Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Page 27
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987. , , LÆigOJN , AVISITÖLUALAGI LANA sem veitt voru með lánslgaravfsitölu úrByggingarsjóði rílcisins fyrir 1. september 1983. Framkvæmd lækkunarinnar fer þannig fram: Frá og með 1. febrúar 1987 voru grunnvísitölur þessara lána hækkaðar með stuðlinum 1.0288 þannig að eftirstöðvar lánanna með verðbótum lækka um 2.8%. Dæmi 1: Lán að fjárhæð kr. 100.000 sem veitt var í júlí 1982 með grunnvísitöluna 373 verður framvegis með grunnvísitöluna 384. Lán þetta er með 2.25% vöxtum til 16 ára, fyrsta árið afborgunar- laust, og fjórum gjalddögum á ári. Á gjalddaganum 1. febrúar 1987 á að greiða samtals kr. 8.171 af þessu láni í vexti, afborgun og verðbætur en kr. 8.412 ef til lækkunar hefði ekki komið. Þetta er lækkun um kr. 241. Eftirstöðvar lánsins með verðbótum eftir greiðslu á gjalddaganum lækka úr kr. 333.592 í kr. 324.036, eða um kr. 9.556. Leggja verður fram afrit af kaup- samningum vegna íbúða, sem komu til sölu í fyrsta sinn á tímabilinu septem- ber 1983 til janúarloka 1987 og eru með áhvílandi lánskjaravísitöluián. Þetta nær þó aðeins til lána er veitt voru úr Byggingarsjóði ríkisins fyrir 1. september 1983. Þeir sem hafa greitt upp siík lán leggi fram afrit af greiðsluseðli. Þessi afrit ásamt upplýs- ingum um nafn, nafnnúmer og heim- ilisfang verður að senda til Veðdeildar Landsbanka ísiands, Laugavegi 77, 101 Reykjavík, fyrir 1. apríl 1987. Margar þessara íbúða hafa verið seldar oftar en einu sinni. í hvert sinn hafa eftirstöðvar með verðbótum verið ofmetnar. Þeir sem seldu slíkar íbúðir í fyrsta sinn á tfmabilinu september 1983 til janúarloka 1987 fá endurgreitt sem nemur lækkuninni (2.8%) á eftir- stöðvunum ásamt ofgreiddum verð- bótum á hverjum gjalddaga frá september 1983 til söludags. Hinir sem eftir koma, kaupa og selja miðað við ranga vísitölu. Þeir fá því hvorki endur- greidda þessa lækkun né endurgreitt vegna ofgreiddra verðbóta, þar sem Byggingarsjóður ríkisins endurgreiðir fyrsta seljanda aila lækkunina á eftirstöðvunum. Dæmi 2: íbúð var seld íjúlí 1985. Á íbúðinni hvfldi lán, sem veitt var úr Byggingarsjóði ríkisins íjúlí 1982, upphaflega kr. 100.000. Lánskjör eru sömu og í dæmi 1. Sami eigandi hafði átt íbúðina allan tímann. Eftirstöðvar lánsins með verðbótum þegar íbúðin var seld voru kr. 279.591 en áttu að vera kr. 271.582. Þennan mismun, kr. 8.009, fær seljandinn endurgreiddan ásamt ofgreiddum verðbótum á hverjum gjalddaga frá september 1983 til söludags i júlí 1985, sem nema um kr. 991. Hann fær því kr. 9.000 ásamt dráttarvöxtum eins og þeir voru á hverjum tíma til greiðsludags. Samtals nemur endurgreiðslan kr. 15.609. í apríl 1987 verður send endur- greiðsia til þeirra, sem voru skuld- arar þessara lána 1. febrúar 1987, sjá þó liði 2 og 3 hér að framan. Endurgreiðsian nemur þeirri fjárhæð, ásamt dráttarvöxtum til greiðsludags, sem ofgreidd var á hverjum gjalddaga á tímabilinu september 1983 til janúarloka 1987. Séu lán í vanskilum verður endurgreiðslunni varið til greiðslu á þeim. Dæmi 3: Sama fjárhæð og sömu lánskjör og i dæmi 1 og 2 hér að framan. Ibúðin hefur verið í eigu sama aðila allan tímann. Hann fær vegna ofgreiddra verðbóta kr. 2.249. Samtals ásamt dráttarvöxtum nemur endurgreiðslan kr. 3.882. í þeim tHfellum þar sem seljendum verður endurgreitt vegna ofmet- inna eftirstöðva, ætti að innheimta sömu fjárhæð hjá núverandi eigendum vegna þess að grunnvfsitölur ailra þessara lána voru hækkaðar frá og með 1. febrúar 1987 og þar með eftirstöðv- arnar iækkaðar. Eftirgjöfin er því framkvæmd tvisvar í þessum tilfellum. Þegar fyrir liggur hvaða íbúðir hafa skipt um eigendur, verður tekin ákvörðun um hvort núverandi skuld- arar verða krafðir um endurgreiðslu. Reykjavík, 1. mars 1987

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.