Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 2. MARS 1987. Stjómmál Fjölmenni var á landsfundi Fiokks mannsins. Landsfundur Flokks mannsins: „Þörf er á nýju afli“ - sagði Pétur Guðjonsson, formaður flokksins „Eg held að flestir geri ser ljóst að þörf er á nýju afli í íslenskum stjórnmálurn. Við höfum heyrt á vinnustaðafundum og í könnunum sem við höfum gert að 70-80% fólks treystir ekki núverandi þingflokk- um.“ sagði Pétur Guðjónsson, formaður Flokks mannsins, í sam- tali við DV en Flokkur mannsins hélt sinn fyrsta landsfund á laugar- daginn i Tónabíói og þar var samþykkt ítarleg stjórnmálayfirlýs- ing sem greinir ffá stefnumálum flokksins. „Eg er bjartsýnn á komandi kosn- ingar fvrir okkar hönd. Við skerum okkur úr öðrum flokkum að því leyti að við erum með meira af ungu fólki í framboði og á listum okkar em fleiri almennir launþegar en þekkist annars staðar." í máli Péturs kom einnig íram að eitt brýnasta verkefni flokksins nú væri að fá fólk til að trúa þvi að það eigi sjálft að hafa völdin í landinu og að núverandi þingflokkar væru ekki náttúmlögmál sem ómögulegt væri að breyta. „Mér sýnist af landsfundinum og vinnustaðafundum okkar að það sé mikil stemning ríkjandi og meðbyr með flokknum," sagði Pétur. Stjórnmálayfirlýsing I stjórnmálayfirlýsingu þeirri sem samþykkt var á landsfundinum er lögð áhersla á ákveðin mál, m.a. vill flokkurinn að lögbundin lágmarks- laun taki mið af framfærsluvísitölu, tekjuskattur af launum verði afnum- inn og að ellilífeyris- og örorkubætur taki mið af framfærsluvísitölu svo dæmi séu tekin. Nokkur áhersla er lögð á málefhi landsbyggðarinnar ög segir í yfirlýs- ingunni að ....við viljum tryggja bændum afkomu sína og höfnum algerlega þeirri stór'oændapólitík og landeyðingarstefnu sem nú tíðk- ast...“ Þá vill Flokkur mannsins leysa húsnæðisvandann í eitt skipti fyrir öll, góða og trygga heilbrigðisþjón- ustu sem sé að mestu ókeypis, þar með taldar tannlækningar, minnka alla yfirbyggingu ríkisins og óþarfa bruðl þess og að laun alþingismanna verði aldrei hærri en lögboðin lág- markslaun í landinu. -FRI DV Nýr flokkur, Þjóðarflokkurinn, stofnaður: Býður fram í öllum kjördæmum Svipmynd frá stofnfundinum. A myndinni eru Arni Steinar Jóhannsson, Eyja- firði (i ræðustól), Örn Björnsson, V-Húnavatnssýslu, Ragnar Eðvaldsson, Keflavik, Stefán Ágústsson, Seltjarnarnesi, Árni Sigurðsson, Blönduósi, Björn Sigvaldason, V-Húnavatnssýslu, og Sigríður Rósa Kristinsdóttir, Eskifirði. DV-mynd BG „Við reynum að ofmeta hvorki né vanmeta stöðu okkar nú heldur lítum raunhæft á málin þar. til betur verða séð viðbrögð fólks við sjónaimiðum okkar og stefnu," sagði Pétur Valdi- marsson í samtali við DV en hann var kosinn formaður nýs stjómmálaflokks sem stofnaður var í Borgamesi um helgina. Flokkurinn hlaut nafnið Þjóðarflokkurinn en það er fólk úr öllum landshlutum sem stendur að stofhun hans og í komandi kosningum mun flokkurinn bjóða fram lista í öll- um kjördæmum. Aðspurður um hver yrðu helstu bar- áttumál Þjóðarflokksins sagði Pétur að þau yrðu valddreifing og jafnrétti milli landshluta, það