Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Side 31
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987.
47
DV
Dægradvö]
Fyrir fólk á öllum aldri
í Bandaríkjunum er svona starfs-
ráðgjöf almenn og Strong Campbell-
prófið, sem áður var nefnt, er víða
sett sem inntökuskilyrði í ýmsa
skóla.
Fólk, sem þegar hefur valið sér nám
eða starf, fer oft i svona próf til að
fá staðfestingu á hvort valið hafi
verið rétt.
Annar hópur, sem hefur notfært sér
þessa ráðgjöf, eru konur sem hafa
verið heimavinnandi en vilja fara
aftur út á vinnumarkaðinn. Einnig
er algengt að fólk á miðjum aldri
vilji skipta um starf en hiki oft við
að fara út í eitthvað nýtt af ótta við
að missa ákveðið öryggi sem það tel-
ur sig hafa. Eftirlaunaþegar, sem
kjósa að starfa áfram, og fólk, sem
veikist og getur ekki snúið aftur til
fyrri starfa, hefur gjarnan nýtt sér
þennan möguleika við að endurmeta
stöðu sína eins og aðrir þeir sem
standa á tímamótum.
Að láta slag standa
Þær Ágústa og Sölvína töluðu um
að svonefndar staðalmyndir villtu
um fyrir mörgum, þ.e.a.s. að fólk
væri búið að búa sér til ákveðna
mynd í huganum af ákveðnum starfs-
stéttum án þess að íhuga betur í
hverju starfið fælist. Þess vegna er
mikilvægt að fá fólk til að sjá í gegn-
um þessar staðalmyndir og beina
augunum að eðli starfsins.
Þær sögðu það mikilsvert að fá
fólk til að viðurkenna hæfileika sína
og losna við ranghugmyndir um
sjálft sig. Þegar fólk hefur komið sér
niður á afmarkað áhugasvið, sem er
kjörið miðað við hæfileika þess, er
ekki annað eftir en að láta slag
standa og gera það sem hugurinn
stendur til.
Læknir, listamaður, Ijósmyndari
BILAKLÆÐNINGAR
.FRAMLEÍDVM BILSTOLA I
Bronco. Blazer.ToyotaHílux. Scout.
Wagoneer. WillJ1*. ofl. TEGVNDIR
JEPPA og Fólhsbila.
EIGVM FYRIRLICCJANDI
STÓLA í IADA SPORT.
BOLSTRUN BJARNA
HOLABERG 78 REYKJAVIK
^78020
0
lUÚ STARFSFÓLK
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra vantar starfsfólk við
Sumardvalarheimilið í Reykjadal sumarið 1987. Eftir-
taldir starfsmenn verða ráðnir:
Forstöðumaður, menntun á sviði uppeldis-
mála æskileg og þá helst með tilliti til fatlaðra.
Fóstrur og þroskaþjálfar.
Aðstoðarfólk við umönnun barna.
Sjúkraþjálfari.
Iðjuþjálfari.
Næturverðir.
Ræstingafólk.
Matráðskona.
Aðstoðarfólk í eldhúsi.
Ráðningartími er frá 1. júní til 1. september nk.
Laun eru skv. kjarasamningum BSRB og Starfs-
mannafél. Sóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur og
fyrri störf sendist Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra,
Háaleitisbraut 11 -13,108 Reykjavík, fyrir 6. mars nk.
Nánari upplýsingar um störfin eru veittar á skrifstofu
félagsins að Háaleitisbraut 11-13. Sími 84999.
GAMLIR
KUNNINGJAR
A GAMLA. GOÐA VERÐINU
MARKAÐNUM LÝKUR Á MORGUN
Opið mán.-þri. kl. 12-19
Pú rekst þarna á söguhetjurnar í löngum röðum.
íslenskar og erlendar. Bundnar og óinnbundnar.
Og þú getur tekið þær allar með þér heim
— fyrir lítið fé.
Bókamarkaðurinn í Nýjabæ er með gamla, góða
laginu. Fjölbreyttur, spennandi og ÓDÝR.
Strætisvagnar nr. 2, 3 og 16
stoppá beint fyrir utan Nýja-
bæ. Þeir ganga m.a. frá
Hlemmi og Lækjartorgi.
LESKRÓKUR - BARNAGÆSLA
Greiðslukortaþjónusta
FÉLAGS ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA í NÝJABÆ, EIÐISTORGI