. Það
er dýrara að taka erlend lán með
þessum hætti í gegnum bankann.
Ég er einnig mjög ákveðið andvíg-
ur því að hleypa útlendum aðilum
inn í bankann. Þó að ég geri mér
alveg grein fyrir því að það er enginn
útlendur aðili sem hefur áhuga á
Útvegsbankanum eins og er þá tel
ég að þetta sé fyrsta skref í þá átt
að opna bankakerfið fyrir erlendum
aðilum yfirleitt.
Svo geta menn sér til skemmtunar
velt því fyrir sér hvemig stjómin
hefur haldið á þessu máli og hvað
það hefur þýtt bæði fyrir það álit sem
menn hljóta að hafa á stjómarherr-
unum og eins á stöðu bankanna
yfirleitt. Það er alveg hrikalegur
hlutur og það em alls konar brand-
arar í því þó að málið sé grafalvar-
legt,“ sagði Svavar.
-KMU
Stjómmál
100 km
Allsherjarnefnd efri deildar Al-
þingis leggur til að ákveða megi
allt að 100 kílómetra aksturshraða
á klukkustund á tilteknum vegum,
„ef aðstæður leyfa og æskilegt er
til að greiða fyrir umferð, enda
mæli veigamikil öryggissjónarmið
eigi gegn því“.
Þessi tillaga er meðal breyting-
artillagna nefiidarinnar við stjóm-
aifrumvarp til uraferðarlaga sem
liggur fyrir Alþingi. Vekur þar
mesta athygli að nefiidin vill al-
roennt hækka leyfilegan ökuhraða
utan þéttbýlis um 10 kílómetra á
klukkustund.
Þingnefhdin leggur meðal ann-
ars til að almennur ökuhraði á
vegum utan þéttbýlis með bundnu
shtlagi megi verða 90 kílómetrar á
klukkustund.
-KMU
Karl Steinar á
ekki að hnýsast
í skjól annarra
- segir Matttiías Á. Mathiesen
„Ég held að starfsmenn íslenskra
aðalverktaka þurfi ekki að hafa neinar
áhyggjur. Það sagði ég þeim þegar
þeir komu í heimsókn til mín,“ sagði
Matthías Á. Mathiesen utanríkisráð-
herra.
„Það starfar nefrid fiá því í tíð Geirs
Hallgrímssonar þar sem em þrír aðil-
ar, fulltrúi V erktakasambandsins,
vamarmálaskrifstofu og Aðalverk-
taka, um þróun á útboðum. Annað er
ekki af hálfu utanríkisráðuneytisins."
- Karl Steinar Guðnason alþingis-
maður kvaðst í samtali við DV hafa
séð fundargerð Verktakasambandsins
sem benti til þess að meira væri að
gerast í þessu máli en komið væri í
hámæli.
„Þeir komu til mín frá Verktaka-
sambandinu og ég sagði þeim að
þessar umræður fæm fram og þær
hefðu farið fram. En svo eiga menn
ekki að vera hnýsast í skjöl annarra."
- Em líkur á því að þama verði
breytingar á næstunni?
„Það er ekkert sem þama er á ferð-
inni. Það hefur ahtaf legið ljóst fyrir
að bæði Verktakasambandið og verk-
takar á Suðumesjum hafa óskað eftir
að koma í meira mæli inn í verktöku
og að verkin verði meira boðin út.“
- Má búast við að önnur verktaka-
fyrirtæki en Aðalverktakar taki að sér
verk fyrir Vamarliðið, önnur en í
Helguvík?
„Það hefur engin ákvörðun verið
tekin um eitt eða annað í þeim efnum.
Það kemur sjálfsagt til skoðunar þeg-
ar þau verk verða boðin út hvemig
að þeim verður staðið," sagði Matthí-
as.
-KMU
STUIMDUM
llll—■ mm D i Umferðar U< Brr:-y4il 'v‘ slys 3A „ 'MGBki Q , ^ _ slasaðra R |||^ lHW9P* -— | Látnír
”1Janúar1986 iiS , L 1 W
núar1987 1094 .. . - #■ w / 49.. 59 jjBÉfe’
,,-ar 1QÖA N 4 rwilMi l JOO ...... '■'■*" —y M- 672 39 46 5
Febrúar 1987 ? ? ? 7 I ■ S c
í þessari augiýsingu birtast óhugnanlegar stað-
reyndir um slys í umferðinni, sem meðal annars
hafa kostað mannslíf. FSeiri siíkar munu birtast á
komandi mánuöum og bera þá vonandi vitni um
árangur í baráttunni gegn umferðarslysum.
FARARHEILL87
/r
ATAK BIFREIDATRYGGINGAFÉLAGANNA
í UMFERÐ