Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1987, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1987, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 21. MARS 1987. Friðrik Þór í erfiðleikum með Skytturnar Eina vonin að erlendir aðilar kaupi myndina ert Gudmundsson . Þórarlnn Osknr r Au*„r J6n.am, , I lua MrAton FrtArii M,Fn»rtl<í«on .. f.. . . Friðrik Þór: nú ganga bara ærslamyndir. DV-mynd GVA Enn þurfa 20 þúsund manns að greiða aðgang að Skyttunum eftir Friðrik Þór Friðriksson ef takast á að greiða kostnaðinn við myndina. Friðrik hefur gefið upp alla von um að það gerist hér og setur traust sitt á að myndin seljist á erlendri grund. Nú hafa um átta þúsund manns séð myndina sem er langt frá því sem gert var ráð fyrir í upphafi. Myndin er nú sýnd í Regnboganum og verður þar á meðan sýningarnar skila hagn- aði. Þrátt fyrir þetta er Friðrik ekki á því að leggja árar í bát og bíður þess hvaða viðtökur myndin fær erlendis. Norskur dreifingaraðili hefur þegar keypt réttinn til að sýna myndina á Norðurlöndum og greiddi tvær millj- ónir fyrir. Verður mvndin frumsýnd í Osló innan skamms eftir að lokið hefur verið við að texta hana hér. Úrslitin ráðast í Cannes Þá fara Skytturnar á næstu kvik- myndahátíð í Cannes. Friðrik er í sambandi við bandaríska og þýska dreifingaraðila sem ætla að sjá myndina þar. Eftir kvikmyndahátíð- ina kemur í ljós hvert framhaldið verður. „Það lofar góður að myndin seldist strax til Norðurlanda þannig að ég er vongóður um að mér takist að selja myndina víðar,“ sagði Friðrik þegar DV ræddi við hann um stöð- una. „Það er eina vonin til að ég sleppi sléttur frá þessu að það takist að selja myndina til annarra landa. Fólk hér hefur ekki sótt myndina eins vel og ég reiknaði með. Mig vantar nú um fimm milljónir til að endar nái saman. Fyrir utan framlag Kvikmynda- sjóðs er hún fjármögnuð með bankalánum. Það eru bæði skamm- tímalán og einnig hafa fjórar fast- eignir verið veðsettar. Það er sami gangur á þessu og verið hefur með aðrar íslenskar kvikmyndir. Eignir fjölskyldunnar eru undir hamrinum ef dæmið gengur ekki upp.“ - Blasir þá gjaldþrot við ef ekki tekst að selja? „Já, þá blasir ekkert annað en gjaldþrot við nema aðstoð frá Kvik- myndasjóði komi til. Þar var þó samþykkt í fyrra að veita ekki tap- styrki þannig að það er vonlítið. Hins vegar hefur Kvikmyndasjóður tekið að sér að bera kostnaðinn vegna kynningarinnar í Cannes." Slæmar aöstæður - Nú hefur myndin víðast fengið góða dóma og þeir sem hafa séð hana eru ánægðir. Hver er skýringin á því að aðsóknin hefur ekki verið meiri? „Ég hef eiginlega enga afgerandi skýringu á því en það má benda á margt sem trúlegar hefur verkað þarna saman. Það veldur örugglega nokkru að fyrri myndir mína hafa verið óvenju- legar og ekki höfðað til margra. Þessi mynd á hins vegar að höfða til al- mennings en samt er efast um að svo sé. Það eru auðvitað margir sem til þessa hafa kunnað að meta myndir mínar en greinilega ekki nógu marg- ir. Ég held þó að efni þessarar myndar hafi ekki þrengri skírskotun en efni þeirra mynda sem fengið hafa upp í 70 þúsund manns í aðsókn. Þá hefur það sín áhrif að myndin er bönnuð innan 12 ára sem þýðir að fjölskyldur fara ekki saman að sjá myndina. Þetta atriði hefur þó tæp- ast afgerandi áhrif. Stöð 2 tekur sitt Það hefur og áhrif á aðsókn að kvikmyndum að þessa mánuðina virðist margt fólk á svokölluðum bíó- aldri sitja yfir Stöð 2 eins og það sé að sjá sjónvarp í fyrsta sinn. Þetta er eins konar æði en það gengur yfir. Mér hefur einnig verið bent á að aðgangur að myndinni sé dýr. Mið- inn kostar 350 krónur sem er lítið meira en almennt verð á bíómiðum og hlutfallslega lægra verð en til þessa hefur verið þegar íslenskar myndir eiga í hlut. Það hefur vafalaust haft sitt að segja að skömmu áður en myndin var frumsýnd voru þrjár af myndum Þrá- ins Bertelssonar sýndar í sjónvarp- inu. Ég veit að margir hugsuðu sem svo að þessi mynd yrði sýnd þar bráð- lega líka. Það verður hins vegar ekki gert enda hefur Kvikmyndasjóður lagt bann við slíku.