Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1987, Síða 36
36
LAUGARDAGUR 21. MARS 1987.
Afmæli
70 ára verður nk. mánudag, 23. mars,
Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir
Schram. Hún tekur á móti gestum
í tilefni afmælisins á morgun, sunnu-
daginn 22. mars, í Félagsheimili
Fóstbræðra, Langholtsvegi 109-111
kl. 16-18.
Félagsvist
Kvenfélag Kópavogs
Spiluð verður félagsvist nk. mánudag, 23.
mars, kl. 20.30 í félagsheimilinu. Allir vel-
komnir.
TiXkyniungar
Kvenfélag Neskirkju
heldur fund mánudaginn 23. þ.m. kl. 20.30
i safnaðarheimilinu. Áríðandi málefni á
dagskrá.
Fundur foreldra í kennara-
félagi Hólabrekkuskóla
haldinn í Gerðubergi 12. mars sl. lýsir yfir
áhyggjum hvert stefnir í skólamálum
þessa lands. Æ erfiðara verður að fá og
halda hæfum kennurum til kennslustarfa
og er þar fyrst og fremst um að kenna lág-
um launum og lélegri aðstöðu til að
uppfylla þær kröfur sem til skólastarfsins
^eru gerðar. Má þar nefna t.d. nauðsyn
þess að skólar séu einsetnir og bekkjar-
deildir hæfílega stórar. Fundurinn hvetur
eindregið til að samið verði sem fyrst í
yfirstandandi kjaradeilu til þess að komist
verði hjá boðuðu verkfalli.
Orðsending til hugvitsmanna
Framleiðsla minjagripa og smámuna fyrir
ferðamenn og aðra er eitt af markmiðum
Leikfangasmiðjunnar Öldu hf. á Þingevri.
auk framleiðslu þroskaleikfanga. Þeir að-
ilar sem eru með hugmyndir að minjagrip-
um og vildu koma þeim í framleiðslu, ættu
að hafa samband við forsvarsmenn Öldu
hf. Einkum er sóst eftir framleiðsluhug-
myndum sem minna á ísland og þó sér í
lagi Vestfirði. Nýtilegar hugmyndir verða
greiddar fullu verði auk prósenta af sölu.
Þeir hugvitsmenn sem kynnu að hafa
áhuga á ofangreindu ættu að hafa sam-
band við Leikfangasmiðjuna Öldu hf. í
síma 94 8181.
Joganámskeið
Didi Susama Adarrya, sem er sérlærður
jógakennari frá Filippseyjum og hefur
margra ára reynslu að baki, verður með
tvö hagnýt jóganámskeið fyrir konur.
Þátttakendum verða kynntar slökunarað-
ferðir og hugleiðsla og rætt verður um
skilning jóga á tilgangi andlegra æfinga.
Einnig verður kennt matreiðsla á jurta-
fæði. Fyrra námskeiðið hefst 24. mars kl.
19.30 og verður á föstudögum í samtals
fjögur skipti, þ.e. nær yfir fjórar vikur.
Frekari upplýsingar fást í síma 27050.
Almanakshappdrætti lands-
samtakanna Þroskahjálpar
Vinningur í mars kom á nr. 21552.
Tónleikar á Kjarvalsstöðum.
Sunnudaginn 22. mars endurtaka Robert
W. Becker barítonsöngvari og David
Knowles píanóleikari tónleika sína frá 14.
mars í vestursal Kjarvalsstaða. Tónleik-
amir eru endurteknir vegna fjölda áskor-
ana en þeir eru haldnir í sambandi við
sýningu Guðrúnar Tryggvadóttur. Tón-
leikarnir hefjast kl. 15. Fyrst á dagskrá
eru „Ástir skáldsins eftir Robert Schum-
Landsmót vélsleðamanna
Landssamband íslenskra vélsleðamanna
mun halda sitt árlega landsmót í Kerling-
arfjöllum 28. og 29. mars nk. Dagskráin
verður mjög fjölbreytt að vanda og mun
fjöldi vélsleðamanna all staðar af landinu
sækja þetta mót.
Óperuveisla í Gamla bíói
Á sunnudag gengst styrktarfélag Islensku
óperunnar fyrir sýningum á óperum af
myndböndum í Gamla bíói. Sýndir verða
valdir kaflar frá óperusýningum í ýmsum
stærstu óperuhúsum heims. Sýnt verður
af myndvarpa á stórt tjald sem komið hef-
ur verið fyrir á svölum Gamla bíós.
