Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Page 9
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987.
9
Utlönd
Soyuz TM-2 losar sig frá skotpallinum í Baikonur i gær á leið með tvo geimfara innanborðs til geimstöðvarinnar MIR.
Simamynd Reuter
Sovéskir geimfarar
stefna á nýtt met
Tveir sovéskir geimfarar um borð í
Soyuz TM-2 geimfari eru nú á leið til
geimstöðvarinnar MIR, sem er á fasta-
braut umhverfis jörðina, en þeim var
skotið á loft frá Baikonur í Sovétríkj-
unum í gær. Er búist við því að þeim
sé ætlað að reyna að setja nýtt met í
langri dvöl úti í geimnum.
Soyuz TM-2 er nýjasta geimfar Sov-
étmanna og þeir Yuri Romanenko (42
ára) og Alexander Laveikin (35 ára)
fyrstu geimfaramir sem reyna það til
þrautar. Er búist við því að þeir tengi
geimfarið við geimstöðina MIR á
sunnudaginn. - MIR var komið íyrir
úti í geimnum í febrúar fyrir einmitt
einu ári og er útbúin til þess að hýsa
geimfara allan ársins hring til fram-
búðar.
Geimferðasérfræðingar á Vestur-
löndum hafa látið sér detta í hug, að
þeim Romanenko og Laveikin sé ætlað
að dvelja uppi í MIR í 290 og bæta
eldra met Sovétmanna í léngstri dvöl
manna úti í geimnum um 53 daga en
það met settu þrímenningamir Kizim,
Solovyov og Atkov árið 1984.
Þeim Romanenko og Laveikin er
ætlað að vinna að vísindalegum rann-
sóknum, en þeir munu byrja á því að
afferma Progress-27, mannlausa geim-
farið, sem 16. janúar síðasta var tengt
við MIR-stöðina, fjarstýrt frá jörðu,
en það flutti vistir og nauðsynjar.
Þeir em ekki fyrstu geimfaramir,
sem koma til MIR-stöðvarinnar, þvi
að í mars til júlí í fyrra höfðu þeir
Kizim og Solovyov viðkomu þar þegar
þeir fyrstir geimfara ferðuðust milli
geimstöðva (MIR og eldri geimstöðv-
arinnar Salyut-7).
Áhöfn Soyuz TM-2, Yuri Romanenko (fremri) og Alexander Laveikin, veifa
til áhorfenda á leiðinni aö skotpallinum i Baikonur. Simamynd Reuter
FRÁ KVIKMYNDAEFTIRLITI
RÍKISINS
Að gefnu tilefni skal rétthöfum myndbandaefnis og
dreifingaraðilum bent á að óheimilt er að selja og/eða
dreifa myndböndum með leiknum kvikmyndum nema
efni þeirra hafi áður verið skoðað af Kvikmyndaeftir-
liti ríkisins. Merkimiðar frá eftirlitinu skulu vera bæði
á kápu og spólu þegar myndin fer til dreifingar.
Á sama hátt er eigendum myndbandaleiga bent á að
ganga úr skugga um að þau myndbönd, sem þeir
kaupa, séu á tilskilinn hátt merkt með merkimiðum
eftirlitsins.
Kvikmyndaeftirlit rikisins,
Síðumúla 33,108 Reykjavík.
Sími: 68 80 20
Opið kl. 9-12 alla virka
daga.
SNIURT BRAUÐ
Afgreiðum allar tegundir af smurðu brauði fyrir
margs konar tilefni.
Kaffisnittur kr. 35/-
Cocktailsnittur kr. 30/-
Cocktailpinnar kr. 25/-
Brauðtertur kr. 850/- , 12 manna.
Einnig heilar og hálfar brauðsneiðar.
Heilar kr. 200/-
Hálfar kr. 100/-
LEITIÐ TILBOÐA
□
VEITINGAMAÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 686880
Auglýsing
frá Menntamálaráði íslands um styrkveiting-
ar árið 1987
Samkvæmt fjárveitingu á fjárlögum 1987 verða á árinu
veittir eftirfarandi styrkir úr Menningarsjóði íslands:
ÚTGÁFA TÓNVERKA
Til útgáfu íslenskra tónverka verða veittir einn eða
fleiri styrkir en heildarupphæð er kr. 100.000.00.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um tónverk þau
sem áformað er að gefa út.
DVALARSTYRKIR LISTAMANNA
Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 70.000.00 hver.
Styrkir þessir eru ætlaðir listamönnum sem hyggjast
dveljast erlendis um a.m.k. tveggja mánaða skeið og
vinna þar að listgrein sinni. Umsóknum skulu fylgja
sem nákvæmastar upplýsingar um fyrirhugaða dvöl.
Þeir sem ekki hafa fengið sams konar styrk frá Mennta-
málaráði síðastliðin 5 ár ganga að öðru jöfnu fyrir við
úthlutun.
STYRKIR TIL FRÆÐIMANNA
Styrkir þessir eru til stuðnings þeim sem stunda fræði-
störf og náttúrufræðirannsóknir. Heildarstyrkupphæð
er kr. 220.000.00. Umsóknum skulu fylgja upplýsing-
ar um þau fræðiverkefni sem unnið er að.
Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa borist
Menntamálaráði Islands, Skálholtsstíg 7,101 Reykja-
vík, fyrir 10. mars 1987. Nauðsynlegt er að nafnnúmer
umsækjenda fylgi umsókninni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Menn-
ingarsjóðs að Skálholtsstíg 7, Reykjavík.