er að landshlut- arnir bæru endanlega ábyrgð á því sem þeir gerðu og jafnframt fengi hver að búa að sínu. „Við verðum að revna að fá alla íbúa landsins til að skilja að ábyrgð er það sem við þörfnumst, sérstaklega í stjómmálum, pólitísk og rekstrarleg ábyrgð,“ sagði Pétur. Hann var bjartsýnn á að flokkurinn kæmi manni eða mönnum að á þingi Pétur Valdimarsson, formaður Þjóð- arflokksins. og benti á að flokkurinn hefði komist á blað í skoðanakönnunum áður en hann var stofnaður. En hvort er flokkurinn til hægri eða vinstri í stjómmálum? „Hvomgt, í þessum flokki er fólk úr öllum stjórnmálaflokkum sem skilur nauðsyn þess að vinna saman og vill vinna saman að sínum baráttumálum á þessum vettvangi," sagði Pétur. Stefnuskrá I stefnuskrá Þjóðarflokksins er í upphafi fjallað um miðstýringu þá er stjórnkerfi okkar byggist á og rætt um alvarlega vankanta hennar. „.. .stöð- ugm- straumur fólks til höfuðborgar- svæðisins, grisjun byggðar, landauðn. Staða innanríkismála er fyrst og fremst fylgikvilli miðstýringar. Mið- stýringin dregur til sín völd. fé og síðar fólkið.“ 1 stefnuskránni segir m.a. að Þjóðar- flokkurinn muni beita sér fyrir endurskoðun á stjómarskrá lýðveldis- ins en markmið endurskoðunarinnar em jafnrétti þegnanna til orðs og æðis, valdreifing með stofnun fylkja, fækkun þingmanna og minnkun fram- kvæmdavalds. Þetta á að gera með kosningu stjómlagaþings. Hvað fjármálin varðar vill Þjóðar- flokkurinn að ríkisbankarnir verði lagðir niður en í þeirra stað stofnaðir landshlutabankar og fjármálakerfi landsins breytt þannig að sveitar- stjórnir og landshlutastjórnir sjái um innheimtu allra skatta en ríkið fái greidda ákveðna prósentu af tekjum hvers landshluta. Stefnuskránni er skipt í 10 kafla þar sem rætt er um heilbrigðis- óg mennta- mál, húsnæðismál, samgöngur, orkumál, sjávai'útvegsmál, landbún- aðarmál o.s.frv. Hvað utanríkismálin varðar segir í stefnuskránni: „Þjóðarflokkurinn vinnur að friðar-, afvopnunar- og um- hverfisvemdarmálum. Styður endur- skoðun á varnarsamningi við Bandaríkin og aðild að NATO. Efling norrænnar samvinnu með sérstakri áherslu á Norðvestursvæðið.“ -FRI I dag mælir Dagfari Norræn samvinna í verki Norðurlandaráðsfundi í Helsinki lauk um helgina. Múgur og marg- menni hefur sótt þetta þing og þar á meðal myndarleg sendinefnd frá íslandi. Það hefur stundum vafist fyrir fulltrúum íslands á þessum þingum að útskýra fyrir þjóðinni hvað þeir séu að gera þar og það hefur vafist ennþá meira fyrir þjóð- inni hvað sendinefndin er að gera þar. En í rauninni skiptir það ekki máli þvi aðalatriðið er að þeir séu þar, ekki hitt hvað þeir gera, að minnsta kosti meðan þeir gera ekk- ert af sér. Áður en haldið var utan reyndu þó fjölmiðlar að forvitnast um hvað Islendingamir ætluðu að leggja til málanna. Voru þar einkum tvö mál nefnd, annað var tillaga frá Guðrúnu Helgadóttur um stofnun samnor- rænnar líftæknistofhunar og hitt var tillaga frá Eiði Guðnasyni um sam- norrænan kvikmyndasjóð. Verður ekki efast um að hvort tveggja er stórgagnLegt fyrir Norðurlandaráð, enda mælist það vel fyrir að menn