Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Page 27
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987. 39 Viðtalið Mikill tími í starf innan Kvennalistans segir Sigrún Jónsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Kvennalista „Þetta starf felst í margs konar þjónustu við þingflokk Kvenna- listans, meðal annars að taka saman gögn og útvega upplýsingar vegna þingmála og aðstoða kvennalistakonur utan af landi og vera tengiliður þeirra við þingið og þingkonumar. Það er þvi mikið aó gera,“ sagði Sigrún Jónsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri þing- flokks Kvennalistans, í samtali við DV. Sigrún tók við þessu starfi af Bergljótu Baldursdóttur sem nú kennir við Háskóla íslands en áður starfaði Sigrún við blaðamennsku á DV. Sigrún er fædd og uppalin í Kópavogi og býr þar enn. Hún er ógift og barnlaus. Spumingu um helstu áhugamál svarar Sigrún þannig: „Ég er í bridgeskóla og stunda líka líkams- rækt, en það má segja að það sé mjög erfitt nú í skammdeginu að fara snemma á fætur til að fara í sund en það er á stefnuskránni," sagði Sigrún. „Ég reyni líka að hafa gott sam- band við vini og kunningja og svo er það pólitíkin. Það fer mikil tími í starfið innan Kvennalistans en það fylgú að fara á fundi á kvöld- in og um helgar ætli maður sér að vera virkur en auðvitað er þetta frjálst val hvers og eins,“ sagði Sigrún Jónsdóttir. -ój Sigrún Jónsdóttir. DV-mynd Brynjar Gauti Halla Bergsteins og Hólmfriður Ólafsdóttir skemmtu með söng. DV-myndir Ómar Fagnaður eldri bovgara í Eyfum Fréttir Ómar Gaiðaisson, DV, Vestmannaeyjum: Eldri borgarar í Vestmannaeyj- um hafa árlega komið saman til að fagna nýju ári. Það er kvenfé- lagið Líkn sem staðið hefur fyrir þessum nýárssamkomum sem hó- fust fyrst árið 1928. Hefur aldrei fallið niður skemmtun þrátt fyrir eldgos eða aðra óáran. Að þessu sinni voru ýmis skemmtiatriði á boðstólum. Þær Halla Bergsteins og Hólmfríður Ólafsdóttir skemmtu með söng og krakkar sýndu dans. Var það mál gesta að samkoman hefði verið vel heppnuð í alla staði. Þessar ungu dömur sýndu dans. ÁFRAM ÍSLAND! aaaa MMOMÍáMMÆ FIAT- UMBOÐIÐ, SKEIFUNNI 8, 1 AF 50! ÞETTA GÆTI ORÐIÐ ÞINN FIAT UNO VIÐ STYÐJUM HANDKNATÍLEIKS- LANDSLIÐIÐ l OPIÐ VIRKA DAGA FRA KL. 9-18, LAUGARDAGA KL. 13-17. sími 688850

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.