Styrktarfélagið hyggst nú í vor efna til
óperukvölda fyrir styrktarfélaga þar sem
heilar óperur verða sýndar með þessum
hætti. Sýningin er opin öllu óperuáhuga-
fólki frá kl. 14-18 en fólki er frjálst að líta
inn hvenær sem er á þessum tíma.
Réttindi og skyldur sjúkraliða
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráð-
herra setti hinn 17. mars sl. reglugerð um
breytingu á reglugerð nr. 352/1983 fyrir
Sjúkraliðaskóla íslands og um réttindi og
skyldur sjúkraliða. Reglugerð þessi trygg-
ir að sjúkraliðar eigi kost á allt að sex
mánaða framhaldsnámi í sérhæfðum
greinum. Þetta hefur lengi verið baráttu-
mál sjúkraliða og bókanir þar að lútandi
verið gerðar í tengslum við kjarasamn-
inga.
Almennur fundur um fisk-
markað á Suðurnesjum
verður haldinn í Glaumbergi. Keflavík,
sunnudaginn 22. mars kl. 14. Frummæl-
endur verða Logi Þormóðsson og Ágúst
Einarsson. Atvinnumálanefnd Suðurnesja
gengst fyrir fundinum.
Burtfararprófstónleikar í
Garðabæ
Marta Guðrún Halldórsdóttir heldur
píanótónleika í safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli í Garðabæ sunnudaginn 22. mars kl.
16. Tónleikarnir eru jafnframt burtfarar-
próf Mörtu frá Tónlistarskóla Garðabæjar
en hún hefur stundað nám við skólann frá
árinu 1979 og kennari hennar þar frá upp-
hafí verið Gísli Magnússon. Marta hóf
píanónám 8 ára gömul og var fyrsti kenn-
ari hennar Kristín Ólafsdóttir. Jafnframt
píanónámi sínu hefur Marta lagt stund á
söngnám hjá Sieglinde Kahmann. Á efnis-
skrá tónleikanna eru verk eftir Bach,
Brahms, Mozart, Skriabin og Bartók.
Málþing um listir
og menningu
Eiga stjórnmálaflokkar að móta sér menn-
ingarstefnu? Hvernig á að ráðstafa
peningum til menningarstarfsemi? Er list
nauðsynleg? Þessar spumingar verða
meðal þeirra sem fjallað verður um á mál-
þingi um listir og menningu í Átthagasal
Hótel Sögu á morgun, sunnudag, sem Al-
þýðubandalagið gengst fyrir. Þar koma
fram fulltrúar ýmissa menningarstofnana
og listgreina og gera grein fyrir þeim
vanda sem á þeim brennur og ræða leiðir
til úrbóta. Að loknum erindum fara fram
umræður. Guðrún Helgadóttir, alþingis-
maður og rithöfundur, setur ráðstefnuna
en málshefjandi er Þorsteinn Gylfason
dósent. Málþingið hefst kl. 13 og er öllum
opið.
ann við texta Heinrich Heine. Eftir hlé
syngur Robert aríur úr óperum eftir Ric-
hard Wagner. Róbert er búsettur hér á
landi og hefur sungið m.a. með Sinfóníu-
hljómsveit Islands og í Þjóðleikhúsinu.
David Knowles býr einnig á Islandi og er
þekktur sem undirleikari auk þess að vera
organisti í Kristskirkju. Allir eru vel-
komnir á tónleikana og sýningu Guð-
rúnar. Aðgangur er ókeypis.
Saga rokksins kemur út
hjá plötuklúbbi AB
Um þessar mundir er verið að dreifa alb-
úmum númer níu, tíu og ellefu í Sögu
rokksins sem út kemur hjá plötuklúbbi
AB. Ein platan er algjörlega helguð Roll-
ing Stones. I pakkanum er einnig boðið
upp á góðan skammt af Ike og Tinu Turn-
er, James Brown, The Monkees, Beach
Boys, The Small Faces, Them og síðast en
alls ekki síst átta blúslög með John My-
all’s Bluesbreakers. Fólk er hvatt til að
hlusta vel og vandlega á gítarsóló Clapt-
ons í Have You Heard). Pakkinn, sem er
fjórar plötur, kostar kr. 1.580. Þeir sem
vilja fá nánari upplýsingar eða ganga í
plötuklúbb AB geta hringt í síma 25125
eða komið í afgreiðslu AB, Austurstræti
18.
