Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1987.
Viðskipti
DV
Skötuselurinn vinsæll
og dyr matur í Mflanó
Reykjavík
Mjög lítið fiskirí hefrn' verið hjá
bátum úr Reykjavík eins og víðast
hvar annars staðar á vertíðarsvæðun-
um.
Togarar Granda hf. hafa landað að
undanfömu. 23. apríl landaði bv. Ás-
þór 140 lestum af fiski, aðallega karfa,
heildarverðmæti kr. 2,270 millj. 27.
apríl landaði bv. Jón Baldvinsson 189
lestum af blönduðum fiski, aðallega
grálúðu, annað karfi og ufsi, heildar-
verðmæti kr. 3,61 millj. Bv. Hjörleifur
landaði sama dag 140 lestum af karfa,
verðmæti ca 2,5 millj.
England
Lifnað hefur yfir markaðnum á ný
eftir hrunið sem var um páskana.
Gámasölur í Bretlandi 27. april 1987
Sundurl. eftirteg. Seltmagn.kg Söluv. ísl. kr. kr.kg
Þorskur 58.064 3.930.677 67.70
Ýsa 18.695 1.665.677 89.10
Ufsi 1.405 62.487 44.49
Karfi 1.341 58.394 43.55
Koli 18.730 1.454.773 77.67
Blandað 25.751 1.822.268 70.76
Samtals: 123.986 8.994.279 72.54
27. apríl landaði bv. Vigri í Bremer-
haven 10,5 sml., meðalverð kr. 38,70.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra
yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára.
65-69 ára geta losað innstæður sínar með 9 mán-
aða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara
og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikn-
ingarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert inn-
legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóð-
um eða almannatryggingum. Innstæóur eru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 15,5%
og ársávöxtun 15,5%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 10% en 2%
bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp
í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 13,64%
á fyrsta ári. Hvert innlegg er meðhöndlað sérstak-
lega. Áunniö vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum
en vaxtahækkun seinkar um þrjá mánuði ef inn-
leggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður
samanburður við ávöxtun þriggja mánaöa verö-
tryggðs reiknings, nú meó 1% vöxtum, og sú tala
sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta
fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif
á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin meó 20%
nafnvöxtum og 21% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæóu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með
3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt
dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir
færast misserislega.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mán-
uði á 24,5% nafnvöxtum og 26% ársávöxtun, eða
ávöxtun verðtryggðs reiknings meó 3,5% vöxtum
reynist hún betri. Hvert innlegg er laust að 18
mánuðum liðnum. Vextir eru færöir misserislega.
Iðnaöarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 17% vexti meó 17,7%
ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu. Verðtryggð bón-
uskjör eru 2,5%. Á sex mánaöa fresti er borin saman
verðtryggð og óverðtryggð ávöxtun og gildir sú
sem hærri er. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju
sex mánaða tímabili. Hreyfðar innstæöur innan
mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á mán-
uöi, og verðbætur reiknast síðasta dag sama
mánaðar af lægstu innstæðu. Vextir færast misser-
islega á höfuðstól.
18 mánaða bundinn reikningur er með 21%
ársvöxtum og 22,1% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 20%
nafnvöxtum og 21,0% ársávöxtun. Af óhreyfðum
hluta innstæóu frá síðustu áramótum eða stofn-
degi reiknings síðar greiðast 21,4% nafnvextir
(ársávöxtun 22,4%) eftir 16 mánuði og 22% eftir
24 mánuði (ársávöxtun 23%). Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin.
Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu. Vextir færast misserislega á höfuðstól.
Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds
næstu tvö vaxtatímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuð-
ina 11%, eftir 3 mánuði 15,5%, eftir 6 mánuði
19%, eftir 24 mánuði 20%. Sé ávöxtun betri á 3ja
eða 6 mánaða verótryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn. Vextir færast á höfuðstól
síðasta dag hvers árs.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 19,5%
nafnvexti og 20,4% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
-mjög
París
í norska blaðinu Fiskaren 24. apríl
er sagt meðal aniiars frá markaðnum
í París. Á þriðjudag kom á markaðinn
hjá Rungis alls 540 lestir, Jjar af var
innfluttur fiskur 97 lestir. Á miðviku-
dag var minna framboð, um 327 lestir
bárust á markaðinn, þar af 47 lestir
inníluttur fiskur. Að þessu sinni var
nokkuð um norskan fisk, þorsk, ufsa
og karfa sem ekki var verulega góður.
Franskur Innfluttur
Teg. fiskurkr/kg fiskurkr/kg
Þorskur. smár 168-205 160-180
" meðalst. 190-225
Ufsi 90-129 96-129
Karfi 94-129
Sá lax sem nú er á markaðnum er
af misfnunandi gæðum. Nokkuð kem-
ur þó af ferskum og góðum laxi en of
mikið er af laxi, sem hefur verið ísað-
ur með grófum ís, sem hleypur í hellu
og viðheldur ekki gæðum fisksins.
Eldisstöðvalax var á kr. 321 til 347 kg,
enn sem fyrr eru Skotar með sjógeng-
inn lax á markaðnum á 707 til 771 kr.
kg, sama verð og áður á reyktum laxi.
