Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987.
Fréttir
Bankakort, misheppnuð framkvæmd:
litið notuð í tékka-
viðskiptum og hraðbönkum
Bankakortin hafa verið til umfjöll-
unar hér í DV og ljóst af þeirri
umfjöllun að þau eru misheppnuð
framkvæmd hvað varðar notkun
þeirra í almennum tékkaviðskiptum.
Einnig mun lítil notkun þeirra í
hraðbönkum hingað til hafa valdið
bankamönnum vonbrigðum enda
var ráðist í gífurlega fjárfestingu af
hálfu hankanna með hraðbönkun-
um, fjárfestingu sem ekki ætlar að
skila sér eins og málin standa í dag.
Islendingar eru öðrum þjóðum
gefnari fyrir notkun tékka í viðskipt-
um sínum. Miðað við Norðurlöndin
erum við með langmesta tékkaútg-
áfu á mann eða 85 tékka að meðaltali
á ári. Næstir okkur eru Danir í ték-
kaútgáfunni með 40 tékka á mann.
síðan koma Norðmenn með 23 tékka
á mann en Finnar og Svíar gefa
aðeins út 15 tékka á mann að meðal-
tali árlega.
Með tilkomu greiðslukortanna var
talið að þessi gífurlega tékkanotkun
myndi minnka verulega en slíkt hef-
ur ekki gerst enn og veldur það
bankamönnum nokkrum heilabrot-
um þótt ekki hafi þeir neinar algildar
skýringar á þessu fyrirbæri. Á síð-
asta ári gáfu íslendingar þannig út
21 milljón tékka og var veltan í þess-
um viðskiptum um 500 milljarðar
króna. þrátt fyrir að útgáfa greiðslu-
korta hafi 'þá náð nær 100.000
kortum.
En jafnframt þessu veldur hin
mikla tékkaútgáfa bankamönnum
Peningamarkaöur
INNLÁNSVEXTIR (%> hæst
Innlán dverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8.5-11 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-19 Vb
12 mán. uppsögn 12-20 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 18 Bb
Ávisanareikningar 3-10 Ab
Hlaupareikningar 3-7 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb. Lb.Úb. Vb
6 mán. uppsögn 2.5-4 Ab.Úb
Innlán með sérkjörum 10-21.5
Innlán gengistryggð
Sandarikjadalur 5-6 Ab
Stcrlingspund 9.5-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskar krónur 9-9.75 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 17.75-20 Ib
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge/21. 75-22
Almenn skuldabréf(2) 18-21.25 Úb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 18.5-21 Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5 árurn 5.75-6.75 Lb
Til lengri tima 6.25-6.75 Lb
litlán til framleiðslu
ísl. krónur 15-20 Sp
SDR 7.75-8.25 Lb.Úb
Bbndarikjadalir 7.5-8 Sb.Sp
Sterlingspund 12.25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk mörk 5.75-6.5 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lifey rissjóðslán 5-6,5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalafeb. 1594 stig
Byggingavisitala 293 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaöi7.5% l.jan.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 113 kr.
Eimskip 300 kr.
Flugleiðir 310 kr.
Hampiðjan 140 kr.
Iðnaðarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV ó fimmtu-
dögum.
nokkrum vandræðum því sam-
kvæmt bókhaldslögum verður að
geyma tékkana í 7 ár. Fer því mikið
pláss í skjalageymslum bankanna
undir þessa pappíra og má nú mæla
tékkaflóðið í tugum tonna í þessum
geymslum.
Gúmmítékkar fyrir rúm
600.000
Það var að undirlagi kaupmanna
og dómsyfirvalda að bankarnir fóru
út í bankakortin en auk þess að vera
trygging fyrir ákveðinni upphæð á
tékkum áttu kortin að koma í veg
fyrir tékkamisferli eða fals. Slíkt
hefur ekki gerst því samkvæmt upp-
lýsingum frá rannsóknarlögreglunni
hefur tékkafals ekki minnkað á síð-
asta ári miðað við árið á undan,
raunar má segja að RLR sé að
drukkna í því tékkaflóði sem stofh-
unni berst til meðferðar. Fyrir utan
falsaða tékka kemur einnig töluvert
af „gúmmítékkum" eða innstæðu-
lausum tékkum til meðferðar hjá
RLR og sagði Helgi Daníelsson, yfir-
lögregluþjónn hjá RLR, f samtali við
DV að hann hefði tekið saman upp-
hæð þeirra á tveimur vikum í febrúar
og hefði hún þá numið á sjöunda
hundrað þúsund krónum.
Innstæðulausir tékkar eru nokkuð
sem erfitt er að varast en hvað föls-
uðu tékkana varðar segir Helgi að
hægt sé að koma í veg fyrir 90%
þeirra með réttri notkun á banka-
kortum.
Fréttaljós
Friðrik Indriðason
Aðeins 7% notkun
Rétt notkun á bankakortum, eða
notkun þeirra yfirleitt, virðist þó
eiga langt í land hjá íslendingum
miðað við upplýsingar frá Hönnu
Pálsdóttur, yfirféhirði Búnaðar-
bankans. Hún hefur gert fjórar
skyndikannanir í Búnaðarbankan-
um á notkun bankakorta undan-
fama tvo mánuði. I hverri könnun
var tekið 1000 tékka úrtak, það er
af tékkum sem bárust inn á við-
skiptareikinga í bankanum, og kom
í ljós að aðeins í um 7% tilvika voru
tékkamir með skráð bankakorta-
númer. Hæst fór hlutfallið í 12,2%
eftir helgi og sagði Hanna það vera
vísbendingu um að þessi mál væm
í nokkuð góðu lagi hjá skemmtistöð-
unum en lægst fór hlutfallið niður í
6,4% eftir miðvikudag í einni vi-
kunni.