Náttúruskoðunarferð
austur fyrir fjall
I dag, laugardag, fer Áhugahópur um
byggingu náttúrufræðihúss kynnisferð um
Ámessýslu. Farið verður frá Norræna
húsinu kl. 9. frá Náttúrugripasafninu,
Hverfisgötu 116 (gegnt lögreglustöðinni)
kl. 9.15 og Árbæjarsafni kl. 9.30. Komið
verður til baka kl. 18. Allir eru velkomn-
ir. Fargjald verður 700 kr. en frítt fyrir
börn. 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðn-
um. Eins og í fyrri ferðum áhugahópsins
mun margt koma þátttakendum skemmti-
lega á óvart. Leiðsögumenn verða þeir
Freysteinn Sigurðsson jarðfræðingur og
Jóhann Guðjónsson líffræðingur. Farið
verður í Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera-
gerði, umhverfisfræðslusetrið að Alviðru
skoðað, þaðan verður farið í Náttúru-
gripasafn Árnessýslu í Safnahúsinu á
Selfossi. Frá Selfossi verður farið í heim-
sókn í tilraunastöðvar Búnaðarsambands
Suðurlands í Laugardælum og á Stóra-
Ármóti. Að lokum verður ekið til Þorláks-
hafnar og litið inn í bóka og minjasafnið
í Egilsbúð.
Hátíðardagskrá í tilefni
af 25 ára afmæli
Helsingforssáttmálans
Mánudaginn 27. þ.m. eru liðin 25 ár frá
undirritun Helsingforssáttmálans, sem er
grundvöllur norræns samstarfs þjóðþinga
og ríkisstjórna Norðurlanda. Af því tilefni
beita Islandsdeild Norðurlandaráðs. Nor-
ræna húsið og Norræna félagið sér fyrir
hátíðardagskrá í Norræna húsinu þann
dag. Dagskráin hefst kl. 20.30 í sal hússins.
Fundur í skólameistarafélagi
íslands,
haldinn í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
17. mars 1987, samþykkir eftirfarandi
ályktun: „Skólameistarar lýsa yfir áhyggj-
um sínum á því ástandi sem nú hefur
skapast í skólum landsins vegna verkfalls
kennara í HÍK. Kjör kennara hafa nú um
langa hríð valdið því að þeir hafa leitað í
önnur störf og er svo komið að veruleg
röskun á námsferli nemenda blasir við.
Skólameistarar beina þeim eindregnu til-
mælum til stjómvalda að þau bæti
launakjör kennara þannig að samningar
náist í yfirstandandi kjaradeilu og
kennslustörf verði jafnan eftirsóknarverð
hæfu fólki.
Reyklaus dagur 27. mars
Ákveðið hefur verið að einn dagur í
marsmánuði, föstudagurinn 27. mars 1987,
verði „reyklaus dagur” hér á landi. Ráð-
gert er að framkvæmd hans verði með
svipuðum hætti og gert var á reyklausum
degi í febrúar 1982. Sá dagur þótti takast
vel. Fjölmargir reykingamenn tóku að
fullu þátt í deginum eins og til stóð og
vitað er að margir þeirra notuðu tækifæ-
rið til að hætta að revkja fyrir fullt og allt.
Löggjöf um tóbaksvarnir hefur verið í
gildi um tveggja ára skeið og haft ómetan-
lega þýðingu fyrir það starf sem unnið
hefur verið. Því er nú lag til að nýta með-
byrinn og hefja öfluga sókn að markmið-
inu um reyklaust Island árið 2000. Það er
von tóbaksvarnanefndar og RlS 2000 að
sem allra flestir reykingamenn gangi í
„reyklausa liðið“ þó ekki væri nema fyrir
þennan eina dag.
Herferð gegn reykingum er núorðið far-
in um mestallan heim. Flestar þjóðir hafa
á undanförnum árum lagt æ ríkari áherslu
á tóbaksvamir og tekið upp öflugar bar-
áttuaðferðir í því skyni.
Markmiðið með reyklausum degi er
fyrst og fremst:
1. Að fá sem flesta til að reykja
ekki þann 27. mars.
2. Að fram komi fjölbreyttar upplýs-
ingar og fróðleikur um afleiðingar
tóbaksreykinga og að umræða
skapist um óbeinar reykingar og
skaðsemi þeirra og um reyklausa
staði.
3. Að sem flestir hætti að reykja
þennan dag og að skipulögðum
leiðbeiningum verði dreift til þeirra
sem þess óska.