hafi þar eitthvað til að tala um. Skiptir þá minna máli hvort eitt- hvert vit er í tillögunum. Það á fyllsta rétt á sér að senda til Hels- inki tvíeflt lið af Alþingi til að fylgja svo góðum málum eflir. Sem betur fer hefur ekkert frést af niðurlögum þessara tillagna, sem út af fyrir sig er góðs viti því ólíklegt er að flutn- ingsmenn ætlist til að þær verði samþykktar. Venjulega tekur það nokkur ár að afgreiða tillögur áður en þær em endanlega svæfðar. Ef tekið er tillit til allra nefndanna, sem starfa milli þinga, og fólksins, sem ferðast af kappi á nefndarfundina, er það skiljanleg tillitssemi að tillög- ur séu ekki samþykktar að óathug- uðu máli vegna þess að þá hefðu nefhdimar ekkert að gera og nefnd- armennirnir misstu af ferðunum. Eitt var það þó sem Norðurlanda- fulltrúarnir höfðu meiri áhyggjur af en öðru. Það vom væntanlegar um- ræður og tillögur um utanríkismál. Það hefur nefhilega gerst í seinni tíð að fávísir fulltrúar á þessum þingum hafa tekið upp á því að heimta um- ræður um mál sem ekki má tala um. Lengi hefur það verið þegjandi sam- komulag að sneiða hjá utanríkis- málaumræðum og mun þetta reyndar vera eina alþjóðaþingið í heiminum sem ekki talar um al- þjóðamál. Norræn samvinna byggist á því að hver fari sína leið í utanrík- ismálum. Þrjú landanna eru í Atlantshafsbandalaginu, Svíamir eru hlutlausir og Finnamir hafa það undir umræðu um það hvort umræð- an skuli leyfð og sömuleiðis hitt að ef hún verði leyfð hvemig umræðu eigi að leyfa. Tekist hefur að skapa bærilegan ágreining um þessa máls- meðferð og vísa henni nokkrum sinnum til nefnda. Gott ef þeir hafa ekki efnt til sérstakrar ráðstefnu um málsmeðferðina. Fyrirkomulagið hjá þeim í Norð- urlandaráði er í stórum dráttum þannig að fyrst er flutt tillaga, síðan er hún sett í nefnd, síðan leggur nefndin til að málið sé skoðað af sekretaríinu og þessu næst leggur sekretaríið til að málið sé aftur tekið fyrir í Norðurlandaráði sem að lok- um vísar málinu aftur til nefndar - og svo koll af kolli. Málatilbúnaður um utanríkismál- in er nú um það bil að komast í gegnum þriðja hringinn af þessu tagi og Norðurlandaráð komið í þrot með það hvort utanríkismál skuli rædd eða ekki rædd. Það var þá sem Páll frá Höllustöðum fann upp á því snjallræði að leggja til að málið færi ekki í nefnd heldur í tíu manna nefhd. Þessi tillaga Páls gerði lukku og síðustu fréttir herma að þetta verði merkasta ákvörðun þingsins. Segi menn svo að Norðurlandaráð skili engum árangri. Dagfari fyrir utanríkisstefnu að styggja ekki Rússana í austri. Þetta heitir víst. norræn samvinna í verki. Einhverjum fávitum datt það í hug fyrir nokkrum árum að Norðurlönd- in ættu að koma sér saman um bann við kjarnorkuvopnum og skipu- leggja samnorræna afvopnun. Þetta var í sjálfu sér meinlaust meðan ekkert var gert með það en af óskilj- anlegum ástæðum hafa fulltrúar á Norðurlandaþingum haldið áfram að fjalla um þessa fáránlegu hug- mynd. Það hefur orðið til þess að Norðurlandaráðsþingið í ár og und- anfarin ár hefur að mestu verið lagt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.