“ - Getur það ekki einnig komið til að kynning myndarinnar hafi mis- tekist? „Jú, en kynningin var svipuð og verið hefur um aðrar íslenskar myndir. Það er auðvitað galli að ég sá um kynninguna sjálfur og þurfti að sinna því á sama tíma og ég var að vinna við lokafráganginn. Ég var í Kaupmannahöfn við fullvinnsluna þar til daginn fyrir frumsýninguna." - Hefði þá ekki borgað sig að ráða mann til að annast kynninguna? „Það hefur ekki tíðkast hér og ætti að vera óþarfi. Það er t.d. alveg ófært að ætla sér að kaupa þjónustu á auglýsingastofum vegna þess hvað hún er óhemju dýr. Illa við auglýsingamennsku Mér er þar að auki fremur illa við auglýsingamennsku. Fólk verður að finna það sjálft hvort kvikmynd er þess virði að fara á hana. Þar ræður mestu hvernig myndir spyrjast út og þessi mynd fékk gott umtal þegar í upphafi. Því taldi ég að kynningin gengi af sjálfu sér. - Eftir þá reynslu sem þú hefur nú fengið ertu þá búinn að læra þann galdur sem þarf til að íslenskar myndir gangi? „Ja, þær myndir sem hér hafa geng- ið undanfarin þrjú ár eru ærsla- myndir sem bornar eru uppi af þekktum gamanleikurum. Ég held að Skytturnar gjaldi þess að margir telji hana þyngri en hún er í raun og veru. Ég hef veitt því athygli að fólk skemmtir sér síst verr við að horfa á Skyttumar en þær gaman- myndir sem best hafa gengið.“ - En virðist þá vonlaust að gera hér aðrar myndir en gamanmyndir? „Já, það held ég. Samt vil ég hvergi annars staðar gera mynd en hér því ég hefur úr engu öðru að vinna en íslensku umhverfi. Núna leggur ríkið til allt að helmingi af kostnaði við gerð mynda. Hinn helminginn er helst hægt að fá með sölu myndanna til útlanda en þá er líka orðin spurn- ing um til hvers er verið að gera slíkar myndir. Þverstæður Hrafn Gunnlaugsson fann þetta greinilega eftir hann gerði Hrafninn flýgur. Hann mætti miklu tómlæti hér en tókst að ná endum saman með því að selja myndina út. Það má því segja að allar alvarlegar myndir floppi meira og minna á markaðnum hér. Sumum sem lent hafa í þessu hefur ekki tekist að selja erlendis og hafa þá verið þrjú til fjögur ár að sleikja sárin. Það er ekki nóg fyrir kvik- myndagerðarmenn að gera eina mynd á fimm ára fresti fyrir utan þau áhrif sem stöðug vonbrigði hafa. Þetta er þverstæða sem menn verða að finna lausn á. Á kvikmyndagerð- armaður að sætta sig við að gera myndir sem sárafáir sjá eða á hann að gera myndir fyrir erlendan mark- að? En þá vaknar auðvitað spurning- in: Fyrir hverja eiga íslenskir kvikmyndagerðarmenn að gera myndir? Það er auðvitað engin lausn að Kvikmyndasjóður borgi 80% af kostnaðinum við myndimar eins og gerist á Norðurlöndunum. Það er auðvitað hægt að gera myndir þann- ig - en myndir fyrir hveija?“ - Er þessi niðurstaðan sem nú virð- ist liggja fyrir mikil vonbrigði fyrir þig? „Já, ég var loksins kominn að því að gera þær myndir sem ég ætlaði alltaf að gera. Fyrri myndir mínar voru aðeins upphitum. Það eru auð- vitað vonbrigði að geta ef til vill ekki nýtt við næstu mynd reynsluna sem ég fékk við að gera þessa.“ íslenskar hugmyndir - Hvað um að ráðast í kvikmynda- gerð erlendis? „Ég hef ekki áhuga á því. Allar hugmyndir mínar eru bundnar við þetta land. Ég held að ég gæti ekki starfað annars staðar enda orðinn vanur vinnubrjálæðinu hér og fer því hvergi.“ - Hvað um að leita eftir erlendu fjár- magni? „Já, ég reyndi það þegar ég var að undirbúa Skytturnar. Sala myndar- innar til Norðurlanda nú er afrakst- ur af því. En ég byrjaði of seint til að eiga von um að fá fjármagn enda var úthlutunin frá Kvikmyndasjóði sein á ferðinni. Það þarf mun meiri tíma til að undirbúa þessa hluti. Er- lend kvikmyndafyrirtæki þurfa minnst ár til að velta hlutunum fyrir sér.“ - En hver sem niðurstaðan með Skytturnar verður. Ætlar þú að sækja um fyrir næstu úthlutun úr Kvikmyndasj óði? „Ég er að melta það með mér. Það kemur vel til greina,“ sagði Friðrik Þór Friðriksson. GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.