Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Page 30
46
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987.
Dægradvöl
Tölvunarfræðingur, túlkur, tannlæknir ...
Sálfræðingarnir Sölvína Konráðs og Ágústa Gunnarsdóttir eru þær fyrstu sem koma heim með sérnám í starfsráð-
gjöf.
Starf, áhugi og hæfileikar
Texti: Dröfn Hreiðarsdóttir
DV-myndir: Brynjar Gauti og Sveinn
Hverjir eru hæfileikar mínir og
hvernig get ég nýtt mér þá í starfi
og: leik sjálfum mér og öðrum til
gagns og gamans?
Þessari spurningu veltum við flest
fyrir okkur oftar en einu sinni á
ævinni og eigum oft fullt í fangi með
að finna viðunandi svar.
Það þvkir nýnæmi hér á landi að
veitt sé sérstök ráðgjöf í vali á starfi
en til þess gefst m.a. kostur um þess-
ar mundir í Tómstundaskólanum.
Það eru þær Sölvína Konráðs og
Ágústa Gunnarsdóttir sem eru leið-
beinendur á þessu námskeiði og eru
þær báðar sálfræðingar að mennt.
Spurning lífsins
Áður fyrr gekk starfsvalið einfald-
ar fyrir sig, sögðu sálfræðingarnir,
hefðir réðu miklu og starfsgreinar
voru fáar og val manna sáralítið oft
á tíðum.
í fornum menningarsamfélögum
má sjá fyrirmyndir að notkun sál-
fræðiprófa við ráðningar á fólki og
í Kína tíðkaðist slíkt einum 2000
árum f. Kr. þegar valdir voru emb-
ættismenn fyrir ríkið. Sjálfur Sókra-
tes kvað starfsvalið vera spurningu
lífsins.
Mikilvægt að vanda valið
Þær Sölvína og Ágústa lögðu stund
á starfsráðgjöf sem sérnám með sál-
fræðinni úti í Minnesota í Banda-
ríkjunum og eru þær fyrstu sem
koma heim með þessa menntun.
Þær sögðu vinnuheim fólks í dag
vera orðinn mun flóknari. sérhæfing
er meiri en áður var og ný störf hafa
orðið til. Þetta gerir það að verkum
að mun erfiðara er orðið fyrir fólk
að taka ákvörðun um nám eða starf
við hæfi.
Oft er val á menntun og starfi mjög
svo handahófskennt í stað þess að
fólk gangi úr skugga um hvert
áhugasvið þess sé en valið kemur til
með að hafa áhrif á allt líf manns.
Ánægja í starfi gerir lífið í heild
mun ánægjulegra og að sama skapi
getur óánægja í starfi hæglega leitt
til vandamála á vinnustað og í einka-
lífi fólks.
Það er því mikilvægt að vanda
valið og er það á við góða fjárfest-
ingu, ekki bara fjárhagslega séð
heldur einnig tilfinningalega.
Ágústa og Sölvína lögðu áherslu á
að það að fá ráðgjöf í starfsvali stæði
öllum til boða og væri alls ekki merki
um að viðkomandi væri í meiri hátt-
ar sálarflækju.
Stærsti hópurinn er fólk sem stend-
ur á tímamótum í lífi sínu og þarf
að velja á milli hinna ýmsu mögu-
leika og taka ákvörðun fyrr en
seinna sem oft reynist flóknara en
ætla skyldi.
Brauðstrit eða ánægja
Aðspurðar um ástandið hérlendis í
þessum efnum sögðu þær íslendinga
jafnan hafa tilhneigingu til að hella
sér út í vinnu til þess eins að afla sem
mestra peninga og hugsa þá lítið um
þá ánægju sem hægt er að fá út úr
vinnunni. Það vill oft gleymast að
við eyðum í raun og veru mjög stór-
um hluta lífs okkar á vinnustaðnum
og að það eru einmitt vinnufélagarn-
ir sem oft verða okkar bestu vinir.
Valið hefst snemma
Strax í 9. bekk verða krakkar að
taka mikilvægar ákvarðanir sem
hafa áhrif á framtíð þeirra. Nokkuð
algengt er að krakkarnir geri sér
ekki grein fyrir öllum þeim mögu-
leikum í starfi og framhaldsnámi sem
bjóðast að skyldu lokinni og fylgja
jafnvel frekar tískusveiflum eða vin-
um. Hafi þeir ekki rambað á rétt
val, sem er í samræmi við áhuga
þeirra og hæfileika, lýsir það sér oft
í því að þeim gengur illa, verða óá-
nægðir með sjálfa sig og missa
jafnvel trúna á sjálfum sér.
Fullorðna fólkið er sjálft oft í hinni
mestu klípu varðandi valið og fjöl-
margir eyða mörgum árum í að prófa
sig áfram í starfi sem námi og getur
sú leit jafnvel orðið æði dýrkeypt,
sérstaklega ef viðkomandi tekur lán
til náms sem hætt er við. Þó má segja
að í stað þess að aðhafast ekkert til
að finna út úr málunum sé það oft
reynslunnar virði að prófa sig áfram
en að sjálfsögðu kostar það bæði ein-
staklinginn og þjóðfélagið peninga.
Hvar liggur hæfileikinn?
Til er önnur og fljótlegri aðferð til
þess að komast að því hvernig fólk
getur á sem bestan hátt nýtt sér
hæfileika sína í starfi og námi. Þá
aðferð nota þær Sölvína og Ágústa
og felst hún einkum í viðurkenndu
prófi eða sálfræðilegu ábendi, eins
og þær vilja kalla það. Er það upp-
runnið í Bandaríkjunum og nefnist
Strong Campbell. Prófið felst í
spurningalista um áhugasvið ein-
staklingsins og inniheldur 325
krossaspurningar sem viðkomandi
einstaklingur svarar. Síðan eru svör-
in unnin í tölvu sem vinnur eftir þar
til gerðu forriti sem gefur yfirgrips-
miklar upplýsingar um áhugasvið og
ákveðnar starfsstéttir tengdar því.
Endanlegar niðurstöður eru túlkað-
ar af sérfræðingum með þekkingu
og reynslu í þessu prófi.
Með þessu móti getur fólk á auð-
veldan hátt gert sér betur grein fyrir
hvert stefna skuli.
Smiður, sjómaður, sjúkraþjálfari... fóstra, flugmaður, félagsráðgjafi...
Hjúkrunarfræðingur, hótelstjóri, húsmóðir...