Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987. 11 Utlönd Abdallah fékk lífstíðardóm „AUir þorpsbúar eru miður sín eftir dóminn yfir Georges. Við höfðum búist við því að Frakkamir mundu sýna meiri mildi,“ sagði þorpspresturinn í Kabbayat í Norður-Líbanon, en það er heimabær Georges Abdallah, sem dæmdur var í París um helgina í lífs- tíðarfangelsi íyrir hans hlutdeild í pólitískum morðum tveggja dipló- mata. Má vera að frönsku dómendunum hafi ekki fundist hryðjuverkamenn- imir frá Líbanon sýna sínum vopn- lausu fórnardýrum neina mildi á sínum tima. - Allir sjö voru sammála um refsinguna þótt sækjandinn hefði ekki krafist meiri refsingar en innan við tíu ára fangelsi. Teikning úr réttarsalnum þar sem Abdallah (sá skeggjaði 2. frá hægri) var dæmdur i lífstíðarfangelsi fyrir hlutdeild í pólitískum morðum. Simamynd Reuter Shuttz til Kreml Það þykir líklegt að George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem staddur er í opinberri heimsókn í Kína, haldi senn til Moskvu til við- ræðna við Kremlveija eftir tillögur Gorbatsjovs á laugardaginn um sér- viðræður varðandi meðaldrægar eld- í viöræður um vopnatakmarkanir flaugar þar sem geimvamaáætlunin væri ekki dregin inn í. Þar vakti Gorbatsjov upp tillögu Reagans frá því á Reykjavíkurfundin- um en upp úr honum slitnaði þegar Rússar tóku ekki í mál að semja um vopnatakmarkanir nema að semja um málið í heild og þá einnig geimvamaá- ætlunina. Hugmynd Gorbatsjovs felur í sér að bönnuð verði meðaldræg flugskeyti í Evrópu og verður hún lögð formlega fram í viðræðunum í Genf í dag. Ekkja Presleys eignaðist son Priscilla Presley, hin 42ja ára gamla ekkja rokkkóngsins Elvis Presley og ein af leikstjömunum í „Dallas“-sjónvarpsþáttunum, eignaðist í gærdag son. Faðirinn er Marco Garibaldi (31 árs), hand- ritahöfundur og leikstjóri. Átján ára dóttir hennar og Elvis heimsótti Priscillu og hinn ný- fædda svein á sængina i gær en hann á að heita Navarone Ant- hony Garibaldi. Vom þau bæði sögð við bestu líðan. Móðirin mun snúa strax aftur til starfa við Dallas-þættina þegar tökur þeirra hefjast aftur í apríl að liðnu nokkm hléi. Sjö manna dómur dæmdi líbanska hryðjuverkamanninn Georges Ibrahim Abdallah (t.h. á myndinni hér) í ævilangt fangelsi. Fyrir framan hann situr verjandi hans. Simamynd Reuter Stoltenberg líklegasti eftivmaður Fiydenlunds PáD Viltjálmsson, DV, Osló: George Shultz utanrikisráðherra skálar hér við hinn kínverska starfs- bróður sinn, Wu Xueqian, í veislu sem haldin var Shultz til heiðurs t Peking í gær en þar er bandariski utanríkisráðherrann í opinberri heimsókn þessa dagana. - Horfur þykja á því að Shultz haldi fljótlega til Moskvu til við- ræðna um nýjustu tillögur Gorbatsjovs í vopnatakmörkunarumræðunni. Simamynd Reuter Næstkomandi mánudag mun Gro Harlem Brimdtland, forsætisráðherra Noregs, útnefha nýjan utanríkisráð- herra í stað Knuts Frydenlund. Líklegasti eftirmaður Frydenlunds er Thorvald Stoltenberg sem var varnar- málaráðherra 1979-81. Á föstudaginn verður Frv’denlund jarðsettur á vegum ríkisins og ákvað forsætisráðherrann að eftirmaður Fiydenlunds vrði ekki útnefndur f>Tr en eftir jarðarförina. Ríkisstjóm Verkamannaflokksins er í minnihluta á þingi og verður því að velja utanríkisráðherra sem stjórnar- andstaðan getur sætt sig við. Thorvald Stoltenberg var náinn vinur Knuts Frydenlund og hlvnntur aðild Noregs að Nato en jafnframt talsmaður af- vopnunar og slökunarstefnu. Þeir kröfuhörðustu velja AUDWUNE í bílinn Enn og aftur getur Sjónvarpsmiðstöðin boðið ótrúlega lágt verð vegna mjög hagstæðra samninga við verksmiðj ur. — SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN AL 500 - 3 bylgjur. Urvals tæki kr. 15.250,- AL 410, 3 bylgjur, kr. 7.810,- AL 333 - 3 bylgjur, kassetta. Mest selda Audiolinetækið. Verð kr. 5.650,- AL 332 - 2 bylgjur, kassetta. Vandað tæki. Verð kr. 4.860,- Síðumúla 2 — sími 39090 og nýtt 689090.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.