4. Að styrkja þann vilja sem fyrir
er hjá reykingarmönnum að hætta
reykingum. Kannanir hafa leitt í
ljós að mikill meirihluti þeirra hef-
ur hug á að hætta en vantar tilefnið.
Eins og áður segir verður reyklaus dag-
ur þann 27. mars og óska tóbaksvarnar-
nefnd og RÍS 2000 eftir því að sem flestir
láti þetta mikilvæga málefni til sín taka.
Liðsinni allra þarf til að unnt sé að upp-
skera ríkulega.
Starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar
munu veita aðstoð og upplýsingar, eftir
því sem við verður komið, á heilsugæslu-
stöðvum um allt land. Þann 27. mars
verður opið hús í Skógarhlíð 8, húsi
Krabbameinsfélags Islands, þar sem veitt
verður öll hugsanleg ráðgjöf þeim sem
hyggjast nýta tilefnið til að hætta að
reykja.
Jafndægurtónleikar
Tónlistarskólans
Tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykja-
vík heldur árlega tónleika sína að Kjar-
valsstöðum mánudaginn 23. mars nk. Þar
verða fiutt frumsamin verk nemenda, ein-
leiksverk, kammerverk og raftónlist. Öll
verkin eru fiutt af nemendum Tónlistar-
skólans. Tónleikarnir eru öllum opnir.
Stuðningsyfirlýsing
Nemendur í Kennaraháskóla Islands lýsa
hér með fullum stuðningi við félaga í HlK
í yfirstandandi kjarabaráttu þeirra. Það
er augljóst að með auknum kröfum, sem
gerðar eru til kennara, er nauðsynlegt að
almenningur geri sér grein fyrir mikilvægi
og ábyrgð þess starfs er kennarinn innir
af hendi. Við skorum því á stjórnvöld og
almenning að taka viðhorf sín til kennara-
starfsins til gagngerrar endurskoðunar
svo að það megi verða metið að verðleik-
um.
Bókmenntakynning
í Norræna húsinu
I dag 21. mars kl. 16 verður síðasta norr-
æna bókmenntakynningin á þessu vori í
Norræna húsinu og verða að þessu sirini
kynntar finnskar bækur. Dagskráin hefst
með því að fmnski sendikennarinn, Timo
Karlsson, gerir grein fyrir helstu bókum
sem komu út í Finnlandi árið 1986 og tal-
ar hann á íslensku. Að erindi hans loknu
ræðir gestur Norræna hússins, Annika
Idström rithöfundur, um verk sín. Allir eru
velkomnir á bókmenntakynninguna.
Frá skrifstofu borgarlæknis
Farsóttir í Reykjavíkurumdæmi í janúar
1987, samkvæmt skýrslum 10 lækna og
læknavaktar:
Innflúensa 63
Lungnabólga 30
Kvef, hálsbólga. lungnakvef o.fl. 739
Streptokokkahálsbólga, skarlatsótt 41
Einkirningasótt 0
Hlaupabóla 9
Mislingar l
Hettusótt 57
Rauðir hundar 0
Maurakláði 3
Iðrakvef 125
Önnur matareitrun 0
Lúsasmit (þ.m.t. flatlús) 13
Lekandi 27
Þvagrásarbólga 31
Chlamydiae 45
*
Skógræktarfélag Úlfljótsvatns
stofnað
Skátar munu stofna félag til að vinna að
skógrækt og gróðurvernd við Úlfljótsvatn.
Stofnfundur félagsins verður í ráðstefnu-
sal Hótel Loftleiða þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 20.30. Á fundinum verður kynning
og umræða um skógræktaráætlun fyrir
Úlfljótsvatn og fyrirhugaða starfsemi fé-
lagsins auk þess sem félaginu verða sett
lög og því kosin stjórn. Skátar stigu fyrstu
skrefin til markvissar skógræktar er þeir
gróðursettu tré í lund til minningar um
Helga Tómasson skátahöfðingja í júlí
1986.1 sumar er fyrirhugað að gera veru-
legt skógræktarátak. og þarf liðveislu
eldri skáta og áhugafólks um skógrækt,
því margar hendur vinna létt verk, eins
og sagt er.
Fermingar
Fella og Hólakirkja
Ferming og altarisganga sunnud. 22.
mars kl. 14.00. Prestur: sr. Hreinn
Hjartarson.