Mílanó
Fiskmarkaðurinn í Mílanó hefur
stæóu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist betri gildir hún. Vextir færast misserislegu.
Af útttekinni upphæó reiknast 0,75% úttektargjald,
nema af uppfærðum vöxtum síðustu 12 mánaða.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og
verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú
17,72% (ársávöxtun 18,36%), eóa ávöxtun 3ja
mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eft-
ir sérstökum reglum, sé hún betri. Samanburður
er gerður mánaðarlega en vextir færðir í. árslok.
Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 10%, þann mánuó. Heimilt er að taka
út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess
að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út
af reikningnum í 18-36 mánuði tekur hann á sig
kjör sérstaks lotusparnaðar meó hærri ábót. Óverð-
tryggð ársávöxtun kemst þá í 19,49-22,93%,
samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin-
reglan er að innistæða, sem er óhreyfö í heilan
ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða bundins óverö-
tryggs reiknings, nú með 20,4% ársávöxtun, eða
6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 2% vöxt-
um, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann
ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þessara
„kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir
séu út vextir og veróbætur, sem færðar hafa verið
á undangengnu og yfirstandandi ári. Úttektir um-
fram það breyta kjörunum sem hér segir:
Við eina úttekt í fjórðungi reiknast almennirspari-
sjóðsvextir af úttekinni fjárhæó, en kaskókjör af
eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæöa
reikningsins sparisjóósbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan
dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlutfallslegar
verðbætur m.v. dagafjölda í innleggsmánuði, en
ber síðan kaskókjör út fjórðunginn. Reikningur,
sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða almenna
sparisjóðsbókavexti en getur áunnið sér kaskókjör
frá stofndegi að uppfylltum skilyröum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggður
og meó ávöxtun 6 mánaða reikninga meó 3,5%
nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er
gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum
trompvöxtum, 21% meó 22,41% ársávöxtun. Miö-
að er við lægstu innstæðu í hverjum ásfjórðungi.
Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim
mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæóan eldri
en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóðsvexti,
9%. Vextir færast misserislega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er
meó innstæðu bundna í 12 mánuói, óverðtryggða
en á 22% nafnvöxtum og 23,3% ársávöxtun. Miss-
erislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reikn-
ings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við
óverðtryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira
gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóða er meó innstæðu
bundna í 18 mánuði óverðtryggða á 22% nafn-
vöxtum og 23,3% ársávöxtun eða á kjörum 6
mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxt-
um. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru
lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á eftir.
Sparisjóóirnir í Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi,
Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri,
Árskógsströnd, Neskaupstað, Eyrarbakka, og
Sparisjóður Reykjavíkur, bjóóa þessa reikninga.
Iitið fiskirí á vetraivertíðinni
Fiskmarkaðimir
Ingóifur Stefánsson
nokkra sérstöðu hvað neysluvenjur
snertir. Eftir því sem íramkvæmda-
stjóri markaðarins, Dottoressa Pierelli
segir eru íjögur atriði sem einkenna
markaðinn:
4. Markaðurinn skiptist þannig að
almenningur vill ódýrari fiskinn en
hótelin dýrari tegundimar. Það sem
helst vekur athygli nú er hið háa verð
á skötusel sem hefur selst fyrir 556 kr.
kg, rauðspretta 132 kr. kg og rauð-
sprettuflök á 256. Útvatnaður þurr-
fiskur á 345 kr. kg.
1) Neytendur vilja helst smáan fisk
úr Miðjarðarhafinu, þeim finnst hann
hafa sérstakan keim sem þeir vilja
með engu móti missa af. Italir vilja
þennan fisk einnig fyrir það að hann
er alveg nýr þegar hann kemur á
markaðinn.
2) Þeir vilja smáfisk.
3) Þeir vilja ekki fisk sem þarf að
skera í sneiðar.
Þetta e- fiskurinn sem Mílanóbúar
borga háu verði, þeir gefa næstum 600
krónur fyrir kílóið.
Framkvæmdastjórinn er ekki á
þeirri skoðun, sem sumir halda fram,
að innflutti fiskurinn lækki verðið á
fiskinum, heldur aukist framboðið á
tegundum sem ekki fást úr Miðjarðar-
hafinu.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð veröbréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggó með veði
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréfin
eru ýmist verðtryggð eóa óverðtryggð og meó
mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á,
óverðtryggðum skuldabréfum vegna fasteignavið-
skipta eru 20%. Þau eru seld með afföllum og
ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verðtrygg-
ingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins getur
numið 2.562.000 krónum á 2. ársfjórðungi 1987,
hafi viðkomandi ekki átt íbúð á síðustu þrem árum,
annars 1.793.000 krónum. Út á eldra húsnæöi
getur lán numið 1.793.000 krónum, hafi viðkom-
andi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.255.000
krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til allt aö 40 ára og verðtryggð. Vext-
ir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verð-
bætur og vextir, síöan hefjast afborganir af
lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóófélögum lánsrétt, lánsupphæðir, vexti
og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mán-
uðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra
starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóð-
um, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð
og meó 5-6,75% vöxtum. Lánstími er 16-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóöa eða safna
lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir
við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og
ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum veröur innstæóan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raun-
ávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðiö
neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir, 6 mán-
uði. Þá verður upphæóin 1050 krónur og ofan á
þá upphæó leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina.
Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og
ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 2,5% á mánuði eða 30% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala i apríl 1987 er 1643 stig en
var 1614 stig í febrúar. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1987 er 305
stig á grunninum 100 frá 1983.
Húsaleiguvisitala hækkaði um 3% 1. april. Þessi
visitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem
við hana er miðað sérstaklega í samningum leigu-
sala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar miðast við
meðaltalshækkun launa nasstu þrjá mánuði á und-
an.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur 10-11 Lb
óbund. Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-19 Vb
12mán. uppsögn 13-23 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 21-24,5 Bb
Ávísanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar 4-7 Sp
Innlán verðtryggð
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab,Bb, Lb.Sb, Úb.Vb
6 mán. uppsögn Innlán meðsérKjörum 2,5-4 Ab.Úb
10-22
Innlán gengistryggö
Bandaríkjadalur 5,25-5,75 Ab
Sterlingspund 8,5-10,25 Ab
Vestur-þýsk mörk 2,5-4 Ab
Danskarkrónur 9-10,25 Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 19-21 Lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 22-23 eða kge
Almenn skuldabréf(2) 21-22 Lb.Sb, Úb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verötryggð 20-22 Lb
Skuldabréf
Að 2.5árum 6-7 Lb
Til lengritíma 6,5-7 Bb.Lb, Sb.Úb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 16,25-21 Ib
SDR 7,75-8,25 Bb.Lb, Úb.Vb
Bandaríkjadalir 7,5-8,75 Sp
Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Lb, Úb.Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóóslán 5-6,75
Dráttarvextir 30
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala april 1643stig
Byggingavísitala 305 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði3%1.april
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 110kr.
Eimskip 242 kr.
Flugleiðir 168kr.
Hampiðjan 162 kr.
Iðnaðarbankinn 112 kr.
Verslunarbankinn 113 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðiia, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil-
alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema í Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Sapnvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
London
Á markaðnum í Billinggate hefúr
myndast jafnvægi, að fiskkaupmenn
telja, og að í náinni framtíð muni
verða um eðlilegt íramboð að ræða
þegar veður batni og heimamenn fari
að landa reglulega. Það sem einkenndi
markaðinn að þessu sinni var að eng-
in fersk síld var á markaðnum, aðeins
frosin síld írá Noregi. Veiðin við Skot-
land hefst ekki fyrr en í júní svo það
verður ekki síld frá Clyde íyrr. Verð
á laxi hefur verið svipað og verið hef-
ur. Kaupmenn kvarta þó yfir því hvað
laxinn á markaðnum er smár. Skoskur
sjógenginn lax er á háu verði eða 520
til 554 kr. kg. Talið er að nokkrir stór-
ir innflytjendur eigi nokkum lager af
rækju og sé hún í misjöfnum umbúð-
um og því ekki gott að gera sér fylli-
lega grein fyrir verðinu eins og það
er nú. Hausaður þorskur var á 149 kr.
kg, ensk þorskflök 220, íslensk þorsk-
flök 158 kr., ufsaflök 100 kr., ýsuflök
210 kr. og sólkoli 210 kr. kg.
Verslunarbankinn:
Bankinn
borgar
fyrir
folkið
Það er ekki ónýt þjónustan sem
Verslunarbankinn býður um þessar
mundir. Hann býðst til þess að borga
reikningana fyrir Pétur og Pál. Ekki
þarf að gera annað en að senda bank-
anum reikningana eða tilkynna
honum hvað eigi að borga og bankinn
borgar síðan. Þetta heitir greiðslu-
þjónusta Verslunarbankans. Það
verður þó að taka fram að viðkomandi
skuldari verður að eiga inni fyrir
greiðslunum.
Tilgangurinn með þessari þjónustu
er að spara þeim snúninga sem ekki
geta með góðu móti stundað bankana
á vinnutíma, og ekki síst þeim sem eru
fjarstaddir um lengri eða skemmri
tíma, svo sem sjómönnum. Þá hentar
þetta fólki sem á yfirleitt erfitt með
ferðalög, svo sem fötluðum og öldruð-
um. Fyrir þjónustuna er borgað
árgjald í byrjun og síðan færslugjald
fyrir hveija greiðslu. Þetta eru ekki
háar upphæðir.
-HERB
Byggingarkostnaður:
Vísitalan
hækkar ögn
Ekki er mikið skrið á vísitölu
byggingarkostnaðar í þessum
mánuði en hún hækkar samt.
Hækkunin er 0,65‘yo. Vísitalan í
apríl er því 306,96 stig. Á eldri
gi'unni er hún 4.549 stig.
Síðustu þijá mánuði hefúr bygg-
ingarvísitalan hækkað um 3,9%
sem jafiigildir 16,4% á heilu ári.
Síðustu 12 mánuði hefur hún
hækkað um 15,7%.
-HERB