„Eins og er virðist það vera eitt-
hvert feimnismál að biðja um
bankakort þegar framvísað er tékka
og þess vegna sleppa ýmsir drjólar í
gegn með falsaðar ávísanir. Við
þurfum að berjast gegn þessu og fá
það inn í vitund fólks að það sé sjálf-
sagður hlutur að biðja um kortin,"
sagði Hanna Pálsdóttir í samtali við
DV.
Fram hefur komið í umfjöllun DV
að alls hafa verið gefin út 115.000
bankakort en af þessum fjölda má
áætla að 70% séu fyrir „lifandi"
reikninga eða um 80.000 kort. Þessi
kortaútgáfa hafði ærinn tilkostnað
í för með sér fyrir bankana, tilkostn-
að sem ekki hefur skilað sér sem
skyldi því miðað við skyndikannanir
Hönnu er aðeins beðið um 5600 af
þessum kortum að jafhaði þegar
framvísað er tékka.
Tveir ónýttir möguleikar
Er DV rseddi við þrjá menn er
skipa starfshóp um hraðbanka, en
hópurinn vann að undirbúningi
bankakortamálsins, kom fram að
þrátt fyrir að þeir hefðu orðið fyrir
vonbrigðum með viðbrögð almenn-
ings við kortunum töldu þeir
framkvæmdina alls ekki misheppn-
aða, einkum ef haft væri í huga að
eftir er að koma í gagnið tveimur
möguleikum í viðbót sem kortin
bjóða upp á.
Hér er annars vegar um að ræða
notkun kortanna í „beinlínu" af-
greiðslutækjum sem bankamir taka
upp á næsta ári. Þá þarf korteigandi
ekki að tala við starfsmann banka
til að fá útskrift úr reikningi sínum,
hann getur fengið hann beint með
kortinu.
Hinn möguleikinn, sem lengra er
í, er að bankakortin verði notuð á
svipaðan hátt og greiðslukort í versl-
unum. í verslunum yrði þannig
komið upp afgreiðslutæki sem
bankakorti yrði stungið í og upp-
hæðin sem verslað væri fyrir dregin
beint af reikningi viðkomandi.
Hvað síðari möguleikann varðar
er ljóst að hann kemst ekki í gangið
áfallalaust og mun helsta deiluefnið
þar verða hver eigi að borga fyrir
þær símalínur sem þarf í kerfið,
bankamir eða verslanirnar.
Harðbankinn og vextir
Það er ekki þekkt staðreynd hvað
hraðbankana varðar að ef lagt er inn
í þá eftir lokun bankanna reiknast
ekki vextir af upphæðinni fyrr en
bankarnir em opnaðir aftur á mánu-
dagsmorgni. Svipað gildir um drátt-
arvexti af lánum sem borguð em í
gegnum hraðbanka eftir lokun á
föstudegi. Dráttarvextimir em tekn-
ir áfram af upphæðinni fram á
mánudagsmorgun.
Eins og fram hefur komið hefur
lítil notkun hraðbankanna hingað
til valdið bankamönnum vonbrigð-
um. Þeir hraðbankar sem mest em
notaðir em þeir við Hlemm og í
Austurveri.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
vinnubankanum í Austurveri er
þetta þröngur hópur fólks sem notar
hraðbankann, yfirleitt alltaf sömu
aðilamir. Upphaflega hugmyndin
með hraðbönkunum, fyrir utan að
bæta þjónustuna við almenning, var
að létta afgreiðslustörfum af banka-
fólki en slíkt hefur ekki gerst í
neinum teljandi mæli hvað svo sem
verður í framtíðinni.
-FRI
Níu ára drengur
fékk bikar
fyrir laxveiði
„Jú, þetta var spennandi og það tók
um 40 mínútur að landa laxinum,
pabbi hjálpaði mér aðeins við löndun-
ina,“ sagði Garðar Öm Dagsson, en
hann veiddi stærsta laxinn af bömum
félagsmanna í veiðifélaginu Straum-
um í Móhellufljótinu í Staðarhólsá í
Dölum síðasta sumar. Gai’ðar Öm
Dagsson er aðeins níu ára og yngsti
verðlaunahafi sem fengið hefur verð-
laun fyrir laxveiði hérlendis.
„Ég sá ekki laxinn strax og þetta
var gaman, hef ekki áður veitt svona
vænan lax, hef veitt í Hvolsá og Stað-
arhólsá nokkrum sinnum og ætla í
hana næsta sumar.“
Straumar héldu árshátfð sína á laug-
ardaginn og var fjölmennt, en þeir
leigja meðal annars Hvolsá og Staðar-
hólsá f Dölum. Margt var til skemmt-
unar og tókst vel til. Glæsilegir
bikarar vom veittir til eignar og hlutu
eftirtaldir þá: Dagur Garðarsson fyrir
stærsta silunginn, 4 pund, í Staðar-
hólsá, veiddan á Tail and Silver nr.
10; af félagsmönnum veiddi Elín Guð-
brandsdóttir stærstan lax á maðk; í
Þverá í Svínadal; Jón Pétursson veiddi
stærsta laxinn á flugu, 20 punda lax á
rauða Fransis í Hvolsá og svo Garðar
Öm Dagsson.
-G.Bender
Guðbrandur Jónasson afhendir Garðari Erni Dagssyni bikarinn fyrir 16 punda
laxinn.
DV-mynd G.Bender