Auður S. Arndal, Vesturhólum 15
Auður Þórisdóttir, Seiðakvísl 22
Barabara Björnsdóttir, Klapparbergi 25
Birna Sif Atladóttir, Vesturbergi 102
Daði Þór Veigarsson, Suðurhólum 8
Einar Páll Kjartansson, Rituhólum 4
Eygló Jósephsdóttir, Dúfnahólum 4
Freydís Kneif Kolbeinsd., Austurbergi 34
Gréta Pétursd. Jessen, Krummahólum 2
Guðbjörg Lilja Erlendsd., Vesturhólum 5
Halldór Viðar Jakobss., Torfufelli 33
Haraldur Guðmundsson, Austurbergi 32
Helgi Eiríksson, Súluhólum 2
Kristján Öm Ingibjörnss., Vesturbergi 123
Magni Snær Steinþórss., Vesturbergi 88
Magnús Björnss., Neðstabergi 11
Ólafur Hólm Theódórss., Fýlshólum 5
Sigtryggur Öm Sigurðss., Krummahólum
4
Steinar Sigurðss., Klapparbergi 14
Steinunn Kristbjörg Zóphaníasdóttir,
Vesturbergi 98
Menna, ný hárgreiðslustofa
Nýlega tók Valgerður Jóhannsdóttir við
rekstri hárgreiðslustofu Gunnþórunnar
Jónsdóttur í JLhúsinu, Hringbraut 121,
2. hæð. Opið verður alla daga frá kl. 9 til
18.30 föstudaga frá kl. 9-20 og laugardaga
frá kl. 10 til 16. Veitt verður öll almenn
hárgreiðsluþjónusta. Ber hin nýja hár-
greiðslustofa nafnið Menna og síminn er
22500.
Tapað - Fundið
Tík í óskilum á
Dýraspítalanum
Á Dýraspítalanum er í óskilum grábrún
yrjótt tík sem fannst 15. mars í Árbænum.
Upplýsingar í síma 76620.
Bridge
Bridgedeild Skagfirðinga
Þriðjudaginn 17. mars var fram
haldið barometerkeppni félagsins,
spilaðar voru 5 umferðir. Efstu skor
kvöldsins hlutu:
stig
1. Baldur Ásgeirsson -
Magnús Halldórsson 114
2. Bragi Björnsson -
Þórður Sigfússon 110
3. Brynjólfur Jónsson -
Ingimar Valdimarsson 109
4. Sigurjón Helgason -
Sveinn Sigurgeirsson 91
5. Óskar Karlsson -
Steingrímur Jónasson 90
6. Sigmar Jónsson -
Vilhjálmur Einarsson 79
7. Esther Jakobsdóttir -
Þorfinnur Karlsson 51
8. Guðrún Hinriksdóttir -
Haukur Hannesson 46
9. Jakob Ragnarsson -
Friðgeir Guðnason 38
10. Bjarni Pétursson -
Ragnar Björnsson 35
Efstir að stigum eru þá þegar 5 um-
ferðir eru eftir:
1. Esther Jakobsdóttir -
Þorfinnur Karlsson 554
2. Bragi Björnsson -
Þórður Sigfússon 435
3. Guðrún Hinriksdóttir -
Haukur Hannesson 390
4. Baldur Ásgeirsson -
Magnús Halldórsson 381
5. Jakob Ragnarsson -
Friðgeir Guðnason 375
6. Kristinn Sölvason -
Victor Björnsson 373
7. Sigmar Jónsson -
Vilhjálmur Einarsson 303
8. Guðmundur Theodórsson -
Óskar Ólafsson 252
9. Sigurjón Helgason -
Sveinn Sigurgeirsson 214
10. Jörundur Þórðarson -
Hjálmar S. Pálsson 194
Við minnum á ferð bridgedeildar-
innar á sæluviku Skagfirðinga,
spilaður verður tvímenningur á
föstudagskvöld en sveitakeppni á
laugardag. Upplýsingar og skráning
hjá Sigmari s. 187070 og 35271.
Bridgefélag Breiðholts
Að loknum 19 umferðum í barómet-
erkeppni félagsins er staða efstu para
þessi.
stig
Magnús Oddsson-
Lilja Guðnadóttir 237
Ragnar Ragnarsson-
Stefán Oddsson 202
Anton R. Gunnarsson-
Baldur Árnason 146
Rafn Kristjánsson -
Þorsteinn Kristjánsson 143
Ólafur Tryggvason -
Sveinn Harðarson H5
Guðmundur Baldursson -
Jóhann Stefánsson 107
Næsta þriðjudag lýkur keppninni.
Annan þriðjudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Spilað er
í Gerðubergi kl. 19.30 stundvíslega.